Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Qupperneq 33
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
45
r
Friðardúfan Baez til Islands
„Manneskjan hlýtur að vera raik-
ilvægust," sagði söngkonan Joan
Baez á friðartónleikum sem hún hélt
á miðju Concordetorginu í París fyr-
ir þremur árum. Þann sama dag
höfðu armenskir hryðjuverkamenn
kastað sprengjum á Orlyflugvöll með
ógleymanlegum afleiðingum. Hún lét
aðvaranir lögregluyfirvalda sem
vind um eyru þjóta og söng um frið
í heiminum þetta kvöld umkringd
fullmönnuðum herbifreiðum og lög-
regluverði.
Þrýst á valdhafa
„Við þurfum að skapa eitthvað
annað en stríð og það má ekki
gleyma hlut einstaklingsins í því að
koma á friði. Leggjum öll okkar af
mörkum til að friður vl, ði tryggður
í heiminum og þrýstum á valdhafa
heimsins til þess að aðhafast eithvað
í þeim efnum.“ Þetta var eitt af því
sem söngkonan hafði til málanna að
leggja milli söngva og tilleggið féll
greinilega ekki i grýtta jörð þetta
kvöldið. Hún minnti á að allir yrðu
að taka afstöðu í þessum málum,
annað væri ábyrgðarleysi og mann-
réttindi hlytu að vera það mikilvæg-
asta í heiminum.
Friðarmerki á lofti
Alls staðar voru hendur á lofti
myndandi friðarmerki, eins og þéttur
veggur upp eftir Champs Elyseés -
syngjandi mannleg mauraþúfa. Joan
minnti á örlög Lennons þrátt fyrir
að sjálf hefði hún tekið þá áhættu
að verða ef til vill fyrir byssukúlu
og til þess að undirstrika að friðurinn
krefst hugrekkis kom ungur sonur
hennar með blómvönd upp á sviðið.
Þánn tíma voru þau mæðgin ákjós-
anlegt skotmark fyrir geðsjúklinga
og hryðjuverkamenn sem virtist þó
fjarlægur möguleiki í þessu undar-
lega andrúmslofti friðar og herafla.
Tilvera tuga manna, sem börðust við
dauðann á sjúkrahúsum borgarinnar
með innvortis bruna eftir atburði
dagsins á Orly, minnti samt á að
skammt er milli lífs og dauða - og
að venjulegt fólk verður oft fórn-
arlömb þegar valdatafl hinna stóru
er annars vegar.
Núna Reykjavík
Sviðsljósið beinist nú að Reykjavík
þar sem taflmennskan fer fram að
þessu sinni. Og baráttukonan Baez
ætlar að mæta á staðinn til þess að
vekja athygli á mikilvægi friðarins
og kemur fram á tvennum tónleikum
á laugardaginn. Nú verður sviðið
ekki heimsborgartorg heldur Gamla
bíó á íslandi en viðfangsefnið engu
að síður það sama. Joan Baez er for-
maður hinna alþjóðlegu friðarsam-
taka, Humanitas Internatinonal, og
hefur ferðast um allan heim friðarins
vegna í tæpa tvo áratugi. Hún virð-
ist síður en svo vera að setjast í
helgan stein, syngjandi um sinn
gamla draum - alheimsfrið - og ef
til vill verður henni einhvern tímann
að ósk sinni ... hver veit...?
-baj
Þegar poppgoðin boðuðu frið á
jörðu á hinum ýmsu vúddstokkhátið-
um, blómabörn blómstruðu og
eiturlyfin náðu varanlegri fótfestu
var Joan á hátindi frægðarinnar -
og lét sig aldrei vanta í eldlinuna.
Hérna með indíánaleiðtoganum
Dennis Banks i Centralgarðinum i
New York.
í upphafi frægðarferilsins sem söng-
kona hitti Joan ungan þjóðlaga-
söngvara sem hún hafði mikla trú á
og leyfði stundum að koma fram á
tónleikum með sér. Hann hét því
ágæta nafni Bob Dylan.
Tugþúsundir mættu á tónleikana og fögnuðu söngkonunni ákaft með friðar-
merkið á lofti.
Þrátt fyrir aðvaranir öryggisvarða fékk ungur sonur Baez - Berdey - að
fylgja með á hljómleikana og hann færði henni blómvönd i lokin.
Akureyri:
DV fyrr inn um lúgurnar
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Það líða aðeins nokkrar mínútur
frá því DV lendir á Akureyrarflug-
velli og þar til DV blaðabunkarnir
mörgu eru komnir í öruggar hend-
ur þeirra Kötlu Sigurgeirsdóttur
og Regínu Hauksdóttur. Þær stöll-
ur sjá um að aka blaðinu til vaskra
blaðbera DV á Akureyri. Áður ók
Katla ein út blaðinu en Regína tók
nýlega líka til við aksturinn. Það
sem vinnst er að blaðið kemur nú
fyrr til blaðberanna og það sem
skiptir öllu máli - DV kemur nú
mun fyrr inn um lúgurnar hjá les-
endum sínum.
p!®!S
DV lent á flugvellinum á Akureyri og eftir það eru þær Katla Sigurgeirsdóttir og Regína Hauksdóttir snarar i snúningum að aka blaðinu út til
blaðberanna. DV-mynd JGH
Svidsljós
Ólyginn
sagði . . .
vakti óendanlega hrifningu i
Danmerkurferð í síðastliðinni
viku. Þar hoppuðu menn hæð
sína af hrifningu yfir heimsókn-
inni og EMI hljómplötuútgáfan
færði henni platinuplötu fyrir
hundrað þúsundasta sölueintak
síðustu hljómskífunnar - Privat
Dancer.
Sean Penn
er ekkert að róast og heldur
uppteknum hætti við að útdeila
kjaftshöggum á báða bóga á
blaðamannafundum. Eitthvað
eru nú fréttasnápar að tregðast
við að mæta á staðinn þegar
hann vill viðra sín hjartans mál
við pressuna og þeir sem fengið
hafa bankið eru önnum kafnir
við málarekstur á hendur hinum
rólynda eiginmanni Madonnu.
Reikningarnir fyrir þetta stutta
gaman hrúgast upp á heimili
hjónanna og illar tungur segja
Madonnu krefjast þess að kapp-
inn bregði sér inn á meðferðar-
stofnun hið snarasta.
Annaðhvort er það afvötnun
eða barasta engin Madonna í
framtíðinni og bíða menn vestra
spenntir - í fjarlægð - nánari
frétta af málinu. Harkan sex á
þeim bænum.
Kim Wilde
hefur hent gamla gervinu og er
á fullu aftur með nýja ímynd
sem minnir óþægilega á hína
einu og sönnu Madonnu. Enn-
þá syngur þó fraukan með sinni
gömlu gælurödd og fyrir áhuga-
sama skal á það bent að
hljómleikar verða í Árósum og
Kaupmannahöfn síðast í þess-
um mánuði.
Tina Turner