Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 31
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
31
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
MAZDA 929 HT sjsk., vökvast.
árg. '83, ekinn 57 þús.
Verð 440 þús.
LANCIA „SKUTLA" árg. ’87,
ekinn 2 þús. Verð 270 þús.
MAZDA 929 GLX, 4 dyra, HT,
með öllu, árg. ’84, ekinn 40 þús.
Verð 585 þús.
MAZDA 323 station árg. ’86,
ekinn 17 þús. Verð 420 þús.
MAZDA 626 GLX, 5 dyra, sjsk.,
vökvast., árg. ’84, ekinn 45 þús.
Verð 440 þús.
MAZDA 323 station dfsil, árg.
'87, ekinn 11 þús. Verð 510 þús.
MAZDA 626 GLX, 2 dyra, coupe,
árg. ’84, ekinn 30 þús.
Verð 440 þús.
MAZDA 626 GLX, 4 dyra, salo-
on, árg. '85, ekinn 22 þús.
Verð 460 þús.
Opið laugardaga
frá kl. 1-5.
Fjöldi annarra bíla á
staðnum.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 681299.
Stjömubíó: Það gerðist í gær
unga fólksins
Danny (Rob Lowe) og Debbie (Demi Moore) reyna að kynnast hvort öðru
Bandarisk 1986.
Leikstjóri: Edward Zwick.
Framleiöendur: Jason Brett, Stuart Oken.
Handrit Tim Kazurinsky, Denise DeClue.
Myndataka: Andrew Dintenfass.
Aðalhlutveik: Rob Lowe, Demi Moore, Jim
Belushi og Elizabeth Perkins.
Það er ekkert lát á framleiðslu ungl-
ingamynda í henni Ameríku. Eitt af
nýjustu eintökum þeirrar fram-
leiðslu er nú til sýnis í Stjömubíói.
Með aðalhlutverkin tvö fara þau
Rob Lowe og Demi Moore sem einn-
ig léku saman í St. Elmos Fire sem
naut mikilla vinsælda hér á síðasta
vetri. Rob Lowe er að verða að einu
skærasta kyntákni yngstu kynslóð-
arinar með fastan dálk á slúðursíð-
um dagblaðanna.
Myndin segir frá þeim Debbie (Rob
Lowe) og Danny (Demi Moore) sem
eru ungir og áhyggjulausir krakkar
í Chicagoborg. Þau gera sér ekki
miklar grillur út af lífinu og tilver-
unni og þvælast úr einu skyndisam-
bandinu í annað. Kynni takast með
þeim og eftir tveggja mánaða sam-
band ákveða þau að hefja sambúð.
Þrátt fyrir að ástin sé heit gengur
sambúðin ekki árekstralaust fyrir
sig. Allt endar þetta þó vel um síðir
enda læðast að manni þær grun-
semdir að þeir í Ameríku hafi hug á
því að predika kosti hjónabandsins
fyrir ungu fólki nú á síðustu og
verstu tímum.
„Það gerðist í gær“ kemur þó
nokkuð á óvart fyrir það hversu hlý-
leg og persónuleg hún er. Aðstand-
endur hennar hafa greinilega haft
áhuga á því að bregða upp trúverð-
í Stjörnubiói þessa dagana.
ugri mynd af þessum viðkvæmu
tímum í lífi ungs fólks. Vissulega
klúðrast eitt og eitt atriði vegna
þess hversu orðafar og tjáskipti per-
sónanna eru fábreytt en það er
ekkert meira en maður á að venjast
í bandarískum kvikmyndum. Lowe
er svo sem enginn skapgerðarleikari
og þó persóna Danny sé hvorki djúp
né flókin þá stendur áhorfendum síð-
ur en svo á sama um hann. Demi
Moore er ósköp sæt í hlutverki hin-
ar ungu nútímakonu sem situr allt
í einu uppi með óþroskaðan strákl-
ing.
Þau Danny og Debbie eiga bæði
sína einkavini sem hafa enga trú á
að samband þeirra blessist. Jim Bel-
ushi á nokkra spretti og reynir að
halda uppi húmomum í myndinni,
hann má þó vara sig á því að verða
ekki leiðigjarn í einhæfri eftiröpun
sinni á eldri bróður sínum. Og fyrir
unnendur rigningaratriða þá er eitt
slikt í myndmni þegar Debbie hafhar
Danny úti á miðri götu í grenjandi
rigningu. Atriði sem þessi þykja
greinilega orðin nauðsynleg í öllum
meiri háttar ástarmyndum
Sigurður Már Jónsson
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Hjðrtettur Guttormason
son. Ekkert var þó frekar
aðhafst í málinu enda tæplega
hægt. En fréttamaðurinn hef-
ur ugglaust orðið ögn fróðari
um málefni allaballanna á
þessukvöldi.
Glasgow-
æðið
Glasgow-ferðimar frægu
eru á hvers manns vörum
þessa dagana. Þar ytra á fólk
að geta gert svo góð kaup að
það fái nánast borgað með
vömnni. Þetta kann dýrtíðar-
hrjáður almúginn að meta og
flykkist út til að versla.
Þær raddir hafa heyrst að
þetta kaupæði komi niður á
kaupmönnum hér heima,
einkum fatakaupmönnum.
Aðrir segja að þeim sé hreint
engin vorkunn. Þeir taki
nefnilega þátt í darraðardans-
inum, skelli sér út með
nokkrar töskur, fy Hi þær og
selji svo hér heima á íslensku
verði.
Það skyldi þó aldrei vera?
Komst upp
um kauða
Talsvert hefur borið á því
að stolið hafi verið úr verslun-
um, einkum stórmörkuðum,
að undanfömu. Hafa sumir
þeirra ráðið eins konar örygg-
isverði sem meðal annars eiga
að sjá um að fólk fari ekki
með meira út en það borgar
fyrir. Þeir fmgralöngu beita
þvfótrúlegustu brögðum til
að koma fengnum fram hjá
kassanum.
Það gerðist um daginn í ein-
um stórmarkaðnum að karl-
maður var að borga fyrir
eitthvert smotterí við kassann
þegar allt í einu steinleið yfir
hann. Afgreiðslufólkið rauk
til með miklu írafári og fór að
stumra yfirhonum. Losað var
um bindið, skyrtunni hneppt
frá og önnur neyðarhjálp
veitt. En þegar hatturinn var
tekinn af höfði hins útafliðna
kom í ljós beingaddaður
kjúklingur. Hafði maðurinn
ætlað að lauma pútunni út
undir hattinum án þess að
borga fyrir hana. En kuldinn
hafði þau áhrif á heilabúið að
það steinleið yfir steliþjófmn
á óheppilegustu stundu.
Fiskvinnsla
í Háskólanum
Það er mikill uppgangur hjá
Granda hf. um þessar mundir.
Ekki er langt um liðið síðan
starfsfólk í fyrirtækinu því
sást á skjánum þar sem það
stóð niðri í Höfða með glas í
hendi. Þar var verið að fagna
eins árs afmæli Granda.
En starfsfólkið gerir fleira
en að standa í fiskverkun og
kokkteilpartíum. Á næstunni
mun það nefnilega setjast á
skófabekk í Háskóla Islands.
Þar fer fram bókleg kennsla í
fiskvinnslu. Hún verður ekki
á vegum Háskólans heldur
hafa forráðamenn Granda
samið um að fá að nota
kennslustofur HÍ undir nám-
skeiðin. Þá fer einnig fram
starfsþjálfun fyrir fólkið. Og
auðvitað er þetta mjög af hinu
góða.
Alltfyrir
samvinnuna
Samvinnumenn leggja tölu-
vert í sölumar til að halda
nafni hugsjónarinnar á lofti.
Þeir hafa með sér landssam-
tök sem nefnast Landssam-
band íslenskra samvinnu-
starfsmanna. Það gefur svo
aftur út blaðið Hlyn.
Til þess að halda úti blaði,
svo vel fari, þarf að ná inn
auglýsingum i það. Og til þess
hafa þeir Hlynsmenn fundið
pottþétta leið. Þeir hafa skrif-
að fyrirtækjum bréf þar sem
farið er fram á að viðkomandi
„heimili birtingu styrktarlínu
í Hlyn, semjafnframter jóla-
kveðja til samvinnustarfs-
manna hvar sem er á
landinu..."
Hafi forsvarsmenn viðkom-
andi fyrirtækja eitthvað við
þessa beiðni að athuga þá er
þeim bent á að hafa samband
við auglýsingastjóra Hlyns
fyrirtiltekinn tíma. „Að öðr-
um kosti lítum við svo á að
beiðni okkar sé samþykkt og
færum þér bestu þakkir fyrir,"
segir í niðurlagi bréfsins.
Styrktarlínan sú ama kost-
ar litlar fimm þúsund krónur.
Er ekki að efa að blaðið á eft-
ir að hagnast vel á þessu
nauðungartilboði.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Sambúðareifiðleikar
Svavar Gestsson
Aukamaður
í miðstjóm
Það varð uppi fótur og fit á
miðstjórnarfundi Alþýðu-
bandalagsins um daginn. Svo
sem menn vita er miðstjómin
mjög fjölmenn og á fundum
hennar eru rædd innstu leynd-
armál allaballanna. Svo var
einnig á þessum fundi og
spjölluðu fundarmenn af
hjartans lyst umýmis innri
málefni flokksins.
En þegar líða tók á kvöldið
fór að kvisast út að einhver
aukagemlingur væri á fundin-
um. Við nánari athugun kom
í ljós að fréttamaður frá út-
varpinu hafði gengið inn á
fundinn í upphafi og fengið sér
sæti eins og ekkert væri. Sat
hann megnið af fundinum og
hlustaði á fjálglegar umræður
félaganna. Þegar upp komst
um hann var honum umsvifa-
laust vísað af fundinum. Æstu
menn sig mj ög yfir þessum
atburði og eru einkum nefndir
í því sambandi Svavar Gests-
son og Hjörleifur Guttorms-
Sandkorn
* Gufuþvoum vélar og felgur
■k Djúphreinsum sætin og teppin
* Notum eingöngu hið rtiðsterka
Mjallarvaxbón
* Þvottur, tjöruþvottur og
fyrir aðeins 400 krónur
* Sprautum felgur
HÖFÐABON
Höfðatúni 4 - Sizni
Kvikmyndir
SJS ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAK0TI
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar, langar ykkur ekki
til að starfa á 22 legurýma lyflækningadeild, II—A?
Stefnt er að sérhæfðri hjúkrun. Aðlögunarprógramm
sniðið eftir þörfum starfsfólks. Góður starfsandi. Upp-
lýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í sima
19600-220 alla virka daga.
Reykjavík 18.11.1986.