Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986.
13
Spegjlmynd Framsóknar
Ég las það í Mogga við morgun-
verðarborðið að sérfræðingur
Framsóknar í heimsmálunum, P.P.
frá Höllustöðum, teldi samstarf við
Alþýðuflokkinn óhugsandi, undir
minni forystu.
Og varð satt að segja ekki hissa.
Maðurinn á að hafa sagt þetta á
þingi SUF. Eins og alþjóð er kunn-
ugt var þetta SUF-þing haldið
sérstaklega til að lýsa því yfir, að
þingflokkur Framsóknarflokksins
undir forystu P.P. væri óstarfhæfur
- og þar af leiðandi ósamstarfs-
hæfur.
Sammála.
Frá og með þeirri stundu, sem
undirritaður tók við forystu Al-
þýðuflokksins, lýsti ég því yfir að
nóg væri komið af óþurftarverkum
Framsóknarflokksins í íslenzkri
pólitík. Framsóknarflokkurinn
ætti upp úr næstu kosningum að
ástunda einarða sjálfsgagnrýni og
fara í andlega endurhæfi ngu - helzt
til næstu aldamóta.
Þetta fékk alls staðar góðan
hljómgrunn - víða af mannúðar-
ástæðum. Þetta sjónarmið á t.d.
miklu fylgi að fagna innan Fram-
sóknarflokksins.
T.d. sá ég það í sama Mogganum
að einhver þekkilegasti og gáfað-
asti þingmaður Framsóknarflokks-
in, Ingvar Gíslason, lýsir því yfir
að hann nenni ekki að fara aftur í
fi-amboð fyrir þennan þingflokk.
Lái honum hver sem vill. Engu
að síður blífur sú skoðun mín, að
það er eftirsjá að Ingvari Gíslasyni
úr þingsölum.
Ingvar Gíslason tók einmitt undir
það með mér i þingræðu, að tími
væri kominn fyrir framsóknar-
menn að leita andlegrar endur-
hæfingar.
Að þessu athuguðu sýnist óþarft
að árétta, að samstarf við utan-
ríkissérfræðing Framsóknar-
flokksins, P.P., hefur ekki verið á
dagskrá hjá okkur jafnaðarmönn-
um - fremur en hjá ungum fram-
sóknarmönnum.
Rekur tryppi landbúnaðar-
kerfisins
Reyndar leyfði ég mér að senda
þingi ungra framsóknarmanna sér-
stakt heillaskeyti. Þar lét ég í ljós
þá frómu ósk að þeir hefðu erindi
sem erfiði í lofsverðri viðleitni
sinni til nýliðunar á gömlu og
þreyttu þingliði Framsóknar.
Það er nefnilega laukrétt hjá
ungmn framsóknarmönnum, og
öðrum lærisveinum/meyjum hug-
sjónarmannsins frá Hriflu, að
takist óbreyttum framóknarmönn-
um að losa flokkinn úr greipum
þeirra íhaldssömu,
hugmyndasnauðu og afturhalds-
sömu verrfeðrunga, sem þar sitja á
fleti fyrir, er engan veginn víst að
dagar Framsóknar séu taldir. Og
við það myndu vaxa stórlega mögu-
leikar á eðlilegu og jákvæðu
samstarfi jafnaðar- og samvinnu-
manna, eins og Jónas gaf kúrsinn
um í upphafi. í því endurreisnar-
starfi er ekki mikils að vænta frá
P.P. frá Höllustöðum, þótt hann
teljist fyrir sitt leyti jafn frægur í
sínum flokki og Árni Johnsen í sín-
um. Hitt kemur ekki á óvart, að
Pálmi frá Akri skuli samkvæmt
vísindalegri skoðanakönnun telj-
ast með þekktustu Framsóknar-
þingmönnum.
Það hefur lengi verið vitað, að
Framsóknarflokkurinn er pólitískt
rekald, að hann virðist ekki eiga
annað erindi í íslenzkri pólitík en
að reka tryppi landbúnaðarkerfis-
ins og gæta hagsmuna SÍS - á
kostnað skattgreiðenda.
Útideild SÍS
Samkvæmt þessum SÍS-hags-
munum hefur flokksforystan verið
reiðubúin að vera í ríkisstjóm með
hverjum sem er, um hvað sem er,
hvenær sem er. Á því er ekki breyt-
inga að vænta, meðan nokkur
maður álpast til þess að kjósa þessa
menn til þings.
„Efnahagslíf þjóðarinnar hefur enn ekki
beðið þess bætur, að Framsókn komst til
valda árið 1971.“
„Það telst með öðrum orðum vera vísindalega sannað, að Framsóknarflokkurinn er lítill, afturhaldssamur
og tækifærissinaður flokkur."
Menntun iðnaðarmanna
Hér verða rakin rök þess að okkur
vantar menn með iðnaðarmenntun
sem er framhaldsmenntun og ég ætla
að kalla framleiðsluvirkja. Þessi
menntun tekur til nokkurra atriða
sem varða aðstæður okkar hér
heima og á erlendum mörkuðum.
Framleiðsluvirkjun
Almennt er við það miðað að fram-
leiðsluvirkjun þýði starfsemi við
framleiðslu og skipulagningu henn-
ar, bæði á fræðilegu plani og á
vinnustað með viðveru framleiðslu-
virkja sem stjómenda. Um er að
ræða hvaða tegund framleiðslu sem
er. Orsakir þess að þörf er á þessu
er nýting þegar áunninnar þekking-
ar og fjárfestingar. Verður það sem
skiptir máli í þessu máli rakið í eftir-
farandi.
Hver í sínu horni
Ástandið í framleiðslufyrirtækjum
okkar í dag er þannig að hver er að
bauka í sínu homi án upplýsinga
um hvað aðrir em að gera og þegar
einhver byrjar á nýrri framleiðslu
þá ætla allir að apa eftir. Þetta á
minna við um frystihúsin og fiskiðn-
aðinn vegna afskipta og stjómunar
sölusamtaka en þrátt fyrir það er oft
um frumstæð vinnubrögð að ræða.
Það er hins vegar hægt að hafa
hagnað af að vinna saman, framleiða
meira, selja meira og vandaðra með
því að hafa upplýsingar sem gera
kleift að fara aðrar leiðir en menn
gera nú.
Það sem gæti verið
Við gætum haft skrá yfir fram-
leiðslugetu fyrirtækja og vélbúnað
þeirra og sérhæfingu og nýtt hana
frekar en að kaupa nýjar vélar í fyr-
irtækið. Það sem við gætum gert er
að líkja eftir stórframleiðendum með
upplýsingatengingu milli fyrirtækja.
Það þýðir að flókið kerfi getur orðið
til í samvinnu margra fyrirtækja og
vélbúnaður þeirra og þekking getur
nýst mun betur en ella. En þetta
krefst þess að einhveijir séu til að
halda á upplýsingunum og hafi vit
á þeim og upplýsingar um verð á
framleiðslukostnaði og hafi upplýs-
ingar um afgreiðslutíma og sam-
göngur. Þannig gætu fyrirtæki um
allt land framleitt hluta stærra kerf-
is og verið undirverktakar i því
máli. Til þess að semja um slíka
undirverktöku þarf hins vegar mann
á gólfinu með næga þekkingu sem
hægt er að semja við gegnum tölvu-
net.
Aðeins stórfyrirtæki hafa slík
kerfi.
Erlendis hafa stórfyrirtæki komið
sér upp kerfi stjómunar og undir-
verktaka en þetta getum við líka
gert og með upplýsingum komist hjá
tvöfaldri framleiðslu og framleitt
meira og fjölbreyttara í staðinn. í
landinu er að vaxa upp kynslóð sem
kann á tölvur og mun þurfa að geta
nýtt þessa þekkingu, en samtímis
verðum við að geta nýtt þegar gerða
fjárfestingu í félagslegum íjárfest-
ingum í fyrirtækjum, í íbúðarhús-
næði og samgöngu- og veitukerftim
og látið allt skila arði. í þessu felst
einnig það sem flokkast undir
byggðastefhu á þann hátt að það em
ekki efhislegar samgöngur sem
standa fyrirtækjum úti á landi fyrir
þrifum heldur upplýsingasamgöng-
ur.
' Við getum því alveg sett upp
kerfi eins og í stórfyrirtæki þar sem
hver og einn, sem vill og getur fjár-
magnað framleiðslu á hannaðri
vöm, getur farið inn á kerfið og sam-
ið. Auk þess sem slíkt kerfi mundi
hvetja fyrirtækin til að hefja fram-
leiðslu sem þau hafa ekki nema hluta
þekkingar og vélbúnaðar til.
Önnur atriði
Við munum koma okkur upp vél-
mennum eins og aðrir. Þessi vél-
menni í litlum, íslenskum fyrirtækj-
um nýtast hins vegar illa nema í
sérstökum tilfellum, samt sem áður
er það borðleggjandi að við munum
lenda í samkeppni við erlenda aðila
sem nýta sér slík tæki. Það sem við
getum gert í þessu máli er að eiga
við upplýsinga- og stjómunarhlið
þessa máls til að halda samkeppnis-
hæfni. Hvemig sem á því stendur
þá er lögð mikil áhersla á hugverk
meðal okkar. Það liggur líka mikill
hugbúnaður í mönnum sem fást við
kvartmílukeppni, svo eitthvað sé
nefnt. Þetta er alleinkennandi fyrir
okkur. Það er því rétt að samhæfa
okkur upplýsingalega og koma upp
boðveitukerfum í þeim tilgangi, en
jafhframt verðum við að fá nýja teg-
und menntunar, sem hér er nefiid
framleiðsluvirkjun, það er að segja
menn sem hafa kunnáttu í að með-
höndla efni, að framleiða, að skipu-
leggja framleiðslu, að stunda
gæðaeftirlit og kunna að nota upp-
lýsingakerfið til þess að koma
framleiðslu af stað.
Gestsaugaatriði
I frystihús berst afli misjafnlega
að, bæði hvað varðar magn og sam-
setningu. Þetta hefur leitt til þriggja
atriða: einfaldari og ódýrari pakkn-
ingar, úrsortéringar fisks sem lítið
er af og skemmda. Annað hvert ár
ber það svo við að nokkrir vörubílar
af frystum fiski, jafhvel stórlúðu,
fara í þrær fiskimjölsverksmiðja með
það sem við getum kallað óumhirtan
lager þegar frystiklefar eru hreins-
aðir. Með upplýsingakerfi er leitað
að verktaka til að koma slíkum fiski
í fullt verð og leitað að sölu í sama
skyni. í staðinn liggur fiskurinn og
bíður og enginn man eftir honum.
nokkrir pakkar af þessu og nokkrir
af hinu. Upplýsingakerfið getur í
slíkum tilfellum komið í veg fyrir
skemmdir og óseljanlegan lager og
komið pakkningum í seljanlegri
umbúðir.
Fleira kemur til
Það er óhagkvæmt að hafa mikinn
lager, í honum eru bundnir miklir
fjármunir, þvi gildir að framleiða
aðeins það sem selt er. Það er óhag-
kvæmt að hafa mikinn óvirkan tíma.
því skiptir mestu máli að geta skipt
um framleiðsluaðferð og framleiðslu
á skömmum tíma. I þessu dæmi
óvirkni og lagers liggja megintöp
fyrirtækja, og þá um leið laun á
tímaeiningu fyrir fólk í framleiðslu.
Framleiðsluvirkjar verða því að
kunna að stjóma þannig að þetta
komi ekki fyrir eða í sem minnstum
mæli. Stjórnkerfi af þessari gerð em
notuð af erlendum fyrirtækjum, t.d.
hefur Volvo 6 tíma lager heima við,
hitt er á leið til fyrirtækisins víða
að úr Evrópu. Meginreglan er að ef
hægt er að selja 456 stykki þá em
framleidd 456 stykki og það koma
engar kvartanir. 457unda stykkið
kostar lagerhillu, kostar húsnæði
með hitastigi, skráningu, eftirlit o.fl.
Þangað til því er hent eftir mörg ár.
Það getur verið 'A% af framleiðslu-
verði þegar upp er staðið og ef
framleitt er 150 stykkjum of margt
verður verðið annaðhvort ósam-
keppisfært eða tapið við lager eyðir
upp hagnaði síðar.
Félagslegt skipulag í iðnaði
Mönnum er ljóst að tækni getur
gefið arð, en mönnum er líka ljóst
að offjárfesting í tækjabúnaði gefur
ekkert af sér. En mönnum er síður
Vinstra megin við miðju
Kjallarinn
Jón Baldvin
Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins.
Árangur þessa pólitíska farand-
verkaflokks í stjómarathöfnum er
kunnur. Efnahagslíf þjóðarinnar
hefur enn ekki beðið þess bætur,
að Framsókn komst til valda árið
1971. Landbúnaðurinn er í rúst,
eins og bændur vita bezt, og sjávar-
útvegurinn er að fara sömu leiðina.
Allt var þetta svo sem þekkt áð-
ur. Það, sem er hins vegar nýtt, er
að nú hafa ungir framsóknarmenn
sannað það vísindalega, með að-
stoð félagsvídindadeildar Háskól-
ans.
Það telst með öðrum orðum vera
vísindalega sannað, að Framsókn-
arflokkurinn er lítill, afturhalds-
samur og tækifærissinnaður
flokkur.
Og að hann er útideild frá SÍS.
Átakanlegast er þó það sem hinn
ljúfi og skemmtilegi fjölmiðlafræð-
ingur flokksins, Helgi Pétursson,
segir um flokkinn í grein sinni.
Hann sagði:
„Maður getur ekki verið ungur
maður og líka framsóknarmaður."
Það fengu ungir framsóknar-
menn að reyna á SUF-þinginu sínu
um daginn.
Jón Baldvin Hannibalsson.
KjáUarinn
Þorsteinn
Hákonarson
i landsnefnd Bandalags
jafnaðarmanna
ljóst að félagslegt skipulag getur líka
gefið verulega af sér. og boðveitu-
kerfi og menntun framleiðsluvirkja,
sem eru þeir aðilar sem taka munu
að miklu leyti við framleiðslu með
beitingu tækni í staðinn fyrir eldri
handverksmenn, er félagslegt kerfi
sem öllum er frjáls aðgangur að. Ef
hann getur selt, þá getur kerfið fram-
leitt. I dag eru verulegir félagslegir
annmarkar á að stjómendur fyrir-
tækja geti nýtt sér slíkt kerfi. Til
þess þarf menn sem þekkja kerfið
og framleiðslu á gólfi fyrirtækjanna.
Við skulum kalla þá framleiðslu-
virkja.
Pólitískt innskot
Við í BJ höfum ýmislegt í bak-
höndinni þegar við erum að berjast
fyrir frelsismálum okkar, en við er-
um líka skipuleggjendur sem ætlum
að hafa kerfin opin fyrir þá sem geta
lagt eitthvað fram með skynsamleg-
um hætti, og við lítum svo á að ef
nógu margir geta lagt fram og beitt
viti sínu og þekkingu og hagnast á,
þá högnumst við öll á því. En það
er ekki pláss fyrir staðnaða kerfis-
karla á iðnaðarkerfinu sem hér er
lagt til. Þeir verða að læra að hugsa
skapandi með vilja til framgangs
fyrir alla.
Þorsteinn Hákonarson
„Ástandið í framleiðslufyrirtækjum okkar
í dag er þannig að hver er að bauka í sínu
horni án upplýsinga um hvað aðrir eru að
gera...“