Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
17
Lesendur
„Ómar Ragnnrsson er og verður minn uppáhaldssjónvarpsmaður, hann á
engan sinn líka.“
Þakkir
til Ómars
Ragnars-
sonar
Aðdáandi hringdi: Ég vil koma á fram-
færi þökkum til Ómars Ragnarssonar
fyrir fiábær störf sem hann hefur unn-
ið fyrir sjónvarpið.
Nýverið sá ég umræðuþátt í sjón-
varpinu, í beinni útsendingu, sem
Ómar stjómaði og var efni þáttarins
flugmál á íslandi. Þessi þáttur lýsti
því vel hvað Ómar er góður stjóm-
andi. Hann spyr alltaf einfaldra
spuminga sem allir skilja og svo er
hann ætíð hlutlaus. Ég fæ aldrei jafh-
mikið út úr neinum þáttum, eins og
þáttunum hans Ómars.
Svo vil ég minnast á Stiklur sem
sjónvarpið hefur verið að endursýna.
Það var mikil þörf á að endursýna
þessa þætti þvi þeir em með þeim bestu
sem ég hef séð, allt Ómari að þakka.
Ómar Ragnarsson er og verður minn
uppáhaldssjónvarpsmaður, hann á
engan sinn líka.
A
blaðsölustöðum
um allt land.
Eófiskyggnigákinnar
Erfafækf '
Le/fm að Biliy
úrvafsfjöö.... .......
öraumui
óumfiýjanfeg?... 83
lnnn óennar M,
,S,",a!fdar ^'mildarmyndir sión^?
s. HEFTi 45. AR S
5EPTEMBER1986 VERÐ KR 1
ÆTTARIVIÓT
Ákveðið hefur verið að halda ættarmót niðja Sólbjarts-
Gunnlaugssonar og Sigríðar Gestsdóttur frá Bjarnarey
í Röst, Hellissandi, þann 13. 9. ef nóg þátttaka verð-
ur. Þátttaka tilkynnist fyrir 5. 9. í síma 91 -611043 og
93-6413.
Helga Kristjánsdóttir,
Kristjana Árnadóttir.
LAUS STAÐA
ÍÞRÓTTAKENNARA
við Grunnskóla Patreksfjarðar
Viljum ráða íþróttakennara í fullt starf strax. Góð vinna
á góðum stað. Upplýsingar í síma 94-1337 eða 94-
1222.
Skólanefndin.
FRÁ MENNTASKÓL-
W ANUM I KÓPAVOGI
Skólinn verður settur þriðjudaginn 2. sept. kl. 14.00
í samkomusal skólans. Að lokinni skólasetningu fá
nemendur stundaskrár og bókalista gegn greiðslu
nemendagjalds að upphæð kr. 2.500,- (fyrir allan
veturinn). Kennarafundur verður haldinn í skólanum
mánudaginn 1. sept. kl. 10.00
Skólameistari.
G! FRÁ GRUNNSKÓL-
W m KÓPAV0GS
Grunnskólarnir í Kópavogi verða settir með kennarafund-
um í skólunum mánudaginn 1. sept. næstkomandi kl.
9.00 f.h. Næstu dagar verða notaðir til undirbúnings
kennslustarfs. Nemendur eiga að koma í skólana fimmtu-
daginn 4. sept. sem hér segir:
1. bekkur, börn fædd 1979, kl. 13.00.
2. bekkur, börn fædd 1978, kl. 14.00.
3. bekkur, börn fædd 1977, kl. 10.00.
4. bekkur, börn fædd 1976, kl. 11.00.
5. bekkur, börn fædd 1975, kl. 10.00.
6. bekkur, börn fædd 1974, kl. 9.00.
7. bekkur, börn fædd 1973, kl. 11.00.
8. bekkur, börn fædd 1972, kl. 10.00.
9. bekkur, börn fædd 1971, kl. 9.00.
Forskólabörn (fædd 1980, 6 ára) og foreldrar þeirra
verða boðuð í viðtal símleiðis 2.-9. sept. Skólaganga
forskólabarna hefst 10. sept.
Skólafulltrúi.
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðir, skemmdar eftir umferðaró-
höpp.
Mitsubishi Lancer 1500 GLX árg. 1987
Mitsubishi Galant 2000 GLS árg. 1986
Volkswagen Jetta árg. 1986
Alfa Romeo árg. 1986
Lada Sport árg. 1979
Subaru 1800 GLF árg. 1984
Mazda 818 árg. 1978
Honda Civic Sport GT árg. 1986
BMW 320 árg. 1977.
Bifreiðirnar verða til sýnis að Skemmuvegi M 26,
Kópavogi, laugardaginn 30. ágústfrá kl. 13.00-17.00
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 1. september.
Brunabótafélag Islands.