Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Síða 34
34
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986.
I gærkvöldi
Sigurdís Guðjónsdóttir húsfrú
Gengur út á að hanka fólk
Ég hlusta mest á útvarpið, rás 1.
Mér finnst hún hafa batnað mikið
eftir að hinar tvær útvarpsstöðvam-
ar komu til sögunnar. Hún er farin
að líkjast því sem útvarpið var hér
á árum áður, þegar ég var ung. Ef
mér finnst of mikið af sinfóníum
stilli ég yfir á rás 2. Það er ekki þar
með sagt að sinfóníur séu leiðinleg-
ar, þær eru bara ágætar í hófi. Eg
hlusta einnig alltaf á þætti þar sem
Svavar Gests kemur við sögu.
í sjónvarpi horfi ég alltaf á íslenska
þætti, t.d. I takt við tímann. Þeir eru
yfirleitt mjög góðir nema atriði eins
og var í þættinum um daginn, ég get
ekki séð af hverju alþjóð þarf að fá
að vita hvað hin og þessi kaupir sér
erlendis. Þetta hefur gengið svona
Sigurdis Guðjónsdóttir.
gegnum árin að fólk skreppur til
útlanda til jólainnkaupa án þess að
nokkurt veður hafi verið gert út af
því. Ég fylgist alltaf með fréttunum,
bæði í útvarpi og sjónvarpi. Mér
finnst eins og fréttamennskan gangi
út á þáð að reyna að hanka fólk á
einhveiju sem er löngu gleymt og
|rafið, hún er allt að því dónaleg.
Ég get ekki séð hvað það skiptir
máli hvort fréttimar em kl. 7.30 eða
8.00. Mér finnst unga fólkið orðið
gamalt ef það þolir ekki smábreyt-
ingar.
Afþreyingarefni af léttara taginu
horfi ég alltaf á. Ljúfar nætur, það
vom mjög góðir þættir en verst hvað
þeir enduðu illa og Dóttir málarans
er einnig afbragðsþáttur.
lélf 18 S
Andlát
Jón Guðmannsson yfirkennari lést
11. nóvember sl. Hann fæddist 10.
janúar 1906 á Ægissíðu í Þverár-
hreppi, V-Húnavatnssýslu. Foreldrar
hans voru Guðmann Helgason og
Guðrún Jónsdóttir. Jón útskrifaðist
úr Kennaraskólanum 1933. Fastur
kennari við Miðbæjarskólann er
hann frá 1939 og yfirkennari frá 1954
til 1969 er skólinn er lagður niður
sem barnaskóli. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Snjólaug Lúðvíksdótt-
ir. Þeim hjónum varð tveggja barna
auðið. Útför Jóns verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Örnólfur Nikulásson lést 13. nóv-
ember sl. Hann var fæddur 16. apríl
1929, sonur þeirra hjóna Nikulásar
Kr. Jónssonar og Gróu Pétursdóttur.
Ömólfur var við nám í Verslunar-
skóla Islands í tvo vetur og eftir það
lá leið hans til Englands í Pitmans-
verslunarskólann í London. Að
loknu námi réð hann sig til starfa
hjá H. Benediktsson 6 Co og starfaði
þar til æviloka. Útför hans verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Guðmundur Kr. Jónsson, Vatns-
holti 4, Reykjavík, lést að morgni 18.
nóvember í Borgarspítalanum.
Útför Ágústar Þorvaldssonar á
Brúnastöðum, verður gerð frá
Hraungerðiskirkju föstudaginn 21.
nóvember kl. 14.
Egill Benediktsson, Volaseli, Bæj-
arhreppi, lést 18. nóvember.
Útför Einars Eiðssonar, Seljabraut
46, sem lést 14. þessa mánaðar, fer
fram í Bústaðakirkju laugardaginn
22. nóvember kl. 11. Jarðsett verður
í Skarðskirkjugarði.
Útför Emmu Jónsdóttur, Aðalgötu
3, Ólafsfirði, sem lést 12. þessa mán-
aðar, fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 22. nóvember kl. 13.30.
Páll Jóhann Sigurðsson, frá Bú-
landi, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 21.
nóvember kl. 13.30.
Helgi Tryggvason, Þingvallastræti
4, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkra-
húsinu 14. nóvember. Jarðarförin fer
fram frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 22. nóvember kl. 13.30.
Útför Guðfinnu Jónsdóttur frá
Ólafsfirði, Reykjavíkurvegi 10,
Hafnarfirði, fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði föstudaginn 21. nóv-
ember kl. 15.
Fundir
Borgarafundur
Iþróttaráð Hafnarfjarðar og íþróttabanda-
lag Hafnaríjarðar efna til borgarafundar
um íþróitamál í Hafnarfirði, fimmtudag-
inn 20. nóvember kl. 20 í félagsheimili
íþróttahússins. Á fundinum verður gefíð
yfírlit um stöðu íþróttamála og leitað eftir
hugmyndum um fyrirkomulag þessara
mála í náinni framtíð. Frummælendur
verða Yngvi R. Baldvinsson íþróttafulltrúi
og Gylfi Ingvarsson, formaður ÍBH. Skor-
að er á íþróttafólk og íþróttaunnendur að
mæta á fundinn.
Kirkjufélag
Digranesprestakalls
heldur fund fimmtudaginn 20. nóvember
kl. 20.30 í safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastíg. Spiluð verður félagsvist, kaffi-
veitingar.
Ályktun
Aðalfundur Foreldrafélags Hagaborgar 6.
nóvember 1986 ályktar: Það virðist yfir-
vofandi að upplausnarástand skapist á
dagvistunarheimilum höfuðborgarinnar
vegna þess að yfir 80% fósra hjá ríki og
borg hafa nú sagt upp störfum enda er ljóst
að fóstrur og annað starfsfólk á dagvistun-
arheimilum búa við algerlega óviðunandi
launakjör. Því skorum við á borgaryfir-
völd að hefja nú þegar samningsviðræður
við fóstrur um leiðréttingu á kjörum
þeirra. Jafnframt skorum við á viðsemj-
endur Starfsmannafélagsins Sóknar að
skjóta sér ekki enn einu sinni undan leið-
réttingu á kjörum þeirra lægst launuðu.
Aðeins með mannsæmandi launum er
hægt að koma í veg fyrir áframhaldandi
flótta starfsfólks úr uppeldisstétt sem sýnt
er að muni enda með lokun á flestum dag-
vistunarstofnunum borgarinnar. Það er
hagsmunamál okkar foreldra og ekki síður
barna okkar að dagvistunarstofnanir séu
fullmannaðar hæfu starfsfólki sem unir
vel kjörum sinum.
Tilkyiiriingar
Afmælistónleikar
Samkórs Kópavogs
Um þessar mundur eru liðin 20 ár frá
stofnun Samkórs Kópavogs. Af því tilefni
verða haldnir afmælistónleikar í Kópa-
vogskirkju í kvöld, 20. nóvember, kl. 20.30.
Á efnisskrá eru íslensk og erlend lög. Ein-
söngvarar með kórnum verða Ámi
Sighvatsson og Kolbeinn Ketilsson. Und-
irleikari: Þóra Friða Sæmundsdóttir.
Stjórnandi kórsins er Sigurður P. Braga-
son. Miðasala við innganginn.
Afmælismót Taflfélags Kópa-
vogs
Taflfélag Kópavogs heldur skákmót í til-
efni af 20 ára afmæli félagsins á þessu
ári. Mótið hefst kl. 20 fóstudaginn 21. nóv-
ember og lýkur síðdegis á laugardag.
Umhugsunartími verður 30 mín. á skák.
Öllum heimil þátttaka. Vegleg peninga-
verðlaun verða veitt fyrir 5 efstu sætin,
einnig verða veitt unglingaverðlaun 16 ára
og yngri og öldungaverðláun 60 ára og
eldri. Heildarupphæð verðlauna verður 70
þúsund krónur. Ath.: keppt verður í Kópa-
vogsskóla við Digranesveg.
Alþýðuleikhúsið
Sýning á bamaleikritinu „Kötturinn sem
fer sínar eigin leiðir" i Bæjarbiói í dag kl.
17. Einþáttungarnir „Hin sterkari, Sú
veikari" verða sýndir í Hlaðvarpanum á
morgun fimmtudag kl. 21.
Vísna- og skemmtikvöld í
Borgarnesi
Fimmtudagskvöldið 20. nóvember nk.
verður haldið vísna- og skemmtikvöld í
Borgarnesi. Kvöldið er á vegum kven-
félags Borgarness og verður haldið í Hótel
Borgarnesi. Fram koma listamennirnir
Bergþóra Árnadóttir, ásamt Finnanum
Mecki Knif, og hjónin Guðrún Ásmunds-
dóttir og Kjartan Ragnarsson. Kvöldið er
opið öllum og hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Miðar verða seldir við innganginn. Verð
kr. 250.
Listdanssýning
í Þjóðleikhúsinu
í kvöld, fimmtudagskvöld, verða frum-
sýndir þrír íslenskir ballettar á stóra sviði
Þjóðleikhússins. Það eru ballettamir Du-
ende og Amalgam eftir Hlíf Svavarsdóttur
og Ögurstund eftir Nönnu Ólafsdóttur.
Islenski dansflokkurinn tekur allur þátt í
sýningunni auk gestadansarans Patrick
Dadey. Aðeins verða 3 sýningar á ballett-
inum og eru síðustu tvær á þriðjudags- og
fimmtudagskvöld í næstu viku.
Taflnefnd Sjálfsbjargar
Miðsvetrarmót verður haldið í matsal
Sjálfsbjargarhússins, Hátúni 12, sunnu-
daginn 30. nóvember nk. kl. 14. Þátttöku
í mótinu þarf að tilkynna til skrifstofu
félagsins fyrir 25. þessa mánaðar.
Sýningum á „Leikslok í
Smyrnu“ að Ijúka.
Nú er Nemendaleikhúsið að ljúka sýning-
um á „Leikslok í Smymu“ eftir Horst
Laube. íeikritið gerist í Feneyjum og fjall-
ar um samskipti greifa nokkurs og Tyrkja
við óperufólk. Leikurinn er í gamansömum
tón en alvaran liggur þó alltaf undir niðri.
Leikritið hefur verið vel sótt og þegar eru
búnar 12 sýningar. Síðustu sýningar-
verða: í kvöld, fimmtudag, föstudag 21.
nóv. og laugardag 22. nóv. Sýningarnar
eru í Lindarbæ og hefjast kl. 20.30.
Jasstónleikar í Djúpinu
I kvöld, fimmtudag, verða jasstónleikar í
Djúpinu við Hafnarstræti. Þar leikur
kvartett Stefáns S. Stefánssonar saxófón-
Ieikara frumsamin og erlend jasslög.
Höfunda auk Stefáns má nefna, Pat Met-
heney, Thelonius Monk og Chuck
Mangione. Þeir sem leika í kvartettnum
eru Jóhann Kristinsson á píanó, Bjami
Sveinbjörnsson á bassa og Matthías
Hemstock á trommur, auk Stefáns sem
leikur á alto, tenór og flautu.
Jólabúðin, ný verslun
Á Grettisgötu 86 hefur verið opnuð versl-
unin Jólabúðin. Þar fæst allt í jólafondrið,
jólatré, tuskudúkkur, gjafavörur og margt
Vinnustofa Þóru
Opnuð hefur verið á Barónstíg 22 óvenju-
leg vinnustofa. Á vinnustofu Þóru eru
unnar andlitsmyndir eftir ljósmyndum,
aðallega í pastel, en einnig blýants- og
vatnslitamyndir. Einnig sér stofan um
hvers konar auglýsingagerð, hönnun,
skiltagerð og uppstillingar. Lögð verður
áhersla á „öðruvísi" auglýsingar. Stofan
Norræn myndlistarsýning
I Dusseldorf
Norræna myndlistarsýningin „Im Lichte
des Nordens,, var opnuð við hátíðlega at-
höfn í Tonhalle í Dússeldorf 26. október
sl. Opnunarathöfnina sóttu um 2000
manns. Við forskoðun sýningarinnar
kynnti hr. Bungert yfirborgarstjóri gesti
fyrir Silvíu, drottningu Svíþjóðar, sem
opnaði sýninguna formlega fyrir hönd
þjóðhöfðingja Norðurlandanna. Það eina
sem skyggði á opnunarathöfnina vom
mótmæli Greenpeace samtakanna gegn
hvalveiðum íslendinga og Norðmanna við
Kunstmuseum og Tonhalle á meðan á
opnunarathöfninni stóð. Samtökin höfðu
komið fyrir 2 stómm uppblásnum hvölum
auk pappakassa með áletmninni: Frozen
Icelandis whale meat for export to Japan.
Einnig höfðu þau komið fyrir borða með
áletmninni „Whalekillers" á milli íslensks
og norsks fána. Norræna myndlistarsýn-
ingin mun standa til 1. febrúar 1987 í
Kunstmuseum.
Öldrunarfræðifélag íslands
heldur námsstefnu um þvagleka meðal
aldraðra, fimmtudaginn 20. nóvember kl.
13 á Hótel Loftleiðum, Kristalsal. Náms-
fleira á góðu verði. Eigendur verslunar-
innar eru Magdalena Gestsdóttir og Díana
Vera Jónsdóttir. Opið er virka daga kl.
10-18 og kl. 10-16 á laugardögum. Heitt
kaffi á könnunni - kreditkortaþjónusta.
framleiðir stafi og merki skorin út í frauð-
plast. Svo og annast vinnustofan hvers
kyns skrautritun á bækur, kort o.fl.
Vinnustofa Þóru er opin frá kl. 9-17 virka
daga, en hægt er að ná í Þóm í heimasíma
á kvöldin í s. 12447. Síminn á stofunni er
21955. Visa- og Eurocard-þjónusta er veitt.
Eigandi og aðalstarfsmaður er Þóra Þóris-
dóttir.
stefnan er einkum ætluð læknum, hjúkr-
unarfólki og öðm starfsfólki í öldrunar-
þjónustu, fólk er beðið að tilkynna
þátttöku sína til skrifstofu læknafélag-
anna, s. 18331 og 18660.
Hið íslenska sjóréttarfélag
Hádegisfundur verður haldinn í Leifsbúð,
Hótel Loftleiðum, föstudaginn 21. nóv-
ember nk. kl. 12. Fundarefni: Valgarð
Briem hrl. ræðir um lögfræðileg vanda-
mál, sem tengjast skyldu til að fjarlægja
skipsflök úr höfnum. Fjallað verður um
efnið í ljósi nýlegra og alkunnra atburða
í Reykjavíkurhöfn. Fundurinn er öllum
opinn og em félagsmenn og aðrir áhuga-
menn um sjórétt, sjótryggingar og sigl-
ingamálefni hvattir til að mæta. Verð á
hádegismáltíð (af köldu borði) er kr. 697.
Myndlistarsýning í Ganginum
Sænskur listamaður, Bengt Adlers að
nafni, sýnir verk sín í Ganginum um þess-
ar mundir. Eru það 10 vatnslitamyndir sem
tileinkaðar eru nokkrum kunningjum
hans frá íslandi og upplifun hans á landinu
og bækur sem innihalda eins konar rok-
kaldarljóð. Sýningin stendur eitthvað
fram í desember.
Helgi Gíslason sýnir
í Dusseldorf
Hinn 23. október sl. opnaði Helgi Gíslason
myndhöggvari sýningu sína í Galerie Vö-
mel, Königsallee 30 í Dússeldorf, sem er
einn af þekktustu sýningarsölum borgar-
innar, enda hefur uppsetning sýningarinn-
ar tekist alveg sérstaklega vel. Á
sýningunni, sem stendur til 29. nóvember,
eru bronsmyndir og einnig nokkrar teikn-
ingar. Ræðismaður í Dússeldorf, Ernst O.
Hesse, flutti ávarp við opnunina. Á sama
tíma sýnir sænski myndlistarmaðurinn
Gunnar Norrman nokkur verka sinna.
Spilakvöld
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Spiluð verður félagsvist laugardaginn 22.
nóvember kl. 14 í félagsheimilinu Skeif-
unni 17, 3. hæð. Allir velkomnir.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Félagsvist verður haldin í Kirkjubæ,
fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20.30. Góð
spilaverðlaun og kaffiveitingar.
Félag makalausra
Spilakvöld í kvöld 20. nóvember kl. 20.30
í Mjölnisholti 14.
Spilakvöld SÍBS og Samtaka
gegn astma og ofnæmi
Síðasta spilakvöld ársins verður á Hall-
veigarstöðum við Túngötu í kvöld, 20.
nóvember, kl. 20,30. Spiluð verður félags-
vist og eru góðir vinningar í boði. Að venju
eru kaffiveitingar við vægu verði. Félagar
eru hvattir til að fjölmenna en að sjálf-
sögðu eru allir velkomnir.
Tapaö-fundiö
Seðlaveski tapaðist
Svart seðlaveski tapaðist á mánudaginn
sl. í Austurstræti. I veskinu eru skilríki
og bankakort. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 12124 eftir kl. 20. Fundarlaun.
Fressköttur
týndur úr Hliðunum
Ungur grábröndóttur fréssköttur týndist
í Hlíðunum (Mávahlíð) mánudaginn 17.
nóvember sl. Ef einhverjir geta gefið upp-
lýsingar um hann vinsamlegast hringi í
síma 24595.
Hjól í óskilum á Grandanum
Grátt DBS 10 gíra hjól hefur verið lokað
með gráum númeralás við girðingu á
Flyðrugranda 6 síðustu þfiár vikur. Eig-
andi hjólsins er vinsamlegast beðinn að
fjarlægja það. Upplýsingar í síma 13742.
Afmæli
í dag, 20. nóvember, eiga 60 ára hjú-
skaparafmæli hjónin Martha og
Daníel Þorkelsson málarameistari,
Stigahlíð 83, hér í bænum. Þau eru
að heiman.