Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Side 14
14
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986.
Hvert er þitt álit á haust-
kosningum?
Ásgeir Torfason myndskurðar-
maður: Ég tel þær ekki fráleitar
eins og staðan er í dag.
Þóra Kristjánsdóttir, dyra- og
gangavörður: Ég er ekki fylgjandi
þeim. Ég er ánægð með stjórnina.
Sigrún Hermannsdóttir bréfberi:
Mér finnst alveg þess virði að prófp.
það.
Guðrún Erlingsdóttir banka-
starfsmaður: Ég hef lítið spáð í
þessa hluti. Ég er nýkomin heim að
utan.
Guðbjartur Ólason skrifstofu-
maður: Því ekki það? Allt í lagi að
reyna kosningar.
Guðrún Friðriksdóttir starfs-'
stúlka: Ég held ekkert um þær. Það
er mikil deyfð í pólitíkinni núna.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Endursýnið Alexanderplatz
Halldór skrifar:
Ég vil mælast til þess að sjónvarpið
endursýni þýsku framhaldsþættina
Berlin Alexanderplatz sem sýndir voru
íýrir nokkrum árum. Þessir sápuþætt-
ir, Hótel og Dallas, eru alveg að gera
út af við mann. Hvað er þetta annað
en skrumskæling veruleikans og
draumaveröld markaðshyggjunar? Já,
þetta er rotin framleiðsla.
Ég minnist þess hins vegar að í þátt-
um Fassbinders hafi verið dregnar upp
trúverðugar myndir úr hinu daglega
lífi fólks. Þetta voru raunsæir þættir
og mjög vandaðir. Endursýnið þá sem
allra fyrst.
Spáð í spilin
Richardt Ryel stórkaupmaður
skrifar:
Hver vildi ekki geta spáð í fram-
tíðina, svo sem um 15-20 ár? Þetta
er ef til vill ekki eins erfitt og virð-
ist í fljótu bragði. Svo vel vill til
að við höfum hörku spákonu okk-
ur til halds og trausts, þar sem er
fyrrv. ráðherra og núverandi vara-
formaður jafhaðarmanna í
Danmörku, grasrótarkonan Ritt
Bjerregaard.
Hlustandi hringdi:
Mig langar að þakka þeim Margréti
Blöndal og Vigni Sveinssyni kærlega
fyrir skemmtilega næturvakt á rás 2
Frúin, sem talin er tilheyra
vinstri væng flokksins og mjög lík-
legur arftaki Anker Jörgensens,
fyrrv. forsætisráðherra, er ómyrk
í máli. í stuttu máli spáir frúin því
að óhjákvæmileg söguleg þróun
muni alhema allt einkaframtak í
atvinnu- og viðskiptalífi Dan-
merkur (Hvað um okkur?) fyrir
næstu aldamót. Öll fyrirtæki yrðu
þá þjóðnýtt eða rekin af bæjar- og
sveitaifélögum, segir frúin. Hún
spáir því einnig að stéttaskipting
eitt laugardagskvöld fyrir stuttu. Lög-
in voru frábær, kynningamar
skemmtilegar og greinilega heyrðist
að þau voru sjálf í góðu skapi.
Ég sat heima ásamt nokkrum vinum
verði þá komin á. Nokkrar efa-
semdir virðist hún þó hafa um að
fullkomið jafnræði verði komið á
árið 2000. Hér sé við ramman reip
að draga, gamlar hefðir og venjur
sem þurfi að sigrast á.
Það er alltaf fróðlegt að frétta
hvað er að gerast rétt utan við
túngarðinn hjá manni. Trúlega
gætum við lært eitthvað af þessum
spádómi, en aðeins tíminn getur
leitt í ljós sannleiksgildi hans.
og vorum við á leið á ball. Fjörið á
rásinni var svo mikið að við ætluðum
varla að geta hætt að hlusta. Bestu
þakkir fyrir frábæra skemmtun,
Margrét og Vignir.
Skurð-
goða-
dýrkun
Ólafur hringdi:
Hvemig er það? Vorum við ekki
hætt að dýrka einhverja ímyndaða
guði? Greinilega ekki. Fólk virðist
allavega dýrka knattspymuguð-
inn eins og þann æðsta um þessar
mundir. I guðanna bænum, at-
hugið að fótbolti er eins og hvert
annað tómstundagaman. Erlendis
heyrir maður að menn myrði vini
sína og eiginmenn konur sínar
vegna þess eins að þau eru ekki
sammála um einstök atriði knatt-
spymunnar. Þetta er alveg hræði-
legt.
Þjóðin ætti að minnka dýrkun
sína á þessum vonda guði áður en
hlutimir snúast til verri vegar.
Laugar-
dagsopnun
verslana
Neytandi hringdi:
Ég vif þakka þeim kaupmönnum
sem hafa verslanir sínar opnar á
laugardögum. Það vill nefnilega
oft gleymast nokkuð sem heitir
þjónusta við neytendur. Slík þjón-
usta virðist a.m.k. fátíð hjá ýmsum
nkisfyrirtækjum.
Sú
þýska
goð
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Mig langar að þakka sjónvarp-
inu fyrir þýsku bíómyndina sem
var sýnd mánudagskvöldið 9. júní.
Þessi mynd lýsti vel aðstæðum í
Þýskalandi og var að mínu mati
raunsæ. Ég vil mælast til þess að
sjónvarpið sýni fleiri slíkar.
Hringið í síma
27022
milli kl. 13 og 15
eða skrifið.
Margrét og Vignir. - Takk fyrir skemmtilega næturvakt, segir útvarpshlustandi.