Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986.
11
Menning Menning Menning Menning Menning
MYRKRAVERK
Viðkvæmu fólki kann að þykja nóg um, en hinir harðsnúnari geta haft nokkurt gaman af.
Leikhópurinn „Veit mamma hvað ég
vil?“
MYRKUR
Höfundur: Frederick Knott
Leikstjóri og leikmyndahönnuður: Pétur
Elnarsson
Ljós: Vilhjálmur Hjálmarsson og Dýrleif
Bjarnadóttir
Enn einn úhugahópur um leiklist
frumsýndi nýverið leikritið Myrk-
ur, eftir Frederick Knott, á Galdra-
loftinu, Hafnarstræti 9. Hér er á
ferð ungt fólk sem kallar leikfélag-
ið sitt „Veit mamma hvað ég vil?“
eða stundum bara Mömmuleik-
húsið til þæginda. Aðstaðan á
Galdraloftinu er frumstæð en engu
að síður hefur tekist að gera ágæta
umgjörð um leikinn þarna undir
súðinni.
Myrkur er snöfurlega saminn
spennuíeikur um eiturlyfjasmygl,
tilraunir glæpona til að hafa uppi
á týndri sendingu og það hvernig
utanaðkomandi fólk, sem ekkert
hefur til saka unnið, dregst inn í
þann ljóta leik.
Leiklist
AUÐUR EYDAL
í upphaflegri gerð á leikritið að
gerast í London en hér er það stað-
fært og flutt til Reykjavíkur þar
sem risíbúð í Hafnarstræti 9 er
vettvangur atburða.
Ekki kemur fram í leikskrá hver
hefur þýtt og staðfært leikritið,
væntanlega hafa einhverjir úr
hópnum annast það. Þýðingin hef-
ur tekist allvel, smákrimmarnir eru
hæfilega töff í tali og orðljótir og
reyna með því að breiða yfir það
hvað þeir eru í raun litlir karlar.
Þó að söguþráðurinn sé með
nokkrum ólíkindum framan af
tekst höfundi er líður á leikinn að
skapa mikla spennu og stígandi,
sem óreyndir leikarar Mömmuleik-
hússins koma bara nokkuð vel til
skila.
Pétur Einarsson er leikstjóri og
hönnuður leikmyndar og hefur
greinilega reynst hópnum hinn
besti stjórnandi. Oft þarf mikla út-
sjónarsemi til að púsla öllu saman
á svo takmörkuðu svæði sérstak-
lega, þegar hraðinn verður mestur
og harkan undir lokin. I heild má
segja um frammistöðu leikendanna
að framsögnin hafi verið þeirra
veika hlið, en henni var nokkuð
ábótavant.
Þórunn Helgadóttir leikur blindu
stúlkuna Hildi, sem fyrir tilviljun
lendir í miðri atburðarásinni. Þór-
unn náði oft góðum tökum á
hreyfingum og atferli hinnar
blindu, en mikið byggist á því að
þetta hlutverk sé sannfærandi, þar
sem í leiknum er spilað saman van-
mætti hennar gagnvart hinum
sjáandi, þangað til aðstæðum er
snúið við, og þá hefur líka hin fyrr-
nefnda yfirburði. Þórunn hefur sótt
tíma hjá blindrakennara og skilar
það sér sem fyrr segir í raunsönn-
um leik.
Már W. Mixa leikur Hrafn Ragn-
arsson, sem er útsmoginn skipu-
leggjandi glæfraverka. Már nær oft
allgóðum töktum í hlutverkinu,
sérstaklega undir lokin í átökunum
við Hildi, en á í vandræðum með
framsögnina eins og fleiri í flokkn-
um. Verkfæri Hrafns í skollaleikn-
um, þeir Magnús og Kristján,
smákrimmar, eru leiknir af þeim
Felix og Þóri Bergssonum. Magnús
kemur meira við sögu og Felix fell-
ur ágætlega inn í hlutverkið.
Sólveig Sveinbjörnsdóttir leikur
Mæju og gerir það með ágætum.
Hún er hress og skýrmælt og á
ekki í erfiðleikum með framsögn-
ina eins og bregður fyrir hjá hinum.
Héðinn Sveinbjörnsson er í hlut-
verki Arnars og auk þess koma
þrír lögregluþjónar við sögu.
Eins og fyrr segir skapast heil-
mikil spenna undir lokin og í
átökunum er um líf og dauða per-
sónanna að tefla. Viðkvæmu fólki
kann að þykja nóg um og varað
er við því að leikritið sé ekki við
hæfi barna. En hinir harðsnúnari
geta haft nokkurt gaman af.
AE
Fréttabréf úr Húnaþingi:
Vel heppnuð
voivaka
Frá Robert Jack, fréttaritara DV í
Húnaþingi:
Páskahátíðin er liðin og fór hún vel
fram í Húnaþingi. Veðrið var indælt,
vegir vel færir og þess vegna var tölu-
verð umferð og flestir fengu gesti
langt að.
Vorvaka á Hvammstanga tókst vel
og var margt til skemmtunar og fróð-
leiks, upplestur, söngur og kveðskap-
ur til að nefha aðeins nokkur atriði.
í kirkjunni á föstudaginn langa lék
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar á nýja
pípuorgelið og sonur hans lék á fiðlu,
við mikla hrifningu kirkjugesta. Þá
var einnig kórsöngur. Messurnar
voru vel sóttar í öllum kirkjum og
voru mörg böm skírð. Það var, að
minnsta kosti, einn organisti á páska-
hátíðinni sem var lítið heima hjá sér.
Sá var Helgi Ólafsson, þvi að fyrir
utan það að leika í sinni kirkju á
Hvammstanga og taka þátt í Vorvö-
kunni lék hann við þrjár aðrar messur
páskadagana.
í undirbúningi er á Hvammstanga
að rannsaka alla möguleika á því að
kaupa frystitogara og á undirbún-
ingsnefndin að skila áliti innan
skamms. Það er búist við að ef úr því
verður myndu allir í V-Húnavatns-
sýslu fá tækifæri til að kaupa hluta-
bréf.
Það hefur verið nýjung í nokkur
ár að Verslun Sigurðar Pálmasonar
á Hvammstanga hefúr selt páska-
lömb. Hefur salan gengið vel og kjötið
verið mjög gott.
Fyrsti knattspyrnuleikur ársins fór
fram á Blönduósi á laugardaginn
milli helstu daga hátíðarinnar. Hann
var á milli Blönduóss og Hvamms-
tanga. Eftir spennandi leik bar
Hvammstangi sigur úr býtum með
þremur mörkum gegn einu. Rúnar
Guðmundsson skoraði öll mörk fyrir
Tangamennina. Ég held að það sé
einsdæmi að piltar á Norðurlandi
geti leikið fótboltaleik á þessum tíma.
Manni fannst þessa daga að vor væri
í loftinu.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440
000° °°O O O C y O
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRAi rjkt ,STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222