Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
íþróttir
„Breskur dagur“ í Stuttgart
Þreffaldur sigur Breta í 800 m hlaupi. Ovænt í kúlunni
Öm Eiðsscm, DV, Stuttgart
Segja má að dagurinn í gær á Ev-
rópumeistaramótinu í ftjálsum hér í
Stuttgart hafi verið breskur dagur.
Auk tugþrautarinnar var beðið með
feiknalegri eftirvæntingu eftir 800
metra hlaupi karla og sér í lagi eftir
einvígi Bretanna Sebastian Coe og
Steve Cram.
Coe hljóp mjög vel og skynsamlega
en sömu sögu er ekki hægt að segja
um Steve Cram. Hann hélt sig aftar-
lega lengst af og hljóp síðan utan á
andstæðingum sínum í beygjunum og
hóf endasprettinn þegar sex hundruð
metrar voru eftir í markið. Svo fór að
lokum að Coe sigraði á 1:44,50 mín.
og á lokametrunum skaust nær
óþekktur breskur hlaupari, Tom
McKean frá Skotlandi, í annað sætið
á 1:44,61 mín. Steve Cram varð þriðji
Enginn draumadráttur
- hjá Val, Víkingi og Stjomunni
fslensku handknattleiksliðin, sem þátt
taka í Evrópukeppni í handknattleik,
duttu ekki í lukkupottinn er dregið var til
1. umferðar í gær.
•Víkingar drógust gegn færeyska lið-
inu Vestmanna og eiga samkvæmt drætt-
inum að leika fyrri leikinn í Færeyjum en
líklegt verður þó að telja að þeir leiki
báða leikina í Færeyjum.
•Stjaman, sem nú tekur þátt í Evrópu-
keppni í fyrsta skipti í sögn félagsins, lenti
á móti breska liðinu Birkenhead og á
Stjaman heimaleikinn fyrst.
• Valsmenn þurfa enn einn ganginn að
halda til Noregs og drógust nú gegn
Urædd. Fyrri leikurinn fer fram í Noregi.
•Öll íslensku liðin eiga eins og sjá má
stóran möguleika á að komast í 2. umferð
þótt róður Vaismanna verði vissulega
þyngstur. Fyrri leikimir í 1. umferð verða
leiknir í septemberlok en síðari leikimir'
verða að hafa farið fram fyrir 5. október.
-SK.
•Skagamenn urðu i gærkvöldi íslandsmeistarar í flokki leikmanna
ára og eldri. Þeir gerði markalaust jafntefli gegn KR á KR-velli i gaer i
á myndinni sést Ellert B. Schram, formaður KSÍ og leikmaður KR, í
henda Þresti Stefánssyni bikarinn. Ellert lét þess getið að eriiðara hefði j
^verið að afhenda verðlaunin en spila leikinn. DV-mynd S.
H AN D KN ATTLEIKSÞ JÁLFARI
ÓSKAST
fyrir 2. deildar lið kvenna í Reykjavík. Tilboð sendist
DV, merkt „Áhugasamur".
Torfæruaksturskeppni
Björgunarsveitarinnar Stakks verður haldin
við Grindavík sunnudaginn 31. ágúst kl. 14.00.
BADMINTONDEILD
Æfingar hefjast 1. september. Upplýsingar hjá Óskari
Guðmundssyni í síma 15881 eða 14519.
FYRIRTÆKJAMÓT
í utanhússknattspyrnu verður haldið dagana 6. og 7.
sept. næstkomandi á grasvellinum í Njarðvík. Þátttaka
tilkynnist í síma 92-3462 Gunnar, og 92-2509 eða
4334 Stefán, fyrir míðvikudaginn 3. sept.
Knattspyrnudeild UMFN.
á 1:44,88 mín. og unnu Bretar því þre-
faldan sigur í 800 metra hlaupinu.
Óvæntast í kúluvarpinu
Segja má að úrslitin í greinum gærdags-
ins hafi verið eftir bókinni, ef svo má
segja, nema að sjálfsögðu var ríkjandi
óvissa um úrslit í tugþrautinni og 800
metra hlaupinu fram á síðustu metra.
Óvæntustu úrslitin urðu hins vegar í kúlu-
varpi. Þar var búist við nokkuð öruggum
sigri Udo Bayer sem nýverið setti nýtt
heimsmet í greininni. Wemer Gúnterhör
frá Sviss kom hins vegar mjög á óvart og
sigraði með 22,22 metra kasti. Ulf Timmer-
marrn Austur-Þýskalandi varð annar með
21,81 metra og Bayer þriðji með aðeins
20,74 metra.
Sögulegur sigur hjá Schmid
Vestur-Þjóðverjinn vann sögulegan sig-
ur í 400 metra grindahlaupi. Þetta var
þriðji Evrópumeistaratitill kappans sem
er 28 ára. Hann fékk tímann 48,65 sek.
Sovétmaðurinn, Alexander Vassiliev varð
annar á 48,76 sek. og Sven Nylander þriðji
á 49,38 sek.
•Marita Koch frá Austur-Þýskalandi
varð einnig Evrópumeistari í þriðja skipti
í gær. Hún er heimsmethafi í 400 metra
hlaupi kvenna og sigraði í gær með yfir-
burðum á 48,22 sek.
•Hörkukeppni var í 3000 metra hlaupi
kvenna á milli Olgu Bondarenko, Sovétr
ríkjunum, og Mariciu Puica frá Rúmemu
sem flestir spáðu sigri. Bondarenko sigraði
á 8:35,92 mín. en Puica fékk tímann 8:37,15
mín.
•Heimsmethafinn, Stefka Kostadinova
frá Búlgaríu, varð öruggur sigurvegari í
hástökki kvenna með tvo metra.
•Nadeshda Olisarenko frá Sovétríkjun-
um varð Evrópumeistari í 800 metra hlaupi
kvenna og fékk tímann 1:57,15 mín.
•Diana Sachse Austur-Þýskalandi varð
Evrópumeistari í kringlukasti kvenna en
hún kastaði kringlunni 71,36 metra og var
eini keppandinn sem kastaði yfir 70 metr-
ana.
-SK
„Hef ekki tapað
bikarúrslitaleik"
segir Sigurður Lárusson, fyririiði Skagamanna
„Ég var slæirtur í bakinu og Barron
vildi ekki taka neina áhættu og lét
mig þvi hvíla í Blikaleiknum. Einnig
var ég kominn með þrjú gul spjöld og
því sagði Barron við mig að ég kæmi
ekki nálægt þessum leik, “ sagði Sig-
urður Lárusson, fyrirliði Skaga-
manna, en það vakti athygli að hann
lék ekki með á móti Breiðabliki á
mánudagskvöldið. Greinilegt að
Skagamenn hafa ekki viljað eiga á
hættu að missa Sigurð út fyrir bikar-
úrslitaleikinn.
„Það var óneitanlega mikil lyfti-
stöng fyrir okkur að fá Pétur til liðs
við okkur. Hann hefur sterkan „kar-
akter“ sem hefur eflt hópinn mjög.
Annars verður að athugast að hann
er aðeins einn af ellefu leikmönnum
sem leika hvem leik,“ sagði Sigurður
sem hefur spilað þrjá bikarúrslitaleiki
og unnið þá alla. Þá hefur hann ávallt
verið fyrirliði Skagaliðsins í þessum
bikarleikjum.
„Ég hef sem betur fer ekki kynnst
því að tapa bikarúrslitaleik og ég hef
engan áhuga á því að kynnast þeirri
tilfinningu nú. Við Skagamenn ætlum
að vinna þennan leik. Það er gífurleg
stemmning hér á \kranesi meðal bæj-
arbúa fyrir leikinn. Mér sýnist einna
helst að það ætli allir að mæta á Laug-
ardalsvöllinn á sunnudaginn," sagði
Sigurður. Hann sagði að engin veruleg
meiðsli hrjáðu liðið nú og þeir myndu
stilla upp sínu sterkasta liði í úrslita-
leiknum.
-SMJ
• Guðmundur Steinsson, fyrirliði •Sigurður Lárusson, fyrirliði
Fram. Akraness.
„Þaðverðurskorað
mikið af mörkuní
- segir Guðmundur Steinsson, fyririiði Fram
„Ég hlakka mikið til þessa leiks. Það
er alltaf gaman að leika úrslitaleiki í
bikarkeppninni og sérstaklega gegn
Skagamönnum. Ég vona að fólk fjöl-
menni á völlinn. Þetta verður örugg-
lega mikill hörkuleikur," sagði
Guðmundur Steinsson, fyrirliði Fram,
í stuttu spjalli við DV í gærkvöldi.
„Ég tel að liðin eigi jafna mögu-
leika. Þetta eru tvö af þremur bestu
liðum landsins og ég á von á mörgum
mörkum í þessum leik. Við höfum
harma að hefiia síðan í úrslitaleiknum
fyrir tveimur árum er Skagamenn
unnu okkur eftir framlengdan leik.
Skagamenn eru með geysilega
reynslumikið lið og Pétur Pétursson
styrkir liðið mjög mikið. En við erum
staðráðnir i að vinna leikinn og ætlum
okkur að skora mörg mörk.“
Lofar þú áhangendum mörkum frá
Guðmundi Steinssyni?
„Nei, ég geri það ekki. Ég vona bara
að við skorum mikið. Það skiptir ekki
máli hver skorar mörkin," sagði Guð-
mundur Steinsson og bætti við að
Framarar myndu mæta til leiks með
sitt sterkasta lið gegn Skagamönnum.
Þetta verður sjötti úrslitaleikurinn
sem Guðmundur tekur þátt í. Þrisvar
sinnum hefúr hann orðið bikarmeist-
ari með Fram og gefst því tækifæri á
að hampa bikamum í fjórða skipti á,
sunnudag. -SK.
• Daley Thompson sýndi stórkostleg tilþi
fleygiferð í 110 metra grindahlaupi en i g
mynd/Reuter
Thomps
Þjóðve
- vann tugþi
Bretinn Daley Thompson sannaði það
rækilega í gær að hann er fremsti íþrótta-
maður heims í dag. Hann sigraði með
miklum glæsibrag í tugþrautarkeppni Ev-
rópumeistaramótsins í frjálsum íþróttum í
Stuttgart, hlaut 8.811 stig sem er aðeins 36
stigum frá heimsmeti hans. Þjóðveijar
bundu miklar vonir við sína menn. Einn
þeirra, Kratchmer, heltist fljótlega úr lest-
inni vegna meiðsla en þeir Júrgen Hingsen
og Siggi Wentz voru lengst af í skottinu á
Thompson. Bretinn sýndi feiknalega leikni
í gær á síðari degi tugþrautarinnar en marg-
ir höfðu spáð honum tapi eftir fyrri daginn.
Fyrir síðari keppnisdaginn, í gær, hafði
Thompson nauma forystu, 28 stigum meira
en Hingsen sem var í öðru sæti. Thompson
byijaði daginn í gær á því að skokka yfir
grindumar í 110 metra grindahlaupinu á
14,07 sek. sem er frábær tími. Næsta grein
var kringlukast og þar náði Thompson sér
ekki mjög vel á strik. Hingsen sigraði með
48,42 metra kasti en Thompson varð 13. með
43,38 metra. Þegar hér var komið sögu
missti Thompson foiystuna öðru sinni í
keppninni til Hingsen. Hann náði hér 15
stiga forskoti.
Skammgóður vermir
Thompson er keppnismaður mikill og
sveiflaði sér léttilega yfir 5,10 metra í stang-
arstökki á meðan Hingsen klöngraðist með
erfiðsmunum yfir 4,60 og felldi 4,70 þríveg-
is. Hér má segja að Hingsen hafi endanlega
misst af titlinum. Siggi Wentz stökk hins
vegar 4,90 og var þegar hér var komið sögu
kominn í annað sætið, 115 stigum á eftir
Thompson. Hingsen hrapaði í þriðja sætið.
Eðlilegt spjótkast
Segja má að árangur tugþrautarmann-
anna í spjótkastinu, 8. greininni, hafi verið
nokkuð eðlilegur. Siggi Wentz varð annar
með 65,34 metra kast en Hingsen fjórði og