Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
13
Neytendur
Kirkjubæjarklaustur er komið ofariega á vinsældalista ferðamanna og kannski orðið timabært að hafa fleiri en eina matvöruversiun sem þjónar aðkomufólki
um mesta annatímann.
Einu versluninni lokað
kl. 17.30 á daginn
Týnd
IK-
skyggna
frá
Snæ-
fells-
nesi
í júní sl. sendi ég skyggnufilmu
til framköllunar hjá Kodakþjón-
ustunni í Albertslund í Dan-
mörku. Mér var send framkölluð
filma til baka, þar sem á voru
36 myndir, allar af sama mótíf-
inu, hófsóley við vatn og steinar
og snjófönn í baksýn.
Ég hafði aftur á móti tekið
mínar myndir við Skógá og vest-
ur á SnæfeUsnesi og áttu m.a.
að vera þar hellnamyndir og all-
margar myndir frá ýmsum
fossum í Skógá. Filmuna. sem ég
fékk, sendi ég aftur til Dan-
merkur, samkvæmt beiðni, en
þar hefur ekki tekist að hafa
uppi á minni filmu.
Þar sem mér finnst líklegt að
filman, sem ég fékk, hafi komið
héðan af landi og hugsanlega
einhver landi fengið mínar
myndir væri ég þvi feginn að
hann gerði mér viðvart.
Hallgrímur Sæmundsson, sími
42810.
„Ég er að koma úr sumarbústað á
Kirkjubæjarklaustri og er alveg ras-
andi yfir verslunarháttum á þeim
stað,“ sagði Elsa Einarsdóttir, er hún
hringdi til okkar í vikunni sem leið.
„Það hefur verið talað um hátt verð
á kartöflum í verslunum í höfuðborg-
inni en það tók út yfir allt þama fyrir
austan. Þeir seldu kartöflukílóið á
108,30 kr. Ég benti afgreiðslustúlkunni
á að það væri nýbúið að lækka verðið
á kartöflunum en þá yppti hún bara
öxlum.
Þessar kartöflur neyddist maður til
þess að kaupa í greiðasölunni hjá
bensínafgreiðslunni því kaupfélaginu
á staðnum er lokað kl. 17.30 alla daga.
Verðlag í þessari sjoppu var allt á
þennan veg. Þar að auki var vöruúr-
val mjög lítið. Sem dæmi má nefna að
smjör var ekki til nema í 15 g pakkn-
ingu sem engin heilvita manneskja
kaupir.
Þama vom aðeins til algengustu
sígarettutegundir og sömuleiðis gos-
drykkir. Þar var ekki til póló, mix eða
sódavatn svo dæmi sé tekið.
Aðrar veitingar sem boðið var upp
á í þessari sjoppu vora heldur ekki
kræsilegar að sögn viðmælanda okk-
ar. Fjölskyldan hafði keypt þama
pylsu sem reyndist súr á bragðið og
heita samloku sem var frosin innan í
eftir stutta viðdvöl í örbylgjuofhinum.
„Þetta er ósvífhasti verslunarmáti
sem ég hef nokkra sinni kynnst og ég
mun aldrei stíga fæti mínum framar í
þessa verslun. Eg hefði haldið að versl-
unarleyfi fylgdu einhverjar skyldur
um að verslanir væra opnar til kl. 18
virka daga,“ sagði viðmælandi okkar.
Enginn lágmarksafgreiðslutími
Guðni Þorgeirsson hjá Kaupmanna-
samtökunum upplýsti okkur um að
enginn lágmarksafgreiðslutími væri í
gildi hjá verslunum sem fengju versl-
unarleyfi. Það er alfarið mál hvers
verslunareiganda fyrir sig hve lengi
hann hefur opið dag hvem.
„Hins vegar,“ sagði Guðni, „hefur
þróunin verið sú í höfuðborginni að
verslanir era heldur opnar lengur en
skemur á hverjum degi.“
Við höfðum samband við verslun
kaupfélagsins á Kirkjubæjarklaustri
og fengum sömu upplýsingar og við-
mælandi okkar um afgreiðslutímann,
en þar er lokað alla daga kl. 17.30
nema föstudaga, þá er opið til kl. 18.30.
Við spurðumst einnig fyrir um verð
á nokkrum vörategundum. Við bend-
um á verðsamanburð á nokkrum
grærunetistegundum í verslunum á
höfuðborgarsvæðinu sem birt er ann-
ars staðar á síðunni í dag.
Vörategund Verð pr. kg
Blómkál 112 kr.
Hvítkál 70 kr.
Rófur 105 kr.
Gufrætur 150 kr.
Tómatar 140 kr.
Kartöflur, gullauga, 81,40 kr.
Smjör 139,50 kr.
Smjörvi 78 kr. askjan
Braga-, Ríókaifi 96 kr. pk.
Coke, 1,5 1, 90 kr.
Pepsi, 1,5 1, 90 kr.
Pylsa með öllu 60 kr.
íspinni, MS 23 kr.
Klaki, MS 12 kr.
Okkur var tjáð að sama verð gilti í
sjoppu kaupfélagsins og í kaupfélag-
inu sjálfu. Við spurðum nánar um
kartöfluverðið. Kartöfluverð hafði
lækkað nýlega, en síðasta verð var 97
kr. og þar áður 101 kr.
Benda má á að kaupfélagið er eina
verslunin á Klaustri en þar er mikill
ferðamannastraumur á sumrin og fjöl-
mörg orlofshús ýmissa félaga víðs
vegar af landinu. -A.BJ.
/ Ertþú \
búinn að fara í
ijósaskoðunarferð?
PIERRE VANEIEL NÚ í REYKJAVÍK
NYJA
FRANSKA
LÍNAN
fyrir nýtísku
heimili
Opið til kl. 20 í kvöld
I öllum deildum.
KORT
VfSA HH /
%JSEI
A A A A A A
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
□ CQá
Cj C_' ZI-'C '.-ikl *-Jf JiJ J -{1?
unnuuiniuiii inn>
Sími 10600
Húsgagnadeild, sími 28601