Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
Iþróttir
Atli
lagði
upp
mark
í 3-1 sigri á Köln
Afli H2maissan, DV, Þýskalandi;
Bayer Uerdingen komst í gær-
kvöldi í 8-liða úrslit bikarkeppn-
innar í þýsku knattspymunni.
Uerdingen sigraði þá FC Köln á
heimavelli sínum með þremur
mörkum gegn einu.
Atli Eðvaldsson átti mikinn þátt
í fyrsta markinu sem Bierhof skor-
aði eftir aðeins tíu mínútur. Atli
nikkaði knettinum til Bierhof sem
skoraði af öryggi. Á 27. mínútu
náði Klaus Allofs að jafna metin
með marki sem hann skoraði úr
vafasamri víöispyniu. Á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks skoraði
Klinger annað mark Uerdingen
með skalla eftir fyrirgjöf Bommérs.
Þriðja markið skoraði Witeczek á
71. mínútu. 18 þúsund áhorfendur
sáu leikinn sem fram fór í ausandi
rigningu.
Hamburger skoraði sex
Van Heesen skoraði þrjú mörk í
gærkvöldi í stórsigri Hamburger
SV gegn St. Pauli, 6 0. Smöller
skoraði tvö og Jusufi skoraði eitt
mark.
• Borussia Mönchengladbach
sigraði Aachen á útivelli, 0-2, og
skoraði Bakalorz bæði mörkin.
•Úrslit í öðrum leikjum urðu þau
að Stuttgarter Kickers sigraði
Hannover, 2-0, Fortuna Köln tap-
aði heima fyrir Damistódt, 0-2, og
Blau Weiss Berlin tapaði heima
fyrir Karlsruhe.
Uerdingen mætir Gladbach
í gærkvöldi var dregið í 8-liða
úrslitin og dróst Bayer Uerdingen
gegn Gladbach á útivelli. Þá leikur
Darmstadt gegn Hamburger,
Dússeldorf gegn Karlsruhe og
Stuttgarter Kickers gegn
Eintracht Frankfúrt
-SK
IR komst
• Karl Þráinsson skorar hér fyrir Víking.
i
i
|
í
í
s
c
i
í
s
l
s
é
1
r
8 marka sigur Vikmgs a
örmagna Stjömumönnum
Víkingur sigraði, 25-18. Ami fékk rautt spjald um miðjan fyrri hálfleik
„Þetta var mun auðveldari Ieikur
en ég átti von á. Leikmenn Stjömunn-
ar vom alveg eins og svefhgenglar.
Við vorum hins vegar mun ákveðnari
og það er notalegra að fara út í síðari
leikinn gegn St. Otmar með svona
góðan sigur í pokahominu en tap,“
sagði Ámi Indriðason, þjálfari og leik-
maður Víkings, í samtali við DV eftir
að Víkingur hafði unnið stóran sigur
á sofandi Stjömuliði í Laugardalshöll
í gærkvöldi. Lokatölur 25-18 eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 11-9. Ámi
fékk að sjá rauða spjaldið þegar 12
mínútur vom eftir af fyrri hálfleik fyr-
ir að brjóta á einum leikmanna
Stjömunnar í dauðafæri.
Það vakti nokkra athygh að þrátt
fyrir rauða spjaldið fékk Ámi að
stjóma sínum mönnum átölulaust þar
til í síðari hálfleik.
Sofandi Garðbæingar
Það var snemma augljóst í þessum
leik að annað liðið hafði áhuga á að
sigra í leiknum en hitt ekki. Víkingar
vom mjög ákveðnir strax í byrjun en
áhugaleysi einkenndi allar athafnir
Stjömumanna. Þó komust þeir í 3-1 í
byrjun en síðan vart söguna meir.
Víkingar jöfnuðu 3-3, síðar 5-5 og
komust svo yfir 10-7 en staðan í leik-
hléi var 11-9.
Fjórtán Víkingsmörk
Hafi leikmenn Stjömunnar verið
slakir í fyrri hálfleik þá verður að
nota eitthvað enn verra orð yfir
frammistöðuna í þeim síðari. Þá vom
þeir gersamlega á hælunum eftir erfiða
leiki, æfingar og ferðalög undanfama
daga. Og lið sem er pískað áffam af
yfirstjóm handboltamála eins og
Stjaman upp á síðkastið hlýtur að fá
að vita rækilega af því áður en langt
um líður. Og þess má geta að Stjömu-
menn vom einum leikmanni fleiri í
heilar átta mínútur en töpuðu samt
með átta marka mun. Það segir meira
en margar línur.
Víkingar, sem einnig hafa staðið í
ströngu undanfarið, skomðu 14 mörk
í síðari hálfleik og unnu stóran og
verðskuldaðan sigur í leik sem skilur
nákvæmlega ekkert eftir.
Mörk Víkings; Karl Þráinsson 8/3,
Ámi Friðleifsson 5, Bjarki Sigurðsson
5, Siggeir Magnússon 3, Hilmar Sig-
urgíslason 3 og Guðmundur Guð-
mundsson skoraði 1 mark. Kristján
Sigmundsson varði 11 skot, þar af tvö
víti. Finnur Thorlacius varði 2 skot,
eitt víti.
Mörk Stjömunnar: Gylfi Birgisson 8,
Skúli Gunnsteinsson 3, Hannes Leife-
son 3/2, Páll Björgvinsson 2, Einar
Einarsson 1 og Hafeteinn Bragason
1. Sigmar Þröstur varði 10 skot.
Leikinn dæmdu þeir Sigurður Bald-
ursson og Bjöm Jóhannsson og vom
slakir.
-SK.
L.
í 13-4!
- og vann HK, 23-24
ÍR-ingar sigmðu HK, 23-24, er
liðin áttust við íþróttahúsinu i
Digranesi í 2. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöldi.
ÍR-ingar vom á tímabili í fyrri
hálfleik búnir að ná yfirburða-
stöðu, 13-4, en þegar hða tók á
tókst HK aðeins að rétta úr kútn-
um og í hálfleik höfðu ÍR-ingar
fimm marka forystu.
Leikur HK liðsins var allt annar
í seinni hálfleik og þegar tvær
mínútur vom til leiksloka tókst
þeim að jafna leikinn, 23-23, en
IR-ingar áttu síðasta orðið í leikn-
um og skomðu sigurmarkið þegar
ein mínúta var til leiksloka og
tókst að halda því út leikinn.
-JKS
GotthjáSviss
Ítalía og Sviss gerðu jafntefli,
1-1, í knattspymu í Empoli á Ítalíu
í gærKVÖldi í leik leikmanna 21 árs
og yngri og raeð sigrinum em þeir
í efsta sæti í riðlinum.
-JKS
• Ingi Jóhannesson.
' ■ "‘ ■ -•
Sigurður Pétursson lék
á sjö höggum yfir pari
- sveit GR í 12. sæti eftír fyrsta daginn á EM klúbbliða á Spáni
„Þetta gekk ekki nægilega vel og
frammistaðan á fyrsta deginum var
verri en við vorum að vona,“ sagði
Björgúlfúr Lúðvíksson, fyrirliði GR-
sveitarinnar í golfi, í samtali við DV
í gærkvöldi. Fyrsti keppnisdagur Ev-
rópumóts klúbbliða í golfi var í gær
og að honum loknum er GR-sveitin í
12. sæti af 20 sem þátt taka í mótinu.
• Sigurður Pétursson lék best okkar
manna í gær, kom inn á 79 höggum,
en par vallarins er 72. Hann lék fyrri
9 holumar á 38 höggum en seinni 9 á
41 höggi.
•Ragnar Ólafeson lék á 80 höggum.
Hann lék fyrri 9 á 42 höggum og seinni
9 á 38 höggum. Ragnar var mjög
óheppinn, að sögn Björgúlfe, og eftir
aðeins fimm holur var hann kominn
sex högg yfir parið.
•Hannes Eyvindsson lék einnig á 80
höggum. Hannes lék fyrri 9 á 43 högg-
um og seinni 9 á 37 höggum. Honum
gekk álíka illa í byrjun og Ragnari
en eftir sex leiknar holur var Hannes
sjö högg yfir parinu.
„Strákamir vom lengi í gang eins
og eðlilegt er en samt sem áður gerðum
við okkur vonir um að koma inn á 155
höggum fyrsta daginn í stað 159. En
það er mikill hugur í strákunum og
þeir em staðráðnir í að standa sig
betur í dag,“ sagði Björgúlfúr.
Frakkland í efsta sæti
Frakkar léku best allra í gær. Tveir
bestu menn þeirra léku á 70 og 74
höggum og samtals því á 144 höggum.
V-Þjóðverjar vom á 149 höggum,
Wales 151, Belgía 151, England 153,
Spánn 154, Sviss 155, Danmörk 156,
Noregur 158, Svíþjóð 158, Skotland
158, ísland 159, Finnland 159, Luxem-
burg 159, írland 161, Ítalía 162,
Austurríki 167, Júgóslavía 170, Holl-
and 170 og Portúgal 175.
Sigurður í 19. sæti
Eftir fyrsta keppnisdaginn er Sig-
urður Pétursson í 19. sæti yfir besta
skor einstaklinga á mótinu af þeim 60
kylfingum sem leika. í gær léku ís-
lendingamir í holli með Belgíu og
Austurríki en í dag leika GR-strákam-
ir með Svíum og Skotum.
•Þess má geta að í sveitinni frá
Luxemburg leikur íslenskur kylfingur.
Ingi Jóhannesson heitir hann og lék
á 79 höggum i gær eða sama högga-
fjölda og Sigurður Pétursson. Sveit
Luxemburg var á sama skori og sú
íslenska.
-SK