Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Side 24
24
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JUNÍ 1986.
Rainbow málið:
Viðræður
í vikunni
„í þessari viku mun Hans G. Ander-
sen, sendiherra í Washington, eiga
viðræður við fulltrúa utanríkisráðu-
neytisins og varnarmálaráðuneytisins
í Bandaríkjunum um það hvemig og
með hvaða hætti þeir hafi hugsað sér
að breyta reglunum um vöruflutninga
til vamarliðsins," sagði Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra.
Georg Schultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Matthías hittust á
utanríkisráðherrafimdi Atlantshafs-
bandalagsins í vor, þar sem Schultz
sagðist mundu ræða við Weinberger
utanríkisráðherra um breyttar reglur
í deilunni um flutninga Rainbow Na-
vigation á vamingi fyrir vamarliðið á
Keflavíkurflugvelli.
Að sögn Matthíasar hafa einhveijar
viðræður milli Schultz og Weinbergers
farið fram. „Hans G. Andersen mun
kynna sér hvemig málið stendur og
meta það hvort forsendur séu fyrir
frekari viðræðum milli fulltrúa ríkis-
stjómanna," sagði Matthías.
Um setningu íslenskra laga vegna
vöruflutninganna sagði Matthías að
það væm bara hugmyndir sem ekki
hefðu komið til skoðunar. „Slíkar hug-
myndir verða ekki skoðaðar á meðan
verið er að reyna samkomulagsleið.“
-KB
Sigurbjöm Stefánsson á Létti sem kosinn var fallegasti hesturinn á 17. júní
mótinu. DV-mynd Ægir.
Steinunn Traustadóttir í verðlaunagarði sínum á Hofsósi. Fyrsta kúlugróðurhúsið, sem reist var á landinu, er fyrir aft-
an hana. En það var einmitt reist i garðinum hennar Sfeinunnar.
DV á Hofsósí:
Plönturnar þrrfast
innan um drunurnar
Jcn G. Haukssan, DV, Akureyri;
Fyrsta kúlugróðurhúsið, sem reist
var á landinu, er á Hofsósi, í verð-
launagarðinum við húsið Bergland.
Sérlega fallegur garður og alveg
sneisafullur af plöntum.
„Kúluhúsið er það eina sem dugir,
það tekur ekki vind á sig en hér á
Hofsósi er suðvestanáttin mjög slæm
á sumrin. Hún getur lagt allan gróður
í rúst,“ sagði Steinunn Traustadóttir,
húsfreyja í Berglandi.
Hún eyðir öllum frístundum sínum
á sumrin í garðinum. Fjöldi plantna
hjá henni er áberandi, þær eru langt
yfir hundraðið. „Við ræktum plönt-
umar sjálf og trén mikið til líka.“
Hljóðkútaverksmiðjan Stuðlaberg
er sambyggð íbúðarhúsinu Berglandi.
Það er eiginmaður Steinunnar sem
rekur verksmiðjuna. „Jú, jú, plöntum-
ar þrífast vel innan um drunumar,"
sagði Steinunn.
Léttir fékk
bikarinn
- á kappreiðum hjá Goða á Fáskmðsfirði
Ægir KrisBrescti, DV, FáskrúösfirðL-
17. júní kappreiðar hestamannafélags-
ins Goða á Fáskrúðsfirði hófúst með
mótssetningu Friðmars Gunnarsson-
ar, hreppstjóra í Tungu. Síðan var
hópreið hestamanna um svæðið, ávarp
flutti Berglind Agnarsdóttir og áhorf-
endur völdu fegursta hest mótsins.
Sigurvegari í þeirri keppni varð Léttir
Sigurbjöms Stefánssonar frá Hólag-
erði og hlaut hann farandbikar í
verðlaun. Næst var sýning á sigur-
vegurum í A- og B-flokki gæðinga. í
A-flokki varð efst Glóblesa með eink.
7,80, eigandi Sverrir Reynisson, í öðm
sæti Silfri, eink. 7,79, eigandi Reynir
^ Guðjónsson, og í 3. sæti Grikkur, eink.
7,65, eigandi Páll Gunnarsson. I B-
flokki gæðinga sigraði Strákur, eink.
8,42, eigandi Ólafur Reynisson, í 2.
sæti Gosi, eink. 8,06, eigandi Karl
Knudsen, og í 3. sæti Prins, eink. 7,95,
eigandi Bjöm Kr. Bjamason. Efstu
hestar í A- og B-flokki hlutu farand-
bikara sem gefhir em af Verkalýðs-
og sjómannafélagi Fáskrúðsfjarðar. í
flokki unglinga sigraði Esther Her-
mannsdóttir á Emi með eink. 7,86 og
í 2. sæti varð María Sigurbjömsdóttir
á Nótt., eink. 7,46. Síðan var keppt í
brokki, skeiði, unghrossahlaupi,
stökki og naglaboðreið. Hestamenn
buðu bömum á hestbak og höfðu þau
gaman af. Um kvöldið var dansleikur
á skólavellinum og lék hljómsveitin
Fiff fyrir dansi.
s»
mmt
iignr' <
- -af r*.
Þessi torfbær er ekta, hlaðinn samkvæmt kúnstarinnar reglum og prýðir verðlaunagarðinn á Hofsósi.
DV-myndir JGH
1
Einar Guðmundsson rennir í Austurá I Miðfirði, en fiskurinn var tregur j)ó
margir væru. Miðfjarðará hefur gefið 115 laxa. DV-mynd G. Bender
Laxá í Dölum:
Glæsileg byrjun
„Þetta var frábært og við fengum
75 laxa á 6 stangir og hann var 19,5
punda sá stærsti," sagði Pétur
Bjömsson er við náðum í hann í
Laxá í Dölum í gær. „Helgi Eyjólfs-
son veiddi 19,5 punda laxinn í
Dumbsfljóti að maðk og svo veidd-
ust Qórir 17 punda laxar. Megnið af
fiskinum var 10 punda og yfir, þetta
var frábært. Við erum búnir að vera
við veiðar í ánni í þrjá daga. Fiskur
Veiðivon
GunnarBender
er mest efst og neðst í ánni og í
Sólheimafossi veiddist á sunnudag-
inn lax með lús. Það er létt yfir
mönnum og veður gott, dumbung-
„Það veiddust 14 laxar í opnuninni
og ég veiddi sjálfúr 4 þeirra, vorum
tveir saman við veiðar og veiddum
einn dag,“ sagði Ingvar Ingvarsson
á Múlastöðum er við spurðum frétta
af Flókadalsá. „Náði einum 13 punda
í Lundarhólma á maðk. Þetta er
þokkaleg byrjun og reytingur af fiski
í ánni.“ Við hittum veiðimenn við
Flókadalsá á sunnudaginn og þeir
höfðu fengið einn lax, 4 punda.