Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
MilUónaviðskipti í vændum:
Hjartaskurðlækningar fýrir
Grænlendinga og Færeyinga
„Ég sé því ekkert til fyrirstöðu að
við getum farið að anna hjarta-
skurðlækningum fyrir Grænlend-
inga og Færeyinga ef svo fer sem
horfir," sagði Davíð Á. Gunnarsson,
forstjóri Ríkisspítalanna, í samtali
við DV. Eins og kunnugt er af frétt-
um eru hjartaskurðlækningar
hafnar á Landspítalanum og hafa
þegar þrjár aðgerðir verið gerðar
með góðum árangri.
„Við verðum að gera okkur grein
fyrir að heilbrigðisþjónusta er orðin
heimsmarkaðsvara og við eigum nóg
af hæfum læknum, bæði hér heima
og erlendis. Þessa menn á að kalla
heim og láta vinna hér. Þetta er eins
og hver annar iðnaður sem tekur
tíma að vinna upp. Grænlenski og
færeyski markaðurinn er ekki sér-
staklega stór en þar má byrja og
færa síðan út kvíamar. Við eigum
að vinna markvisst að því að fá hing-
að útlendinga í aðgerðir, af því
getum við haft gjaldeyristekjur.
Þetta er lest sem við höfum ekki
efni á að missa af,“ sagði Davíð Á.
Gunnarsson.
-EIR
|
Japanska skipið Tokyo Reefer í Hafnarfjarðarhöfn. Verið er að lesta hvalafurðum í skipið. Að sögn Kristjáns Loftssonar er um að ræða fryst hvalkjöt frá síð-
asta veiðitímabili. Skipið er nú á leið til Japan með farminn. DV-mynd: PK
Hvalamálið:
Bandaríkjastjóm hyggst
bíða úrskurðar dómstóla
„Um þessar mundir er í gangi mál
fyrir hæstarétti í Bandaríkjunum sem
snertir heimild bandaríkjastjómar til
þess að gera samkomulag við Japani
um framhald hvalveiða til ársins 1988.
Ég býst við að bandaríkjastjóm bíði
með aðgerðir gagnvart Japönum þar
til niðurstaða dómsins liggur fyrir í lok
þessa mánaðar eða byrjun þess
næsta,“ sagði Kjartan Júlíusson deild-
arstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Umhverfismálasamtök í Bandaríkj-
unum höfða málið fyrir hæstarétti á
þeim rökum að Bandaríkjastjóm hafi
ekki haft heimild til þess að gera sam-
komulag við Japani um hvalveiðar.
Að sögn Kjartans er líklegt að niður-
staða dómsins mimi hafa áhrif á það
hvemig Bandaríkjastjóm bregst við
hvalveiðum Japana og kaupum þeirra
á hvalafúrðum en háværar raddir hafa
verið uppi um að bandaríkjastjóm
ætli sér að banna Japönum veiðar í
bandarískri landhelgi hætti þeir ekki
að kaupa hvalafúrðir.
„Japanir em undir gífurlegu álagi,
aflinn í bandarískri landhelgi er mun
verðmætari en hvalafurðimar. En
ennþá veit enginn hvemig máhnu
lyktar. Bandaríkjastjóm hefur engar
endanlegar yfirlýsingar gefið. Á þessu
stigi er því of snemmt að draga álykt-
anir um hver áhrifin verða fyrir okkur
íslendinga. Hins vegar hafa Japanir
gefið i skyn að þeir neyðist til þess að
hætta að kaupa hvalafúrðir ef banda-
ríkjastjóm hótar veiðibanni í banda-
rískri landhelgi," sagði Kjartan
Júlíusson.
Kristján Loftsson, framkvæmda-
stjóri Hvals h£, sagði að ekkert benti
ennþá til annars en að Japanir ætluðu
sér að kaupa af okkur hvalafurðir. Það
væm engin lög sem bönnuð Japönum
slík viðskipti. „Það þýðir ekki að trúa
öllu því sem umhverfisvemdunarsam-
tök í Bandaríkjunum halda fram.
Staðfestingar þess efnis að Japönum
verði bannað að veiða í bandarískri
landhelgi, kaupi þeir hvalafúrðir,
liggja hvergi fyrir. Það er lítil hætta
á öðm en að við losnum við hvalafúrð-
imar í ár,“ sagði Kristján Loftsson.
-KB
Alþýðubandalagið;
ákveðið
um mál
Guðmundar
Framkvæmdastjóm Verka-
mannasambands íslands sam-
þykkti á fúndi sínum í gær að
verða við tilmælum Guðmundar
J. Guðmundssonar um að hann
yrði leystur frá störfúm sem for-
maður sambandsins á meðan fram
færi rannsókn á hvort hann væri
á einhvem hátt tengdur gjald-
þrotamáli Hafskips hf.
í síðustu viku samþykkti stjóm
V erkamannafélagsins Dagsbrúnar
að verða við ósk Guðmundar um
að Halldór Bjömsson, varafor-
maður félagsins, tæki að sér störf
formanns á meðan á rannsókninni
staeði.
Ásmundur Stefanson, forseti Al-
þýðusambands íslands, sagði í
samtali við DV í gær að Guðmund-
ur hefði farið þess á leit við stjóm
ÁSÍ að honum yrði veitt leyfi frá
stjómarstöríúm um ótiltekinn
tíma, eða þar til rannsókn fyki í
máli hans. Ásmundur sagði að
enginn miðstjómarmaður heföi
sett fram kröfu um aisögn Guð-
mundar og að engar áætlanir
hefðu verið uppi um að leysa hann
frá störfum.
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, sagði í samtali
við DV í gær að engar ákvarðanir
hefðu verið teknar um hvemig
flokkurinn myndi bregðast við
máli Guðmundar J. Guðmunds-
sonar. Formaður þingflokksins
væri erlendis og því væri erfitt um
vik. „Við erum að ræða málin,“
sagði Svavar. „Ég reikna ekki með
að við aðhöfúmst neitt næstu
daga.“
Þá hefúr Guðmundur J. Guð-
mundsson ritað forseta neðri
deildar Alþingis bréf og óskað eftár
leyfi frá þingstörfúm um ótiltekinn
tíma. Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti sameinaðs Alþingis,
sagði í samtali við DV í gær að
beiðni þessi yrði afgreidd á sama
hátt og þegar þingmaður óskaði
eftir leyfi frá störfúm vegna til
dæmis veikinda, ferðalaga eða
anna og að varamaður tæki sæti
hans á meðan. -EA
Gleymska flugvirkja
Orsök þess að flugvél Sverris Þór-
oddssonar féll á nefið í lendingu á
Reykjavíkurflugvelli í ársbyijun 1985
er talin sú að flugvirki gleymdi að festa
hjólahurðir nefhjólsins þegar flugvélin
var skoðuð nokkru fyrir óhappið.
önnur hurðin slóst síðan inn á legg
hjólsins þegar leggurinn fór upp eftir
flugtak í Reykjavík og festingar leggs-
ins brustu.
Níu farþegar og flugmaður sluppu
ómeiddir. Skemmdir urðu smávægi-
legar á nefi, hreyflum og loftskrúfum
flugvélarinnar.
Flugmaðurinn hafði hætt við lend-
ingu í Holti í Önundarfirði sökum
þess að aðvörunarljós sýndi að nef-
hjólið var ekki fast niðri. Á meðan
flugvélin var á leiðinni til Reykjavíkur
hafði bjöigimarlið nægan tíma til að
búa sig undir nauðlendingu. Frétta-
menn gátu einnig stillt upp myndavél-
um sínum í tæka tíð.
-KMU
Svona getur farið þegar flugvirkjar gleyma sér í vinnunni. Farþegum hjálpað
úr flugvélinni eftir nauðlendinguna á Reykjavikurflugvelli ■ janúar 1985.
DV-mynd GVA.