Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 19
18 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. 31 íþróttir___________________________________________________________________________________________dv___________dv_________________________________________________ Iþróttir Þórsarar bestir á Akureyri Þórsarar urðu Akureyrarraeistarar í knattspymu þegar þeir lögðu erkifjendurna úr KA að velli, 2-0. Halldór Áskelsson skoraði fyrra mark Þórs en seinna markið var sjálfsmark Erlings Kristjánsson- ar sem skallaði knöttinn í eigið mark. Hér á myndinni sést Nói Bjömsson, fyrirliði Þórs, með bikarinn sem það félag fær sem hlýtur nafnbótina besta knattspymufélag Akureyrar. -SOS/DV-mynd JGH Efhilegur Dani til Real Madrid Einn efoilegasti leikmaður Dana, Fleming Poulsen, hefor nú gert samning við Real Madrid og heldur því á vit atvinnuknatt- spymunnar á næstunni. Paulsen, sem er aðeins 18 ára, vakti mikla athygli þegar hann afþakkaði sæti i danska HM liðinu. Hann ákvað að ljúka stúdentsprófi frekar en að fara til Mexíkó. Sepp Piontek til- kynnti honum að hann myndi verma varamannabekkinn þó hann vildi gjaman hafa hann með til Mexíkó. Poulsen afþakk- aði það og lauk prófúm. Hann hefur leikið með Árósaliðinu í Danmörku. Real Madrid mun þó ömgglega ekki nota hann næsta vetur því fyrir em Hugo Sanc- hez og Jorge Valdano hjá liðinu. Poulsen mun því leika með varaliði Real Madrid, Castilla, sem leikur í 2. deild. -SMJ Brasilískur sigur á Pillips Cup Brasiliska liðið Gremio sigraði á Pillips Cup mótinu í Hollandi. í undanúrslitum sigmðu Brasil- íumennimir Anderlecht, 3-1. Þeir Raul, Renato og Ortiz skomðu mörk Gremio en Juan Lozano skor- aði fyrir Anderlecht. í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Gladbach PSV Eindhoven eftir vítaspymu- keppni en staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma. I úrslitum mættust því Gremio og Gladbach og sigmðu Brasilíumennimir, 2-1, eftir að hafa kom- ist í 2-0 með mörkum þeirra Antonio og Renato. Lienen skoraði mark Þjóðverja. Anderlecht vann PSV Eindhoven, 2-1, í leik um þriðja sætið og skor- aði Kmcevic bæði mörk Anderlecht. -SMJ LHsjónvarp og myndband - fyrir holu í höggi á SeHossi Svemn A Sigurðsscn, DV, SelfossL' Hitachi-golfmótið, á vegum Golfklúbbs Selfoss, verður á Svarfhólsvelli á laugardag, 16. ágúst. Keppt verður með og án forgjaf- ar. Ræst verður út kl. 8.30 á laugardags- morgun og skráning verður í dag frá kl. 13—19 í síma 99-1957. Þá einnig gefair upp rástímar. Verðlaun verða glæsileg, m.a. lit- sjónvarp fyrir að fara holu í höggi á fjórðu braut og myndbandstæki fyrir sama afrek á sjöundu braut. GR-sveitin sigursæl á Akureyri Ján G. Hauksscn, DV, Ækureyri: „Við áttum allt eins von á því að vinna sigur hér á Akureyri. Við er- um með góða og samstillta sveit,“ sögðu strákamir úr A-sveit Golf- klúbbs Reykjavíkur eftir að þeir urðu íslandsmeistarar í sveitakeppni unglinga á Jaðarsvellinum á Akur- eyri. Sveitina skipuðu þeir Sigurjón Amarson, Jón Karlsson, Helgi Ei- ríksson og Gunnar Sigurðsson. Liðsstjóri þeirra var Rósmundur Jónsson, gamalkunnur handknatt- leikskappi úr Víkingi. Sveitin lék til úrslita við A-sveit GK og lauk þeirri viðureign með sigri GR, 4-1. Hér á myndinni má sjá strákana í GR- sveitinni. DV-mynd JGH „Atli með lungu eins og hestur - segir Kalli Feldkamp, þjálfarí Bayer Uerdingen „Atli Eðvaldsson er með lungu eins og hestur. Hann getur hlaupið enda- laust,“ sagði Kalli Feldkamp, þálfari Bayer Uerdingen, eftir leik Uerdingen gegn Homburg. Islenski víkingurinn vakti þá athygli - átti stórgóðan leik sem miðvallarspilari, afiasti maður á miðjunni, og Atli skoraði fyrsta mark- ið í V-Þýskalandi, eins og sagt hefur verið ffá. „Ég ætlaði að fagna markinu með því að borða harðfisk eins og ég gerði 1980 þegar ég skoraði fyrsta mark Bundesligunnar. Félagar mínir mót- mæltu. Sögðu að það væri það mikill faykur af harðfiskinum," sagði Atli í viðtali við knattspymutímaritið „Kic- ker“ eftir leikinn. Markið sem Atli skoraði var hans 56. mark í v-þýsku deildarkeppninni. Hann hefur leikið þar með Dortmund, Dússeldorf og Uerdingen. -sos Körfubolta- skóli Hauka Körfaknattleiksdeild Hauka verður í ágúst með körfubolta- skóla fyrir drengi og stúlkur. Kennslan fer fram í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Farið verður yfir helstu undirstöðuatriði körfo- knattleiksins og leikið á „minni körfo“. Þá koma þekktir körfo- knattleiksmenn og þjálfarar koma í heimsókn. Mánudaginn 18. ágúst verður innritað og byijað. Verð fyrir námskeið er kr. 500. Stendur námskeiðið síðan út vikuna. Kennari verður Ingvar S. Jóns- son, íþróttakennari og þjálfari. • Atli Eðvaldsson sést hér (nr. 9) fagna marki sínu. Greg Norman tapaði á lokasprettínum á PGA Eftir æsispennandi lokadag tókst Bandaríkjamanninum Bob Tway að sigra á PGA golfmótinu í Toledo í Ohio. PGA er eitt af fjór- um stærstu golfmótum sem haldið er á ári hverju - „ásunum fjórum“ - og eru verðlaunin hæst á PGA mótinu af þessum mótum. Hin þrjú eru US Open, US Masters og Brit> ish Open. Fyrir síðasta daginn hafði Ástr- alíumaðurinn Greg Norman örugga fjögurra högga forystu. En eins og reyndar oft áður í sumar virtust taugamar bregðast honum á síðustu stundu. Hann lék á 76 höggum síðasta daginn og endaði á 278 höggum - tveimur fleiri en Tway sem lék á 276. Tway, sem varð í 48. sæti á British Open en . þar sigraði Norman, setti vallar- met á þriðja degi þegar hann lék á 64 höggum. Norman hefur haft forystu á öllum „ ásunum" fyrir siðasta keppnisdaginn en aðeins tekist að sigra á einu mótanna. Hann varð annar á US Masters og 12. á US Open. Fyrir sigurinn fékk Tway, sem er 27 ára, 5,6 milljónir króna en Norman fær 3,2 milljónir í sinn hlut. -SMJ Fækkun í EM-hópi íslands í Stuttgart Svo kann að fara að keppendur kvörðun um helgina hvort hann íslands á Evrópumeistaramótinu i tekur þátt í mótinu. Oddur Sig- frjálsum íþróttum í Stuttgart verði urðsson, KR, á við meiðsli að aðeins fimm. Ragnheiður Ólafs- stríða. Hann mun keppa á móti í dóttir, FH, tilkynnti FRÍ í gær að Malmö í Svíþjóð 19. ágúst og þar hún treysti sér ekki til að taka kemur í ljós hvort hann getur þátt í mótinu. Væri ekki í nógu keppt í Stuttgart. Oddur á sem góðri æfingu til þess. EggertBoga- kunnugt er Norðurlandametið í syni, FH, sem einnig hefúr náð 400 m hlaupi, 45,36 sek. og hefúr lágmarksárangri fyrir mótið, hefúr undanfarin ár verið í fremstu röð gengið heldur illa á mótum að á vegalengdinni í Evrópu. undanfömu. Hann mun taka á- -hsím Guðbjöm sigraði á Svarfhólsvelli Sveirm A Sigurðrean, DV, SeSosEÍ Fyrir stuttu var opna Volvo golf- mótið haldið á Svarfhólsvelli við Selfoss. Þátttakendur voru víða af landinu auk heimamanna. í keppni án forgjafar sigraði Guðbjöm Ólafsson GK á 71 höggi. Annar var Baldur Bijánsson GK á 76 höggum og þriðji var Smári Jóhannsson GOS á 78 högg- um. Guðbjöm spilaði af miklu öryggi og setti vallarmet, þar sem hann lék. Fjórir Islendingar keppa í Danmörku - á Norðuriandamóti unglinga Fjögur íslensk ungmenni taka þátt í Norðurlandakeppni ungl- ingalandsliða í frjálsum íþróttum sem fram fer í Kristiansand í Nor- egi 23.-24. ágúst. Island og Danmörk munu tefla fram sameig- inlegu liði. Þau sem náðu tilskild- um lágmörkum og keppa af hálfo íslands em: Svanhildur Kristjóns- dóttir, UMSK, í 100 m og 200 m hlaupi. Gunnlaugur Grettisson, KR, í hástökki. Siguijón Val- mundsson, UMSK, í langstökki. Steinn Jóhannsson, KR, í 2000 m hindrunarhlaupi. Fararstjóri verð- ur Guðmundur Sigurðsson, þjálf- ari UMSK. H AN D KNATTLEIKSÞJÁLF ARI óskast til 1. deildar liðs í Færeyjum fyrir tímabilið '86- '87, frítt húsnæði og góð atvinna. Upplýsingar í síma 71335. Egill Færeyjum. Stefnir í mestu einvígi sundsins á HM í Madrid - Þrír íslendingar verða meðal keppenda á mótinu sem hefst á sunnudag Fimmta heimsmeistarakeppnin í sundi hefst hér í Madrid á sunnudag. Allt besta sundfólk heirns tekur þátt í keppninni og má búast við stórkostlegum ár- angri. Ef að líkum lætur verður mikil spenna þegar Matt Biondi, USA, „fljótasti sundmaður heims“ og Michael Gross, Vestur-Þýskalandi, leiða saman hesta sína. Einvígi þeirra verður hápunktur mótsins. Þrír Islendingar keppa á mótinu. Eðvarð Þór Eðvarðsson, Njarðvík, 19 ára, sem kominn er í röð fremstu bak- sundsmanna heims, Magnús Ólafsson, Þorlákshöfa, sem einnig er 19 ára, og Ragnheiður Runólfsdóttir, Akranesi,’ sem verður tvítug í haust. Ragnheiður stundar nám í háskólanum í Alberta í Kanada og hefur náð góðum árangri á sundmótum þar. Hún keppir í 100 og 200 m bringusundi og 200 m fjór- sundi. Eðvarð keppir í fimm greinum og verður því alla daga mótsins „í sundlauginni". Auk þess sem hann Hafþór Guðmundsson DV, Madrid keppir í aðalgreinum sínum, 100 og 200 m baksundi, tekur hann einnig þátt í 100 og 200 m bringusundi og 200 m fjórsundi. Magnús keppir einnig í fimin greinum, 50, 100, 2(X) og 400 m skriðsundi og 100 m flugsundi. Hafþór Guðmundssan, DV, Madxid • Eðvarð Þór Eðvarðsson. • Magnús Ólafsson. Fyrsta heimsmeistaramótið í sundi var háð í Belgrad í Júgóslavíu 1973. Annað mótið í Cali í Kólombíu 1975. Það þriðja í Berlín 1978 og þá var ákveðið að halda mótin á fjögurra ára fresti. Fjórða mótið var í Guayaguil í Ecuador 1982. Fimmta mótið nú í Madrid. Bandaríkjamenn hafa verið sigur- sælastir á öllum mótunum hingað til. Alltaf hlotið flest stig en hins vegar ekki hlotið flest gullverðlaunin nema 1978, þegar þeir hlutu 12 gullverðlaun. Hlutu jafhmörg gullverðlaun og Aust- ur-Þjóðverjar 1975 - ellefa hvor þjóð. 1973 hlutu A-Þjóðveijar flest gullverð- laun og einnig 1982. Tólf í hvort skipti. ísland hefúr aðeins einu sinni tekið þátt í heimsmeistaramótinu. Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi, keppti á mótinu í Berlín með góðum árangri. Nú send- um við þrjá keppendur en reiknað er með metþátttöku í Madrid. -hsím • Ragnheiður Runólfsdóttir. Topp- og botnbar- áttulið mætast - í þeim leikjum sem em eftir á íslandsmótinu Nú þegar fjórar umferðir eru eflir af 1. deildar keppninni á íslandsmót- inu í knattspymu er spennan í al- gleymingi. Forysta Framara, sem var á tímabili 5 stig, er nú aðeins eitt stig. Það er því ljóst að allir leikir sem eft- ir eru verða úrslitaleikir. Þá er einnig mikil barátta á botninum þó að staða Vestmannaeyinga í neðsta sæti sé orð- in æði slæm. FH og Breiðablik munu hins vegar örugglega heyja grimmi- lega baráttu til að sleppa við fallið. Og þannig vill til að toppliðin eiga eftir að mæta þeim liðum sem eru í fallbaráttu svo að topp- og botnbarátta ætlar að fara saman. Þá geta niður- stöður kærumála, sem nú eru í gangi, auðvitað breytt miklu. • Framarar eiga eftir að mæta eftir- farandi liðum: 17. ágúst FH (H), 23. ágúst ÍBV (O, 6. sept. Víði (H), 13. sept. KR (Ú). • Valsmenn eiga því sem næst sömu lið eftir: 16. ágúst IBV (H), 22. ágúst Víðir (Ú), 7. sept. KR (H), 13. sept. lA (Ú). • Keflvíkingar eiga einna erfiðustu leikina eftir - ef hægt er að tala um að einn leikur sé erfiðari en annar í þeirri baráttu sem eftir er: 17. ágúst Víðir (H), 24. ágúst KR (Ú), 6. sept. ÍA (H), 13. sept. Þór A. (Ú). -SMJ Sigurbjöm ekki í leikbanni Aganefnd KSÍ gerði mistök þegar hún dæmdi Sigurbjöm Viðarsson úr Þór í eins leiks keppnisbann sl. þriðjudag. Nefadin dæmdi Sigurbjöm í leik- bann fyrir að hafa fengið fjögur gul spjöld. Sigurbjöm hefur fengið þrjú spjöld og því hefur nefadin haft samband við Þór og tilkynnt að hann væri ekki í leikbanni í leiknum gegn Skagamönnum á Akureyri á morgun. -sos • Dave Watson. Everton mætir Liverpool á Wembley Sex af leikmönnum Everton eru nú meiddir. Þrir alvarlega og geta ekki leikið með á næst- unni. Það em þeir Neville Southall markvörður, Derek Mountfield miðvöi-ður og bak- vörðurinn Van den Hauwe. Howard Kendall, framkvæmda- stjóri Everton, hefur mikinn hug á að kaupa vamarmanninn Dave Watson frá Norwich til að fylla upp í skarðið sem liefúr rofaað í vöm Everton við meiðsli leik- manna. Everton og Liveipool mætast á Wembley á laugardaginn þar sem félögin leika um góðgerðar- skjöldinn. Eins og menn muna þá léku félögin til úrslita um bik- arinn á Wembley í maí og lauk þeirri viðureign með sigri Liver- pool. 3-1. -SOS Tannlæknir fór holu - í höggi Jón Ásgeir Eyjólfsson. kylfing- ur og tannlæknir, kann svo sannarlega að glíma við aðrar holur en í tönnum. Jón Ásgeir náði þeim árangri að slá golf- bolta holu í höggi á sjöttu braut Nesvallarins sl. þriðjudag. Hann notaði íjögur jámið þegar hann náði þessu draumahöggi. Golf- boltinn skall á flötinni og rmin að holunni skall á flaggstöng- inni og beint ofan í holuna. „Það var mjög ljúft að fara holu í höggi.“ sagði Jón Ásgeir. -SOS • Morten Olsen. Afmælisleikur hjá Morten Morten Olsen, fyTÍrliði danska landsliðsins, heldur upp á 37 ára aiinælisdagihn sinn f dag. Þessi snjalli miðvörður verður þá í sviðsljósinu með Köln- gegn Frankfúrt. • Franski landsliðsmaðurinn Luis Femandez hjá Racing Club París getur ekki leikið með liði sínu gegn Marseille um helgina. Hann var rekinn af leikvelli í leik liðsins gegn Bordeaux. Þá á félagi hans, Maxime Bossis, við meiðsli að stríða. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.