Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. Uflönd Tóbaks-, súkkulaði- og bókhalds- bruðl í samgönguráðuneytinu Afsógn danska samgönguráðheirans kom engum á övart Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaraiaha&u Ame Melchior, samgönguráð- herra Dana, baðst formlega lausn- ar frá embætti í fyrradag. Gekk hann á fund Poul Schlúters forsæt- isráðherra eftir að ljóst varð að hann yrði að öllum líkindum settur af vegna bókhaldsóreiðu og ásak- ana um að skara eld að eigin köku. Eftir skyndifund í þingflokki danskra miðdemókrata, flokki Melchiors, á þriðjudag þótti ekki ástæða til að ráðherrann viki úr embætti sínu. Var ákvörðun um framtíð ráðherrans alfarið falin for- sætisráðherra með þeim orðum að fullur skilningur væri á þeim mögu- leika að ráðherrann yrði látinn víkja. eftir auk þess sem fylgiskjöl þóttu ófullnægjandi er þau loks birtust. Fékk hann áminningu og lofaði að kippa hlutunum í lag. Starfsmenn ríkisendurskoðunar létu þó aftur heyra í sér og fóru dýpra í saumana á fjármálum ráðuneytis- ins. Úr því varð skýrsla er valdið hefur fjaðrafoki síðustu daga. í skýrslunni er meðal annars bent á fyrmefhd uppgjör ferðalaga, óhóf- lega neyslu áfengis, tóbaks og súkkulaðis í ráðuneytinu, auk lé- legra fylgiskjala vegna móttaka ráðherrans heimafyrir og erlendis. Ber þar hæst sextugsafmæli ráð- herrans er í allt kostaði danska ríkið rúmar 180 þúsund íslenskar krónur. Eitt hinna heimatilbúnu fylgiskjala ráðherrans er danska ríkisendurskoðun- in lét í Ijós óánægju sina með. Á reikningum segir að um sé aö ræða útgjöld vegna matarsnarls og drykkjarfanga opinberrar embættismanna- nefndar á heimili ráðherrans. Poul Schluter slapp þó við að reka Melchior, en að flestra áliti var það besta leiðin út úr máli er ógnað hafði orðstír ríkisstjómarinnar og þing- manna almennt. Ame Melchior sagði i viðtali við danska sjónvarpið í gærkvöldi að hann viki úr embætti vegna þeirra aðstæðna er upp hefðu komið. Málsatvik sjálf taldi ráðherrann fyrrverandi alls ekki svo alvarleg, en umfjöllun fjölmiðla um málið í síðustu viku hefði valdið miklu álagi á ríkisstjóm, flokk sinn og síðast en ekki síst fjölskyldu og vini. Sagðist Melchior því hafa talið það óhjá- kvæmilegt að hann segði af sér. Arftaki Melchiors verður varafor- maður miðdemókrata, Frodi Nör Christensen, en hann hefur starfað sem lögreglumaður að undanfömu. Óreiða í fjármálum Ame Melchior hefúr lengi verið tengdur óreiðu í fjármálum sam- gönguráðuneytisins. Komst hann í brennidepil síðasta vetur eftir að ríkisendurskoðun hafði gagnrýnt hann fyrir seinagang á uppgjöri fyrir ferðalög sín erlendis. Hafa ráðherrar og þingmenn tvær vikur til að gera upp ferðir sínar en Melchiör var nokkrum mánuðum á Sagði ráðherrann að upphæðin gæfi ekki rétta mynd af afmæli hans, en rétt væri að upphæðin væri of há. Sagði hann venju að haldið væri upp á stórafmæli ráðherra í viðkom- andi ráðuneyti, en í þetta skipti hefði kvöldverður á Hótel Marienlyst við Helsingör á reikning ríkisins farið töluvert yfir markið. Var kvöldverðurinn í boði ráðu- neytisins, en engu að síður er það ráðherrann sjálfur er endanlega ábyrgð ber á útgjöldunum og finnst mörgum sem ráðherrann hafi átt að segja stopp við kvöldverðinn. Ekki hafa fylgiskjöl Melchiors varðandi kostnaðinn við móttökur vakið minni athygli. Lét hann sér tíðum nægja að skrá útgjöldin á pappírssnepil, þar sem fram kom tilefhið og upphæðin, er nær undantekningarlaust var í heil- um hundruðum. Tóbakskaup fyrir 250 þúsund Innkaup ráðuneytisins á áfengi og tóbaki þóttu einnig í meira lagi og var tóbaksreikningurinn einn kom- inn í 250 þúsund íslenskar krónur á þessu ári. Vitað er að Melchior hefúr mikið dálæti á vindlum, en ekki er þó stað- Mörgum þótti samgönguráðherrann fara yfir rauða strikið með dýrindis sextugsafmæli á vegum ríkisins á glæsi- hóteli við Helsingör í fyrra er kostaði danska ríkiskassann alls 180 þúsund krónur íslenskar. Bókhaldsóreiða Ame Melchior samgönguráðherra hefur nú valdið dönsku rikisstjórninni miklum álitshnekki og kostað ráðherrann embætti sitt. fest hve stór þáttur kaup á fínum dýrum vindlum er í tóbaksreikn- ingnum. Ame Melchior hefur ekki reynt að skjótast undan ábyrgð sinni og viðurkennir að hann hafi gert mis- tök. Ekki er ólíklegt að seinna meir verði munað eftir Ame Melchior sem ráðherranum er bruðlaði með peninga ríkisins. Ame Melchior á einnig í vök að verjast þar eð skoðanakannanir hafa leitt í ljós að hann var einn óvinsæl- asti ráðherra ríkisstjómarinnar. Þótti atorkusamur ráöherra Verk hans tala þó sínu máli. Hann þykir hafa verið mjög at- orkusamur síðastliðin fjögur ár í ráðherrastól. Melchior tókst að koma fjármálum póst> og símamálastofnunarinnar í lag, en um 70 milljarða danskra króna halli var á rekstri hennar. Mikil gróska hefur einnig verið í vega- og brúargerð undir stjóm Melchior, auk endurskipulagningar á allri verslunarstarfsemi á Kastmp- flugvelli, er gefið hefur af sér góðan arð. Listinn er langur, en ofangreint ber einna hæst. Ame Melchior er 61 árs og hefur ekki hugsað sér að hætta alfarið af- skiptum af stjómmálum. Hann segist ætla að sitja áfram á þingi fyrir miðdemókrata og kveðst fa nóg af verkefnum en um leið meiri tíma fyrir fjölskyldu og vini. f framtíðinni þykir Dönum æski- legt að settar verði ákveðnar reglur um hvar setja eigi mörkin milli per- sónulegra og opinberra veisluhalda á vegum ríkisins. Umsjón: Hannes Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.