Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 7
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. 7 Fréttir Tom Brokaw kom í gær: Fór beint í viðtal við Steingrím í sundlaugunum Tom Brokaw, fréttástjóri NBC, kom hingað til lands í gær með einkaflugvél frá Bandaríkjunum. Hann dreif sig strax í vinnu því búið var að panta viðtal fyrir hann við Steingrím Hermannsson forsætis- ráðherra í sundlaugunum í Laugar- dal. Þar ræddi hann við ráðherrann á sundlaugarbakkannum og spurði hann m.a. um sögusagnir um draugaganginn í Höfða. Steingrímur sagðist aldrei hafa orðið var við drauga þar, en amma hans hefði Tom Brokaw við komuna til iands- ins, en hann kom ásamt aðstoðar- manni og fleiri fréttamönnum frá NBC í einkaflugvél til Reykjavíkur í gær. haft trú á tilveru slíkra vera og ekki væri annað hægt að segja í þessu máli en að draugamir væru vel- komnir. Brokaw sagðist í samtali við DV ekki búast við miklum árangri af fundi leiðtoganna hér, en hann sagð- ist vera mjög ánægður með að fá tækifæri til að koma hingað til lands. Og hvað veit svo fréttastjórinn um landið? „Ég vissi ekki mikið um Is- land áður en ákveðið var að fundur- inn yrði hér, en nú er ég mun fróðari og ég ætla að nota tímann vel hér til að kynnast landi og þjóð,“ sagði Tom Brokaw. Fréttaþátturinn, sem Tom Brokaw stýrir, heitir „NBC, Nightly News with Tom Brokaw'1 og verður hann sendur beint til Bandaríkjanna héð- an frá Reykjavík. Að sögn talsmanns stöðvarinnar hefur stöðin um 14 milljónir áhorfenda þegar frétta- tíminn stendur yfir. Tom Brokaw hefur stjómað „Nightly News“ fréttatímanum frá 1983 og er greini- lega vel þekktur meðal samlanda sinna því á Hótel Loftleiðum vildu bandarískir ferðamenn, sem þar vom staddir, endilega fá mynd af sér með þessum virta fréttamanni. -SJ */unoföi tík JOGGÍno r * TöimmsfHt: Á /HÍORGOnC * Fninnouft SPORTSWm Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra var stillt upp á sundlaugarbakkanum þar sem Tom Bi okaw tók viðtal við hann fyrir NBC í gær. DV-myndir Brynjar Gauti / ER EINARÐUR OG ÖTULL TALSMAÐUR SJÁLFSTÆÐISSTEFNUNNAR. HEFUR REYNST SJÁLFSTÆÐISMÖNN- UM FARSÆLL FORYSTUMAÐUR. HEFUR STAÐIÐ VÖRÐ UM HAGSMUNI REYKVÍKINGA BÆÐI í BORGARSTJÓRN OG Á ALÞINGL TRYGGJUM BIRGI GLÆSILEGA KOSNINGU. STUÐNINGSMENN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.