Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
Stjómmál
Sjálf-
stæðis-
flokk-
urinn
fyrir
atvinnu-
rekendur
Um 60% þeirra sem tóku þátt
í skoðanakönnun Sambands
ungra framsóknarmanna telja
Sjólfetæðisflokkinn gæta fyrst og
fremst hagsmuna atvinnurek-
enda en ekki launafólks.
Spurt var: „Ertu sammála eða
ósammála því að Sjálfetæðis-
fiokkurinn gæti fyrst og fremst
hagsmuna atvinnurekenda en
ekki launafólks?“. 58% að-
spurðra voru sammála þessu en
32% ósammála.
Athygli vekur að þótt 58%
sjálfetæðismanna, sem spurðir
voru, hafi verið ósammála full-
yrðingunni þá voru engu að
síður 32% sammála henni.
í öðrum flokkum voru þeir í
meirihluta sem voru sammála
fullyrðingunni, allt frá 65% hjá
framsóknarmönnum og upp j
87% hjá fylgisrnönnum Banda-
lags jafnaðarmanna.
-EA
Fram-
boð
kvenna
skiptir
IHJti
Pjöldi kvenna á framboðslista
skiptir flesta kjósendur litlu eða
engu máli þegar þeir ákveða
hvaða flokk þeir eíga að kjósa,
samkvæmt skoðanakönnun
Sambands ungra framsóknar-
manna.
í könnuninni var spurt:
„Hversu miklu máli skiptir það,
þegar þú ákveður hvaða flokk
þú kýst, hve margar konur eru
á framboðslistfinum?1 45% að-
spurðra svöruðu að það skipti
engu máli og 28% að það skipti
fremur litlu máli. Aftur ó móti
sögðu 20% að það skipti fremur
miklu máli en aðeins 4,5% töldu
það skipta mjög miklu máli.
Þrátt fyrir þetta finnst kjós-
endum að of fáar konur séu á
Alþingi. í könnuninni var spurt:
„Finnst þér of fáar konur sitja á
þingi í dag?“. 62% sögðu að þær
væru of fáar, 30% að þær væru
hæfilega margar og 2,3% að þær
væru of margar.
Sé litið á viðhorf fólks innan
einstakra flokka kemur í ljós að
sjálfetæðismenn sætta sig einna
best við ríkjandi ástand: 51%
finnst konur of fáar ó þingi, 45%
segja að þær séu hæfilega margar
og 4% telja þær of margar.
Stuðningsmenn annarra flokka
eru ekki jafnánægðir og kvenna-
listafólk allra síst. Þar finnst
90% að konur séu of faar, 8%
að þær séu hæfilega margar og
1,6% að þær séu of margar.
-EA
ekki
og
Davíð
á þingi
Kjósendum finnst það ekki
skipta mjög miklu máli hvort
ungt fólk er í framboði hjá
stjórnmálaflokkunum eða ekki.
Á þetta jafnt við um nýja kjós-
endur og þá sem hafa kosið áður,
ef marka má skoðanakönnun
Sambands ungra framsóknar-
manna.
Eftirfarandi spuming var lögð
fyrir þátttakendur í könnuninni:
„Hversu miklu máli skiptir það,
þegar þú ákveður hvaða flokk
þú kýst, hve margir á aldrinum
25-35 ára eru á framboðslistan-
um?“. 32% svöruðu að það skipti
engu móli, 34% að það skipti
fremur litlu máli, 24% að það
skipti fremur miklu máli og ein-
ungis 5,7% að það skipti mjög
miklu máli. Nýir kjósendur, á
aldrinum 18 til 24 ára, svöruðu
mjög ó sama veg. 20% þeirra
töldu það skipta engu máli og
aðeins 6,2% að það skipti mjög
miklu máli.
Ákveðinnar mótsagnar gætir
þó í svörum þótttakenda því
flestum finnst of lítið af ungu
fólki á Alþingi. í könnuninni var
spurt: „En hvað finnst þér um
hlut ungs fólks á aldrinum 25-35
ára á Alþingi í dag?“. 61% svör-
uðu þessu með því að segja að
ungir alþingismenn væru of fáir,
28% fannst að þeir væru hæfi-
lega margir og 3% álitu þá of
marga. Nýir kjósendur sýndu
öllu ákveðnari afetöðu: 70%
sögðu þá of fáa, 22% töldu þá
hæfilega marga en engum fannst
þeir vera of margir.
Hjá öllum flokkum var meiri-
hluti fyrir því að ungir alþingis-
menn væru of fóir. Mestur var
hann hjá Bandalagi jafhaðar-
manna, þar voru 79% þeirrar
skoðunar, en minnstur hjá Sjálf-
stæðisflokknum, þar sem 60%
voru þannig þenkjandi.
-EA
UAnnflnn
niaiiKiíin
Veist þú hverjír sitja á þingi?
í skoðanakönnun SUF voru
þátttakendur beðnir um að nefha
einhverja tvo þingmenn Fram-
sóknarflokksins og þrjá þing-
menn Sjálfetæðisflokksins fyrir
utan ráðherrana.
Megi draga einhverjar ólykp
anir af svörunum um „frægð“
þingmannanna þá virðist Páll
Pétursson vera þekktasti þing-
maður Framsóknarflokksins og
Ámi Johnsen só sem flestir muna
eftir hjá Sjálfetæðisflokknum.
En það eru fleiri nefiidir en nú
sitja á þingi. Þannig eru Geir
Haarde, Katrín Fjeldsted, Davið
Aðalsteinsson og Davíð Schev-
ing Thorsteinsson taldir til
þingmanna Sjálfetæðisflokksins,
en Pálmi Jónsson, Ólafur Jó-
hannesson og Hermann Jónas-
son sagðir vera í þingflokki
framsóknarmanna.
-EA
Það virðist skipta kjósendur litlu hvort ungt fólk og konur eru á framboðslistum stjórnmálaflokkana.
Framsókn flokkur
dreífbýlisfólks
Tæpur helmingur kjósenda virðist
sammála því að Framsóknarflokkur-
inn sé ekki flokkur þéttbýlis heldur
fyrst og fremst flokkur sem gætir hags-
muna dreifbýlisfólks.
Þetta kom fram í skoðanakönnun
sem Félagsvísindastofhun Háskóla ís-
lands gerði í maí fyrir Samband ungra
framsóknarmanna. I könnuninni var
spurt um viðhorf fólks til þjóðmála,
samtaka og fyrirtækja og verða niður-
stöðumar kynntar í dag á sambands-
þingi SUF í Eyjafirði. Um ellefu
Skoðanaköimun
SUF
hundruð manns tóku þátt í könnun-
inni.
Spurt var meðal annars: „Ertu sam-
mála eða ósammála því að Framsókn-
arflokkurinn sé ekki flokkur þéttbýlis-
ins, heldur flokkur sem gætir fyrst og
fremst hagsmuna dreifbýlisfólks?" Um
46% aðspurðra sögðust vera sammála
þessu en um 35% voru ósammála.
48% framsóknarmanna, sem spurðir
voru, reyndust ósammála fullyrðing-
unni en 42% voru sammála henni.
Fylgismenn annarra stjómmála-
flokka, sem voru sammála fullyrðing-
unni, voru fleiri en þeir sem voru
ósammála henni.
52% aðspurðra, sem bjuggu í
Reykjavík, voru sammála því að
Framsóknarflokkurinn væri fyrst og
fremst dreifbýlisflokkur en 32% voru
ósammála. -EA