Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
35 ..
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti. 11
Árbæjarhverfi. Til leigu í 6 mánuði 2ja
herb. íbúð, 72 ferm, í Árbæjarhverfi.
Laus strax. Uppl. í síma 671348 milli
kl. 17 og 20 í kvöld.
Austurberg. Til leigu 4ra herb. íbúð.
Tilboð sendist DV, merkt „X-9876“,
fyrir 14. okt. nk.
M Húsnæði óskast
Húseigendur, athugið. Höfum leigjend-
ur að íbúðum, sérstaklega 2-3 herb.,
einnig að öðru húsnæði. Opið kl. 10;-
17. Húsnæðismiðlun Stúdentaráðs HI,
sími 621080.
ATH. Ungt par utan af landi, með eitt
barn, óskar eftir 3ja herb. íbúð, reglu-
semi og skilvísum greiðslum heitið.
Sími 672225, e. kl. 20 sími 76539.
Ungt, reglusamt par óskar eftir 2ja
herb. íbúð. Uppl. í síma 686016 eftir
kl. 19.
Einstaklings- eða 2 herbergja íbúð ósk- ast til leigu, helst sem næst mið- bænum, einhver fyrirframgreiðsla möguleg. Uppl. í síma 18829. Óska eftir 3ja herb. íbúð í Reykjavík í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð á Bolung- arvík. Uppl. í síma 94-7521 eftir kl. 19. Iðnaðarhúsnæði. Höfum til leigu 270 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð við Dalbrekku í Kópavogi. Uppl. í síma 46688 og 30768.
Lagerhúsnæði til leigu í nágrenni Hlemmtorgs, góðar aðkeyrsludyr, húsnæðið er ca 50-60 fin. Hafið sam- band við DV í síma 27022. H-1396.
■ Atvinnuhúsnæói ■ Atvinna í boöi
60-100 ferm húsnæði óskast undir snyrtilegan matvælaiðnað, möguleiki á útsölustað æskilegur (ekki skil- yrði). Hafið samband við auglþj. DV í síma 27022. H-1376. Vegna aukinna verkefna getum við bætt við nokkrum saumakonum á dagvakt. Vinnutími frá 8-16, erum miðsvæðis í borginni, stutt frá enda- stöð strætisvagna, bjartur og loft: góður vinnustaður, starfsmenn fá prósentur á laun eftir færni og Don Cano fatnað á framleiðsluverði, komið í heimsókn eða hafið samb. við Stein- unni í síma 29876 á vinnutíma. Scana hf., Skúlagötu 26, 2. hæð.
Óska eftir að taka á leigu ca 100 ferm atvinnuhúsnæði undir mjög hreinlega starfsemi, þarf að vera með stórum aðkeyrsludyrum og góðri lofthæð. Uppl. í síma 38894 eftir kl. 18.
Starfsstúlka óskast til afgreiðslustarfa
í söluturni. Vinnutími frá 8.30-13,
mán-fös. Uppl. í síma 687716 fös. til
kl. 18.30 og lau. milli 8.30 og 13. Einn-
ig i síma 651757 um helgina.
Vantar þig fritt húsnæði? Óskum að
ráða konur til eldhússtarfa, góð vinna.
Uppl. gefur forstöðumaður í síma
666249 frá kl. 8-16 virka daga og eftir
kl. 16 í síma 666489 alla daga. Skála-
túnsheimilið, Mofsfellssveit.
Plastiðnaður. Vel staðsett iðnfyrirtæki
óskar eftir stúlkum á tvískiptar vaktir
og næturvaktir eingöngu. Góðir
tekjumöguleikar. Uppl. í síma 27542
milli 10 og 17.
Góður skyndibitastaður í miðborginni
óskar eftir starfsstúlku á aldrinum
17-23 ára, vaktavinna frá kl. 10-22.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-1394.
Frystitogararnir
hafa yfirburði
Reykjavík
Eins og í síðustu viku eru það ein-
göngu skip Granda hf. sem landa
hér. Bv. Asþór landaði l.okt. 123
tonnum og var aflinn karfi og ufsi.
Bv. Ottó N. Þorláksson landaði 6.
okt. alls 232 tonnum, heildarverð-
mæti 3,2 millj. króna. Bv. Ásgeir
landaði 7. okt. um 170 tonnum, 2/3
hlutar þorskur, annað karfi og ufsi.
í Reykjavíkurhöfn liggur nú frysti-
togarinn Akureyri. í Iok september
hafði skipið aflað fyrir kr. 200 millj-
ónir. Áhöfn skipsins er 25 manns,
stundum 26. Togarinn Vigri var
langhæstur í aflaverðmæti árið 1985
en hann hafði aflað fyrir kr. 105
milljónir. Af þessum samanburði er
auðséð hveijir yfirburðir frystitogar-
anna eru.
Grimsby
Bv. Hólmanes landaði í Grimsby
6. október. Aðeins 10% af fiskinum
fór í 1. flokk en 90% í annan flokk.
Þrátt fyrir það fékkst gott verð fyrir
fiskinn. Þorskur, sérstaklega stór,
kr. 78 kílóið, stórþorskur kr. 64,
meðalstór þorskur 63,80 og smáfisk-
ur 60,47 kg, karfi kr. 37 og ufsi kr
43,43.
Fiskur, sem landað var úr gámum
í Grimsby nú eftir helgina, var á æði
misjöfnu verði enda mikið af fiskin-
um annars flokks. Ýsan komst í kr.
78 hæst, en þorskverð var um kr. 60
meðalverð. Svipað verð hefur verið
í Hull.
Bremerhaven
Bv. Ögri landaði 7. okt. 160 tonnum
fyrir9,5 millj. kr. Verðið á einstökum
tegundum: þorskur kr. 64,60, ýsa 66,
uf'si kr. 49, blálanga 71, karfi kr. 59
og lúða kr. 174.
Noregur
Síldarsala til Sovétríkjanna vekur
miklar deilur nú í Noregi. Salan
hefur farið þannig fram að stór verk-
smiðjuskip hafa keypt ferska síld á
miðunum, ef svo má segja. Skipin
hafa legið í einhverjum firðinum og
Norðmenn landað í þau og síldin
hefur verið söltuð um borð. Nú eru
uppi háværar raddir um að svona
geti þetta ekki gengið, sjómennimir
fái svipað fyrir síldina og þeir fengju
ef'henni væri landað í fiskimjöls-
verksmiðjumar. Við verðum að
vinna síldina meira sjálfir, það geng-
ur ekki að verksmiðjur, sem sjóða
niður, fái ekki hráefnið fyrir sama
verð og Rússar kaupa það á. Auk
þess hefur það sýnt sig að þessi skip
hafa valdið mikilli mengun í þeim
Qörðum, sem þau liggja í. Á undanf-
ömum árum hafa Islendingar þurft
að keppa 'við Norðmenn. Erfitt er
fyrir okkur að standast samkeppni
við Norðmenn eins og uppbótakerfi
sjávarútvegs Norðmanna er. Nýlega
em Norðmenn famh að tala um að
nauðsynlegt sé að pressa Rússa til
að kaupa saltsíld ef halda eigi áfram
sölunni á fersku síldinni. Allt útlit
er fyrir að Norðmenn setji Rússum
skilyrði hvað varðar kaup á saltsíld.
Aðstaða okkar er erfið þegar undir-
boð em slík, eins og kemur fram í
verði því sem Rússar greiða.
Fiskmarkaðirnir
Ingólfur Stefánsson
Spánn
Norðmemi ætla nú að leggja meira
upp úr ferskfisksölu til Spánar en
þeh hafa gert hingað til.
Segja þeir að markaðurinn á Spáni
sé annað og meira en saltfiskmark-
aður. Segir í Fiskaren 2. okt. að
meðallaun séu um 22.000 kr. og íjórð-
ungur þeirra fari til matarkaupa.
Einnig benda þeir á hátt verð, svo
sem á ál, sem þeh segja að sé oft á
2200 krónur kílóið.
Togari Granda hf., Ottó N. Þorláksson, landaði 232 tonnum í vikunni.
Iðnaðar- og iðnverkamenn óskast til
verksmiðjustarfa, verða að geta unnið
yfir- og vaktavinnu. Góð laun fyrir
rétta menn. Uppl. í síma 46966 í dag
og á morgun milli 13 og 17.
Leikskólinn Hlíðarborg við Eskihlíð T
óskar eftir að ráða starfsmann í af-
leysinga, faststarf, hlutastarf. Uppl.
gefur forstöðúmaður í síma 20096 eða
á staðnum.
Saumakonur óskast til léttra sauma-
starfa. Björt og vistleg saumastofa,
þægilegir starfsfélagar, á besta stað í
bænum, yfirborgun. Hafið samband
við auglþj. DV í síma 27022. H-1398.
Sölumaður og aðstoðarmaður óskast
til að annast sölu úti á landsbyggð-
inni, bílpróf nauðsynlegt, góð laun
fyrir rétta menn. Uppl. ekki gefnar í
síma. Tekið á móti umsækjendum að
Smiðjuvegi 2, B götu, milli kl. 16 og
19 í dag og mánudag. Fatalagerinn.
Sfldarsamningar:
Rússar
þungir
„Sovétmenn fóru fram á það við
upphaf fundar að ekkert yrði sagt frá
gangi mála í samningaviðræðunum
fyrr en þeim er lokið og við féllumst
á þetta og þvi get ég ekkert sagt hvað
gerðist á okkar fundum," sagði Gunn-
ar Flóvenz, framkvæmdastjóri síldar-
útvegsnefndar. Fundur um síldarsölu
til Sovétríkjanna stóð í tólf tíma í
fyrradag og aftur var sest að samn-
ingaborðinu í gær.
Samkvæmt heimildum DV eru menn
annað en bjartsýnir á að góðir samn-
ingar náist við Sovétmenn í þessu
máli og búa sig undir langa og stranga
fundi næstu vikuna. Sumir eru að
binda vonir við að koma Gorbatsjov
muni leysa málið en þeir sem best
þekkja til síldarsölusamninga telja
það fráleitt.
Þær frétth hafa borist að Norðmenn
bjóði nú Sovétmönnum síld á verði
sem er svo lágt að það stenst engan
veginn, jafnvel þótt hinn mikli ríkis-
styrkur til norsks sjávarútvegs sé
hafður í huga. Þetta boð Norðmanna
verður ekki til að létta róðurinn hjá
síldarútvegsnefhd.
-S.dór
Amfetamínsmygl:
Sendi efhið
i posti
til landsins
Fíkniefnalögreglan hefur óskað eftir
gæsluvarðhaldi í hálfan mánuð yfir
manni sem handtekinn hefur verið
vegna smygls á amfetamíni til lands-
ins.
Að sögn Amars Jenssonar, yfir-
manns fíkniefnalögreglunnar, keypti
maðurinn efnið í Hollandi og sendi
það í pósti til landsins. Hefur lögreglan
haft þetta mál til rannsóknar í nokkra
daga og náð tæplega 100 g af amfetam-
íninu en talið er að ekki séu alla*-
sendingamar enn komnar fram. Mað-
urinn, sem áður hefur komið við sögu
fíkniefhalögreglunnar, sendi efhið
ýmsum aðilum sem vissu af smyglinu.
-FRI
TVeir óku
út í skurð
Tvö umferðarslys urðu með skömmu
millibili i Skagafirðinum í fýrradag og
í báðum tilfellunum var bíl ekið út afr'*
veginum í skurð við vegkantinn. Bæði
slysin urðu vegna hálku á veginum.
Fyrra slysið varð við Hegranes á
Sauðárkróksbraut en hið síðara á
Norðurlandsvegi í Blönduhlíð við
bæinn Úlfsstaði. Ökumenn beggja bíl-
anna voru fluttir á sjúkrahús en
meiðsli þeirra em ekki talin alvarleg.
-FRl