Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Page 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986. 25 Sandkorn Sandkorn Jakob Magnússon Austurlensk áhr'rf Vestmannaeyingar munu verða þeirrar ánægju aðnjót- andi að fá Stuðmenn í heim- sókn á þjóðhátíðina sem fram fer síðar í sumar. Hljómsveit- armenn eru, sem kunnugt er, nýkomnir frá Kína þar sem þeir léku við dæmafáar vin- sældir. Þegar heim kom var ákveðið að þeirmyndu haida tónleika í Eyjum, svona rétt til að kynda upp fyrir þjóð- hátíðina. Eyjablaðið Fréttir ræddi við Jakob Magnússon í tilefni alls þessa. Sagði hann að það væri Stuðmönnum sérstakt ánægjuefni að taka þráðinn fyrst upp í Eyjum eftir vel- heppnaða Kínaferð. Yrði Eyjamönnum boðið upp á svipaða dagskrá og flutt hefði veriðrKína. „Vestmannaeyingar hafa áðurorðið fyrir austurlensk- um áhrifum,“sagði Jakob grafalvarlegur, „þegar Tyrkir komu þangað 1627 og því ættu þessir austurlensku tónleikar ekki að verða þeim svo fram- andi.“ Mikið til í því. Skiptum baunir Kaffibaunamál Sambands- ins hefur dregið ýmsa dilka á eftir sér, misþunga að vísu. Hefur það valdið erfiðleikiun og heilabrotum á ólíklegustu stöðum. Sagan segir til dæmis að hér áður fyrr hafi einungis Braga-kaffi verið mallað á skrifstofu ríkissaksóknara. Nú, kaffið er gott, enda fram- sóknarkeimur af því þannig .að þetta var vel skiljanlegt. En svo kom árans bauna- málið upp. Og auðvitað er það ekki fallegt til afspumar að „kriminelt" kaffi sé þambað á höfuðsetri réttvísinnar. Þar var því söðlað um og skipt yfir í Kaaber-kaffi. En Adam var ekki lengi í paradís, því skömmu síðar var Rannsóknarlögreglunni falið að athuga Kaaber-kaffið. Nú þótti ljóst að innlendum framleiðendum væri alls ekki treystandi, svo farið var að kaupa sænskt kaffi á skrif- stofu saksóknara. Vonast menn til þess að Svíamir reyni að halda sig á mottunni í kaffimálum. EUa gæti farið svo að það þyrfti að fara að skipta yfir í te eða kókó. morð, eða því sem næst. Sá sé enginn annar en Ólafur Ragn- ar Grímsson. Virðast menn mjög á einu máli um það að hann hafi gengið of harkalega að Guðmundi og sé í raun að reyna að bola honum út undir öðm yfirskini. Eins þótti Jakinn sýna góða tilfinninga- lega takta í viðtalinu sem sjónvarpið tók við hann þegar hann var nýkominn heim. Að öllu þessu samanlögðu sýnist Guðmundur á góðri leið með að verða píslarvottur í Haf- skipsklandrinu. Töpuðu á Ijósunum Skagamenn hafa leitað mjög eftir skýringum á því hvers vegna sjálfstæðismenn misstu tvo í nýafstöðnum bæjar- stjómarkosningum. Þykja þetta undur og stórmerki sem jafnvel hina framsýnustu hefði ekki getað órað fyrir. En nú hefur Bæjarblaðið komist að fróðlegri niðurstöðu eftir ítarlega rannsóknar- blaðamennsku. Þar er því haldið fram að íhaldið hafi beðið afhroð vegna umferðar- ljósa, raunar hinna fyrstu, sem meirihlutinn með sjálfstæðis- menn í fararbroddi lét setja upp á Akranesi rétt fyrir kosn- ingarnar. Þarna hafi sumsé verið sett upp mikil auglýsing fyrir alla flokka nema Sjálf- stæðisflokkinn, rautt fyrir krata og allaballa og grænt fyrir frammarana. Sjálfstæðis- menn hafi þar með grafið eigin gröf með þessari þörfu fram- kvæmd. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Pólitískt sjálfsmorð Það hefur mikið gengið á í kringum Guðmund Jaka eftir að uppvíst varð um sjúkra- flutninga skipafélaganna á honum til Florida hér fyrr á árum. Hefur almenningur séð öxina upp reidda yfir þeim opinberu embættismönnum sem þama eiga hlut að máli. En þegar línurnar tóku að skýrast og eftirköstin að taka á sig mynd heyrast æ fleiri raddir sem halda því fram að þama hafi ekki nema einn maður framið pólitískt sjálfs- Ólafur Ragnar Grimsson 16 KG HOLSTEINN ÚR ÚRVALS RAUÐAMÖL TRAUSTUR STEINN OG EFNISMIKILL • GOTT VERÐ • SENDUM HEIM • HAGSTÆÐ KJÖR • HLJÓÐEINANGRANDI • HITA- OG ELDÞOLINN STÆRÐIR 20x40x20 OG 20x20x20 Vinnuhælið Litla-Hrauni Sölusími 99-3104 Söluaðili í Reykjavík: J.L. Byggingavörur Menning Menning Menning Glórulaust? Leikfélag Kópavogs sýnir: SVÖRT SÓLSKIN. Höfundur: Jón Hjartarson. Leikmynd: Gylfi Gíslason. Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson. Undirleikari: Guðrún Birna Hannesdóttir. Búningar: Gyifi Gíslason, Ragnheiöur Tryggvadóttir. Ljós: Lárus Björnsson, Egill örn Árna- son. Leikstjóri: Ragnheiður Tryggvadóttir. Það er dökk mynd af vegferð mannkynsins í gegnum aldirnar sem Jón Hjartarson sýnir okkur í leikritinu Svört sólskin sem Leik- félag Kópavogs frumsýndi í Iðnó á sunnudagskvöld. Höfundur skiptir i grófum dráttum verkinu í tvo hluta, en þeir eru síðan tengdir saman með leit eða ferðalagi ungs pilts sem í upphafi er staddur á annarlegri strönd á ótilgreindum tíma. Hann er í leiknum fulltrúi þeirra sem fara burt, leitendanna, en stúlkan á ströndinni hinna sem eftir sitja og una við sitt. En engu að síður lenda þau í lokin bæði á sama stað. Staldrað er við á tveimur stöðum. I fyrri hluta leiksins leiða völvur unga manninn á vit atburða á fs- landi á tímabili þar sem saman fer harðýðgi yfirvalda og óáran til sjós og lands. Ekki býður höfundur upp á ljós í því myrkri, eymd mann- skepnunnar og hjálparleysi er algjört, grimmd og kvalalosti vald- hafa brýtur niður þann vott af mannlegri reisn sm kann að hafa lifað af hamfarir náttúrunnar. Sterilt geymslurými þeirra sem komist hafa af í ragnarökum kjarn- orkunnar er vettvangur í síðari hluta verksins. Uti geisa eldar, mannkynið á sér enga von. Allt er þetta mjög nöturlegt, myndin kannske of einlit og dökk til þess að þjóna því sem væntan- lega hefur verið tilgangurinn; að Leiklist AUÐUR EYDAL vekja menn til umhugsunar um yfirvofandi hættu af kjamorku- kukli sem heimurinn var svo óþyrmilega minntur á nú nýverið. Leikstjórinn, Ragnheiður Tryggvadóttir, vinnur hér með hópi áhugafólks og hefur að ýmsu leyti vel til tekist með árangurinn. Sviðsetning er oft prýðilega unnin og góður stuðningur er af leik- myndum Gylfa Gíslasonar og lýsingu sem er mikið notuð til að skapa fjölbreytni, sérstaklega í fyrri hluta verksins. í síðari hlut- anum er Ijósið hart og kalt og magnar upp andrúmsloft vélrænn- ar tilveru. Tónlist Gunnars Reynis Sveins- sonar setur mikinn svip á sýning- una og flutningur erinda úr Völuspá, sem Katrín Anna Lund annaðist, myndar eins konar stef í verkinu, forspá og aðvörun í senn. Leikendur eru nokkuð margir og mæðir þar mest á Eggert A. Kaa- ber sem leikur Ólaf, leitandann. Hlutverkið er töluvert viðamikið og að mínu mati skilaði Eggert því af látleysi og þokka eins og við átti. Ungi maðurinn hefur engin skýr persónueinkenni frá höfund- arins hendi en er þó alltaf nálægur. Systa er leikin af Margréti Sæberg Sigurðardóttur sem einnig gætir hófstillingar. Textinn var stundum nokkuð erfiður í flutningi fyrir óreynda leikara, til dæmis í upp- hafsatriðinu á ströndinni sem hafði á sér ljóðrænt yfirbragð. Völvurnar þrjár, sem fylgja unga manninum, eru leiknar af Sigríði Ragnars- dóttur, Jóhönnu Pálsdóttur og Sylvíu Gústafsdóttur. Mér fannst stundum mega draga úr tilburðum þeirra sem virkuðu nokkuð yfir- drifnir á köflum. Margir aðrir leikarar koma við sögu, ég vil aðeins minnast á Sól- rúnu Yngvadóttur sem lék Frúna, holdtekju allra lífsins lystisemda. Þetta var eina hlutverkið þar sem þrátt fyrir allt var slegið á eitthvað léttari strengi og dálítil spaugsemi komst að. Allur heildarsvipur sýningarinn- ar var góður og Ragnheiður leik- stjóri hefur náð mjög góðum árangri með þessum hópi áhuga- fólks. Ekki er að efa að mikil vinna liggur að baki og merki um vönduð vinnubrögð eru augljós. Frumsýning á þessari dapurlegu heimsmynd var fyrirhuguð á laug- ardagskvöld en þá dundu yfir válegir atburðir í næsta nágrenni við gamla Iðnó svo að fresta þurfti fyrstu sýningunni. Allt fór þó betur en útlit var fyrir um skeið og sem betur fer er það einnig svo í lífinu að oftast rætist nú eitthvað úr þó að illa horfi í bili. AE KENNARAR Tvær kennarastöður við grunnskóladeild Verkmennta- skóla Austurlands í Neskaupstað eru lausar til umsóknar. Helstu kennslugreinar: íslenska, erlend tungumál, líf- fræði. Greiddur er flutningsstyrkur og útvegað gott og hag- kvæmt leiguhúsnæði. Upplýsingar veita: formaður skólanefndar Neskaup- staðar (hs. 97-7645 og vs. 97-7500), skólafulltrúi (hs. 97-7799, vs. 97-7700) og skólameistari (hs. 97-7630, vs. 97-7285). Verkmenntaskóli Austurlands grunnskóladeild. Hrossakynbótabúið á Hólum auglýsir eftirtal- in hross til sölu: 1. Sif 6199 6 v. I. verðlaun F. Þáttur 722 M. Sögn 4366. 2. Klara 6018 6 v. II. verðlaun F. Þáttur 722 M. Kolka 4657. 3. Kurteis 6019 6 v. II. verðlaun F. Þáttur 722 M. Kolbrún 3440. 4. Blika4v. II. verðlaun F. Bylur892 M. Blíða 4652. 5. Kæti 4 v. F. Bylur 892 M. Kolbrún 3440. 6. Sindri 5 v. F. Ófeigur 882 M. Sögn 4366. 7. Ás 5 v. F. Elgur 965 M. Jódís 5660. 8. Draumur 4 v. F. Hervar 963 M. Drótt 3442. 9. Kraftur 4 v. F. Hervar 963 M. Kolka 4657. 10. Kommi4v. F. Sváfnir, Hólum. M. Kolskör, Hólum. 11. Rekkur 4 v. F. Fölski, Bringu, Eyjafirði. M. Re- bekka 6016. Upplýsingar veittar í síma 95-5962 virka daga á skrif- stofutíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.