Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 8
8 DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. APRÍL1986. Yfir hundrað þúsund manns sitja heima í dag í dag munu aðgerðir hjúkrunar- fræðinganna verða umfangsmeiri og víðar um landið. En það var í gærkvöldi sem stærsta sprengjan féll. Engir samningar náðust á nokkrum viðræðufundum. það náðíst ekki einu sinni samkomulag um samningaað- ferðir. Klukkan tiu í gærkvöldi rann síðan tíminn út og verkföllin skullu á. AF þessum rúmlega hundrað þúsund manns, sem eru frá vinnu í dag, eru sumir í verkfalli en flestir í verkbanni. I stærsta verkalýðsfélagi landsins, er heitir Jám og málmur, em 50 þús- und manns heima í dag. Formaður félagsins, Lars Skytöen, sagði í útvarpi í dag að ríkisstjómin væri jafnábyrg og atvinnurekendur fyrir hvemig farið heföi í samningatil- raunum fram að þessu. Hann ásakaði Willoch forsætisráðherra og stjómina fyrir samsæri í samvinnu við atvinnu- rekendur gegn launþegum. Talsmaður atvinnurekenda vísaði þessum staðhæfingum á bug sem al- gerri fjarstæðu. Willoch hefur ekkert enn viljað segja um þessar ásakanir en hann hefur lýst yfir þungum áhyggjum stjómvalda vegna harðn- andi verkfallsátaka . Starfsmenn olíuvinnslunnar norsku eru í verkfalli, en það hefur meðal annars leitt til þess að olíuverð hefur farið hækkandi á síðustu dögum. Búist er við því að olíuverðið snarlækki aftur um leið og örlar á samkomulagi í vinnudeilunni. „Ekki drekka ítölsku vínin “ Svissnesk yfirvold vara sitt folk við Gizur Helgason, fréttaritari DV i Zúrich: Tala víntegunda sem taldar em eitr- aðar með metanóli og koma frá Italiu hefur nú tvöfaldast og em þær nú orðnar sextíu og tvær. Yfirvöld heilbrigðismála í Bem sendu í gær út svohljóðandi viðvömn til almennings: „Yfirstjóm heilbrigðismála mælist eindregið til þess að íbúar Sviss drekki ekki ítölsk vin þar til ljóst liggur fyrir hvaða víntegundir innihalda metanól í hættulegu magni“. í gær sáu heilbrigðisyfirvöld um mjög umfangsmikla könnum hjá vín- innflytjendum, veitingahúsum og öðrum þeim er versla með vín og þús- undir sýnishoma vom send til rann- sóknarstofa til nánari athugunar. 40 þúsund lítrar upptækir í gærkvöld haföi aðeins á einum stað fundist eiturvín og var það i bænum Tessin. þar var um vín í eigu einstakl- ings að ræða, en hann haföi sjálfur lagt land undir fót, farið til Ítalíu og birgt sig upp af ódýrum vínum. Aftur á móti hafði hann farið með birgðimar til rannsóknar um leið og hneykslismálið komst í hámæli. Á landamærum Sviss og Ítalíu náði tollþjónustan aftur á móti 40 þúsund lítrum af „vini dauðans“ og var þar um að ræða eina sendingu til sviss- nesks víninnflytjanda. Almenningur forðast ítölsk vín Ótti almennings hér í Sviss varðandi eitmð ítölsk vín er nú orðinn vemleg- ur og er nú svo komið að sum stærri veitingahús festa tilkynningu á glugga sína þar sem kunngjört er að öll ítölsk vín á viðkomandi stað hafi verið könn- uð á rannsóknarstofu. Tvöfalt kerfi Ítalía er langstærsti viðskiptaaðili Sviss í vínum. í dag hefur dregið gífur- lega úr innflutningi ítalskra vína. Við skulum hafa það hugfast að stór hluti vínsins er fluttur á milli í stórum tank- bílum, á svipaðan hátt og bensínið heima á Fróni. Heilbrigðisráðuneytið á Ítalíu hefúr fyrirskipað nákvæma rannsókn á öll- um vínum er þaðan em flutt út. En fyrir Svisslendinga er þetta ekki nægj- anlegt. Hér fer einnig fram rannsókn á víninu um leið og það kemur til landamæranna, svo ekki virðast Sviss- lendingar treysta ítalska eftirlitskerf- inu um of. Stöðva innflutningsbann Landbúnaðarráðherra Italíu, Pan- dolfi, leggur nú land undir fót til þess að róa helstu viðskiptavini ítalíu svo ekki verði sett algert bann á ítölsk vín. Hér er um að ræða heimsókn ráð- herrans til Bonn og Parísar. Vestur-Þýskaland og Frakkland em stærstu vínkaupendur ítala. Skömmu fyrir brottför lýsti ráðherrann því yfir að fullt eftirlit væri nú komið á allan vínútflutning ítala. Fram að þessu hafa 20 manns látist af víneitmn og fjölmörg fómardýi’ liggja deyjandi á sjúkrahúsum. Blóðsuga dreg- in fyrir dóm Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zúrich: í bænum Títusville í Bandaríkj- unum hefur hinn 39 ára gamli John Crutchley verið fangelsaður og honum gefið að sök að hafa rænt blóði. Vampýran hafði í nóvember 1985 rænt nítján ára stúlku og haft hana í haldi í íbúð sinni í tvo daga og sogið úr henni blóð. Þetta mun vera fyrsta ákæran af þessu tagi í Flórídafylki. Ríkissaksókn- ari hefur þegar látið setja í lög að blóð sé verðmæti og hver sá, sem sekur sé um að stela slíku, eigi yfir sér fangelsisvist. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari DV í Osló: Nú hefur brotist út mesta stríð á norskum atvinnumarkaði i rúmlega hálfa öld. Yfir eitt hundrað þúsund manns em frá vinnu í dag og ekki er búist við því að málið leysist á næstunni. Tapið af verkfallinu fyrir þjóðarbúið er erfitt að meta en það skiptir hundmðum milljóna króna á dag. Ríkisstjómin hefur ekki hugsað sér að grípa inn í verkfallið með lögbanni né skipa kjaradóm í vinnudeilunni. Áhrif verkfallsins em víðtæk. Sem dæmi má nefna að tvö stærstu dag- bföðin hér í Noregi, Aftenposten og V.G. (Verdens Gang), koma ekki út í dag. Ástæða þess er verkfall vélvirkja í prentsmiðjunum þar sem blöðin erú Nær öll hótel landsins skrifúðu nú í morgun út síðustu gestina og mat- sölustaðir em allir lokaðir. Starfsemi á olíusvæðunum á Norð- ursjó og í skipasmíðastöðvum liggur einnig alveg niðri. Byggingaiðnaðurinn er einnig lam- aður og að auki öll stærstu iðnaðarfyr- irtæki landsins. Á sunnudagskvöld lögðu yfir 4.300 verkamenn á olíusvæðunum í Norð- ursjó niður vinnu sína. Verkbann var sett á þúsundir annarra verkamanna er tengjast olíuiðnaðinum. í gær fóm hjúkmnarfræðingar í verkfall og aðeins var sinnt neyðar- tilfellum á nokkrum sjúkrahúsum í Osló. Þetta verkfall var Iýst ólöglegt og hefur ríkið nú stefnt hjúkmnar- fræðingunum. Þeir svömðu með því að stefria ríkinu fyrir að hafa svikið sinn hluta af launasamningum. Olían hækkar vegna verk- fallsins hjá Norðmönnunum Olíuverð hækkaði skyndilega í Bandaríkjunum í gær. Ástæðan var verkfall olíustarfsmanna í Noregi. I Bandaríkjunum kviðu menn því að verkfallið yrði til þess að ganga mundi á fyrirliggjandi olíubirgðir. Fyrirsjáanlegt þykir samt að olíu- verð muni snarlækka aftur um leið og eitthvað örlar á samkomulagi í vinnudeilunni í Noregi. - Hækkana þessara hefur raunar gætt alla síðustu fimm daga. Vinnustöðvunin í Noregi hefur stöð- vað olíuframleiðslu þeirra í Norðursjó, sem var 900 þúsund olíuföt á dag. Það vom um 2% olíuframleiðslunnar utan kommúnistaríkjanna. Olíuverðið á Bandaríkjamarkaði hækkaði um 1,65 dollara fatið í gær svo að viðmiðunarverð á hráolíu þar (miðað við afhendingu í maí) er komið upp í 14,40 dollara fatið. Raunar gætti verðhækkunarinnar víðar eins og á „spotmörkuðunum" svonefndu. Alls hefúr hráolían hækkað um fjóra doll- ara síðan á annan í páskum. Fram að því hafði olíuverðið verið á stöðugri niðurleið frá því í nóvember í vetur og haföi lækkað erlendis um alls 60%. Mest var það vegna fram- leiðsluaukningar hjá OPEC-ríkjunum. Weinberger fálega tekið á Filippseyjum Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV í Bandaríkjunum Caspar Weinberger, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, hefur hlotið misjafriar viðtökur á Filippseyjum, þar sem hann hefur verið í opinberri heim- sókn undanfama daga. Weinberger er æðsti embættismaður Bandaríkjastjómar sem heimsótt hef- ur eyjamar frá því Markos var hrakinn þaðan frá völdum. Filippseyjabúar hafa gagnrýnt Bandaríkjamenn fyrir að senda vam- armálaráðherra í þessa fyrstu heim- sókn. Telja þeir það bera vitni um að Reag- an forseti hafi meiri áhuga á að viðhalda hemaðarlegum hagsmunum Bandarikjamanna á eyjunum heldur en aðstoða innfædda efnahagslega eða á annan hátt. Weinberger hefur átt fundi með Aquino, forseta Filippseyja. Hann hef- ur ítrekað að stuðningur Bandaríkja- manna við Filippseyinga muni halda áfram. Meðal annars sagði ráðherrann í gær að áframhaldandi uppbygging herafla Filippseyja væri nauðsynleg. Fjármálaráðherra Filippseyja sagði í gær að land hans þyrfti nú fyrst og fremst efhahagsaðstoð til að koma í veg fyrir enn versnandi ástand. Fór hann fram á eitt hundrað milljón dollara efnahagsaðstoð og á sjötta hundrað milljón dollara lán frá Bandaríkjamönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.