Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSÖN Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÖSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 500 kr. Verð í lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Ábyrgðarlítið Alþingi Viðskiptaráðherra hefur í blaðaviðtali sagt, að það sé aðför að Alþingi, er rannsóknarnefnd Hafskipsmáls- ins gagnrýnir þá háu stofnun út af kosningu í bankaráð Útvegsbankans. „Ég tel, að nefndin hefði ekki þurft inn á það að koma,“ sagði ráðherrann. Samkvæmt þessu telur Matthías Bjarnason ástæðu- laust að draga Alþingi til ábyrgðar fyrir að velja ekki nógu hæft bankaráð, sem velur ekki nógu hæfa banka- stjóra og hefur ónógt eftirlit með þeim. Hann vill, að Alþingi og alþingismenn séu án ábyrgðar. Flestum öðrum mun þó fmnast eðlilegt, að bent sé á hlutdeild Alþingis í 600 milljón króna tjóni Útvegs- bankans af Hafskipsmálinu. Ennfremur, að slíkar rannsóknarnefndir séu oftar skipaðar og að þær hlífi ekki Alþingi frekar en öðrum, ef þær telja ástæðu til. Engin hliðstæð rannsóknarnefnd var skipuð út af miklu meira tjóni ríkissjóðs vegna Kröflumálsins, 2037 milljónum króna. Þar var að verki nefnd alþingis- manna, sem fór afar óvarlega með fé, þótti henni væri bent á, að hætta væri á, að fjárfestingin nýttist ekki. Hinni frægu Kröflunefnd alþingismanna tókst að verja 3207 milljónum króna í glæfralegt fyrirtæki, sem ríkið gat síðan losað sig við til Landsvirkjunar fyrir 1170 milljónir króna. Tap ríkisins nam 2037 milljónum. Ekki er ljóst, hvert verður tap Landsvirkjunar. Ef rannsóknarnefnd hefði verið skipuð vegna Kröflu- tjónsins og hún, eins og Hafskipsnefndin, haft manndóm til að gagnrýna stórfellda málsaðild Alþingis og þing- manna, hefðu alþingismenn fengið ástæðu til að fara varlegar í ævintýramennsku í framtíðinni. Rannsóknarnefndir mætti einnig skipa út af fjölda annarra glæfra þingmanna. Nýlegt dæmi er grasköggla- verksmiðan að Vallhólma í Skagafirði, sem varð gjald- þrota í ár eftir þriggja ára glórulausan rekstur. Þar nema eignir 20 milljónum og skuldir 80 milljónum. Þingmenn voru varaðir við Vallhólmaverksmiðjunni. Þeim var bent á, að enginn markaður væri fyrir gras- köggla hennar, því að fyrir voru í landinu fimm gras- kögglaverksmiðjur með mikla vannýtta afkastagetu. Þeir létu þessar aðvaranir eins og vind um eyru þjóta. Á þessum tíma voru áform um að byggja tvær aðrar graskögglaverksmiðjur. Alþingismenn börðust meira að segja um, hverja þessara þriggja verksmiðja skyldi fyrst reisa. Skagafjarðarverksmiðjan bar sigurorð af Borgarfjarðar- og Þingeyjarsýsluverksmiðjunum. Nú er svo komið, að ekki aðeins er Vallhólmur gjald- þrota, heldur hefur ríkið auglýst til sölu grasköggla- verksmiðjunar í Flatey, Ólafsdal og Stórólfsvöllum, sem allar eru reknar með miklu tapi. Samanlagt nam tapið í fyrra á ríkisreknum graskögglum 38 milljónum króna. í ævintýri graskögglanna komu þingmenn fram af fullkomnu ábyrgðarleysi, alveg eins og þeir höfðu gert í Kröfluævintýrinu og eru á degi hverjum að gera í ævintýrum bankaráðanna og á fjölmörgum öðrum svið- um. Það er eins og þeir eigi sjálfir fé þjóðarinnar. Alþingi ætti að læra af gagnrýni Hafskipsnefndarinn- ar og ákveða að koma upp rannsóknarnefndum á fleiri sviðum, svo sem í graskögglum. Alþingismenn verða að átta sig á, að sameiginlegt fé þjóðarinnar er takmark- að og að ábyrgðarhluti er að grýta því á allar hendur. Umfram allt mega þeir ekki hugsa eins og viðskipta- ráðherra, sem finnst aðfinnsluvert, að rannsóknarnefnd sé að amast við skorti fjármálaábyrgðar á Alþingi. Jónas Kristjánsson „Er það réttlætanlegt gagnvart þeim sem í góðri trú leggja fram fé til hjálpar bágstöddum, svo ekki sé talað um hina bágstöddu sjálfa, að fjármagnið skuli fara að miklu leyti í að greiða laun starfsmanna stofnunarinnar og annan rekstrarkostnað?" Breytum starfsemi Hjálp- arstofnunar kirkjunnar Undanfarið hefur Hjálparstofnun kirkjunnar verið mjög mikið í sviðs- ljósinu og hefur m.a. farið fram rannsókn á starfsemi hennar og fjár- reiðum. Við rannsókn þessa hefur komið fram, eins og kunnugt er, að yfirbygging stofnunarinnar er orðin geigvænlega mikil og kostnaður við reksturinn slíkur að hann étur upp stóran hluta þess er til nauðstaddra átti að renna. Ekki hef ég hugsað mér að leggja nokkum dóm á hvort hér hafi verið um bruðl eða óráðsíu að ræða, Skýrsla rannsóknamefnd- arinnar gerir sínar athugasemdir þar um. Það sem mér er í huga er spum- ingin hvort þörf sé á að halda uppi svo viðamikilli starfsemi sem Hjálp- arstofhun kirkjunnar gerir. Er það réttlætanlegt gagnvart þeim sem í góðri trú leggja fram fé til hjálpar bágstöddum, svo ekki sé talað um hina bágstöddu sjálfa, að fjármagnið skuli fara að miklu leyti í að greiða laun starfsmanna stofnunarinnar og annan rekstrarkostnað? Hjálparstarfi best borgið í höndum SÞ Fyrir réttu ári dvaldi undirritaður um skeið í Súdan og fékk þá örlitla innsýn í hvemig hjálparstarfi þar er háttað. Kom það m.a. fram hjá starfsfólki Þróunaraðstoðar Sam- einuðu þjóðanna í Khartoum að í landinu væm skráðar hátt á annað KjaUaiinn Halldór Hilmarsson símritari, Höfn Hornafirði em miklar. Augljóst er að dreifing hjálpargagna í löndum eins og Súd- an er best komin í höndum stofnana eins og Sameinuðu þjóðanna. Hjá þeim er yfirbygging sú er til þarf þegar til staðar. í löndum þeim sem mest hafa verið þurfandi fyrir aðstoð að undanfomu, þ.e. Eþíópíu og Súd- an, halda SÞ uppi mjög viðamikilli starfeemi. Til að nefna hafa Þróun- arhjálpin (UNDP), Flóttamanna- „Augljóst er að dreifing hjálpargagna í löndum eins og Súdan er best komið í höndum stofiiana eins og Sameinuðu þjóð- anna.“ hundrað hjálparstofnanir. Vom þær misjafhlega stórar og störfúðu allar, meira og minna, hver í sínu homi. Segir það sig sjálft hversu óhag- kvæmt slíkt er og hamlar í raun öllu markvissu hjálpar- og uppbygging- arstarfi. Einnig störfuðu margar þessar stofnanir í óþökk þarlendra stjómvalda og ollu þá jafnvel meiri vandræðum en þær leystu, þó eflaust hafi ásetningurinn verið góður. Súdan er stærsta land Afríku og býr við mjög frumstætt vegakerfi, jafnvel á íslenskan mælikvarða. Samgöngur em þar því allar mjög erfiðar. Vill oft fara svo að hjálpar- gögn, matur, lyf o.fl., kemst ekki þangað sem þörfin er vegna skorts á hentugum samgöngutækjum. Jafiivel þó tækin séu til staðar haml- ar eldsneytisskortur þeim oft að komast á áfangastað því vegalengdir hjálpin (UNHCR) og Bamahjálp SÞ (UNICEF) allar stórar skrifetofur í höfuðborgum þessara landa, auk útibúa í öllum helstu bæjum og þorp- um. Þar að auki var sett á laggimar í Súdan sérstök skrifetofa er sér- hæfir sig í neyðaraðstoð (UNEOS). Er tilgangur hennar m.a. að reyna að koma einhverju skipulagi á starf- semi hinna ýmsu hjálparstofhana í landinu. Veitir henni forstöðu einn af aðstoðar-aðalriturum SÞ. Allar em stofnanir þessar að miklu leyti mannaðar innfæddu fólki, fólki sem gjörla þekkir til staðhátta og er best í stakk búið að meta þarfir síns fólks. Einnig em skrifetofumar flestar rót- grónar í löndum þessum og eiga gréiðan aðgang að viðkomandi stjómvöldum, sem oft á tíðum reyn- ist nauðsynlegt. Ég heyrði t.d. sögur af skipum, fullhlöðnum matvælum, er send höfðu verið frá Evrópu til hjálpar sveltandi fólki en fengu ekki að losa vaminginn í Eþíópíu þar sem ekki höfðu verið greidd tilskilin inn- flutningsgjöld til stjómvalda. Gilti þá einu þó hér væri um gjafir að ræða og stór hluti þjóðarinnar væri deyjandi úr hungri. Yfirvöld vildu fá sitt. Þetta kann að hljóma an- kannalega í eyrum okkar íslendinga, en er staðreynd engu að síður. Stað- reynd er taka verður með í reikning- inn við skipulagningu á hjálpar- starfi. Fjarskipti mikilvæg Traust fjarskipti em afar mikil- væg. Fjarskiptakerfi þau er þjóðir þessar hafa upp á að bjóða em mjög ófullkomin og að sama skapi ótrygg. Hjálparstofnanir verða því að treysta á sín eigin fjarskiptakerfi að mestu leyti. Uppsetning og rekstur slíkra kerfa er bæði mjög kostnaðar- samur liður og einnig ýmsum vandkvæðum bundinn, svo sem út- vegun rekstrarleyfa, tíðnival o.fl. Margföldun slíkra kerfa er af aug- ljósum ástæðum út í hött. Einnig á fjarskiptasviðinu em SÞ best í stakk búnar. Þær hafa yfir víðtæku fjar- skiptaneti að ráða, fjarrita- og talsambandi, bæði innan viðkom- andi landa og við umheiminn. Fjarskiptakerfið er í eigu SÞ og rek- ið af starfsfólki þeirra. Það er því óháð hinu viðsjárverða ástandi á vinnumörkuðum landanna, svo sem verkföllum o.fl. Takmörkum okkur við fjáröfl- un Vissulega hafa stofnanir eins og Hjálparstofnun kirkjunnar unnið bæði mikið og þarft starf í löndum þessum og ekki leyfi ég mér að efast um góðan og einlægan vilja þeirra er unnið hafa að þessum málum hér á landi. Spumingin er hvort ekki sé viturlegra og hvort það komi sér ekki betur fyrir hina þurfandi að takmarka starfsemina hér á landi við fjáröflun en láta stofhanir eins og SÞ sjá um ráðstöfun fjárins. Með því móti væri hægt að draga mjög úr hinum gífurlega rekstrarkostnaði sem veldur því að Hjálparstofhun kirkjunnar riðar nú til falls. Með slíku fyrirkomulagi er raunar ekki hægt að benda á eitthvert afmarkað verkefni og segja, „Sjá, þetta höfúm við gert til hjálpar hinum bág- stöddu". Meira tel ég þó um vert að fé það er safhast komi að sem mest- um notum þeim er það er ætlað. Og ekki vænti ég þess að tilgangur þeirra er fyrir fj;irsöfnunum standa sé að reisa sér einhvem minnisvarða hér á jörð. Halldór Hilmarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.