Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986.
9
Utlönd
Krefst
skaðabóta
vegna bits
flugvallar-
starfsmanns
Kona ein í Bandaríkjunum hefur
krafið bandaríska flugfélagið Am-
eriean Airlines um ríflega fjögur
hundruð milljónir íslenskra króna
í skaðabætur fyrir að hafa verið
bitin af starfemanni ilugfélagsins
er smitaður var af eyðni.
Samkvæmt frásögn konunnar
voru málsatvik þau að hún var
orðin of sein í flug American Air-
lines frá O’Hare flugvellinum í
Chicago í febrúar síðastliðnum, og
enginn afgreiðslumaður til að
fylgja henni niður landganginn í
flugvélina við brottfararhlið.
Flýtti konan sér niður landgang-
inn að flugvélinni þar sem flug-
fi-eyjur voru í þann mund að loka
dyrum farkostsins. 1 þann mund
er konan segist hafa verið að koma
að vélinni fúllyrðir hún að starfe-
maður flugfélagsins hafi stöðvað
sig með því að ráðast á sig og krefj-
ast brottfararspjalds.
Ekki vildi konan þar við sitja
og svaraði aðför starfemanns flug-
félagsins með því að hrinda honum
frá sér. Segir konan síðan að eflir
smástimpingar í landganginum
hafi starfemaðurinn bitið sig í fing-
uma svo úr blæddi.
Konan missti af flugvélinni og
starfemaðurinn var rekinn úr
vinnu í fimm daga á meðan málsat-
vik voru könnuð til hlítar.
Nú er komið í ljós að starfemað-
urinn var smitaður af eyðni á þeim
tima er hann glefsaði í flugfar-
þegann. Emi er ekkert sem bendir
til að konan hafi smitast af eyðni-
veirunni við bit starfemannsins, en
að sögn lögmanna hennar hefur
óttinn við hugsanlegt smit lagt líf
ferþegans í rúst og stórskaðað and-
legt jafnvægi hans.
Ráðherra Bólivmstjómar:
Hætta á
borgara-
styrjöld
orsök
herfaganna
Innanríkisráðherra Bólivíu,
Femando Barthelemy, sagði í gær-
kvöldi að hættan á borgarastyrjöld
hefði neytt forseta landsins til þess
að lýsa yfir hemaðarástandi í síð-
ustu viku.
Kvað hann leiðtoga samtaka
verkalýðsfélaganna og smáflokka
hafa hvatt til uppreisnar gegn
stjóminni. Að sögn ráðherrans
hafði einn Kúbubúi og óákveðinn
fjöldi Nicaraguabúa þjálfað Bóliv-
íumenn til niðurrifestarfeemi.
Hefðu þeir komið löglega til lands-
ins sem tæknilegir ráðunautar.
Ekki vom gefriar upplýsingar um
það hvort þeir væm ennþá í
landinu.
Paz Estenssoro, forseti Bólivíu,
lýsti yfir hemaðarástandi til að
koma í veg fyrir það sem hann
kallaði ráðabrugg vinstri sinnaðra
verkalýðs- og stjómmálaleiðtoga
til þess að hagnýta sér mótmæla-
göngu 7000 námuverkamanna til
La Paz í síðustu viku til þess að
steypa forsetanum af stóli.
í höfúðborginni hefur allt verið
með kyrrum kjörum síðan herlög
vom sett en verkföll og mótmæla-
göngur hafa verið tíðir atburðir
úti á landsbyggðinni.
Að sögn lögreglunnar lét einn
lögreglumaður lífið og þrír
óbreyttir borgarar slösuðust í mót-
mælagöngum í fyrrakvöld.
Neyðarástand i Manila
vegna flóða
Þúsundir hafa flúið gifurleg á Filippseyjum að undanförnu, og eignartjón er gífurlegt.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir
í Manila og- nágrenni vegna flóða
er urðu á norðurhluta Filippseyja í
fyrradag.
Forseti landsins, Corazon Aquino,
þurfti að fara í gúmmíbát er hún
yfirgaf höll sína til þess að heim-
sækja neyðarathvarf þar sem fólk
hafði leitað sér hælis.
Að sögn Rauða krossins höfðu
þúsundir manna flúið heimili sín
vegna mikilla rigninga sem fylgdu í
kjölfar fellibylsins Wayne. Sex
manns drukknuðu í flóðunum sem
sums staðar í Manila náðu tveggja
metra hæð. Um 200 kílómetra fyrir
norðan höfúðborgina urðu flóðbylgj-
umar 6 metra háar.
í gær var fellibylurinn á leið yfir
suðurhluta Taiwan áleiðis til Suður-
Kínahafe.
BYLTING
í BÍLARYÐVÖRN
Ekkert ryð
þýðir hátt
endursöluverð!
Hefur þú efni
á að láta
bílinn þinn
ryðga niður?
Stöðvar ryð - Hindrar ryð
RUSTEVADER-RAFEINDARYÐVÖRN
RYÐVARNARÁBYRGÐ
Bíleigendur! Loksins er komin varanleg lausn á ryðvandamálinu. Nú er komið á markaðinn rafeindatæki
sem hindrar ryðmyndun. Þetta athyglisverða ryðvarnartæki ver nýja jafnt sem gamla bfla gegn ryði á
áhrifaríkari hátt en þekkst hefur hingað tfl. Tækið hindrar einnig ryðmyndun út frá rispum á lakki og krómi.
Þessu til staðfestingar bjóðum við 10 ára ryðvamarábyrgð á allt að 3 mánaða gömlum bílum og 8 ára ábyrgð
á 3-6 mánaða gömlum bílum. Til að viðhalda ábyrgðinni þarf aðeins að færa bflinn til eftirlits einu sinni á ári,
til að yfirfara búnaðinn og loka skemmdum á lakki.
Þetta er því ódýrasta og jafnframt besta ryðvömin sem völ er á.
Hringið og leitið upplýsinga, við sendum vandaðan upplýsingabækling til allra sem þess óska.
STÁLVÉLARHF.
Tunguhálst 5,
38584
Reykjavík, sími 673015 og
Verðum við símann
tíl kL 22.00 í kvöld.