Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986.
29
Sviðsljós
Krikket-vandamál
Eitt mesta heldri manna sport í
Englandi dagsins í dag, svo og
„kultiveraðri" samveldislöndum, er
hið æsispennandi krikket. Þeir sem
horft hafa á vita að leikurinn er mjög
hægur og virðulegur, gerist hrein-
lega á skokki. Samt sem áður er þessi
sér-breska íþrótt geysivinsæl meðal
þarlendra enda fátt eftir þar sem
Bretar eru fremstir í flokki.
Nú nýlega hefur þó heldur betur
fallið blettur á æru krikketsins og
skellur hvert hneykslið yfir á fætur
■öðru ef ráða má í orð þarlendra
heldri manna. Þeir eru uggandi yfir
því að krikket sé að missa virðuleika
sinn og verða eins og hver önnur „al-
þýðuíþrótt". Það telja heldri menn
ekki nógu gott og óttast að í fyllingu
tímans geti íþróttin hlotið sömu ör-
lög og knattspyrnan, það er ef
þessum hneykslum fer ekki að linna.
En beinum svona í skyndi rannsókn-
araugum í gegnum röntgengleraug-
un á vandamál krikketsins sem fer
svo mjög fyrir brjóstið á breska aðl-
inum og jafnvel fleirum.
Fyrir nokkru var stórstjama
íþróttarinnar, (svona nokkurs konar
Gary Lineker krikketmanna) sjálfur
Ian Botham, handtekinn og dæmdur
í sekt fyrir að hafa verið að fikta í
kókaíni. Botham þessi, sem er þekkt-
asti íþróttamaður Breta, jafnvel
þekktari en knattspyrnuhetjurnar,
var afhjúpaður af ástkonu sinni sem
ruddist fram á ritvöllinn og skrifaði
í óvandaðri bresk blöð um ástarsam-
band þeirra og kókaínhnuss stjörn-
unnar. Þó að heldra fólk í Bretlandi
lesi auðvitað ekki svona blöð, að
minnsta kosti að eigin sögn, fengu
menn auðvitað veður af þessu og
fordæmdu stjörnuna. En sjaldan er
ein báran stök og það var ekki nóg
fyrir Botham að vera dæmdur í fjár-
sektir, keppnisbann og vera úthúðað
sem slæmum íþróttamanni. Hneyksli
númer 2 kom skömmu síðar.
Botham á fjölda aðdáenda, sérílagi
meðal kvenna. Nokkrum vikum eftir
Mikið er á sig lagt til að banninu á
Botham verði aflétt, Ashley lét ekk-
ert stöðva sig.
að hann hafði verið dæmdur í keppn-
isbannið og allt það tók ein af
aðdáendum hans sig til og hljóp á
nærbuxunum einum saman inn á
völlinn með borða sem á stóð: Við
viljum Botham aftur. Þetta varð enn-
þá betri biti fyrir bresk blöð að
kjamsa á og stúlkan, hin 22 ára Ash-
ley, varð fræg á einni nóttu.
Það var ekki frá því að krikketleikmennirnir færu hjá sér en þeir stóðu stíf-
ir og sýndu engin svipbrigði
Norska stjórnin fór í slökunarferð til Utöya í Noregi og á meðfylgjandi
mynd, sem tekin var við það tækifæri, er Ijóst að Gro Harlem Brundtland
er ekki sjógarpur mikill. Stíllinn þegar hún stígur um borð i M/S Gro sýnir
að henni er annaö betur til lista lagt og reyndar munaði þarna hársbreidd
að fall forsætisráðherra yrði að veruleika. Ráðgjafi hennar, Svein Roland
Hansen, beið i ofvæni um borð, eflaust reiðubúinn að stinga sér eftir frúnni
ef hún tæki kollsteypu i kaldan sjóinn.
Ólyginn
sagði . . .
Michael
Jackson
er þekktur fyrir sín dæma-
lausu uppátæki ekki síður
en fagra rödd. Hann er mjög
„aktífur" í málefnum kirkju
sinnar og nýlega ákvað hann
að gleðja börnin í sunnu-
dagaskólanum. Pantaði
hann ískerru, fyllti hana af
alls kyns ísvarningi, sósum
og öðru tilheyrandi, fékk sér
svuntu og stoppaði kerruna
fyrir utan sunndagaskólann.
Þegar krakkarnir máttu fara
og komu stormandi út úr
skólanum urðu þeir himinlif-
andi að sjá söngvarann fyrir
utan í gervi íssölumanns.
Hann útbjó ekki einungis
ísinn „a-la Jackson" heldur
gaf þeim öllum hann.
Bette Midler
er nú 40 ára og ólétt í fyrsta
skiptið. Bette var svo tauga-
veikluð og hrædd áður en
hún fór í legvatnsprufu að
hún fór og heimsótti
skyggna manneskju. Sú
skyggna gat sagt Bette að
áhyggjur hennar væru
ástæðulausar, barnið væri
fullkomlega heilbrigt. Bette
fór því glöð og ánægð í pruf-
una og það kom á daginn
sem sú skyggna hafði séð
fyrir, allt á að vera í lagi með
barnið.
Elizabeth
Taylor,
leikkonan gullfallega, fékk
hreinlega áfall um daginn
þegar hún reyndi að renna
upp rennilás á kjól sem hún
keypti fyrir 2 mánuðum.
Kjóllinn sá arna hafði hlaup-
ið eða hún hafði stækkað.
Liz sannreyndi þetta og sjá,
kjóllinn stóðst öll gæðapróf.
Hún hefur nú fundið orsök-
ina fyrir þessari stækkun
sinni en það er ís sem hún
hefur víst borðað ótæpilega
í sumarhitanum. Nú með
lækkandi sól og hausti á að
gera bragarböt þar á og
hætta öllu ísáti. Hefur þjón-
unum í húsinu verið skipað
að hafa ekki svona mikið af
góðum mat til í húsinu, nú
eru það bara gulrætur og
salatblöð.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Álftamýri 14, 4.h.f.m„ þingl. eigandi Jónas
Hauksson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5 sept. '86 kl. 10.45. Uppboðs-
beiðendur eru: Gísli Baldur Garðarsson hrl., Hákon Ámason hrl„ Sigríður
Jósefsdóttir hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Fellsmúla 17, 4.t.v„ tal. eigandi Ingvar Elís-
son, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5 sept. '86 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi
er Guðjón Ármann Jónsson hdl.
______________________Borgarfógetaembasttið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hábergi 3, þingl. eigandi Hallgrímur Ævar
Másson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5 sept. '86 kl. 14.15. Uppboðs-
beiðendur eru: Sigurmar Albertsson hdl. og Veðdeild Landsbanka Islands.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
r
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hábergi 3, 3. hæð, þingl. eigandi Gróa B.
Jónsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5 sept. '86 kl. 16.45. Uppboðs-
beiðendur eru: RóbertÁrni Hreiðarsson hdl„ Ólafur Thoroddsen hdl„ Þorfinn-
ur Egilsson hdl„ Brynjólfur Kjartansson hri. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hábergi 7, 2,t.h„ þingl. eigandi Elinborg
Margrét Vignisdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5 sept. '86 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl.
___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hólabergi 14, þingl. eigandi Guðmundur
Garðarsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5. sept. '86 kl. 15.15. Uppboðs-
beiðendur eru: Gjaldheimtan í Reykjavík, tollstjórinn i Reykjavík og Veðdeild
Landsbanka Islands.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Vesturbergi 46, 1. hæð nr. 1, þingl.eigandi
Elfa Fanndal Gísladóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 5. sept. '86 kl.
14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Jón Magnússon hdl„ Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Veðdeild Landsbanka íslands.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hjaltabakka 4, 3.t.v„ þingl. eigandi Ólafur Sigurjónsson, fer
fram á eigninni sjálfri föstud. 5. sept. '86 kl. 16.15. Uppboðsbeiðandi er:
Guðjón Ármann Jónsson hdl.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Tiiboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum.
Daihatsu Charade 1984
Skoda 105 S 1985
Mazda 626 2000 1980
Ford Escort 1985
Honda Accord EX 1980
Daihatsu Charmant 1978
V.W. Golf 1978
Peugeot GR 505 Diesel 1980
Austin Mini 1979
Ford Escort 1978
Mazda 1300 1973
Volkswagen 1300 1971
Datsun 120 Y 1975
Fiat Uno 1984
Lancer GL 1981
Ford Bronco 1974
Bifreiðarnar verða til sýnis fimmtudaginn 4. sept. í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-12 og 13-15. Tilboðum
óskast skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeild-
ar Tryggingar h/f, Laugavegi 178, Reykjavík, sími
621110.
Laugavegi 178, sími 621110
I tfáp*/
%