Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Síða 32
44
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Stacy Keach
hefur það alveg á hreinu hvern-
ig eignast skal aura í henni
Ameríku. Honum var stungið
inn til níu mánaða eftir að upp
komst um kókaínsmygl kappans
og því fór lítið fyrir gróðanum
af þeirri ferðinni - um sinn. En
Stacy dó ekki ráðalaus og skrif-
aði bók um lífsreynsluna - það
var víst fátt annað við að vera í
steininum - og græðir nú á tá
og fingri fyrir vikið. Þetta dæmi
hefur sannað þá staðreynd enn
betur fyrir nokkrum atvinnuri-
öldurskjóðum vestra að það er
hægt að skrifa bók um bókstaf-
lega allt i þessu gósenlandi
tækifæranna.
Bette Midler
er hin elskulegasta dóttir og í
einu góðu gæðakasti renndi
skvísan sér inn í næstu verslun
og keypti hlýlegan frakka á
pabba gamla. Þar sem verðið
voru einar sjötiu þúsund krónur
var hætta á að innkaupin gengju
yfir hinn nýja eiganda frakkans
og Bette þóttist nokkuð góð
eftir að hafa fækkað núllum á
verðmiðanum. Sjö þúsund
krónur var nú hin viðurkennda
tala. Skömmu síðar hringdi fað-
irinn hæstánægðurm sagði góð
kaup í frakkanum. „ Sendu mér
fleiri svona, helst ein tíu eða
tuttugu stykki. Hérna eru allir
svo hrifnir af þessu að ég gat
selt frakkann strax á tíu þúsund
kall og það var slegist um kaup-
in."
Boy George
sér um sig sjálfur um þessar
mundir - harðákveðinn I því að
sýna fram á nýtt og betra lífs-
mynstur. Nú er söngvarinn með-
nýja sólóellpée í smíðum en tek-
ur skýrt fram að það þýði alls
ekki endalok Culture Club.
Frægir fréttamenn mættir
Svo sem fram hefur komið hér á
síðum DV er Peter Jennings kom-
inn til landsins - einn fjölmargra
frægra fréttamanna sem landið
gista þessa dagana. Hann var að-
eins tuttugu og fimm ára gamall
þegar hann var orðinn sjónvarps-
fréttamaður, yngsta stjarna þeirrar
tegundar vestra. Sjálfur sagði hann
síðar að það hefði verið erfið
reynsla og hann hefði alls ekki
verið viðbúinn ábyrgðinni sem
fylgdi.
Hann er fæddur í Toronto í Kan-
ada og faðir hans var þekktur
sjónvarpsfréttamaður hjá CBC.
Peter hefur í raun verið við hljóð-
nemann frá níu ára aldri en þá
stjórnaði hann þætti sem nefndist
Peters People sem var hálftíma
þáttur fyrir börn - aðalefnið var
tónlist og fréttir við þeirra hæfi.
Síðar varð hann einn þekktasti
fjölmiðlamaður í Kanada - varð til
dæmis fyrstur með fréttina af morð-
inu á John F. Kennedy.
Leiðin lá svo til ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar og með árunum hefur
Peter Jennings orðið helsti sér-
fræðingur þeirra í málefnum
Miðausturlanda. Frægir þættir firá
hans hendi eru einnig fréttaskýr-
ingar sem hann sendi frá Kúbu
þegar bandarískum fjölmiðla-
mönnum var landið gersamlega
lokað. Þá fékk Jennings landvist-
arleyfi sem Kanadamaður. Meðal
þeirra sem hann hefur rætt við í
þáttum sínum eru til dæmis Sadat
og Khomeini - á þeim tíma er öðr-
um reyndist ógerningur að ná
sambandi við þá.
Fyrir störf sín hefur hann hlotið
margvísleg verðlaun og viðurkenn-
ingar - svo sem Emmyverðlaunin
bandarísku. Þáttur hans, World
News Tonigfit, nýtur mikils álits,
er stundum nefndur fljúgandi sirk-
usinn vegna þess hreyfanleika sem
verður á vera á starfsliðinu. Jenn-
ings er oft nefndur um leið og
stjörnúr eins og Dan Rather hjá
CBS og Tom Brokaw hjá NBC.
Þeir síðamefndu eru einnig komnir
til íslands til þess að vera viðstaddir
viðræður leiðtoganna tveggja.
Peter Jennings er ekki óvanur ferðalögum og þvi eru flugvellir engin
ný bóla hjá einum þekktasta fjölmiðlamanni heimsins. Að þessu sinni
er það Keflavikurflugvöllur á íslandi.
Fundur.. .hvar?
Það voru margir til þess að reka upp stór augu þegar vitnaðist um val á
fundarstað þeirra Reagans og Gorbatsjovs. Hundarnir í eldfærasögu H.C.
Andersen eiga því marga jafnoka þessa dagana. Á meðfylgjandi mynd er
einn iítill steinhissa á ósköpunum - og bestu vinir hans og kunningjar eru
greinilega i svipuðu ástandi. Hann er sex mánaða gamall, heitir Devon
Nicoll og býr i Chattanoga í Tennesseefylki.
Joan hræðist ekki hryðjuverkamenn og kom því fram á Concordetorginu í
Parísarborg sama daginn og Armenar sprengdu á Orlyflugvelli fyrir þrem-
ur árum. DV-myndir Á.Þ.J.
Rússarnir koma!
Sumir láta sér nægja að taka sér ferð með strætisvagni - aðrir taka
strætisvagn. Samt sem áður sýnir þessi mynd óvenjulega aðferð við
strætisvagnatöku sem ekki allir geta leikið eftir og atburðurinn var þeg-
ar rússneskur vagn renndi á land i San Fransiskó á' dögunum. Hvort
slíkar uppákomur verða algeng sjón um þessa helgi er ekki gott að
segja en víst er að ekki ættu fljúgandi almenningsvagnar að stinga í
stúf við annað í Reykjavíkurborg þar sem allt er komið á annan endann
þessa dagana.