Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. Viðskipti DV Hitaveita Akraness: „Slæm lausn að láta notendur bovga meira^ - hugmyndir um breyttan rekstur vegna fjárhagsvanda „Fjárhagsstaða hitaveitunnar er slæm, ekki hefur tekist að giynnka á skuldum en hvort breyting á sölu- fyrirkomulagi heits vatns frá veit- unni færir henni meiri tekjur er alveg óvíst, það þýðir þá að notend- ur verða að borga meira. Ekki myndu allir gera sig ánægða með þá lausn,“ sagði Andrés Olafsson, skrifstofustjóri hitaveitunnar á Akranesi, í samtali við DV, aðspurð- ur hvort uppi væru áform um að breyta sölufyrirkomulagi veitunnar með því að taka upp mælakerfi og afriema hemlakerfi, svipað því sem Hitaveita Akureyrar gerði nýlega og hefur gefist vel. Um síðustu áramót voru skuldir Hitaveitu Akraness samanlagt 1,4 milljarðar og hafa farið hækkandi síðustu ár, m.a. vegna óhagstæðra gengisbreytinga. Þvi hafa lán sem tekin voru ó sínum tíma í dollurum vegið þungt. Trúlega verða skuldim- ar hætti nú í árslok. Sagði Andrés að iðnaðarráðuneyt- ið hefði nýlega skipað nefnd, sér- staklega til að fjalla um mál hitaveitunnar og eflaust kæmu þá upp hugmyndir um nýtt rekstrar- form veitunnar, nýtt sölufyrirkomu- lag eða jafnvel hugmyndir um stofnun orkubús, svipað og gert hef- ur verið á Vestfjörðum. Of snemmt væri þó að segja um hvaða ákvarð- anir yrðu teknar. „Fleiri stórar lántökur til hitaveitunnar verða ekki í ár,“ sagði Andrés, „en ýmsar skuldbreytingar verða gerðar, skammtímalánum er breytt í lang- tímalán en það er ólíklegt að takist að grynnka á skuldunum í ár.“ -BTH Hitaveitan á við mikla fjárhagsörðugleika að stríða. Myndin varte lagnmgu hitavatnsleiðslunnar. ' Peningamarkaður VEXTIR (%) hæst Innlán óverötryggð Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 8.5—10 Ab.lb.Vb 6mán. uppsögn 9.S-12.5 Ab.Vb 12 mán. uppsögn 11-14 Ab Sparnaður - Lánsréttur Sparað í 3-5 mán. 8-13 Ab Sp. i 6 mán. og m. 9-13 Ab Ávisanareikningar 3-7 Ab Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-35 U) Innlán með sérkjörum 8-16 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 6-7 Ab Sterlingspund 9-10.5 Ab.Vb Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab Danskar krónur 6-7.5 Ab.Lb.Sb Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge og19.5 Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9 Utlán verðtryggð Skuldabréf Að 2.5 árum 4 Allir Til lengri tima 5 Allir Utlán til framleiðslu Isl. krónur 15 SOR 8 Bandarikjadalur 8.25 Sterlingspund 11.25 Vestur-þýsk mörk 6 Spariskírteini 3ja ára 7 4ra ára 8.5 6ára 9 Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16 Gengistryggð(5 ár) 8.5 Almenn verðbréf 12-16 Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 Oráttarvextir 27 VlSITÚLUR Lánskjaravisitala 1463 stig Byggingavísitala 272.77 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 5%1.júlí HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs: Eimskip 200 kr. Flugleiðir 140 kr. Iðnaðarbankinn 98 kr. Verslunarbankinn 97 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá flestum bönkum og stærri sparisjóðum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar- bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar- bankinn, Sp = Sparisjóðimir. Nánari upplýsingar um pengamark- aðinn birtast í DV á fimmtudögum. Gott verð á fiski í London Grimsby Bv. Asgeir landaði 11. ógúst 170 tonnum fyrir kr. 7,6 millj. Verð: þorsk- ur kr. 42, smáþorskur kr. 39,28. Verð: stór ýsa kr. 50,60, meðalst. kr. 49,62. Karfi kr. 16,14. Ufsi kr. 40,10. Koli kr. 66, smár kr. 69. Annar fiskur var á lægra verði. Ms. Votaberg landaði 7. ágúst, var verð heldur slakt: Þorskur kr. 46,67, smáfiskur kr. 32, ýsa 41. Hull Bv. Engey landaði 189 tonnum 11. ágúst fyrir kr. 11,317 millj. Verð: þorskur kr. 56,60, þorskur, meðalstór, kr. 54,33, smófiskur kr. 45,03. Stór ýsa kr. 80,60, meðalstór ýsa kr. 82. Koli kr. 75, meðalstór koli kr. 74, smákoli kr. 75. Ufsi kr. 70. Karfi kr. 32. Yfir- leitt var gott verð fyrir allan fiskinn, svo sem steinbít og fleiri tegundir. Bv. Vestmannaey landaði 7.8. 161 tonni fyrir kr. 9,8 millj., meðalverð kr. 59,80. Bremerhaven B.v. Krossvík landaði 11. ágúst alls 137 tonnum fyrir kr. 5,4 millj. París Um mánaðamótin júlí-ágúst barst mikið af norskum laxi á markaðiim hjá Rungis, ennfremur nokkuð af sko- skum hafbeitarlaxi, sem var mjög góð vara. Talið var að markaðshorfur væru ekki góðar, því margir fiskkaup- menn hafa lokað verslunum sínum og talið er að svo muni verða allan ágúst- mánuð. Franskur fisk. Innlluttur Þorskur • kr. 71-160 kr. 115-180 Sfld kr. 83-114 Ufei kr. 64- 90 kr. 70-115 Karfi kr. 83- 96 Stórskötus. kr. 385-436 kr.385-424 Norskur lax, 1-2 kg, kr. 166, lax, 4-6 kg, kr. 404. Skoskur hafbeitarlax, 1-2 kg, kr. 250, 4-6 kg, kr. 418. Allt verð miðast við kílóverð. London Billinggate. í byrjun ágústmánaðar var búist við heldur slökum markaði, en úr hefur ræst að hluta til eins og sjá má. Hausaður þorskur, kílóverð kr. 128 Þorskflök, kílóverð kr. 170 Rauðspretta, smá, kílóverð kr. 71 Stór rauðspreta, kílóverð kr. 90 Ufsaflök, kílóverð kr. 64 Skötubörð, kílóverð kr. 122 Norskur lax frá kr. 175-264 Skoskur hafbeitarlax kr. 277 Talið er að markaðurinn standi bet- ur nú en hann hefur gert undanfarin sumur. Noregur Uppboð á þurrkuðum saltfiski í Svolsver. 1 blaðinu Fiskaren er sagt frá upp- boði sem haldið var á saltfiski í Svolsver. Þótti mönnum með ólík- indum hvað verðið gat orðið hátt. Seld voru alls 600 tonn. Var verðið á stærsta fiskinum, 60 cm og stærri, kr. 128 norskar eða kr. 705 ísl. Verðið var frá 97 kr. norskum til 128 kr. norskar eins og fyrr er sagt en mikið af fiskin- um seldist á kr. 120 norskar eða kr. 661 ísl. Margir reyndir kaupmenn, sem höfðu stundað saltfiskkaup árum sam- an, sögðu að þetta verðlag ætti eftir að hefria sín og vildu ekki taka þátt í kaupunum að þessu sinni. Töldu þeir þetta algjörlega ábyrgðarlaust fram- ferði og ættu menn eftir að bíta úr Á erlendum fiskmarkaði. nálinni með þetta þó það yrði ekki fyrr en á næsta ári. Noregur í norska blaðinu Fiskaren frá 31. júlí er sagt fiá því að fyrirtæki í Bodö selji Færeyingum verksmiðju til fram- leiðslu á surimi. Talið er að surimi- framleiðsla muni fara vaxandi á næstu árum og hugsa Færeyingar sér að taka þátt í þeirri framleiðslu eftir því sem þeim hentar. Þeir gera út einn stærsta togara sem gerður er út í Norður- Atlantshafi og er verkefhi hans meðal annars að framleiða surimi. Norsk fiskiskip landa miklu af smá- makríl í rússnesk frystiskip sem liggja fyrir utan Abelsnes. Ekki eru norskir kaupmenn hræddir við þessa verslun og telja sig fá nægilega mikið af stór- um og smáum makríl til sinnar framleiðslu þrátt fyrir þessi viðskipti við Rússa. En eins og við munum var nokkuð um það á síðasta ári að norsk síldveiðiskip lönduðu síldinni beint í rússnesk verksmiðjuskip. New York Upp úr mánaðamótum hefur verið lítil eftirspum eftir laxi á markaðnum hjá Fulton og ekki búist við breyting- um þar á á næstunni. Venjulega em mánuðimir ágúst og september þeir mánuðir sem em heitastir og erfiðast- ir vegna hita og raka sem er í borginni þennan tíma. Neysla er meiri á ávöxt- um og grænmeti. Ekki er um að kenna miklu framboði af laxi, hvorki nor- skum né Kyrrahafslaxi, því lítið hefur borist af Kyrrahafelaxi og mun minna en oftast óður. Pundið af Kyrrahafe- laxi er að venju 40 krónum lægra en pundið af norskum laxi. I sverðfiski Fiskmarkaðirnir Ingólfur Stefánsson fró Spáni hefur mælst of mikið af kvikasilfri og telja menn að það muni hafa áhrif á laxaverðið að ekki er eins mikið af sverðfiski ó markaðnum og ella hefði verið. Það ó eftir að sýna sig mjög fljótlega hvort það á eftir að hækka verðið á norskum laxi. Verð á norskri rækju er áhugavert um þessar mundir og hefur kílóið af rækju verið 376 til 390 ísl. kr. Talið er að litlar birgðir séu til vestra og muni verðið því stíga á næstunni í kr. 450 til 470 kílóið. Það vekur líka mikla athygli að löndun á rækju fró Oregon hefur minnkað úr 822.000 lbs. í 354.000 lbs. Þetta er talið að muni hafa afger- andi áhrif á rækjuverðið. Á markaðn- um hjá Fulton hefúr verið mikið framboð af stórum og hvítum hörpu- skelfiski en verðið verið fremur lógt og telja Norðmenn að ekki horfi væn- lega fyrir sölu á norskum hörpuskel- fiski, sem er bæði minni og gulari. England. Fiskurúrgámum 11. ágúst. Selt magn kg Verð erl. mynt Söluverð ísl. kr. kr. á kg Þorskur 291.466,25 213.001,00 12.854.610,35 44,10 Ýsa 18.010,00 17.497,40 1.055.968,09 58,63 Ufci 6.650,00 2.913,40 175.823,69 26,44 Karfi 1.035,00 614,00 37.054,90 35,80 Koli 2.130,00 2.090,40 126.155,64 59,23 Blandað 5.118,75 6.018,00 363.186,30 70,95 Samtals: 324.455,00 242.134,20 14.612.798,97 45,Oí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.