Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Síða 32
44 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. •v V Sviðsljós Ólyginn sagði... ætlar að verða annar Clint Eastwood. Þegar töffarinn Clint ákvað að snúa sér al- farið að bæjarstjórnarmálum fannst Paul þetta sérdeilis ágæt hugmynd og ákvað sjálfur að gera það sama. Nú vinnur hann að því hörð- um höndum að verða borgarstjóri í Monterey sem er heimabær söngvarans sykursæta og ætlar hann að verða guðfaðir staðarins um aldur og ævi ef allt gengur samkvæmt áætlun. John Forsythe er ekki öfundsverður af hlut- skipti sínu sem maki Lindu Evans í Dynastyþáttunum. Öskureiður sjónvarpsáhorf- andi af því ágæta kvenkyni réðst á hann og lamdi aftur og aftur I höfuðið með handtöskunni sinni. Henni fannst hann ætti að vera betri við þá blíðlyndu Krystle og tók í sínar hendur að kenna honum réttu hegðun- ina. Nú grátbiður John handritshöfundana að milda hlutverkið í Dynasty svo ekki megi eiga von á annarri yfir- halningu fyrir kvikindishátt á skjánum. töfraði fram tékkhefti sam- starfsmanna við upptökur nýverið. Hún saknaði kjöltu- rakkans síns svo hræðilega að vinnufélagarnir leigðu einkaþotu tíl þess að ná í fjórfætlinginn ómissandi. Debra tók aftur gleði sína þegar hvutti var kominn á staðinn og menn segja að leikurinn hafi tekið stórstíg- um framförum. Nokkur orð frá Jóhannesarborg „Ástandið harðnar að vísu héma og nú orðið sést varla hvítur maður í Hillbrow, aðeins svartir, litaðir og indians eftir klukkan sjö eða átta á kvöldin," segir í bréfi frá landa okk- ar, Ingimar Pálssyni, sem búsettur er í Jóhannesarborg. Hann er þar yfirmaður tónlistardeildar listaskóla í borginni og meðfylgjandi úrklippur sýna þarlendar blaðafrásagnir af skólastarfinu og einnig af íslend- ingnum sem stýrir tónlistinni. „Ránum og líkamsmeiðingum fer fjölgandi,“ heldur Ingimar áfram í bréfinu. „Af íslendingum er allt gott að frétta. Ég fékk Bishop Tutu í heimsókn í skólann nú á dögunum og var hann mjög ánægður að sjá hvíta, svarta, litaða og indians nema saman en skólinn er opinn öllum kynþáttum. Ég var að fjölga kennur- um nú um síðustu mánaðamót og hef nú tuttugu og fjóra fastráðna og tólf lausráðna. Nemendur eru nú vel á sjöunda hundraðið, meðtaldir nem- endur í diplomadeild sem er á háskólastigi. Allt gengur mjög vel í skólanum og flytjum við í um það bil hundrað prósent stærra húsnæði í nóvember næstkomandi. Fimm hundruð manns eru á biðlista til að komast inn í söng- og tónlistardeild svo ég býst við að nemendatalan fari yfir eitt þúsund á næsta ári. Að öðru leyti spila ég hér í kirkj- um, dreifi kristilegu lesefni og ábreiðum til innfæddra. Það starf mætti gjarnan vera stærra því þörf er mikil og hjálparstörf hér sýnast mér engan endi hafa.“ Svo mörg voru þau orð frá landa okkar, Ingimar Pálssyni í Jóhannes- arborg, sem haslað hefur sér völl innan tónlistarheimsins í heimalandi þess víðffæga biskups - Tutu. íKvtr'iT """‘''•'pomay*! vTHat, Tálented $A children impress I $sk35& W„?*c head ^ “.................... ZJZuISZZ ^ S t £?****** fifcSS** ««*cr fcí ^S=r- 'W'towot. * AWcm prtt-iouviv ,k. p”«æ ís"' s&pr. tbt w,fne ,, i2~uí f»jw#rL%tíatI; s't,i9rn> r&JssSesZ&sfll . Musical II I g**?SZJftl'zjl . •**£?*£**£» I it r~~~- ’ 1 haaj Oark> „ Úr*.»f I Ad« Su«ti. f AOVi $m§i ... . 1 á. éSÍ }OUHf»*r, hfr, Úrklippur sem sýna umfjöllun þarlendra blaða um Ingimar Pálsson tónlistarkennara og start hans í Jóhannesarborg. Hljómsveitin Hálft I hvoru hefur gert víðreist þetta sumarið og í kvöld verður spilað í Stuttgart. Fjögur þúsund. Herdís Hallvarðsdóttir, fyrrum Giýla og nú liðsmaður hljómsveitar- inna Hálft í hvoru, er þrítug í dag. Hún er að heiman - nánar til tekið í Stuttgart - því hljómsveitin HÍH er fulltrúi íslands á hljómleikum sem haldnir eru í tengslum við Evrópu- meistaramótið í frjálsum íþróttum. Flokkur íslendinga er á staðnum við keppni í EM - Stuttgart 86 en Hálft í hvoru tekur þátt í leikunum keppnislaust. Hljómleikarnir eru haldnir á úti- leikvangi sem tekur fjögur þúsund manns í sæti og fram koma hljóm- sveitir frá þrjátíu og tveimur löndum. Að sögn Herdísar munu þau flytja íslensk þjóðlög og taka svo inn í bland sín eigin lög - fyrst Heiðlóar- kvæði eftir Hannes Jón og Jónas Hallgrímsson og Áframhald eftir Gísla. Síðan verður brugðið á ís- lenska fimmundarsöngva, svo sem ísland farsældar Frón, séra Bjami og ó, mín flaskan fríða - að ógleymdri ferð um Sprengisandinn. Það verður því fjölmennt í afmæli Herdísar í Stuttgart í kvöld - fjögur þúsund manns væntanleg í gleðina. Herdís Hallvarðsdóttir fær ham- ingjuóskir frá Sviðsljósinu. Djúpt skal sogið... Fegurðarsérfræðingum og sexí- spekúlöntum vestra þótti þessi mynd af Faye Dunaway heldur af óyndislegra taginu. Hún er háð nikótíni, sem svo margir aðrir, og saug að sér reykinn af stakri nautn við frumsýningu í Hollí nýlega. Hrollur fór um fræga liðið sem telur kókaínið með nasasísteminu ólíkt menntaðra og þeir reglusöm- ustu litu einfaldlega í aðra átt meðan ósköpin gengu yfir. Umboðsmaður Faye féll á hnén, yfirkominn af harmi, þegar birtingar á athæfinu hófust í bæjarblöðunum og nú er lagt hart að leikkonunni að leggja naglann endanlega til hliðar. Hún er víst að hugsa sig um...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.