Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. 21 . DV íþróttir Ennsefur Lambie í sófanum John Lambie, þjálfari Hamilton í skosku irvalsdeildinni í knattspymu, verður enn im sinn að sofa í sófanum í stofunni heima íjá sér. Eins og við sögðum frá í gær gaf hann it þá yfirlýsingu áður en keppnistímabilið Skotlandi byijaði að hann myndi ekki nerta konu sína fyrr en lið sitt ynni leik í leildinni. Hamilton lék 18. leik sinn í deild- nni í gærkvöldi. Fyrir leikinn hafði liðið ;ert tvö jafntefli og tapað fimmtán leikjum. Lambie hefur sofið í sófaræfii í stofunni íðustu mánuði og ekki verið við kvenmann lenndur allan tímann. Ekki er útlit fyrir ið þau hjónakomin geti skemmt sér saman i næstunni þvi allt gengur á afturlöppunum ijá Hamilton. Liðið vinnur ekki leik og á neðan kemst þjálfarinn „ekki á kreik“. -SK HMiknatt- spymu innanhúss Fyrsta opinbera heimsmeistarkeppnin í knattspymu innanhúss stendur nú yfir í Sportpalaset í Búdapest. Er hún í fyrsta sinn eftir þeim reglum sem alþjóða knatt- spyrnusambandið FIFA hefur sett og tóku gildi fyrr á þessu ári. Landslið Brasilíu, Spánar, Belgíu, Ítalíu, Perú, Hollands, Bandaríkjanna og Úng- verjalands taka þátt í þessari fyrstu HM-keppni innanhúss. í hverju liði eru 11 leikmenn. Fimm eru inni á í einu og skipta má inn á að vild. Leikvöllurinn er af sömu stærð og hand- boltavöllur og mörkin þrír sinnum tveir metrar að stærð. Leiktíminn er tvisvar sinnum tuttugu og fimm mínútur. Heimsmeistarkeppni innanhúss hefur verið haldin áður, síðasta í fyrra. Var sú keppni eins og hinar í óþökk FIFA, sem ekki hafði samþykkt reglumar sem leikið var eftir. Þá sigraði Brasilía. Nú er útséð með að það endurtaki sig Brasilía varð neðst í sínum riðli með 2 stig eins og Bandaríkin. Holland og Italía eru efst í þeim riðli. í hinum riðlinum er Ungverjaland og Belg- ía í efstu sætum og fara í úrslit. -klp Alfreð og Páll í kröppum dansi - þegar Essen sigraði Dusseldorf, 20-17 Afli Hilmaissoin, DV, Þýskalandi: Essen heldur enn tveggja stiga forskoti sínu í 1. deildinni í hand- knattleik i Þýskalandi. í gærkvöldi unnu Alfreð Gíslason og félagar lið Páls Ólafssonar, Dusseldorf, í Essen með 20 mörkum gegn 17 eftir að stað- an hafði verið 9-6 í leikhléi fyrir Essen. Alfreð var í strangri gæslu Páls allan leikinn og skoraði fjögur mörk. Var oft gaman að fylgjast með þeim félög- um og börðust þeir gífurlega. Alfreð skoraði eitt mark úr vítakasti, eitt úr hraðaupphlaupi og tvö með þrumu- skotum fyrir utan. Páll byrjaði að leika í sókninni þegar 13 mínútur vom liðn- ar af leiknum en honum tókst ekki að skora. Mikil harka var í leiknum og einkum og sér í lagi sökum lélegrar dómgæslu. Essen skoraði fyrsta mark leiksins eftir rúmar fimm mínútur og komsst Dusseldorf aldrei yfir í leiknum. Strax í byrjun síðari hálfleiks tókst Dússel- dorf þó að jafna metin, 9-9, og aftur, 17-17, þegar sex mínútur vom til leiks- loka. Essen skoraði síðan þijú síðustu mörk leiksins en leikmenn Dússeldorf fóm illa að ráði sínu og gerðu mörg mistök á lokakaflanum. Jóhann Ingi ánægður „Ég verð að viðurkenna að ég var nokkuð hræddur fyrir þennan leik. Þetta var fjórði leikur okkar á átta dögum en leikmenn mínir stóðust álagið og ég er mjög ánægður með sigurinn," sagði Jóhann Ingi Gunn- arsson, þjálfari Essen, í samtali við DV eftir leikinn. •Lemgo, með Sigurð Sveinsson inn- anborðs, sigraði Hameln á heimavelli sínum með 24 mörkum gegn 19 eftir 11-11 í leikhléi. • Kristján Arason og félagar hans í Gummersbach gerðu jafhtefli á heima- velli Dortmund, 14-14. •Úrslit í öðrum leikjum: Grosswald- stadt-Hofiveier, 24-16, Schútterwald- Milbertshofen, 27-22, Schwabing- Göppingen, 27-22, og Weiche Handewitt-Kiel, 19-19. •Essen er efet með 19 stig, Gross- waldstadt 17, Diisseldorf 12, Schwab- ing 12, Kiel 11, Göppingen 11, Milbertshofen 10, Gummersbach 9, Lemgo 9, Dortmund 9, Hofweier 8, Schútterwald 5, Hameln 5 og Weiche Handewitt 3. -SK •Ulf Carlsson keppir á Rugleiða- mótinu í borðtennis. Carisson fll íslands Ulf Carlsson frá Svíþjóð, núver- andi heimsmeistari í tvíliðaleik í borðtennis, er væntanlegur til ís- lands í lok þessa mánaðar. Carls- son er í 19. sæti á skrá Alþjóða borðtennissambandsins yfir bestu borðtennismenn í heimi. Hingað til lands kemur Carlsson ásamt Kjell Johansson en þeir verða sérstakir gestir á Flugleiða- mótinu í borðtennis sem fram fer í Reykjavík þann 28. nóvember i íþróttahúsi Kennaraháskólans. Kjell Johansson hefur þrívegis orðið heimsmeistari í tvíliðaleik. Það er mikill fengur fyrir borðtenn- ismenn hérlendis að fa þeasa snjöllu kappa í heimsókn en á Flugleiðamót- inu verða einnig bestu borðtenms- menn okkar en þeir sem keppa eru: Ragnhildur Sigurðardóttir, Asta Ur- fiancis. Elísabet Ólafsdóttir í kvenna- flokki en í karlaflokki keppa þeir Stefan Konráðsson. Tómas Guðjons- son, Kristján Jónasson, Hilmar Konráðsson, Tómas Sölvason og Jó- hannes Hauksson. Þess má geta að úrslitaleikur móts- ins í karlaflokki verðursýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu hjá Bjama Felixsvni. -SK • Alfreð Gislason skoraði 4 mörtc í gærkvöldi gegn Dusseldorf. Sígur á ógæfuhliðina hjá KR Valur burstaði KR með ellefu marka mun í gærkvöldi, 31-20 Valsmenn fóru létt með slappa KR- inga er liðin áttust við í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í Laugardalshöll í gærkvöldi, lokatölur leiksins urðu 31—21 eftir að Valsmenn höfðu haft forystu í hálfleik, 13-9. Leikurinn var í heild mjög daufur og þá sérstaklega af hálfu KR-inga en Valsmenn sýndu inn á milli ágætis leik og hreinlega rúlluðu KR-ingum upp eins og lokatölur leiksins gefa glöggt til kynna. Jafnt framan af Fyrstu tuttugu mínútumar var jafh- ræði með liðunum og virtist svo að KR-liðið ætlaði nú loksins að sýna hvað byggi í því. Vöm liðsins barðist vel og áttu Valsmenn í erfiðleikum með að finna leið í gegnum hana. Þegar staðan var jöfii, 9-9, og um tiu mínútur vora til hálfleiks hrandi leik- ur KR-liðsins gjörsamlega saman, liðið var komið á sama plan og í undan- fomum leikjum og skoraði ekki mark það sem eftir lifði hálfleiksins. Vals- menn gengu hins vegar á lagið og skomðu fjögur mörk í röð. Seinni hálfleikur eign Vals- manna Valsmenn héldu sama leiknum áfram og mörkin komu á færibandi meðan ekki stóð steinn yfir steini hjá KR-irgum, þeir tóku þá til bragðs að taka þá Júlíus Jónasson og Stefán Halldórsson úr umferð en við það losn- aði um aðra leikmenn eins og Pálma Jónsson sem skoraði nokkur falleg mörk úr hominu, einnig var Þórður Sigurðssn iðinn við kolann en þar er á ferðinni mjög efnilegur piltur sem á áreiðanlega framtíðina fyrir sér. Við KR-ingum blasir erfiður vetur en fyrir keppnistímabillið vom bundn- ar þó nokkuð góðar vonir um gott gengi liðsins en þær vonir hafa alveg bmgðist. Að vísu hefur Hans Guð- mundsson ekki spilað með liðinu í undanfomum leikjum og hefur sá missir ömgglega veikt liðið en betur má ef duga skal og verða þeir heldur betur að fara taka sig til í andlitinu ef ekki á illa að fara. Valsmenn sýndu eins og áður sagði oft á tíðum ágætis leik og verða ömgg- lega í baráttunni í efri kanti deildar- innar í vetur. Enginn þeirra stóð upp úr í leiknum enda átti allt liðið jafhan leik. Dómarar leiksins voru Jieir Gunnar Kjartansson og Rögnvaldur Erlingsson og dæmdu þeir vel. Mörk: Valur. Júlíus 9/6. Stefán 7/2, Þórður 5, Pálmi 5, Jakob 4, Geir 1, Gísli 1. KR. Konráð 6/2, Guðmundur 4, Sverrir 3, Þorsteinn 2, Guðmundur Alberts 1. Pet- er 1, Páll 1, Ólafur 1, Loflur 1. -JKS •Geir Sveinsson skorar hér fallegt mark af línunni i leiknum gegn KR i gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti íþróttabún og trimmgallar til æfinga og keppni. íþróttatöskur i mörgum stærðum og gerðum. ÁRMÚLA 38 REYKJAVÍK, SÍMI82186 OG 83830.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.