Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1986, Blaðsíða 40
€122 • 25 • 25 FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Ríkismatið kærir Kristján Jónsson ' Jón G. Haukssan, DV, Akuifyri; Ríkismat sjávarafurða hefur kært Kristján Jónsson, aðaleiganda og framleiðslustjóra K. Jónsson & Co á Akureyri, til Rannsóknarlögreglu rík- isins fyrir að nota ólöglegt rotvamar- efni í niðursoðna rækju. Jafnframt krefst Ríkismatið þess að nýr fram- leiðslustjóri taki við hjá fyrirtækinu. „Við lítum þetta mál alvarlegum augum og erum að útbúa gögn sem væntanlega fara til Rannsóknarlög- reglunnar í dag,“ sagði Halldór Amason, framkvæmdastjóri Ríkis- matsins, í morgun. Hann sagði enn- fremur að samkvæmt lögum Ríkismatsins kynni svo að fara að K.Jónsson & Co yrði svift vinnsluleyfi og yrði að sæta sektum nema að þyngri viðurlög kæmu til, samkvæmt öðrum lögum. Kristján Jónsson neitaði í morgun að tjá sig um þetta mál. Vandi hjá krótum í Suðurlandi Fundur í Alþýðuflokksfélagi Selfoss í gærkvöldi, með þátttöku fulltrúa úr flokksfélögum nágrannabyggðarlaga, samþykkti áskorun til kjördæmisráðs um að fara ekki eftir niðurstöðum prófkjörs við röðun á lista heldur taka tillit til heildarhagsmuna flokksins í Suðurlandskjördæmi. I prófkjörinu höfhuðu Eyjamenn, Magnús H. Magnússon og Elín Alma Artúrsdóttir, í tveimur efetu sætum. Fastalandsmenn eru tregir til að berj- ast fyrir listanum nema þeir fái annað sæti, sem samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Félagsvísinda- stofnunar er þingsæti. Benda þeir á að tveir þriðju hlutar fylgis flokksins í kjördæminu sé af fastalandinu og að Elín Alma hafi ekki náð bindandi kjöri í annað sæti. -KMU Ert þú á leið í /MIKLAG3RÐ? Ágreiningur um framtíð Útvegsbankans: Búnaðarbankinn má ekki veikjast segir Stefán Pálsson bankastjóri „Að sjálfsögðu hafa farið fram við- ræður við okkur um vanda Útvegs- bankans og við munum ekki skorast undan að taka á vandanum ef þess verður farið á leit við okkur,“ sagði Stefán Pálsson, einn af bankastjór- um Búnaðarbankans, f samtali við DV. „Ef okkur verður falið að yfir- taka Útvegsbankann þá er það náttúrlega grundvallaratriði að Búnaðarbankinn veikist ekki.“ Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti einróma í gær að mæla með því að Útvegsbankinn verði sameinaður Búnaðarbankanum. Um leið hafnaði þingflokkurinn hug- myndum bankastjómar Seðlabank- ans um að nýr hlutafélagsbanki verði stofriaðm- á rústum Utvegs- bankans í samvinnu við Iðnaðar- og Verslunarbankann. Þingflokkur Alþýðubandaiagsins er sammála þingmönnum Fram- sóknarflokksins að sameina beri Útvegsbankann Búnaðarbankan- um. Sjálfstæðismenn vilja hins vegar fara aðrar leiðir og stofha stóran hlutafélagsbanka. -EIR gærkvöldi var haidinn í Norræna húsinu opinn fundur með hinum þekkta blaðamanni og rithöfundi Gunter Wallraff. Tilefnið var útkoma nýjustu og umdeildustu bókar Wallraff, Niðurlægingin, sem fjallar um líf og kjör tyrkneskra farandverkamanna í Vestur-Þýskalandi. Fjölmenni var á fundinum og gafst gestum tækifæri á að spyrja Wallraff um verk hans. í lok fundarins áritaði Wallraff bók sina fyrir þá er þess óskuðu. _____________ DV-mynd GVA ifýa-iviiirt'-'m KÝuiiiiiaiiiia LOKI Heimamenn ku kalla lax veiðiána Þarmá! Veðrið á morgun: Slydda eða rigning á Suður- og Vesturiandi Suðaustan hvassviðri og slydda eða rigning á Suður- og Vesturlandi en heldur hægari suðaustan og þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Hiti verður ó bilinu 0 til 3 stig. Aukaþing BSRB: Skipulagið fært í nútímalegra horf „Ég tel að þær skipulagsbreytingar sem samþykktar voru á þinginu séu afar þýðingarmiklar og að uppbygging BSRB sé færð í nútímalegra horf en áður var. Nú má segja að bandalagið sé orðið eins uppbyggt og Alþýðusam- band tslands og gegni svipuðu hlut- verki," sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, í samtali við DV eftir að aukaþingi BSRB lauk í gærkveldi. Varðandi frumvarpsdrögin að samn- ingsréttarlögunum, sagði Kristján að því miður hefðu listar frá heilbrigðis- ráðuneytinu og Reykjavíkurborg um þá sem ekki mega fara í verkfall, ekki legið fyrir og því ekki hægt að af- greiða þau endanlega ó þinginu. Samþykkt var tillaga frá Kristjáni Thorlaeius um að stjóm BSRB og for- mönnum félaga væri falið að ganga frá frumvarpsdrögunum endanlega. Sagðist Kristján hafa beðið formenn að fara ekki úr borginni fyrir helgi því stefiit væri að fundi nk. sunnudag. Á þinginu vom uppi hugmyndir um að fara með frumvarpsdrögin og kynna þau í félögunum. Kristján sagð- ist hafa varað við því, þar sem tíma- þröng væri mikil, ef afgreiða ætti málið á Alþingi fyrir jól. Þess vegna var hætt við það og formönnum og stjóm bandalagsins falið að ljúka málinu. -S.dór Framsókn í Reykjavík: 1600óskaþátttöku - 700 nýir flokksmenn Allt stefnir í hörkuslag í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík en undanfarið hefur mikil smölun átt sér stað og hefur fjölgað í félögum flokks- ins í Reykjavík um nær 700 manns, samkvæmt upplýsingum sem DV fékk á skrifstofu flokksins í morgun. Skráð- ir flokksmenn em innan við 2.000. Þá hafa liðlega 1.600 manns skráð sig til þátttöku í prófkjörinu en þar er á ferðinni fólk sem ætlar að kjósa en vill ekki ganga í flokkinn af ein- hverjum ástæðum. Prófkjörið verður haldið dagana 28. og 29. nóvember næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum, sem DV hefur aflað sér, hafa ýmsir forystu- menn framsóknarmanna í Reykjavík þungar áhyggjur af komandi baráttu en þrír menn sækjast eftir fyrsta sæt- inu á framboðslistanum. Hefur verið haldinn fundur um tuttugu frammá- manna flokksins þar sem þessi mál voru meðal annars rædd og komu þar fram áhyggjur vegna komandi átaka. -ój LaxveidduríVarmá Sá ótrúlegi atburður gerðist í Mos- fellssveit í gær að maður „gómaði" lax i Varmá með berum höndunum. Fáum hefur dottið í hug að líf væri að finna í ánni eins og hún er nú mjög menguð vegna þéttingar byggðar við ána á undanfömum árum. Hér á árum áður var mikil álaveiði í Vamiá og er talið að þegar áin hefur verið hreinsuð muni állinn ganga í hana á ný. Sá sem gómaði laxinn var einmitt í vinnuflokki sem vinnur að þvi að koma fyrir miklu ræsi á árbakkanum. Hann sá laxinn, sem var 4-5 punda hrygna, synda við bakkann og teygði sig eftir fiskinum. Áður en varði haföi hann handsamað hann. Fiskurinn var glansandi, feitur og fallegur þegar hann var kominn á land og var hann matreiddur á heimili „veiðimannsins" í gærkvöldi. Reyndist eins og hver annar laxfiskur á bragð- ið. Þó hafði heimilliskötturinn ekki lyst á Varmárlaxinum. -A.BJ. t t i í í í í i i i i i i i i i i i i í i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.