Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986.
Utlönd
Bjartsýni á kjama-
sammna sem næstu
orkulind jarðarbúa
Nýtt 200 milljón gráðu methitastig við bandanskar vísindatilraunir
Vísindamönnum við eðlisfræði-
stofnun Princetonháskóla í New
Jerseyríki í Bandaríkjunum tókst
fyrir skömmu að mynda hæsta hita-
stig er tekist hefur að mynda við
vísindatilraun til þessa.
Vísindamennimir hafa um hríð
unnið að rannsóknum á kjamasam-
runa vetnis með tilliti til orkufram-
leiðslu en til að unnt sé að beisla
slíkan kjamasamruna til orkufram-
leiðslu þarf meðal annars óhemju
hátt hitastig.
200 milljón gráður
Tókst vísindamömnmum að knýja
fram rúmlega 200 milljón gráða hita
á selsíuskvarða, eða tífaldan hita
sólarinnar, og halda honum í einn
immta hluta úr sekúndu, nokkuð
'm að þessu hefur ekki tekist.
rniastigið i tilrauninni nú er tvisv-
ar og hálfú sinni hærra en fyrra met
er sett var með svipuðum tækjabún-
aði i sömu tilraunastofu árið 1980.
Kjamasamruni er andstæða
kjamaklofnings en orka sú sem
framleidd er í dag í kjamorkuverum
víðs vegar um heim myndast við
kjamaklofhing.
Úraníum er undirstöðuefhi við
orkuframleiðslu í kjamorkuverum
og byggist orkumyndunin á klofri-
ingi úramums í aðrar sameindir.
Langtímamarkmið vísindamann-
anna er að koma á varanlegum
kjamasamruna vetnis til orkufram-
leiðslu á svipaðan hátt og gerist í
sólinni þar sem orka hennar mynd-
ast við kjamasammna vetnisatóma
er síðan framkallar helíum.
í tilraunum sínum reyna vísinda-
mennimir að líkja eftir efriahvarfi
sólarinnar, hinu svokallaða sólar-
hvarfi, með sams konar vetnisatóm-
um og við eins líkar aðstæður í
tilraunastofúm á jörðu niðri.
Bylting í orkuframleiðslu
Óhætt er að fullyrða að bylting
yrði í allri orkuframleiðslu jarðar-
búa ef vísindamönnum tækist að
mynda nægan hita og halda honum
nógu lengi til að koma á sólarhvarfi
í tilraunastofum sínum.
Undirstöðuhráefni fullkominnar
orkuframleiðslu yrði þá vatn, sem
nóg er af í heiminum, og komist yrði
hjá menguðum geislavirkum kjam-
orkuúrgangi er nú er óhjákvæmileg-
ur fylgifiskur orkuframleiðslu í
kjamorkuverum, auk þess sem
birgðir úraníums á jörðinni em mjög
takmarkaðar.
Úrgangur orkuframleiðslu með
kjamasamruna yrði aftur á móti
með öllu skaðlaus.
Með kjamasamruna á þessu stigi
Kjameölisfræöingurinn Harold
Furth stjómar tilraununum viö
Princetonháskóla og segist vera
bjartsýnn á kjarnasamruna sem
framtíðarorkugjafa.
hefði vísindamönnum tekist að búa
til ótæmandi orkugjafa fyrir jarðar-
búa.
Stjómandi tilraunanna við Prince-
ton er kjameðlisfræðingurinn
Harold Furth er rannsakað hefúr
kjamasamruna í nokkur ár.
Sagðist Furth vera bjartsýnn á að
vísindamennimir næðu markmiði
sínu á næstu árum og að kjama-
sammni yrði helsti orkugjafi jarðar-
búa í framtíðinni.
Vísindamenn telja að það þurfi um
360 milljón gráðu hita á selsíus til
að koma á áhrifaríkum kjamasam-
runa og þvi hitastigi þarf síðan að
halda nógu lengi til að nýta megi
samrunann til orkuframleiðslu.
Kjarnasamruni í segulsviði
Annað höfuðverkefni rannsókn-
anna er að hanna réttan vettvang,
eða tækjabúnað til að hægt sé að
viðhalda slíkum hita, en enn hefur
ekki tekist að framleiða nokkuð það
ílát er haldið getur svo heitu efni
án þess að bráðna.
Reyna vísindamennimir nú að
þróa sérstakt segulsvið með ákveðnu
rafsviði til að geta haldið efni
kjamasamrunans í lausu lofti í seg-
ulsviðinu og haft er eftir banda-
rískum vísindamönnum á þriðjudag
að þeir telji sig skammt frá því að
finna lausn á báðum þessum höfuð-
vandamálum.
„Ég held að þetta verði auðveldara
en að byggja aðra geimskutlu,“ er
haft eftir Robert Taylor, prófessor í
kjameðlisfræði við Kalifomíuhá-
skóla, er unnið hefur við tilraunimar
í New Jersey.
. ..vsí--
Pakistanskar öryggissveitir færa stjórnarandstæðinga til yfirheyrslu í höfuð-
borginni Karachi. Mikill órói er nú á meðal stjórnarandstæðinga eftir
handtöku Benazir Bhutto, leiðtoga stjórnarandstæðinga.
Pakistan:
Götubardag-
ar í kjöl-
far hand-
töku Bhutto
Stjómarandstæðingar boða tii aðgerða eftir 18. ágúst
Stjómarandstæðingar í Pakistan
hafa látið til sín taka í meiriháttar
mótmælaaðgerðum gegn ríkisstjóm-
inni síðustu tvo sólarhringa til að sýna
andúð sína á herferð stjómvalda gegn
andstæðingum ríkisstjómarinnar.
Öryggislögregla í höfuðborginni
Karachi handtók í gær Benazir
Bhutto, dóttur Ali Bhutto, fyrrum leið-
toga Pakistan, en Benazir er fremst í
flokki stjórnarandstæðinga í landinu.
Var hún handtekin í þann mund er
hún var að stíga upp i flugvél til að
fara á milli borga.
Á sama tíma felldi skothríð öryggis-
sveita fjóra stjómarandstæðinga er
staðið höfðu fyrir mótmælaaðgerðum
í höfuðborginni.
Til mikilla átaka kom í gær í fjórum
borgum í Pakistan og þurfti lögreglan
að dreifa þúsundum mótmælenda með
gúmmíkúlum og táragasi er af heift
gagnrýndu stjómvöld fyrir handtöku
leiðtoga síns.
Óróinn í Pakistan að undanfomu er
sá mesti í landinu frá því núverandi
leiðtogi, Zia-Ul Haq, hershöfðingi
komst til valda í byltingartilraun árið
1977.
Samtök pakistanskra stjómarand-
stæðinga, flokksbrot niu stjómmála-
flokka í landinu er kalla sig „Samtök
um endurreisn lýðræðis", lýstu því
yfir í gær að stjómarandstæðingar í
landinu myndu hefja allsherjar mót-
mælaaðgerðir og verkföll frá og með
átjánda ágúst næstkomandi ef stjóm-
völd kæmu ekki til móts við kröfúr
um að sleppa stjómarandstæðingum
úr haldi.
Auk Bhutto hafa þúsundir stjómar-
andstæðinga verið hnepptir í varð-
hald.
Fyrirskipa
handtöku
fyrrum
yfirmanns
flughers
Chile
Dómstóll í Chile fyrirskipaði í
morgun handtöku eins fyrrver-
andi meðlims í herforingjaráði
landsins, þriggja fyrrum hers-
höfðingja og þrjátíu og sex
annarra vegna meintrar aðildar
að hvarfi leiðtoga chileanskra
kommúnista fyrir einum áratug.
Krefst dómstóllinn þess að her-
foringjaráðsmaðurinn fyrrver-
andi, Gustovo Leigh, er var
fyrrum yfirmaður flughersins að
auki, verði handtekinn ásamt
þeim síðamefndu og ásakar þá
um aðild að ólöglegri leynihreyf-
ingu er beitt hafi sér fyrir
morðum á leiðtogum vinstri-
manna í landinu.
Gustove Leigh var vikið úr
herforingjaráði Chile árið 1978.
Mannréttindasamtök fullyrða
að sex hundmð manns að
minnsto kosti hafi .horfið spor-
laust á þrem fyrstu árum valdat-
íma Pinochets hershöfðingja í
Chile og leiki ekki nokkur vafí
á því að samtök Leigh, fyrrver-
andi herforingjaráðsmanns, eigi
þar sinn hlut að máli.
5pa Tram-
haldi geim-
ferjuáætl-
unar 1988
HaDdár Vaidimaxssan, DV, DaDas;
Skýrt var frá því í Houston í
vikunni að verkfræðingar
bandarísku geimferðastofinmar-
innar hefðu endurhannað eld-
flaugamótora geimfeijunnar með
það fyrir augum að koma f veg
fyrir möguleikann á öðru slysi
af því tagi er varð er ferjan Chal-
lenger fórst í janúar síðastliðn-
um.
Er búist við því að tilraunir
með hina nýju gerð eldflauga-
mótora geti hafist í haust og ef
allt gengur vel er tolið að ferðir
geimferjanna geti hafist að nýju
í byrjun árs 1988.
John F.
Kennedy
að Líbýu-
ströndum?
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið tilkynnti í morgun að
flugmóðurskipið John F.
Kennedy ásamt níu fylgdarskip-
um yrði sent til Miðjarðarhafs á
næstunni til að leysa af flug-
móðurskipið Ameríku og fylgd-
arskip er þar hafa gegnt
skyldustörfúm undanfama sex
mánuði.
Bandaríkjamenn halda að
meðaltoli tveim flugmóðurskij>-
um á Miðjarðarhafi og hafa
aukið flotastyrk sinn á hafsvæð-
inu við Iibýu f kjölfar vaxandi
spennu í samskiptum ríkjanna
og loftárásar Bandaríkjamanna
á Líbýu í vor.
Umsjón:
Hannes Heimisson