Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 15 Moggi í vondu skapi Margir líta á Morgunblaðið sem málgagn Sjálfstæðisflokksins með sama hætti og Alþýðublaðið telst vera málgagn Alþýðuflokksins, Tíminn málgagn Framsóknarflokks- ins og Þjóðviljinn málgagn Alþýðu- bandalagsins. Þessu er þó ekki svona varið. Morgunblaðið styður vissu- lega stefnu Sjálfstæðisflokksins í meginatriðum en það hefur fremur verið málsvari tiltekinna afla í flokknum en flokksins sjálfs. Svo hefur viljað til að flestir forystumenn Sjálfstæðisflokksins á undanfömum árum hafa komið úr þessum hópum og hefur þá Morgunblaðið verið málgagn flokksforystunnar. Þó á þetta ekki við um alla forystumenn flokksins. Morgunblaðið verður t.d. aldrei talið hafa verið málgagn Gunnars Thoroddsen, jafnvel þótt hann hafi gegnt flestum mikilvæ- gustu forystustörfum i flokknum og fyrir hann. þrátt fyrir slíkar undan- tekningar hafa menn átt því að venjast að Morgunblaðið væri mál- svari flokksforystunnar þvi blaðið studdi ótvírætt formennina Geir Hallgrímsson, Jóhann Hafstein, Bjama Benediktsson og Ólaf Thors. Nýr tónn Nú upp á síðkastið hefur hins veg- ar kveðið við nýjan tón í stjóm- málaskrifum Morgunblaðsins. Þorsteinn Pálsson nýtur augljóslega ekki sama stuðnings frá Morgun- blaðinu og fyrirrennarar hans í formannsstóli fengu. Fyrst eftir for- mannsskiptin í flokknum gætti aðgerðalítils velvilja til hans í skrif- um Morgunblaðsins; ritstjórar ávörpuðu hann sem „Morgun- blaðskjúkling" og klöppuðu honum á kollinn; en sá aðgerðalitli velvilji hefur nú snúist upp í gagnrýni. Morgunblaðið hefur gagnrýnt fjár- málaráðherra fyrir skattastefnu hans og auðfundið er að blaðið telur hann ekki hafa komið til fram- kvæmda þeim breytingum í ríkis- búskapnum sem blaðið telur nauðsynlegt að gera. Þorsteinn Pálsson hefúr því ekki sama stuðn- „Þorsteinn Pálsson nýtur augljóslega ekki sama stuðnings frá Morgunblaðinu og fyr- irrennarar hans í formannsstóli fengu.“ Kjállarmn „Fyrst eftir formannsskiptin í flokknum gætti aðgerðalitils velvilja til hans í skrifum Morgunblaðsins; ritstjórar ávörpuðu hann sem „Morgunblaðskj- úkling“ og klöppuðu honum á kollinn; en sá aðgerðalitli velvilji hefur nú snúist upp i gagnrýni." Sighvatur Björgvinsson, fyrrv. alþingismaður ing af Morgunblaðinu og fyrirrenn- arar hans höfðu og veikir það stöðu hans bæði í Sjálfstæðisflokknum og á almennum pólitískum vettvangi. Sama viðhorfs gætir hjá blaðinu til fleiri ráðherra Sjálfstæðisflokksins og er í þvi sambandi skemmst að minnast gagnrýninnar afstöðu blaðsins til Sverris Hermannssonar. Á stundum getur tónninn í skrifum Morgunblaðsins í garð þessara ráð- herra og fleiri minnt á gremju eða skapvonsku eins og þessir aðilar hafi jafnvel gert eitthvað á hlut blaðsins. Að Davíð Oddssyni undan- teknum virðist Morgunblaðið ekki lengur styðja neina núverandi for- ingja Sjálfstæðisflokksins jafheinart og afdráttarlaust og það studdi til dæmis fyrrverandi formenn flokks- ins. í vondu skapi Þessi geðvonskulegi tónn í Morg- unblaðinu hefúr svo sem komið fram gagnvart fleirum en forystumönnum Sjálfstæðisflokksins. Formaður Al- þýðuflokksins hefur t.d. ekki farið varhluta af honum. Frekar jákvæð og vinsamleg afetaða í garð Jóns Baldvins Hannibalssonar og Al- þýðuflokksins yfirleitt hefur breyst í geðvonsku sem m.a. lýsir sér í því að blaðið er stöðugt að kalla for- mann Alþýðuflokksins á beinið og krefjast þess að hann vitni um hitt og þetta. Hyggist ungir jafnaðar- menn bregða sér í skemmtiferð til Þingvalla krefet Morgunblaðið þess af formanni Alþýðuflokksins að hann vitni opinberlega um hvaða pólitískt hugarfar búi þar að baki og a.m.k. á tíu daga fresti krefet blað- ið yfirlýsingar frá Alþýðuflokknum um að hann vilji samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn og engan annan. Blaðinu hefur hins vegar gersamlega láðst að krefjast sambærilegrar yfir- lýsingar af Sjálfetæðisflokknum sem er þó, eins og allir menn vita, í helm- ingaskiptasambúð við Framsóknar- flokkinn og kann því bara vel. Má vera að vonda skapið hjá Morgun- blaðinu eigi rætur sínar að rekja til þeirrar sambúðar; því lítist mun bet- ur á samstarf Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins en Þorsteins Pálsson- ar og Steingríms. Einhvem tíma hefði nú Morgunblaðið og þau öfl í Sjálfetæðisflokknum, sem blaðið styður, getað breytt slíku litilræði en það getur auðsjáanlega ekki gengið lengur og því skiljanlegt að blaðið sé í vondu skapi og hafi flest á homum sér. Gremjan ætti bara ekki að bitna svona á saklausum. Einn má vera ánægður Ekki er þó svo illa komið að eng- inn flokksformaður njóti lengur stuðnings Morgunblaðsins í flokki sínum. I átökunum í Alþýðubanda- laginu stendur Morgunblaðið ein- dregið með Svavari Gestssyni, Hjörleifi Guttormssyni, Einari 01- geirssyni og Inga R. Njóta menn þar langrar viðkynningar öfúgt við hippakynslóðina sem kennir sig við lýðræði og ekki er til að stóla á. Þannig á Morgunblaðið enn „sinn“ formann þótt ekki sé hann í Sjálf- stæðisflokknum og getur því haldið sér í góðri æfingu þangað til Davíð kemur á morgirn. Sighvatur Björgvinsson, Kúnstin að skilja ályktanir Fyrir rúmu ári gerðust þau gagn- merku tíðindi að Alþingi Islendinga kom sér saman um ályktun um stefiiu íslendinga í afvopnunarmál- um. Brotið blað í íslenskum utan- ríkismálum Með þessari ályktun var brotið blað í sögu íslenskra utanríkismála sem þar til höfðu verið nokkurs kon- ar innlend útgáfa af skotgrafahem- aði. Með ályktun Alþingis má segja að tekist hafi til hálfs að draga þing- menn upp úr þeim skotgröfúm sem flokkshagsmunir höfðu grafið þeim, þar sem þingheimur kom sér þar saman um mikilvæg grundvallarat- riði í utanríkisstefhu Islendinga. Að auki fleytti þessi ályktun íslending- um mörg skref fram á við á vettvangi alþjóðastjómmála þar sem af álykt- uninni mátti ljóst vera að hér á landi bjó þjóð sem lagði til hliðar stað- bundin ágreiningsefni sín í þágu friðar og afvopnunar í heiminum. Hörmuleg tíðindi Það em því hörmuleg tíðindi að utanríkisráðherra þessarar sömu þjóðar skuli nú, aðeins rúmu ári eft- ir að blekið er þomað á ályktuninni, beita henni fyrir sig til að koma í veg fyrir samstarf Norðurlandaþjóða um eitt megininntak þessarar álykt- unar, þ.e. að stuðla að kjamorku- vopnalausum heimi. Má til sanns vegar færa að nokkuð vefet fyrir þessum utanríkisráðherra að skilja orðanna hljóðan í ályktun Alþingis - því ekki er í henni að finna staf- krók sem mælt getur á móti því að kannaðar verði leiðir til að gera sem liður í samkomulagi til að draga úr vígbúnaði og minnka spennu. Því felur Alþingi utanríkismálanefnd að kanna í samráði við utanríkisráð- Kjallarinn „Það er því ljóst að túlkun utanríkisráð- herra á ályktun Alþingis er einkamál hans flokks og að gerðir hans í þessum efnum brjóta í bága við vilja meirihluta Alþingis og þar með meirihluta þjóðarinnar.“ Norðurlönd að kjamorkuvopna- lausu svæði. Ályktun Alþingis Sá kafli í ályktun Alþingis sem fjallar um kjamorkuvopnalaus svæði er svohljóðandi: „Leita verður allra leiða til þess að draga úr spennu og tortryggni milli þjóða heims og þá einkum stór- veldanna. Telur Alþingi að íslend- ingar hljóti ætíð og hvarvetna að leggja slíkri viðleitni lið. Um leið og Alþingi áréttar þá stefnu íslendinga að á íslandi verði ekki staðsett kjamorkuvopn hvetur það til þess að könnuð verði sam- staða um og grundvöllur fyrir samningum um kjamorkuvopna- laust svæði í Norður-Evrópu, jafnt á landi, í lofti sem á hafinu eða í því, herra hugsanlega þátttöku íslands í frekari umræðu um kjamorku- vopnalaust svæði á Norðurlöndum og skili nefiidin um það áliti til Al- þingis fyrir 15. nóv. 1985.“ Einhvers staðar verður að byrja Álit það sem utanríkismálanefnd er gert skylt í ályktuninni að skila til Alþingis fyrir 15. nóvember á síð- asta ári hefúr enn ekki séð dagsins liós, en þótt slíkur seinagangur sé á störfúm nefndarinnar þá þýðir það ekki að Islendingar geti ekki rætt við aðrar Norðurlandaþjóðir tun kosti þess og galla að gera Norður- löndin að kjamorkuvopnalausu svæði. Þvert á móti er ekki nokkur leið að skilja ályktunina öðmvísi en svo að Alþingi vilji endilega láta Sigríöur Dúna Kristmundsdóttir þingkona Samtaka um kvennalista kanna allar leiðir til að koma á kjamorkuvopnalausu svæði í Norð- ur-Evrópu, Norðurlönd þar vita- skuld meðtalin. Og sú mótbára utanríkisráðherra að ekki sé hægt að kanna möguleika á kjamorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum vegna þess að álykt- irnin taki til Norður-Evrópu, er ekki annað er útúrsnúningur því Norð- urlönd em, í fyrsta lagi, í Norður- Evrópu og, í öðm lagi, er ekkert kveðið á um það í ályktuninni að óheimilt sé eða óæskilegt að ná markmiðinu í áföngum, byija á einu svæði innan Norður-Evrópu og færa smám saman út kviamar. Enda verður sú viðleitni að gera Norður- lönd að kjamorkuvopnalausu svæði ekki skilin öðmvísi en sem eitt skref í áttina að kjamorkuvopnalausum heimi. Einhvers staðar verður að byrja, en jafnvel það kýs utanríkis- ráðherra ekki að skilja. Gegn vilja meirihluta Alþingis Þessa dagana stendur i Kaup- mannahöfii fundur norrænna þjóð- þinga um Norðurlönd sem kjamorkuvopnalaust svæði. Á þennan fund senda allir þingflokkar á Alþingi fulltrúa sinn nema þing- flokkur Sjálfetæðisflokksins og er sá flokkur einn flokka og stjómmála- samtaka á íslandi sem ekki er til viðræðu um þessi mál. Það er því ljóst að túlkun utanríkisráðherra á ályktun Alþingis er einkamál hans flokks og að gerðir hans í þessum efiium brjóta í bága við vilja meiri- hluta Alþingis og þar með meirihluta þjóðarinnar. Jafiiframt er ljóst að með túlkun sinni hefur utanríkisráð- herra blásið í herlúðrana og viðbúið að gamli skotgrafahemaðurinn í ís- lenskum utanríkismálum hefjist á nýjan leik. Þar með er það framlag okkar á vettvangi friðar og afvopn- unar, sem í ályktun Alþingis felst, tekið til baka. Hvorki er það stór- mannlegt né líklegt til að skila bömum okkar lífvænlegri heimi en þeim sem við þekkjum. Sigriður Dúna Kristmundsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.