Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Ungt fólk hefur gjarnan byijað á bílkaupum, sem síðar hafa orðið útborgun í íbúð. Síðustu aðgerðir í tollamólum hafa gert þessu fólki erfitt fyrir. Bílaútsalan þýðir eignaupptöku hjá fjölda fólks: Þingmenn komu við kaun margra Samþykki Alþingis á tillögum ríkis- stjórnar, vinnuveitenda og launþega- samtaka, um 30% verðlækkun einkabíla, kom eins og köld vatnsgusa yfir §ölda manns, sem átti verulegan hluta spamaðar síns eða hann allan í bílum. Fyrir þetta fólk var um beina eignaupptöku að ræða. Ljóst er að þingmenn komu við kaun margra með ókvörun um bílaútsöluna. Yfir 80 þúsund einkabílar eru í landinu. Vemlegur meirihluti þeirra er í eigu fólks sem þarfaþing og eign með fasteign og öðrum eignum. Fyrir þetta fólk raskaði bílaútsalan ekki neinu sem nemur og þá frekar í þá veru að auðvelda því endurnýjun. Sú endurnýjun er raunar hafin í hreinu kaupæði. En þeir em fjölmargir sem eiga litl- ar eða engar eignir nema bíl. Þar á meðal er fólk sem hefur verið að berj- ast í húsbyggingum eða húsakaupum og ekki síst ungt fólk, sem margt hef- ur byrjað lífsbaráttuna á bílakaupum. Þeir bílar ganga svo gjarnan upp í fyrstu íbúðarkaup. Þetta er alþekkt saga hér á landi. Hér í DV hefur áður verið nefnt dæmi um fjölskyldu sem lent var í basli með húsbyggingu og ætlaði að selja 800 þúsund króna bíl til þess að greiða úr flækjunni. Bíllinn lækkaði ó einum degi um 240 þúsund krónur og þar að auki er hann illseljanlegur eftir að nýir, dýrir bílar urðu skyndi- lega ódýrir. Blaðið hefur mörg dæmi um áföll ungs fólks, sem hafði komið sér upp bæði nýjum og eldri bílum með ær- inni fyrirhöfn síðustu misseri og á ekkert annað. Með ákvörðuninni um bílaútsöluna tapaði þetta fólk allt upp í 120 þúsund krónum hver einstakl- ingur, einstaka raunar enn meiru. Ekkert þessara ungmenna ætlaði að búa í bílum sínum, heldur nota þá sem stökkpall út í frekari lífsbaráttu. Meðal dæma um áföll þessa unga fólks eru nýleg kaup þar sem ekki hafði verið greiddur nema hluti kaup- verðs fyrir bílaútsöluna. í sumum tilfellum dugði sá hluti ekki einu sinni á móti verðfallinu og kaupend- ur, sem höfðu jafnvel greitt tugi þúsunda töpuðu öllu saman. Eins hafa þeir orðið illa úti sem óttu ekki annað en bíla af eldri árgerð. Þótt þeir hafi kostað jafnvel 50-100 þúsund krónur eru margir slíkir bílar nú al- veg verðlausir og óseljanlegir. HERB Skammgóður vaxtavermir - háu skuldabréfavextirnir lækka 1. maí Þeir sem eiga almenn skuldabréf með 20% vöxtum síðan fyrir 11. ágúst 1984 þurfa ekki að óttast um vextina sína. En það kann að taka skjótan enda. Vextir á þessum bréfum eru samkvæmt ákvörðun Seðlabankans 20% þennan mánuð. 1. maí lækka þeir niður í 15,5% til samræmis við vexti á síðar útgefnum skuldabréfum. Ákvarðanir Seðlabankans um skuldabréfavexti eru hómarksvextir á hverjum tíma. í fiölmörgum tilfellum eru vextir einungis tilgreindir sem hæstu vextir samkvæmt ákvörðun Seðlabankans. Framangreindir há- marksvextir gilda varðandi þessi bréf. Nú eru til menn sem eru að velta því fyrir sér hvort sömu hámarksvext- ir eigi að gilda á skuldabréfum sem út hafa verið gefin í fasteignavið- skiptum og með 20% ársvöxtum, án frekari fyrirvara. Frá þessu var greint í fréttaljósi í DV á laugardaginn. Upphaflega munu þessar hugmynd- ir komnar til vegna hagsmuna kaupenda sem um leið eru skuldarar í þessum tilvikum. Á móti hljóta að vega hagsmunir seljenda og eigenda bréfanna. Bréfin hafa jafnframt orðið til á mismunandi grundvelli og hafa á öðrum tímum borið vexti jafnvel langt undir verðbólgu. En aðallega virðast menn að at- huguðu máli leggja mat á lagagrund- völl vaxtanna og telja að Hæstiréttur verði að skera úr um hann. Um leið benda margir á að orð skuli standa, samninga beri að halda. Sé hægt að breyta einum af grundvallarliðum í gerðum samningum um fasteigna- kaup geti það skapað ótrúlega óvissu og flækju. Jafnvel kunni að koma til riftunar samninganna. HERB Hækkun lánskjaravísitölu 10% eða 16% á árinu? Gilda reikningsspár eða viðskiptaspár? Mismunandi spár um þróun láns- kjaravísitölunnar á árinu, svo að munar frá 10% upp í 16%, eru byggð- ar á tvenns konar útreikningum. Annars vegar eru reikningsspár sem eru nær samhljóða og gera ráð fyrir hækkun á bilinu 10% til rétt um 11%. Hins vegar eru spár sem notaðar eru í viðskiptum, þar ó meðal af sumum bönkum og verðbréfasölum, og hljóða upp á 15-16% hækkun. Frá þessum mun var greint í DV á fimmtudaginn. Þjóðhagsstofnun spáði 28. febrúar að lánskjaravísital- an myndi hækka á árinu um 10-11%. Seðlabankinn hefur síðar spáð 10,9% hækkun. í Vísbendingu Kaupþings hf. var um svipað leyti spáð svo til sömu hækkun. Á hinn bóginn er mið- að við 15% hækkun í verðbréfavið- skiptum, sem Kaupþing hf. annast. Það er gert hjá fleiri verðbréfamiðlu- rum. Samkvæmt upplýsingum, sem DV hefur meðal annars úr bankakerf- inu, er að minnsta kosti í sumum hönkum búist við allt að 16% hækkun lánskjaravísitölu á árinu. Þessar síðamefndu spár, sem hér eru kallaðar viðskiptaspár, erp ekki opinberar. Af hálfu bankanna er til dæmis almennt stuðst við spá Seðla- bankans, opinberlega. Engu að siður nota sumir þeirra að minnsta kosti þá viðmiðun sem DV hefur greint frá hér og á fimmtudaginn. Sú viðmiðun, eða viðskiptaspá, hefur því bein áhrif á fiármagnsmarkaðinn, hvort sem þau eru meiri eða minni. HERB VERSLUNARHÚSNÆÐI Á LAUGAVEGI Til leigu ca 90 ferm verslunarhúsnæði á Laugavegi. Upplýsingar í síma 625604 eftir kl. 19. SUNDAKAFFI V/SUNDAHÖFN Kaffiterían opnuð ki. 7.00 á morgnana. Heimilismatur í hádeginu. Heimilismaturá kvöldin. Hamborgarar, samlokur og franskar. Næg bílastæði. Opið alla virka daga frá kl. 7.00-21.00, laugardaga frá kl. 7.00-17.00. Sundakaffi v/Sundahöfn, sími 36320. IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Staðallinn sem beðið hefur verið eftir: ÍST117 RAFTÆKNITÁKN IST 117, íslenskur staðall fyrir raftæknitákn, er kominn út hjá Staðladeild Iðntæknistofnunar Islands. Staðallinn skiptist í 16 efnishluta á sviði raf-, raf- einda-, síma- og radíótækni auk formála og efnisyfir- lits. Einnig fylgja atriðaskrár, ensk-íslensk og íslensk-ensk, og millivísanahlutar til og frá staðlinum IEC 617. Staðallinn er til sölu hjá Iðntæknistofnun Islands, Keldnaholti, 112 Reykjavík, sími (91) 68-7000, og hjá Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.