Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Page 32
44
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Karl
Bretaprins
er í hinum mestu vandræöum
með poppfíkn Díönu sem virðist
ekkert á undanhaldi. Prinsinn
hafði gert sér vonir um að tón-
listarsmekkurinn myndi breytast
í hjónabandinu og þá fækkaði
ferðum frúarinnar á hljómleika.
Það hefur ekki gerst og þykir
mönnum orðið heldur klént að
horfa á Kalla elta uppi poppvið-
burði með Diönu - brosandi
vandræðalega í allar áttir.
Gitte Henning
er gersamlega horfin af yfirborði
jarðar. Vinir hennar eru orðnir
verulega áhyggjufullir og telja
sig þurfa að ná sambandi við
hana sem allra fyrst. Blaðamenn
í Danmörku deila með þeim
áhugamálinu en þeir vilja allra-
helst vita hvort Gitte hefur
gengist undir fegrunaraðgerð á
andliti. Skilnaðarmál hennar er
lika engin venjuleg gúrkufrétt
en Gitte virðist harðákveðin í að
láta ekki hanka sig opinberlega
á næstunni.
Jannike
Björling
ákvað að eiga gott kvöld með
elskunni sinni - Birni Borg. Hún
skrapp út að nálgast vistir og
vídeófilmur með þeim árangri
að heim sneri skvísan með tvær
hryllingsmyndir - Þrusk í einu
horninu og Öskrað að nóttu.
Að auki fylgdu með í kaupunum
tveir pokar af kartöfluflögum,
kóklítri og sælgætispoki. Þann-
ig að nú vitum við hvernig þeir
vellauðugu eyða kvöldunum.
íslendingarnir H. Ólafsson og G. Jónsson sigla í höfn á sínum besta degi
- þrítugustu og fjórðu í röðinni.
Spánarprinsessa á fullri ferð út höfnina á síðasta keppnisdegi.
I—r f
Siglandi landar
og Spánarprinsessa
Sægarpar basla nýjum segibáti sín
um á land.
Meðfylgjandi myndir af Evrópu-
meistarakeppni í siglingum, sem
haldin var í Sönderborg í sumar,
bárust frá Jóni Þ. Harðarsyni og
Ingvari Baldurssyni í Danmörku.
Keppnin var haldin í góðu veðri
og tókst í alla staði vel en móts-
haldarar voru Sönderborg Yacht
Club á Suður-Jótlandi. Þetta var
Evrópumeistaramót karla en opið
mót fyrir konur og keppt á opnum
bátum af 470 gerðinni. Til leiks
mættu keppendur frá tuttugu lönd-
um og þar af einn bátur frá Sögueyj-
unni.
Sigldar voru sex umferðir á jafn-
mörgum dögum og keppendur völdu
síðan fimm bestu ferðirnar. Sigur-
vegarar urðu Frakkamir T. Pepon-
net og L. Pillot. íslendingarnir lentu
í 58. sæti af 87 keppendum sem luku
keppni í karlaflokki.
Besta árangri í kvennaflokki náðu
Bandaríkjamennirnir J.J. Isler og
'Andy Wardell. Þar var meðal þátt-
takenda Sara Christina de Baron,
dóttir Spánarkonungs. Aðalstignin
ein dugði ekki til afreka og hafnaði
hún í 49. sæti af 51 mögulegu. Getum
er að því leitt að einbeiting prinsess-
unnar hafi eitthvað raskast við það
álag að hafa sextán lífverði og ótalda
umsjónarmenn í eftirdragi allan sól-
arhringinn - ekki eitt skref án
fylgdarflokksins.
Heimsins hraðskreiðasti gönguskór
Sumir eru bókstaflega með starfið á heilanum og Joe Goli skósmiður
er ekki alveg laus við að ganga nokkuð langt í því efni. Það hafði lengi
verið draumur hans að aka um í einhvers lags íþróttaskó og nú hefur
það loksins ræst í orðsins fyllstu merkingu. Farartækið hans er Hondabif-
reið sem hann breytti í útliti þannig að formið er eins og á vönduðum
gönguskó - en hann er með þessu móti af hraðskreiðara taginu. Breyting-
in á bílnum tók tvö og hálft ár en nú er hann líka einn stoltasti bíl-
eigandinn í Los Angeles og vekur ómælda athygli hvert sem hann fer í
gerseminni.
Skósmiðurinn Joe Goli við uppáhaldsskótauið.
Stæðiö er að sjálfsögðu beint fyrir framan skóbúð eigandans.