Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986.
7
dv_________________________Fréttir
Reisir alhliða heilsurækt
við hlið Hótel Arkar
„Þetta verður alhliða heilsurækt þar
sem sú aðstaða sem fyrir er verður
nýtt. Það má eiginlega segja að fyrir-
myndin sé sótt til Baden-Baden,“ sagði
Halldór Hermannsson verkfræðingur
í samtali við DV.
Halldór hefur fest kaup á tæplega
3.800 fermetra lóð í Hveragerði, við
hhð Hótel Arkar. Þar hyggst hann
reisa fúllkomna heilsuræktarstöð.
Húsið verður um 700 fermetrar á
þremur hæðum. Einnig verður á lóð-
inni 800 fermetra aldingarður, sem
Halldór nefnir svo, með yfirbyggðu
þaki er þó verður hægt að renna frá
ef mönnum sýnist svo.
„Þetta verður ekki gistihús, enda
ætlast ég til að þeir sem komi til með
að njóta þessarar aðstöðu, sem þama
verður, gisti á Hótel Örk. Þetta verður
byggt upp sem eins konar miðstöð,
þama verður allt til alls, enda hefur
Hveragerði orðið mikið upp á að
bjóða. Þama er komið Tívolí, fullkom-
ið hótel og fleira til að stytta sér
stundir við. Ég ætla að hafa þama
leirböð og fagmenn af ýmsu tagi, svo
sem nuddara, sjúkraþjálfara, lækna,
enda vonast ég til að þetta verði það
viðamikið að þetta beri hina hæfustu
starfskrafta,“ sagði Halldór.
Hann sagði að einnig hefði hann hug
á því að þama yrði og rekin eins kon-
ar ferðamiðstöð. Hann vonaðist til að
fá þama rútur, leigubíla, bankaútibú,
verslanir og fleira, enda væri gert ráð
fyrir slíku á teikningu hússins.
- Hvenær heíjast svo framkvæmdir?
„Það er stefiit að nóvemberbyrjun
og ég vona að við það verði hægt að
standa. Hins vegar er margt enn óklár-
að, svo ef til vill dregst það eitthvað.
Síðan stendur til að þetta verði allt
saman tilbúið í maí, júní á næsta ári.“
- Ertu einn í þessu?
„Já, eins og er, en ég vona að þeir
aðilar, sem ég hef hug á að fá þama
inn, reyni að hasla sér völl sjálfetætt,
þótt ég muni halda ákveðnum hluta
innan fjölskyldunnar.“
- En hvað kostar svona fyrirtæki?
„Það kostar ekki mikið, svona 55 til
60 milljónir," sagði Halldór Her-
mannsson. -KÞ
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Trefjaplastbretti á lager í eftirtalda bila: Volvo 77-84, Mazda 929-
323-pickup, Daihatsu Charmant 77-79, Lada, Polonez, AMC Concord
Eagle, 180 B, Datsun 200 L-330c-260c-280c, Scania Vabis, Toyota
Tercel, Toyota Cressida, o.m.fl.
BÍLPLAST Ódýrir sturtubotnar.
Vagnhöfða 19, simi 688233. I Tökum að okkur trefjaplastvinnu.
Póstsendum. | Veljiö islenskt.
Bílamálarar
og aðstoðarmenn
óskast sem fyrst - næg vinna.
Vanni
Bílasprautun
Auðbrekku 14 - Sími 44250.
Greiðslutrygging fyrir skreiðina ókomin
„Klikkar ekki“
- segir Ámi Bjamason hjá íslensku umboðssóiunni
„Þetta klikkar ekki,“ sagði Ámi
Bjamason hjá íslensku umboðssöl-
unni, aðspurður um það hvort hugsan-
legt væri að greiðslutrygging bærist
alls ekki fyrir þeim 61 þúsund pökkum
af skreið sem sendir vom með erlendu
leiguskipi til Nígeru fyrir nokkrum
vikum fyrir milligöngu íslensku um-
boðssölunnar.
Skipið hefiu1 nú legið við höfn í Ní-
geríu síðan síðastliðinn laugardag
með alla skreiðina innanborðs og enn-
þá bólar ekkert á greiðslutrygging-
unni. Skreiðinni verður ekki skipað
upp fyrr en tryggingin berst bönkun-
um hér, þannig að viðeigandi fyrir-
greiðslur fáist.
- Getur skipið þurft að liggja með
skreiðina í nígerískri höfri í nokkrar
vikur eða mánuði?
„Nei, það kemur ekki til. Þetta er í
mesta lagi viku eða tíu daga spurs-
mál. Greiðslutiygging berst eftir
nokkra daga.“
- Mun skipið koma aftur heim með
skreiðina ef greiðslutryggingin kemur
ekki?
„Nei, skipið þarf ekkert að koma
heim aftur.“
Samið var um sölu á skreiðinni í
nígerískri mynt en að sögn Ama mun
greiðsla til framleiðendanna hér
heima berast í bandarískum dollurum.
- Verður hægt að fá yfirfærslu á
nígerísku myntinni?
„Það er mál kaupendanna að fá yfir-
færslu í dollara."
- Getur það þýtt að bankar hér
heima endi með að þurfa að breyta
skreiðarskuldinni í langt lán og að
peningar berist ekki fyrr en seint og
síðar meir?
„Nei, það er ekki spuming um að
breyta skuldunum í lán. Peningamir
koma,“ sagði Ámi.
DV-mynd Óskar
Ragnar var það, heillin...
Eftir mikið leynimakk í Þjóðleikhúsinu var það loksins upplýst á æfingu í gær að höfundur hins umtalaða leikverks
um Skúla Thoroddsen, Uppreisn á ísafirði, væri enginn annar en Ragnar Amalds alþingismaður. Alþýðubandalagið á
því fvö leikskáld á þingi, Ragnar og Guðrúnu Helgadóttur. Hér sést höfundur með leikstjóra, Brynju Benediktsdóttur,
og leikendum í verkinu er uppljóstrunin fór fram. -ai
RAFSTOÐVAR
Til sölu lítiö keyrðar rafstöðvar,
með eða án sjálfræsibúnaðar,
flestar stærðir, árs ábyrgð.
Upplýsingar í síma 92-4675-1836. Hafsteinn.
. , conxxxrí
CREDA
TAUÞURRKARI
• Nauðsynlegt hjálpartæki á
nútíma heimili.
• CREDA tauþurrkarar snú-
ast afturábak og áfram.
Þvotturinn vinst því ekki í
hnút í þurrkaranum.
• CREDA þjónusta við ís-
lenskar húsmæður í 30 ár.
CREDA-umboðið:
Raftækjaverslun Íslands hf.f Rvk,
Knarrarvogi 2 - simar 688660-688661
r' m
^ ' Verðlaun fyrir bestu afmælismyndina
.
BESTA B0RGARMYNDIN
Æ
LJÓSMYNDAKEPPNI
Tókst þú Ijósmynd í Reykjavík á afmælisdaginn 18. ágúst?
Sé svo átt þú kost á að vinna til veglegra verðlauna.
Myndirnar mega vera í lit eða svart/hvítu, á pappír eða skyggnu.
Ljósmyndin þarf að vera vel merkt hötundi með nafni, heimilistangi og
síma. Hún þarf að berast til DV í umslagi merktu:
OV „BORGARM YNDIN“
Veitt verða þrenn verðlaun, Ijósmyndavörur frá versluninni Gevafofo, þau
fyrstu að verðmæti 20 þúsund krónur, önnur að verðmæti 10 þúsund
krónur og þriðju að verðmæti 5 þúsund krónur.
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Til að við getum sent myndirnar aftur til eigenda þarf að fylgja
umslag með nafni og heimilisfangi.