Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. 5 Stjómmál Vilja skýrslu um kartóflugjald Níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins, með Friðrik Sophusson varaformann í broddi fylkingar, hafa beðið Jón Helgason landbúnaðarráðherra um skýrslu um forsendu og afleiðingu sérstaks jöfnunargjalds af innfluttum kartöflum og vörum unnum úr þeim. Landbúnaðarráðherra gaf út reglu- gerð um jöfnunargjald þann 24. júní síðastliðinn. Var gjaldinu ætlað að jafna samkeppnisstöðu innlendra kartöfluframleiðenda gagnvart er- lendum framleiðendum sem talið var að beittu óeðlilegri verðfellingu. Sjálfstæðismennimir segja i greinar- gerð með skýrslubeiðninni: „I sumar birtust fréttir þess efiiis að verðhækkun á kartöflum milli júlí- og ágústmánaðar hefði numið 72% sem svo hækkaði framfærsluvísitöluna um 0,31%. Framfærsluvísitalan í ágúst hækk- aði um 1,13% sem var 0,38% fram yfir „rauða strikið" svokallaða og leiddi til launahækkana umfram febrúarsamninga sem þessu nam. Þá hefur þvi einnig verið haldið fram að engin óeðlileg verðfelling hafi átt sér stað erlendis. í ljósi þessara frétta þykir undirrit- uðum þingmönnum ástæða til að þessar staðhæfingar verði kannaðar nánar.“ -KMU Ríkið veiti ekki tóbak í samkvæmum „Það er óviðeigandi að ríki eða ríkis- stofrianir veiti lengur tóbak á fundum eða í samkvæmum, þótt hér sé ekki lagt til algjört reykingabann," segir Páll Pétursson, Framsóknarflokki, í greinargerð með þingsályktunartil- lögu sem hann flytur um afnám tóbaksveitinga á vegum ríkisins og opinberra stofnana. Segir Páll að hinn 17. maí 1984 hafi Alþingi samþykkt lög um tóbaks- vamir. Lagasetning þessi hafi verið mikið nýmæli. Lögunum hafi verið vel tekið og þau skilað góðum árangri. Dregið hafi mjög úr reykingum á al- mannafæri og færri unglingar reyki nú en áður. -KMU FRÁBÆR LAUSN ENGAR UPPISTÖÐUR FALLEG OG STERK HILLUJÁRN SEM BERA ÓTRÚLEGAN ÞUNGA Spur MF hillujárnin eru frábær lausn ef þig vantar hillu undir t.d. sjónvarp, myndbandstæki, hljómflutn- ingstæki, yfir ofna, undir spegla, í eldhús, undir blóm, fyrir Ijósakappa, í barnaherbergi svo eitthvað sé nefnt. Hillujárnin eru 60 cm, 80 cm og 100 cm breið og gerð fyrir 16 mm þykkar hillur. Litur: hvítur, silfur og brúnn. ÚTSÖLUSTAÐIR: BYKO, Nýbýlavegi 6, Kópavogi, BYKO, Dalshrauni 15, Hafnarfirði, BYKO. Skemmuvegi 2, Kópavogi, Verslun Jes Zimsen, Armúla 42, R„ Verslun Jes Zimsen, Hafnarstræti 21, R., JL-byggingavörur, Hringbr l20, R. JL-byggingavörur, Stórhöfða, R„ Mikligarður, markaður við Sund, Byggingavöruverslunin Gos, Net- hyl 3, R„ Timburiðjan, Smiösbúð 6, Garðabæ Byggingavöruv. Smiðsbúð, Garð- atorgi, Garðabæ, Kaupfélag Suðumesja, Víkurbr., Keflavik, Málningarþjónustan, Akranesi, Byggingavöruversl., Jóns Fr. Ein- arssonar, Bolungarvik, Grímur og Ami, Húsavík, Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði, KASK, byggingavörudeild, Höfn í Hornafirði, Vöruhús, KA, Selfossi, Norðurfell, Kaupangi, Akureyri. M FISHER Hönhuðir Fisher hafa lagt sig alla fram við hönnun þessa stórglæsilega myndbandstæk- is. Útkoman er, eins og sést, glæsilegt tæki, hlaðið tækninýjungum. VHS-HQ fullkomið myndgæðakerfi - þráðlaus fjarstýring - 14 daga upptökuminni - digital teljari - kyrr- mynd - snertitakkar - leitari með mynd - sjálfvirk bakspólun. Fisher tæki eru traust og örugg tæki með mjög lága bilanatíðni og ekki spillir útlitið. Tæki framtíðarinnar frá Fisher. Verð kr. 39.950 sionvarpssOmn Borgartúni 16 - Reykjavík, sími 62-25-55 Strandgötu 23 - Akureyri, sími 96-26563 O/mk @F!SHFR vioeo cassette recoroer HQ O > DQ <w o » N \\.W j Í/'Z/V .W:\ í / o n • u c l u - J u. CHANNEL + OTR aOCK/COUNTÍR ii’J II Sl SYNTHESIZEÐ TUNING SYSTEM PAUSE/STILL REC It Sparaðu krónuna og eyrinn. Kauptu Fisher. Fisher gæði í hverjum þræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.