Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. 15 Litlar breytingar á þingliði? „Satt best að segja eru ekki horfur á mikilli endurnýjun i þingmannaliði tlokkanna. Að visu er ot snemmt að slá því töstu þvi enn er eftir að sjá fyrir endann á nokkrum prófkjörum og forvölum. En jafnvel þó þar yrðu óvæntari úrslit en hingað til hafa orðið verður ekki um neina kolisteypu að ræða.“ Smám saman verður ljósara hvemig framboðslistar stjómmála- flokkanna verða skipaðir við næstu alþingiskosningar. Þar kennir ýmissa grasa, gamalla og nýrra, og vissulega verður einingin misjöfh eftir að menn hafa keppt um það hnoss sem þingsæti virðist enn vera í margra augum. Lítil endurnýjun? Satt best að segja em ekki horfur á mikilli endumýjun í þingmanna- liði flokkanna. Að vísu er of snemmt að slá því föstu því enn er eftir að sjá fyrir endann á nokkrum próf- kjörum og forvölum. En jafnvel þótt þar yrðu óvæntari úrslit en hingað til hafa orðið verður ekki um neina kollsteypu að ræða. Hjá Framsókn verða nokkrar brey tingar og á öðrum stöðum er enn óljóst með frambjóðendur þegar þetta er skrifað. Vesturlandið er óbreytt, á Vestfjörðum gæti orðið breyting, litlar líkur á breytingu á Norðurlandi vestra, á Norðurlandi eystra er breyting, því þar hafa fram- sóknarmenn dubbað bráðhuggulega konu upp í nokkum veginn ömggt sæti. Austurlandið er óbreytt, á Suð- urlandi nýr maður í öðru og væntanlega öraggu sæti. Á Reykja- nesi fer formaðurinn fyrir liði sínu og enda þótt framboð hans þar sé ein markverðasta uppákoman i kosningaundirbúningnum til þessa þá fylgir því ekki nýjung í þingliði. I Reykjavík em mál óviss, þar gæti nýr maður komið inn, þar gætu líka gamalkunn andlit blasað við. Niður- staðan hjá Framsókn: Sennilega tvö ný andlit, gætu orðið fjögur til fimm. Nokkuð svipaða sögu er að segja Kjallarinn á fimmtudegi Magnús Bjarnfreðsson frá Sjálfstæðisflokknum. Nýir þing- menn koma að vísu inn fyrir Reykjavík, þar koma tvö ný andlit inn fái flokkurinn átta þingmenn, auk þess einn gamalkunnur þing- maður utan af landsbyggðinni, Eykon, og svo einn sem hefur marg- oft sest í þingsæti sem varamaður. Síðan er allt óbreytt, hringinn í kringum landið, nema hvað kominn er nýr maður í annað sæti á Norður- landi vestra, sem tæplega kemst á þing eftir nýju kosningalögunum. Horfur em á fremur lítilli end- umýjun hjá krötum, þó fer það vissulega eftir því hve mikil fylgis- aukning þeirra verður. Þótt nokkrar tilfærslur verði í framboðum, eins og ferð Guðmundar bandalags- manns á Austfirði og hugsanlegur sigur Sighvats yfir Karvel, þá verða það sömu andlitin hringinn í kring- um landið og menn hafa séð áður, að undanskilinni Reykjavík og Reykjanesi. í Reykjaneskjördæmi em tvö efstu sætin að vísu óbreytt en líklegt verður að telja að flokkur- inn bæti þar við sig þingsæti. Það hlotnast þá konu úr Kópavogi sem hefur aflað sér vinsælda í þæjar- málapólitík þar. í Reykjavík verður svo ein breyting sem mestu máli skiptir. Þarkemur upp sú skringi- lega staða að einn aðalráðgjafi fráfarandi forsætisráðherra í efna- hagsmálum skipar efsta sæti hjá stjómarandstöðuflokki. Vafalítið mun kosningabaráttan í Reykjavík bera talsverðan keim af þessari stað- reynd og hætt er við að meira mark verði tekið á yfirlýsingum þjóð- hagsstjórans í efeta sæti um efna- hagsmál en tuði formannsins í þriðja sæti. Enn er ekki ljóst, þegar þetta er skrifað, hver drepur hvem í slagn- um um fjórða sætið en nokkuð ljóst er að þar verður nýr frambjóðandi. Einna mest virðist endumýjunin ætla að verða hjá Alþýðubandalag- inu. I Reykjavík kemur allavega nýr maður inn í staðinn fyrir Guðmund J., hvort sem flokkurinn bætir svo við sig sæti eða ekki. Á Vesturlandi er ekki að vænta tíðinda en á Vest- fjörðum kemur væntanlega inn nýr þingmaður frá Bolungarvík. Á Aust- flörðum hættir Helgi Seljan víst og verður þar mikið skarð fyrir skildi. Þar veltur á miklu fyrir Alþýðu- bandalagið að fá vinsælan arftaka hans með Hjörleifi Guttormssyni sem seint mun sópa að sér fjölda- fylgi. Á Suðurlandi kemur valkyrja frá Stokkseyri í stað Garðars úr Eyjum og á Reykjanesi bítur Ólafur Ragnar í skjaldarrendur að baki Geir Gunnarssyni. Líklega kemst Ólafúr inn á þing núna og unir þá sæmilega við sitt. Um kvennaframboðið er enn of snemmt að spá. Af hverju lítil endurnýjun? Af hverju er endumýjunin ekki meiri? Nú finnst mér engin ástæða á endumýjun einvörðungu end- umýjunarinnar vegna, en maður gæti búist við henni meiri eftir heilt kjörtímabil þegar ný kosningalög gefa þar að auki möguleika á ýmsúm breytingum sem ættu að ýta undir áræði manna. Hver getur skýringin verið? Getur verið að hún sé einfaldlega sú að menn telji þingsæti ekki lengur sér- lega eftirsóknarvert? Þeir menn sem á annað borð standa sig það vel á þingi að um þá er sæmilegur friður í kjördæmum gætu áreiðanlega allir setið í miklu betur launuðum störf- um úti í þjóðfélaginu án þess að eiga það stöðugt á hættu að vera ataðir saur og svivirðingum eins og allir þeir menn eiga nú yfir höfði sér sem á annað borð þora að gægjast upp úr mosagróðri meðalmennskunnar. Sé þetta hin raunvemlega skýring er okkur hollt að stinga við fótum. Hingað til hefur þingseta verið talin eftirsóknarverð og mikil virðing fylgja þingmennskunni. Á miklu veltur líka að þeir sem til þess velj- ast að setja lýðveldinu lög séu menn réttsýnir og duglegir. Mikilvægi þess hefúr ekkert breyst frá því forfeður okkar komu auga á að þeir þyrftu löggjafarþing fyrir meira en þúsund árum. Ef öfúndin, meðalmennskan og búksorgirnar em hins vegar bún- ar að grafa undan trausti hins almenna kjósanda á þingmönnum og öðrum stjómmálámönnum er hætt við að raunvemlegt lýðræði eigi fljótlega í vök að veijast. Þá rís upp öld lýðskrumara og skinhelgra sem í skjóli fjölmiðlavalds og tengsla geta talið alþýðu trú um að þeir séu saklausir af heimsins ávirðingum. Slíkir menn halda aldrei lengi grí- munni fyrir samborgurum sínum en þegar hún fellur þá er það orðið of seint. Magnús Bjamfreðsson. „Hingað til hefur þingseta verið talin eftir- sóknarverð og mikil virðing fylgja þing- mennskunni.“ Samgöngur á Vestfjörðum í ólestri „Nýbygging og viðhald vega hefur dregist saman og þær framkvæmdir sem ráðist hefur verið í eru margar illa skipulagðar eins og t.d. Súganda- fjaröarvegurinn ...“ Góðar samgöngur hér á Vestfjörð- um hljóta að vera forsenda þess að hér verði byggð í framtíðinni og fólksflóttanum verði snúið við. Það liggur í augum uppi að lélegar sam- göngur við Vestfirði og innan fjórð- ungsins og einangmn byggðarlaga yfir vetrartímann hafa átt stóran þátt í þeirri fólksfækkun sem orðið hefúr undanfarin ár. Þó að hér sé fólk, sem búið hefur við lélega þjón- ustu á mörgum sviðum gegnum tíðina og vill reyna að þrauka eitt- hvað lengur í von um betri tíð, er ekki við því að búast að til Vest- fjarða flytjist fólk til frambúðar sem vant er ömggri læknaþjónustu, nógu vömúrvali og allri opinberri þjón- ustu við höndina, auk margs konar félagslegrar þjónustu, og ég tala nú ekki um framhaldsskóla og aðra sér- skóla. Vegirnir Við Vestfirðingar erum komnir langt aftur úr öðrum landshlutum hvað varðar vegakerfið. Ætti hrein- lega að vara fólk við því að aka um Vestfirði nema á vel útbúnum torfæ- rabílum, enda lenti vegurinn, sem liggur út Súgandafjörð að Suður- eyri, þ.e. 500 manna byggð, á skrá yfir 7 hættulegustu vegi landsins. Þingmennirnir Tveir af þingmönnum Vestfjarða hafa verið samgönguráðherrar og mætti ætla að við hefðum notið góðs af en því fer fjarri að mínu mati. Nýbygging og viðhald vega hefur dregist saman og þær framkvæmdir, sem ráðist hefur verið í, em margar illa skipulagðar, eins og t.d. Súg- andafjarðarvegurinn sem byrjað var Kjallarinn Lilja Rafney Magnúsdóttir verkakona, Súgandafirði á að byggja upp eri síðan k'emur 2-3 ára hlé á framkvæmdum og þann biðtíma þarf fólk að aka um stór- hættulegan veg. Flugið Við Vestfirðingar erum svo heppn- ir að hafa flugfélagið Emi sem reynst hefur okkur mjög vel og sér um póst- og farþegaflug innan fjórðungsins og til Reykjavíkur auk sjúkraflugs. En þá er það eitt að fjárframlög til flugvalla hafa dregist saman og er það hættuleg þróun fyrir marga staði þar sem flugið er oft eina samgöngu- leiðin þegar allt er á kafi í snjó og vegir lokaðir og tekið getur langan tíma að ryðja þá. Jarðgöng Jarðgangagerð milli Önundar- fjarðar, Súgandafjarðar og ísafjarð- ar hefur verið mikið til umræðu undanfarin ár og gerðar rannsóknir þar að lútandi. Margir hafa litið á það sem fjarlægan draum en margt bendir nú til að svo sé ekki. Tækn- inni fleygir fram og nýlega fór hópur vestfirskra sveitarstjómarmanna og ráðamanna frá Vegagerðinni til að kanna jarðgangagerð í Færeyjum en þar er hún mjög algeng. Gerð jarðganga myndi breyta mjög miklu fyrir okkur á norðanverðum Vestfjörðum og mynda sterkan byggðarkjama og yfir vetrartímann opna möguleika á að sækja ýmsa þjónustu til ísafjarðar, þ.á m. ömgg- ari læknaþjónustu og félagslega og opinbera þjónustu sem ekki þrífst á litlum stöðum. Einnig myndi skóla- sókn í þá framhaldsskóla sem em á ísafirði stóraukast og þyrftu ungl- ingar ekki að fara landshoma á milli til að sækja framhaldsnám. Margt mætti nefna fleira sem yrði til bóta en of langt mál væri að telja upp. Það væm ekki bara minni byggðim- ar kringum Isafjörð sem nytu góðs af jarðgangagerð heldur myndi ísa- fjörður njóta góðs af aukinni þjónustu við byggðimar í kring, sem annars heföi t.d. verið sótt suður til Reykjavíkur. Tilvonandi þingmenn Nú standa yfir prófkjör og forvöl innan flokkanna og er óskandi að þar í efetu sætin veljist menn sem hafa skilning á að ein aðalundirstað- an fyrir byggð hér vestra em traust- ar samgöngur ásamt uppbyggingu og fjölbreytni í atvinnulífi. En þetta virðist oft gleymast og menn slitna úr sambandi við sína heimabyggð þegar flutt er suður á mölina. Samtökin um jafnrétti milli landshluta Við Vestfirðingar getum ýmislegt gert með samtakamætti ef vilji er fyrir hendi og em Samtökin um jafh- rétti milli landshluta spor í rétta átt þar sem fólk úr öllum flokkum vinn- ur saman og þarf að reyna að virkja þau betur. En ráðamenn þjóðarinnar þurfa að fara að gera það upp við sig hvort hér á Vestfjörðum eigi að vera nokk- urs konar verbúðir, þar sem fólk kemur og fer, eða að hér séu skapað- ar þær aðstæður að hér vilji og geti fólk búið til frambúðar. Við erum ekki að biðja um ölmusu heldur að sjá gjaldeyrinn, sem Vestfirðingar afla í þjóðarbúið, skila sér aftur til uppbyggingar heima fyrir. Lilja Rafney Magnúsdóttir. „Það liggur í augum uppi að lélegar sam- göngur við Vestfirði og innan fjórðungsins og einangrun byggðarlaga yfir vetrartím- ann hafa átt stóran þátt í þeirri fólks- fækkun sem orðið hefur undanfarin ár.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.