Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Qupperneq 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986.
Andlát
Guðrún Jónsdóttir, Skaftahlíð 25,
andaðist á Hrafaistu í Reykjavík
laugardaginn 21. júní.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Bar-
ónsstíg 43, andaðist í Borgarspítal-
anum laugardaginn 21. júní.
Eggert Hannah úrsmíðameistari,
Glaðheimum 4, andaðist í Landa-
kotsspítala 21. júní.
Guðmundur Benediktsson, hús-
gagnasmiður, Barmahlíð 46, Reykja-
vík, andaðist 22. júní í sjúkrahúsi
Akraness.
Sigurbjartur Sigurbjörnsson lést
á heimili sínu í Flórída, Bandaríkj-
unum, þann 20. júní.
Útför Flosa Jónssonar, Bústaða-
vegi 75, fer fram frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 25. júní kl. 13.30.
Guðjón Sigurðsson bakarameist-
ari, Aðalgötu 5, Sauðárkróki, verður
jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju,
fimmtudaginn 26. júní kl. 14.
Útför Guðmundar Þórðarsonar,
fyrrverandi skipstjóra, Hringbraut
111, fer fram frá Fríkirkjunni á morg-
un, miðvikudaginn 25. júní, kl. 13.30.
Útför Péturs Axelssonar garð-
yrkjumanns, er lést á heimili sínu í
Odense í Danmörku þann 29. maí
1986, fer fram í dag, 24. júní, kl. 13.30
í Fossvogskapellu.
Ymislegt
11. bindi Árbókar
Nemendasambands
Samvinnuskólans
Út er komið 11. bindi Árbókar Nemenda-
sambands Samvinnuskólans. Þetta er
lokabindi verksins, en I. bindi kom út árið
1972 undir ritstjóm Sigurðar Hreiðars
blaðamanns.
Ellefta bindið er þeirra stærst, 283 bls.
í því segir Jón Sigurðsson skólastjóri frá
fyrirhuguðum breytingum á Samvinnu-
skólanum sem gerðar verða nú í haust.
Svavar Lárusson ritar um framhaldsdeild
Samvinnuskólans sem tók til starfa 1973
og birtar eru myndir af öllum stúdentum
þaðan. Þá er myndasyrpa úr lífi og stafi
Jónasar Jónssonar sem var skólastjóri
Samvinnuskólans 1918-1955. Eru mynd-
imar fengnar að láni úr sýningu sem
haldin var í Hamragörðum, félagsheimili
samvinnumanna, á síðasta ári í tilefni
þess að 1. maí 1985 voru 100 ár frá fæð-
ingu Jónasar. Ýmislegt fleira efni er í
bókinni, m.a. upplýsingar um nokkra nem-
endur sem fallið hafa niður í fyrri bókum
auk leiðréttinga. En meginhluti bókarinn-
ar er nafnaskrá yfir öll bindin. Þar hafa
komið upplýsingar og myndir af þeim 2.124
nemendum sem stunduðu nám við Sam-
vinnuskólann 1918-1979. Einnig er nafna-
skrá yfir alla þá einstaklinga sem nefndir
hafa verið í bókunum, alls um 14 þúsund
manns og er því með viðamestu nafna-
skrám sem birst hafa við einstakt ritverk.
Árbækur Nemendasambands Sam-
vinnuskólans eru mikil heimild um
nemendur skólans um sextíu ára skeið og
líka um ýmsa þætti í starfi skólans á þess-
um tíma en ýmislegt efni hefur komið í
Árbókunum og hafa þar margir lagt hönd
á plóginn.
Verkið var hafíð af mikilli bjartsýni og
hefur gengið með samvinnu margra eins
og vikið er að í formála ritstjóra fyrir síð-
Utvarp_____________ Sjónvarp
^ Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikari:
íslenskt sjónvarps-
efhi vantar
Mér finnst rás 1 alveg frábær.
Vinnu minnar vegna hef ég ekki
tækifæri til að hlusta á útvarpið á
daginn en kvölddagskráin í gær
samanstóð af úrvalsdagskrárliðum
sem mig hefði langað til að hlusta á
alla. Ég hlustaði á þáttinn þeirra
Hallgríms og Guðlaugar, í loftinu,
og fannst mjög góður. Um kvöldið
komu síðan stórgóðir þættir hver á
eftir öðrum, Þreifeð á Þrymskviðu,
Njálssaga, sem mér finnst alveg ynd-
islegt að hlusta á, og ég hafði líka
áhuga á að hlusta á þáttinn um
málefiú fatlaðra. Þvi miður hafði ég
ekki tíma til að hlusta á allt þetta.
Sjónvarpsdagskráin var líka ágæt
í gærkvöldi, við vorum t.d. blessun-
arlega laus við fótboltann. Ég verð
að segja að mér finnst alveg furðu-
legt hvað opinber stofriun eins og
sjónvarpið getur bókstaflega hliðrað
til öllum sínum áætltmum fyrir fót-
boltann. Vissulega finnst mér ágætt
að horfa á fótbolta við og við en
þrír leikir á dag er of mikið af því
góða. Mér verður bara hugsað til
gamla fólksins eða sjúklinga sem
eiga ekki kost á neinu öðru en þess-
um fótbolta meira en helminginn af
sjónvarpsdagskránni. Ég vona að
það verði komin ný rás fyrir næstu
heimsmeistarakeppni.
Sjónvarpið er annars alveg ágætt,
ég horfi alltaf á fréttir og þætti eins
og Kastljós. Kastljósið er mjög góður
þáttur, betri en fréttimar sem eru
of stuttaralegar.
Það sem vantar þó í íslenska sjón-
varpið er meira af íslensku efiú.
Okkur þyrstir í eitthvað íslenskt,
maður sér það bara þegar þeir sýna
íslenskar myndir eða leikrit, fólk
gerir sér far um að horfa á það. Ég
vona að hann Hrafri fari nú að gera
eitthvað í þessum málum eins og
hann var búinn að lofa.
-BTH
Stjórn Apple gefur Hásknla
Islands tölvur
Hinn 24. október sl. var undirritaður
samningur milli Háskóla Islands og Radíó-
búðarinnar hf., fyrir hönd Apple Comput-
er, um sérstök kjör á Macintosh
tölvubúnaði til skólans. kennara og stúd-
enta. Samningur sá er gerður var við
Háskóla íslands felur m.a. í sér að Háskól-
inn tekur að sér að hanna til'ekið forrit,
en aðrir háskólar sem að þessu samstarfi
standa geta fengið afnotarétt af hug-
búnaðinum. Á sama hátt felst í samkomu-
lagi þessu að Háskóli Islands fær aðgang
að forritinn og upplýsingum frá erlendum
háskólum. Nú hafa stúdentar, kennarar
og Háskólinn keypt nær 300 Macintosh
tölvrn- samkvæmt samningi þessum og
ákvað stjóm Apple af því tilefni að gefa
Háskóla íslands fimm Macintosh plus
tölvur. Vélar þessar verða notaðar við
kennslu í tölvunarfræði. Grímur Laxdal,
framkvæmdastjóri Radíóbúðarinnar, af-
henti gjöfina sl. fimmtudag en við tóku,
fyrir hönd Háskóla íslands, Sigmundur
Guðbjarnarson háskólarektor og Dr. Jó-
hann P. Malmquist, prófessor í tölvunar-
fræði.
Afmælisplakat
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur, sem hefur
starfað frá 1982, lýkur störfum með útgáfu
veggspjalds tileinkuðu Reykvíkingum á
200 ára afmæli höfuðstaðarins. Vegg-
spjaldið er í gulum, appelsínurauðum og
hvítum litum. Myndin byggir á útfærslu
tölunnar 200 sem er i forgrunni. Núllin -
tvær jafngildar stærðir - tákna lífmerki
karls og konu og undir er áletrunin:
Reykjavíkurdætur og -synir. Jafnan
rétt. Frumhugmyndina á Elísabeth Coc-
hran hönnuður en útfærslu hennar sá
Ragnheiður Sigurðardóttir um, höfundur
textans er Ólöf Þorvaldsdóttir. Prent-
smiðjan Grafik hf. annaðist litgreiningu
og prentun. Veggspjaldinu er dreift á flest-
ar borgarstofnanir og aðra staði fjölsótta
af borgarbúum. Björg Einarsdóttir hefur
verið formaður Jafnréttisnefndar borgar-
innar og aðrir nefndarmenn Ásdís J.
Rafnar, Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Gylfi öm Guðmundsson og Þorbjöm
Broddason.
ustu bókinni.
Öll bindin ellefu em nú til sölu í einum
pakka á kr. 4.000 sem telja má lágt verð
fyrir jafnfróðlegar bækur. Bækurnar em
seldar í Hamragörðum, félagsheimili sam-
vinnumanna, að Hávallagötu 24, sími er
91-21944.
Þessi síðasta bók er sett og prentuð í
prentsmiðjunni Odda en innbundin í bók-
bandsstofunni Arnarfelli. Ritstjóri er
Guðmundur R. Jóhannsson.
Ferðalög
Sumarferð Húnvetninga-
félagsins
Hin árlega sumarferð Húnvetningafélags-
ins verður farin laugardaginn 28. júní nk.
Að þessu sinni liggur leiðin um Þjórsárdal
og uppsveitir Ámessýslu, virkjunarsvæði
skoðuð og helstu sögustaðir, fararstjóri
Guðmundur Guðbrandsson. Á heimleið
verður sameiginleg máltíð snædd á Flúð-
um og er verð hennar innifalið í fargjald-
inu sem er kr. 1.500 fyrir fullorðna en kr.
700 fyrir böm yngri en 12 ára. Lagt verður
af stað kl. 8 f.h. frá félagsheimilinu Skeif-
unni 17. Þátttaka tilkynnist fyrir 26. júní
til Brynhildar s. 75211, Bjarna s. 74732 eða
Aðalsteins s. 19863.
Breiðfirðingafélagið
Árleg sumarferð Breiðfirðingafélagsins
verður farin 4.-6. júli. Ferðinni er heitið
í Landmannalaugar. Gist 1 tjöldum. Brott-
för frá Umferðamiðstöðinni kl. 19. Upplýs-
ingar og skráning í símum 685771
Haraldur, 51531 Gyða og 30773 Finnur.
Útivistarferðir
Sigling um sundin blá - Viðey.
Nýjung á afmælisárinu. Ferðir næstu
kvöld.
Brottför frá Komhlöðunni Sundahöfn kl.
20 á þriðjudags- miðvikudags og fimmtu-
dagskvöld. Verð 250 kr. og frítt fyrir böm
með foreldrum sínum. Rútuferðir verða
Málverkasýninqar
Málverkasýning í Þrastalundi
Jörundur Jóhannesson sýnir um þessar
mundir olíumálverk í veitingastofunni
Þrastalundi í Grímsnesi. Á sýningunni eru
12 verk og eru þau öll til sölu. Sýningin
stendur til 13. júlí.
Tapað - Fundið
Seðlaveski tapaðist.
Svart karlmannsseðlaveski með skilríkj-
um tapaðist við Melaskóla sl. sunnudag.'
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
610983.
úr Grófinni (bílastæðinu milli Vesturgötu
2 og 4) kl. 19.30 öll kvöldin, fyrir þá sem
ekki hafa bíl til umráða. Verð 50 kr. Fyrst
verður siglt í Viðey og að nýja skálanum,
Viðeyjarnausti, (hægt að fá, kaffiveitingar,
ekki innifalið) síðan verður boðið upp á
siglingu um sundin blá (milli eyjanna) eft-
ir því sem aðstæður layfa. Skoðið borgina
ykkar frá sjó. Sjáumst.
Kvenfélag Neskirkju
Kvöldferðin verður farin þriðjudaginn 24.
júní kl. 18 frá Neskirkju. Farið verður um
Suðurnes og kirkjan í Grindavík skoðuð.
Drukkið kvöldkaífí við Bláa lónið. Heim
verður komið um miðnætti. Kvenfélags-
konum er heimilt að taka með sér gesti.
Tilkynnið þátttöku fyrir sunnudagskvöld
í síma 13726, Hrefna, og 13119, Hildigunn-
ur.
Fríkirkjusöfnuöurinn
í Reykjavík
Hin árlega sumarferð safnaðarfólks verð-
ur farin sunnudaginn 29. júní 1986. Lagt
verður af stað frá Fríkirkjunni kl. 9 f.h.
Miðar verða seldir í versluninni Brynju,
Laugavegi 29. Upplýsingar í síma 26606 á
daginn og síma 30027 á kvöldin.
Ymislegt
AA-samtökin.
Skrifstofa opin frá kl. 13-17. Símavakt kl.
17-20 alla daga vikunnar í síma 16373.
Jón G. Haukssan, DV, Akuieyri:
Flutningaskipið Suðurland tók niðri
við höfhina í Hrísey um fimmleytið í
gærdag. Skipveijum tókst að losa
skipið. Ekki er vitað til þess að
skemmdir hafi orðið á skipinu eða
bryggjunni við óhappið.
Sá kvittur hefur komið upp í Vest-
mannaeyjum að stórfellt smáfiskadráp
eigi sér stað á miðum rétt undan eyj-
unum og hafi aflanum verið skipað
upp í gáma að næturlagi. Að beiðni
Hafrannsóknarstofiiunarinnar var
veiðieftirlitsmaður sendur til Eyja og
á hann að fylgjast með róðri og upp-
skipun afla í dag. Veiðieftirlitsmaður
er að öllu jöfnu í Eyjum, en þá um-
ræddu nótt sem uppskipunin á að hafa
átt sér stað var hann sofandi.
Bjöm Jónsson, fiskmatsmaður í
Reykjavík, sagði í samtali við DV að
honum þættu þessar fregnir fremur
ósennilegar. „Við vitum ekkert um
sannleiksgildi þessara frétta, en ef satt
reynist mun verða gripið til skyndilok-
unar á svæðinu. Það er einnig útilok-
Kvenfélagið Seltjörn,
Seltjarnarnesi
minnir á gróðursetningu trjáplantna í
kvöld, 24. júni, kl. 20 við Valhúsarskóla.
Kafari kannaði í gærkvöld hugsan-
legar skemmdir á bryggjunni. „Hann
sagði að skrúfa skipsins hefði grafið
nokkuð frá bryggjunni þegar það los-
aði sig. En hann fann engar skemmd-
ir,“ sagði Guðjón Bjömsson, sveitar-
stjóri í Hrísey.
Suðurlandið var að lesta saltfisk í
Hrísey í gær þegar óhappið varð.
að að slíkt smáfiskadróp færi fram hjá
matsmönnum í Eyjum.“ Að sögn
Bjöms mun veiðieftirlitsmaður fylgj-
ast með veiðum og löndun í dag og
nótt og því er niðurstöðu ekki að
vænta fyrr en á morgun.
„Það er hugsanlegt að smáfiskum
sé hent í sjóinn, en þeim er ekki land-
að hér svo ég viti til,“ sagði Ágúst
Helgason, ferskfiskmatsmaður í Vest>
mannaeyjum. Hann hefúr eftirlit með
þeim gámum sem bátamir landa í og
sagði nánast útilokað að hægt væri
að landa smáfiski án sinnar vitundar.
„Ég tel að þetta hafi verið úr lausu
lofti gripið, enda óvíða jafnlítið af
smáfiski og á miðunum hér við eyjam-
ar.“
-S.Konn.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i írabakka 28, þingl. eign Hallgríms Bergssonar
og Ástu Mikaelsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og
Garðars Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1986 kl.
14.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 132., 139. og 146. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Mosabarði 6, n.h., Hafnarfirði, þingl. eign Sigurðar Bjömssonar, fer
fram eftir kröfu Einars S. Ingólfssonar hdl., Bjarna Ásgeirssonar hdl., Gísla
Kjartanssonar hdl. og Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 27.
júni 1986 kl. 13.30.
______________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Kafari kannar skemmdir í Hrísey i gærkvöldi.
DV-mynd JGH
Hrísey:
Suðuriand tók niðri
Smáfiskur í
gáma frá Eyjum?