Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Utlönd
Talið er mögulegt að Gorbatsjov neiti að fara til fundar við Reagan í Was-
hington ef enginn árangur næst á Reykjavíkurfundinum.
Ekki lengur
áhrvfamestur í banda-
rískum stjómmálum
Reiðubúinn til hörku
eða sveigjanleika
eftir því sem við á
Eftir erfiðleika vegna stefnu sinnar í utan-
ríkis- og vamarmálum og harða baráttu til
þess að halda völdum i þinginu heldur Ro-
nald Reagan, forseti Bandaríkjanna, til
fundar við Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkj-
anna.
Sláandi dæmi um að Reagan sé ekki lengur
áhrifamesta pólitíska fígúran kom í síðustu
viku þegar bandaríska þingið hunsaði neitun-
arvald hans og samþykkti refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku. Er það versti ósigur Reagans
í utanríkismálum og báru tilraunir Hvíta
hússins til þess að fá þingið til að standa að
baki forsetanum vegna Reykjavíkurfundarins
engan árangur.
Vekur það einnig athygli að það skyldu
vera hans eigin flokksbræður sem brugðust
honum. Haft er eftir starfsmanni Hvíta húss-
ins að Reagan muni kannski útskýra fyrir
Gorbatsjov hvemig bandaríska kerfið sé og
að þetta hafi í raun og vem ekki veikt stöðu
forsetans.
Skoðanakannanir sýna að Reagan nýtur
enn gífurlegra vinsælda meðal almennings
sem var ánægður með hvemig forsetinn fór
að til að ná bandaríska blaðamanninum Dani-
loff heim frá Moskvu þar sem hann hafði
verið kyrrsettur, ásakaður um njósnir. Skoð-
anakannanimar sýna einnig að framagosar
repúblikana njóta ekki góðs af þessum vin-
sældum forsetans.
Þessi staðreynd gæti reynst örlagarík í
þingkosningunum 4. nóvember þegar demó-
kratar munu gera sitt ýtrasta til að hnekkja
meirihluta repúblikana sem hafa 53 sæti á
móti 47 sætum demókrata.
Fyrir utan ósigurinn vegna refsiaðgerðanna
gegn Suður-Afríku hafa verið önnur teikn á
lofti um að pólitískt vald forsetans, sem gort-
að hefur verið af, sé farið að dvína. Hann á
nú aðeins eftir tvö ár í forsetaembættinu þar
sem ekki er hægt að sitja þijú kjörtímabil í
röð.
Á meðan hann getur hælst um af að hafa
náð takmarki sínu heima fyrir, það er að segja
umfangsmiklum úrbótum í skattamálum, er
það ekki jafn auðvelt fyrir hann og áður að
koma vilja sínum fram í þinginu.
í fulltrúadeildinni, þar sem demókratar eru
í meiri hluta, voru til dæmis samþykktar viða-
miklar og strangar takmarkanir við tilraun-
um með kjamorkuvopn og einnig var
samþykkt að takmarka fé það er verja skal
til hermála. í ákvæðunum felst bann við flest-
um tilraunum með kjamorkuvopn og vopn
er eyða gervihnöttum. Einnig er þess krafist
að Reagan haldi áfram að fara eftir Salt-II
samningnum um takmarkanir og að gerf verði
árshlé á framleiðslu efhavopna. Viðhorf öld-
ungadeildarinnar til þessara mála hafa verið
svipuð og gefur það til kynna að hægt sé að
vænta þess að gripið verði í taumana þegar
vamarmál eru annars vegar.
Fundurinn í Reykjavík og möguleikinn á
því að á eftir verði haldinn toppfundur þar
sem fjallað verður um vopnaeftirlit hefur veitt
forsetanum frest. Demókratar hafa komið með
málamiðlun, sem mun fresta lokauppgjöri, til
þess að Reagan hafi frjálsar hendur til þess
að semja á toppfúndinum.
Merki um dvínandi vinsældir Reagans má
'einnig sjá af því að frambjóðendur í þing-
kosningunum hafa reynt að hagnast á
vinsældum hans samtímis því sem þeir að-
hyllast ekki stefhu hans.
Embættismenn og stjómmálafræðingar
telja þó að Reagan haldi til fundar við Gor-
batsjov með margt bitastætt í pokahominu.
Fyrst nefna þeir þá staðreynd að hann er vin-
sælasti forseti Bandaríkjanna frá því að
Eisenhower var við völd. Telja þeir einnig
stöðu hans sterka þar sem hann hefur haft
yfirumsjón með mestu uppbyggingu Banda-
ríkjahers nú á tímum og jákvæðrar þróunar
í efhahagsmálum sem staðið hefur yfir í tvo
áratugi.
Reagan hefur vísað á bug gagnrýni íhalds-
manna um að hann hafi sýnt veikleika í
Daniloffinálinu svonefhda og er hann varð
við tilmælum Gorbatsjovs um skjótan fund.
„Það verður kalt í undirheimum þegar ég
sýni kommúnistum linkind," sagði hann við
fréttamenn í síðustu viku.
Aðstoðarmenn forsetans segja að hann vilji
að betri tengsl verði komin á milli stórveld-
anna þegar hann lætur af störfum í janúar
1989. Segja þeir hann hafa samþykkt fúndinn
í Reykjavík þar sem Gorbatsjov sé náungi sem
hægt er að ræða við.
í Hvíta húsinu er gert ráð fyrir að viðræð-
umar í Reykjavík greiði leiðina fyrir öðrum
fundi í Bandaríkjunum seinna á árinu eða,
sem líklegra þykir, í byijun ársins 1987.
Sjálfsöruggur og njótandi trausts sem hinn
þaulreyndi stjómmálamaður kemur Michail
Gorbatsojv, leiðtogi Sovétríkjanna, til fundar
við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í
Reykjavík um helgina. Er þetta samdóma
álit fréttaskýrenda í Moskvu sem fylgst hafa
með Gorbatsjov síðustu tvö árin. Segja þeir
hann fyndinn og gáfaðan, reiðubúinn til að
sýna hörku eða sveigjanleika eftir því sem
við á.
Hann kom fram í sviðsljósið aðeins nokkr-
um mánuðum áður en hann var kjörinn
aðalritari kommúnistaflokksins í mars 1985
en persónulegra áhrifa hans gætir þegar mik-
ið í stjómmálum bæði innanlands og utan.
Heima fyrir hefur hann hafið herferð til
þess að koma efnahagsmálunum í lag samtím-
is því sem hann berst gegn embættismanna-
kerfinu, spillingu og drykkjuskap. Á
erlendum vettvangi hefúr hann beitt sér fyrir
samningi milli Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna um fækkun kjamorkuvopna. Hann
hefur einnig leitast við að bæta sambúðina
við Kína og að endumýja hlutverk Sovétríkj-
anna sem málamiðlara í deilu Miðaustur-
landa.
Eftir margra ára stöðnun undir stjóm fyrir-
rennara Gorbatsjovs hafa Sovétríkin nú
fengið nýtt andlit út á við vegna ákveðinnar
forystu hans, segja fréttaskýrendur. Fullyrða
þeir einnig að tiltölulega lágur aldur hans
og ákveðni við að koma nýjungum á fram-
færi hafi endumýjað sjálfetraust þjóðarinnar.
Nú líta Sovétmenn upp til leiðtoga síns eft-
ir að hafa í áratug horft upp á aldraða
Kremlhöfðingja næla með skjálfandi höndum
orðum hver í annan við athafnir þar sem
þeir hafa varla verið færir um lesa stutta til-
■búna texta.
Ýmsir sovéskir embættismenn álíta að með
gáfum sínum sé Gorbatsjov ekki andlegur
jafningi Reagans. Þykir þeim Bandaríkjafor-
seti þröngsýnn og illa upplýstur og ekki vera
fær um miklu meir en stjómmálamaður sem
er að afla sér atkvæða heima fyrir. Þeir sem
em þessarar skoðunar fara ekki í launkofa
með það að þeir telja að fundurinn í Reykja-
vík og væntanlegir toppfundir, ef einhveijir
verða, eigi ekki að vera jafh þægilegir og
fyrsti fundur þeirra Gorbatsjovs og Reagans
í Genf í fyrra. „Ég geri ráð fyrir að það hafi
verið nauðsynlegt til að koma á persónulegum
kynnum en eftir það geta Bandaríkjamenn
ekki vænst þess að við skiptumst á gamanyrð-
um,“ sagði reyndur blaðamaður í Moskvu.
Að sögn sendifulltrúa hafa verið alvarlegar
umræður um það í Kreml hvort gagnlegt sé
að halda viðræðunum við Bandaríkjastjóm
áfram meðan Reagan situr við völd en í
Moskvu er enn litið á Reagan sem hatram-
man andstæðing Sovétríkjanna.
Sjálfur hefur Gorbatsjov látið í ljósi
óánægju sína vegna tregðu, eins og hann full-
yrðir, Bandaríkjanna við að bæta alþjóðlegt
andrúmsloft eftir Genfarfúndinn með áþreif-
anlegum aðgerðum.
Á þessu ári hefúr Gorbatsjov lagt áherslu
á að árangur verði að nást á fundum stórveld-
anna og túlka fréttaskýrendur það þannig að
hann hafi látið töfra Reagans mgla sig í rým-
inu á Genfarfundinum í nóvember í fyrra. En
Gorbatsjov og stjórn hans hafa þó komist að
þeirri niðurstöðu að halda beri fleiri fúndi
þrátt fyrir að þeir geri ráð fyrir litlum ár-
angri af viðræðum við stjóm Bandaríkjanna
vegna ágreinings innan hennar sjálfrar uin
stefnu í vopnamálum. I september lagði Gor-
batsjov áherslu á að þörfin á samkomulagi
um afvopnun væri svo knýjandi að það væri
ábyrgðarleysi að hætta öllum samskiptum og
bíða bara eftir breytingu í Washington.
Sendifulltrúar í Moskvu telja það fullvíst
að ákvörðunin um að stinga upp á undir-
búningsfundi í Reykjavík hafi verið samþykkt
af öllum flokknum og hafi ekki eingöngu
verið frumkvæði leiðtogans sjálfs. Telja sendi-
fulltrúamir einnig að Sovétríkin hafi litlu eða
engu að tapa þó svo að ekkert áþreifanlegt,
komi út úr viðræðunum í Reykjavík. Frá sjón-
arhóli Moskvu, sem sett hefur einhliða bann
við tilraunum með kjamorkuvopn þangað til
í janúar, er röðin komin að Reagan. Ef eng-
inn árangur næst á þessu sviði telja fréttaský-
rendur að mögulegt sé að Gorbatsjov neiti
að fara til fúndar við Reagan í Washington
og taki upp tilraunimar á ný á næsta ári.