Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Verðkönnun Verðlagsstofnunar: Gífúrlegur verðmunur innan sömu vörutegunda Verðmunur er oftast mikill innan sömu vörutegundar ólíkra vöru- merkja. Þá er einnig oft um gæðamun að ræða. Verðlagsstofnun hefur látið skrá samanburð á fjölda vörutegunda í rúmlega fimmtíu mat- vöruverslunum á höfuðborgarsvæð- inu. Mesti munurinn var á hrís- gijónum, en Success hrísgijón voru 291% dýrari en Coop grjón, Pal- molive uppþvottalögur í 1/2 I umbúðum varÆ47% dýrari en sama magn af Family choice í eins lítra umbúðum. Þá var Rowntree kakó í 125 g dósum 242% dýrara en sama magn af Record kakói í 1 kg pokum. Cascade þvottaefni fyrir uppþvotta- vélar i 567 g pakka var 228% dýrara en Glæ þvottaefhi í 3ja kg pakka. I sex tilvikum var dýrasta vöru- merkið meira en helmingi dýrara en það ódýrasta. í íjórum tilvikum af fjórtán var minna en helmingsverð- munur á dýrasta og ódýrasta vörumerkinu. Þá var einnig verðmunur á sömu vöru á milli verslana. Á Juvel hveiti munaði 63% frá hæsta verði til lægsta, 158% á HP tómatsósu, 157% á Herseys kakói og 86% á Hreinol uppþvottalegi. Kannað var hvemig verðið var í hinum ýmsu magneiningum. í nær öllum tilvikum reyndust stærri ein- ingamar ódýrari en þær minni miðað við sömu magneiningu. Stóru pakkningarnar vom frekar seldar í stórmörkuðum og stærri hverfa- verslunum I fréttatilkynningu Verðlagsstofn- unar er lögð áhersla á að hér sé eingöngu um verðsamanburð að ræða en ekki lagt mat á gæði ein- stakra vörumerkja. Samkvæmt þessari könnun virðist vömúrval vera gífurlega mikið. Sem dæmi má nefna að í þessum verslun- um er hægt að fá einar 18 tegundir af kakói í mörgum stærðareiningum, 16 tegundir af öli, þar af em aðeins þrjár íslenskar, 21 tegund af kakó- malti, einar 23 tegundir af tómat- sósu, 6 tegundir af erlendum frönskum kartöflum, 13 tegundir af hrísgijónum, 16 tegundir af þvotta- efni fyrir uppþvottavélar, þar af em 3 íslenskar, 27 tegundir af upp- þvottalegi og 22 tegundir af mýking- arefnum. Verðsamanburðinum verða gerð frekari skil á neytendasíðu síðar,- A.Bj. Ólafsvíkingar: Vilja halda áfram með Villa videó - íhuga að sækja um leyfi fýrir sjónvarpsútsendingum Mikill áhugi virðist vera meðal Ólaf- svíkinga að halda áfram sjónvarpsút- sendingum Villa videós, sjónvarps- stöðvarinnar þar í bæ sem hefur verið starfrækt í tæp fimm ár. Frá upphafi hefur stöðin verið rekin án leyfis og um síðustu mánaðamót var ákveðið að hætta útsendingum vegna nýrra útvarpslaga. Nýlega var síðan haldinn fundur meðal bæjarbúa og skorað á Vilhelm Ámason, stjómanda stöðvar- innar, að halda áfram rekstri og sækja um leyfi fyrir honum. Um 70 manns mættu á fundinn. „Ég var að spá í að hætta þessu al- veg. Ef það verður hins vegar einhliða skorað á mig að halda áfram rekstrin- um muri ég ekki skorast undan því," sagði Vilhelm Ámason í viðtali við DV. • Ákveðið hefur verið að ganga í hús á Ólafsvík næstu daga og kanna hug bæjarbúa til áframhaldandi útsend- inga. Einnig verða málefhi stöðvar- innar kynnt í beinni útsendingu Villa videós! Að sögn Vilhelms er hugmyndin sú að stöðin verði í eigu bæjarbúa og hann beri ábyrgð á rekstrinum.-APH Vilhelm Árnason, stjórnandi Villa videós í Ólafsvík, er tilbúinn að halda áfram útsendingum ef Ólafsvíkingar óska eftir því. Athugasemd fyrrverandi brunamálastjóra: á skjá en ekki dóm? Vegna ummæla Páls Magnússonar Það gerði ráðherrann með bréfi til í DV fóstudaginn 4. apríl sl. tel ég þingmannsins hinn 26. febrúar sl. og nauðsynlegt að skýra málið nánar bréfið liefur einnig verið sent frétta- fyrir lesendum blaðsins. stjóra sjónvarpsins með ósk um í kvöldfréttatíma sjónvarpsins 10. birtingu en án árangurs. febrúar sl. lýsti Páll Magnússon Nú spyi- ég Pál Magnússon, frétta-' þeirri kröfu Guðmundar Einarsson- stjóra um stundarsakir, hvemig á ar, formanns Bandalags jafnaðar- því standi að upplýsingum brana- manna, í bréfi til félagsmálaráðherra málastjóra um ástand branavama í að brunamálastjóri ríkisins yrði þá landinu og svari félagsmálaráðherra þegar leystur frá störfum. við kröfu Guðmundar Einarssonar I máli og myndum var vitnað til erekkitafarlaustkomiðáframfæri? ásakana Guðmundar í bréfinu um Af hveiju birtir þú ásakanimar á „hörmulegt ástand branavama'1 í skjá sjónvarpsins en ekki dóminn? Páll Magnússon um ásakanir Þórls Hilmarssonar: Viðurkenndi að ekkihefði verið farið rangt með „Viö vorum með tv*r ituUar góðn fréttamennvku. Daginn rflir v»r onnur «tutt frétt sogunm scm fríttamál Hann vildi fréltir um þetta mál." aagAi Páll „I fym fréttinm varekkcrt annað þar «em «agt var frá því tamkomu- koma á framfa-n lciöréttingu rn MagnÚKnon. frétuunaöur »jón- cn vitnaö í bréf Guömundar F.in- lagi «cm l»ónr hafði jtert viö iljórn viðurkcnndi aö i fréttinm hefði varps. cr DV bar undir hann full- aruonar alþingiamenns »cm hann Brunamála«tofnunar ekki veríð fanö rangt meö citt yröingu Þóría Hilmaresonar. fyrr- ha/öi fyrr um daginn dreifl i Al- « einasta atnði or þvi væri í ajáHu verandi brunamálastjóra, um að þinjp og »ajt frá innihaldi þc*« Viku eöa tiu dogum aeinna hafði «ér ckkcrt að leiðrctla," »agði l’áll fréttaflulningur sjónvarpa um Þón llilmaresyni var boöið aö Þónr samband og kvaöst þá vcra Magnússon. brjnamálastjóra i febrúar hcföi »c(ja »itt alit i viðtali cöa mrð nlbúinn f.g »a(Ai honum þá eitt- -KMU :• veríö Krumciöandi og ósamboöinn oArum ha-ttí en hann afþakkaði. hvaö á þá leiö aö málið va>rí úr Frétt DV sl. föstudag, þar sem Páll Magnússon fréttamaður svarar Þóri Hilmarssyni, fyrrverandi brunamálastjóra. landinu og til skrifa Helgarpóstsins um „meinta hagsmunaárekstra brunamálastjóra”, sem hvoru- tveggja gefi tilefni til tafarlausrar hrottvikningar úr starfi. Aðeins íjórum dögum síðar, eða 14. febrúar, hrakti brunamálastjóri fúllyrðingar þingmannsins í ítarlegu bréfi til Páls þar sem sjónvarpinu vora fengnar í hendur óyggjandi tölulegar upplýsingm’ um ástand bmnavama hér á landi og í saman- burði við aðrar þjóðir, bæði hvað varðar eignatjón og manntjón í elds- voðum á áranum 1981-1984. Þess var óskað að sjónvarpið birti þessar upplýsingar en það var ekki gert þrátt íyrir ítrekaðar óskir í því efhi. Tekið skal fram að um algjör- lega nýjar fréttir var að. ræða sem ekki hafa áður verið opinberlega birtar - og svo er enn. Hvað varðar kröfu Guðmundar Einarssonar til félagsmálaráðherra um tafarlausan brottrekstur brana- málastjóra úr starfi þá var það að sjálfsögðu ráðherrans að svara því en ekki branamálastjóra. Þú hófet sjálfúr máls á þessu máli og hvers vegna skorast þú undan því að ljúka fréttinni? f kvörtunarbréfi mínu til stjómar sjónvarpsins era öll gögn málsins aS minni hálfu lögð fram og ekkert dregið undan. Þar segi ég m.a. að eins og málið sé sett fram í myndum Og máli á skjá sjónvarpsins hafi í raun verið um hreint mannorðsmorð að ræða nema leiðréttingar og nýjar upplýsingar frá brunamúlastjóra fá- ist einnig birtar. Ég skora á þig og sjónvarpið að birta bréf félagsmálaráðherra frá 26. febrúar til Guðmundar Einarssonar, án þess að draga þar nokkuð undan. Ég skora einnig á sömu aðila að birta þær tölulegu upplýsingar sem gefnar hafa verið um ástand bruna- vama í landinu hvað varðar eigna- tjón og mannslút i eldsvoðum hér á landi og í samanburði við aðrar þjóð- ir. Með kveðju Þórir Hilmarsson verkfræðingur, fyrrv. brunamálastjóri. I dag mælir Daqfari I dag mælir Dagfari_______i dag mælir Dagfari Bossi borgarstjóri Borgarstjómarkosningamar nálg- ast óðum. Flokkarnir era flestir hveijir búnir að stilla upp listum sín- um og kennir þar ýmissa grasa. En enda þótt jafnmargir séu til fram- boðs á hveijum lista má búast við að jafnræðið verði ekki jafnmikið meðal kjósenda. Ljóst er að kosning- amar í Reykjavík munu fyrst og fremst snúast um Davíð borgar- stjóra og þá ekki fyrir slælega frammistöðu heldur fyrir hitt að hann hafi reynst of stjórnsamur. Það þykir sem sagt helsti ljóður á ráði borgarstjóra að hann stjórni of mik- ið, geri of mikið og sjáist of mikið. Sýnist manni að þetta verði helsta vopnið í höndum núverandi minni- hlutaflokka, sem samkvæmt skoð- anakönnunum hafa fylgi á bilinu fiögur til tuttugu prósent. Áhöld eru hins vegar um það hvort það verði Framsóknarflokkur eða Alþýðuflokkur sem slefi inn fjórum prósentum í atkvæðamagni og reki þannig lestina. Það fer eftir þvi hvort Flokkur mannsins býður fram. Ekki er þó að sjá að þessir flokkar hafi neina minnimáttarkennd af væntan- Iegu fylgi sínu og Alþýðuflokkurinn hefur nú fyrir fáum dögum dreift inn um bréfalúgur miklu blaði sem hann kallar: Nýjar leiðir. f þetta blað ritar efsti maður list- ans hátiðargrein þar sem hann af Iitillæti sínu lætur þess getið að ef sú staða komi upp að loknum kosn- ingum að „við ráðum borginni og verðum að leggja til. borgarstjóra" þá muni hann ekki skorast undan því starfi. Þessi frambjóðandi heitir Bjami P. Magnússon og var lengi framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins eða á þeim tíma þegar Alþýðuflokk- urinn náði þvi að koma fylgi sinu úr fimmtán prósentum niður í fjögur. Seinna gekk hann svo úr flokknum enda ýmsar fjárreiður óuppgerðar sem flokksforystan vildi láta hann gera grein fyrir. Þá ganga menn úr flokkum þegar þeir eiga að fara að standa í skilum. Um tíma rak Bjarni þessi bleiufabrikku í Kópavogi og auglýsti Bossableiur, en af því að þeir sem þurftu að nota bleiurnar voru ekki komnir á kosningaaldur gekk reksturinn illa og lagðist af. Skyndilega og flestum á óvart dúkkaði Bjami P. Magnússon aftur upp í Alþýðuflokknum þegar maður gekk undir manns hönd til að koma núverandi borgarfulltrúa fyrir katt- amef og gaf kost á sér til að fella borgarfulltrúann. Endaði sá slagur með því að borgarfulltrúinn kærði kosninguna og taldi að fótboltafélög í Reykjavik hefðu ráðið niðurstöðu hennar. Borgarfulltrúinn hefði sennilega kært Sementsverksmiðj- una eins og kollegi hans á Skaganum ef sú verksmiðja hefði haft kosninga- rétt. AHt varð þetta þó árangurslaust og endurborinn og endurhæfður bleiuframleiðandinn varð að lokum útnefndur í fyrsta sæti. Um það leyti voru birtar skoðanakannanir um fylgi Alþýðuflokksins sem sýndu að endurkoman hafði aftur tryggt flokknum þau fjögur prósent sem flokkurinn hafði meðan Bjami var í flokknum i hið fyrra skipti. Nú er þessi maður búinn að finna það út að hann geti orðið borgar- stjóri eftir næstu kosningar. Verður að segja það eins og er að það þarf heiimikla dómgreind og annað eins af sjálfsþreki til að koma sér upp sliku litillæti. Auðvitað er það ný leið i valdastólana og borgarstjóraemb- ættið að stytta sér leiðina með fjögurra prósenta fylgi í kosningum, enda hefur sú leið ekki verið farin úður svo vitað sé. Sjálfsagt hefur það verið ný leið hjá Bjarna P. Magnús- syni þegar hann ákvað að segja sig úr Alþýðuflokknum til að ganga í Bandalag jafnaðarmanna og stytta sér leiðina yfir í Alþýðuflokkinn aft- ur. Þeim dettur svo margt nýstárlegt í hug, stjórnmálamönnunum. Ekki er ástæða til að láta Bjarna P. Magnússon gjalda þess þótt hann hafi orðið viðskila við bleiurnar og Alþýðuflokkinn um stund. Hann kallaði bleiurnar Bossa bleiur svo hann er kunnugur Bossahlutverk- inu. Við fáum kannske Bossa borgarstjóra! Það hljómar vel. Vant- ar ekki Alþýðuflokkinn slagorð hvort sem er? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.