Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. Sviðsljós Olyginn sagði... Priscilla Presley segir fjölmiðla skálda upp hinar hræðilegustu sögur um hana og líklega geri þeir það vegna þess að hún reyni að halda einkalífinu fyrir sig. Að blaða- greinunum slepptum er hún býsna ánægð með lífið og lét hafa eftir sér nýlega að það væri hennar fjallgrimm vissa að rokkkóngurinn sálugi - Elvis Presley-yrði harla káturef hann sæi hvernig eiginkonan og einkadóttirin hefðu hagað sínu lífsmynstri eftir hans dag. Coretta King ekkja blökkumannaleiðtogans Martins Lúther King, heldur merki eiginmannsins hátt á lofti og hefur aldrei verið atorkusam- ari en einmitt núna á friðarári Sameinuðu þjóðanna. Coretta ferðast landa á milli, heldur ræð- ur í kílómetratali og áréttar þá skoðun Martins Lúthers að friði verði að koma á í heiminum án ofbeldisaðgerða. Nú er ekkjan á ferð um Suður-Afríku og fundur hennar með Winnie Mandela er að hennar dómi ein stærsta stundin í lífinu. Farrah Fawcett Majors íhugar þessa dagana alvarlega hvort hún skuli láta undan þrýstingi og ganga að eiga sam- býlismanninn Ryan O'Neal. Þau eru nú komin með tvö smábörn og þykir sumum nóg um - og ekki batnaði það þegar dóttir Ryans, Tatum, hraðaði sér inn í hjónabandshöfnina með tenn- iskappanum sínum Ijúflynda. Áður en af brúðkaupi getur orð- ið setur Ijóskan Ryan þau skil- yrði að hann temji skap sitt meira en nú er, hætti að skella símtólinú á vini og ættingja ef tæpt er á einhverju sem ekki fellur alveg að hans skapi þá stundina. Því gengur nú sá góði maður í tíma hjá rándýrum sál- fræðingi sem hefur það á sinni könnu að slípa tennur villidýrs- ins. Þeir segja í Hollí að sá góði sáli vinni fyrir kaupinu sínu hörðum höndum... Ekki af baki dottinn Gamla vestrahetjan, Burt Lancaster, er ekkert að daprast þótt kominn sé á áttræðisaldur. Hann er ástfanginn upp fyrir bæði eyru af einkaritaran- um sínum sem er hin þrjátíu og fimm árum yngri Súsan. Gifting stendur fyrir dyrum nú alveg á næstunni og saman hafa þau skötuhjúin ferðast um Bandaríkin og Italíu - dansað Ítalíu á enda að sögn hins verðandi brúðguma. Burt er í sjöunda himni og stundi í eyra eins vinar síns - þegar hann tyllti tánum á jörðina eitt andartak - að Súsan léti sér finnast hann táningur í annað sinn á ævinni. Klæðakistur prinsessunnar Þegar prinsessa hreyfir sig úr stað í farartækjunum. Hérna sjást starfs- þarf heilmikinn viðbúnað - ekki síst menn krúnunnar bisa við eina af ef um er að ræða sjálfa Díönu Breta- klæðakistum prinsessunnar sem að- prinsessu. Ekki aðeins fylgir líf- eins er ein af mörgum í farangrinum varðahersing og annað fylgdarlið - fyrir nokkurra daga vetrarleyfi í heldur tekur klæðnaðurinn sitt pláss Balmoralkastala. Leiðin liggur til andfætlinganna og Margrét Halldórsdóttir segist hlakka rosalega til fararinnar. DV-mynd Brynjar Gauti Ástralía — fyrirheitna lanciið Um áramótin leggja af stað héðan átta ungmenni á vegum skiptinema- samtakanna ASSE og er ferðinni heitið til Ástralíu. Þar munu þau dvelja hjá fjölskyldum og við nám í eitt ár. Margrét Halldórsdóttir, nemi í Verslunarskólanum, er ein þeirra og sagðist aðspurð varla geta beðið lengur eftir því að leggja af stað. „Auðvitað hlakka ég rosalega til,“ segir Margrét. „Sit á hverjum degi við póstlúguna og bíð eftir að heyra frá þeim sem ég á að búa hjá. Þetta eru hjón með tólf ára strák og sextán ára stelpu og þau eiga hund og kött.“ Þegar Margrét er innt eftir tildrög- um þess að hún ákvað að sækja um hjá ASSE verður ævintýraþráin efst á blaði. „Mér finnst alveg æðislega gaman að ferðast og líka að hitta fólk. Það er mikið ævintýri að fara til Ástralíu og ekki margir sem fara þangað.“ I sumar vann ég með konu sem var að fá í heimsókn til sín fólk sem hún bjó hjá fyrir löngu - þegar hún sjálf var skiptinemi - og hún kallaði þau ennþá mömmu og pabba. Þetta er eflaust eitt af því sem ýtti undir löng- unina hjá mér að gera eitthvað slíkt." Mamman las reglurnar Hver skyldu svo vera viðhorf fjöl- skyldunnar hér heima þegar fyrir dyrum stendur árs aðskilnaður? „Pabba fmnst alveg hræðilegt að missa mig í heilt ár en mamma las reglurnar sem við þurfum að fara eftir og sagði að þetta væri akkúrat það sem ég hefði alltaf þurft. Regl- urnar eru alveg ofsalega strangar." Kostnaðinn við ferðina segist Margrét brúa að mestu leyti sjálf en það sem vantar upp á þau eitt hundr- að og sextíu þúsund sem ævintýrið kostar hjálpa foreldrarnir henni með. Farið verður í byrjun janúar- mánaðar og fara skiptinemarnir íslensku saman í hóp sem skiptist svo í Sidney. „Þetta er ofboðslega löng ferð,“ segir Margrét að lokum. „Það tekur þrjátíu tíma að fara frá Kaupmannahöfn til Sidney og þá eiga sum okkar eftir að fara til ann- arra áfangastaða. En við hlökkum til og reynum að afla allra mögu- legra upplýsinga í bókasöfnum hér heima áður en lagt verður af stað.“ Ekki bara leikur Stefanía Harðardóttir hefur verið á skrifstofu ASSE-samtakanna síð- astliðin fjögur ár og segir þetta í fyrsta skipti sem nemendur séu send- ir til Ástralíu. „Aðallega höfum við verið með Bandaríkin og Kanada,“ segir Stef- anía. „Núna er í fyrsta skipti völ á árs- dvöl í Frakklandi, Þýskalandi og Ástralíu. Þetta er gott og merkilegt tækifæri fyrir þessa krakka - víkkar hjá þeim sjóndeildarhringinn á þeim tíma sem margir hverjir eru í vafa um hvað þeir eigi að leggja fyrir sig í framtíðinni." Kostnaður er misjafn eftir löndum en ódýrast er að fara til Norðurland- anna. Þar er gjaldið fyrir ársdvöl um sjötíu og fimm þúsund krónur. Áður en nemendurnir leggja af stað eru þeir undirbúnir vel og læra meðal annars að halda landkynningarræð- ur. „Þetta er ekki bara leikur," áréttar Stefanía. „Slíkar ferðir eru erfiðar og krakk- arnir þurfa að sýna mikla aðlögunar- hæfni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.