Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986. Stjómmál Prófkjör Framsóknaiflokksins í Reykjavík: Haraldur Ólafsson alþingis- maður féll í fimmta sætið - Guðmundur efstur, Finnur í öðra sæti Haraldur Ólafssson. Haraldur Ólafsson alþingismaður Sterk öfl unnu gegn mér hér í Reykjavík „Það er vonlaust að vinna .gegn svona kosningamaskínum,'1 sagði Haraldur Ólafsson alþingismaður í samtali við DV þegar hann var spurð- ur álits á niðurstöðu próíkjörs Framsóknarflokksins um helgina en í prófkjörinu tapaði Haraldur fyrsta sæti framboðslistans og hrapaði niður í það fimmta. „Það sem gildir er að hafa fé og mannafla og að ná í fylgi langt út fyr- ir raðir Framsóknarflokksins, en út í það vildi ég ekki fara. Ég vann ein- göngu að fylgisöflun innan flokksins og það gaf ekki árangur, það voru önnur öfl sterkari í þessari baráttu. Ég vildi ekki taka þátt í þessari smöl- un og treysti á fylgi flokksfélaganna, en ég er þakklátur þeim sem studdu mig og ég hef orðið var við mikla vin- semd flokksfólksins í minn garð undanfamar vikur. Ég lagði ekki út í neinn kostnað í þessu prófkjöri og öll sú vinna, sem mínir stuðningsmenn unnu fyrir mig, var sjálfboðavinna," sagði Haraldur. Spumingu um það hvort hann hygð- ist láta kanna framkvæmd prófkjörs- ins með tilliti til hugsanlegrar þátttöku flokksfólks annarra stjóm- málaflokka svaraði Haraldur þannig: „Ég ætla ekkert að gera í því en vona bara að þeir sem þátt tóku, en hafa hingað til verið stuðningsmenn ann- arra stjómmálaflokka, staldri nú við í Framsóknarflokknum. Ég tek þess- um úrslitum eins og þau em. En hvort ég tek sæti á framboðslistanum, verði mér boðið þar sæti sem ég veit ekki um, á ég eftir að velta fyrir mér en ef og þegar til þess kemur tek ég það til athugunar," sagði Haraldur. Um þá spumingu hvort meintur stuðningur formanns flokksins við Guðmund G. Þórarinsson hefði haft áhrif á úrslitin sagði Haraldur: „Ég vil ekkert segja um það annað en það að það vom sterk öfl sem unnu gegn mér hér í Reykjaví!. en við því er ekk- ert að gera.“ -ój Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur varð í efsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík um helgina eftir harða baráttu við Finn Ingólfsson, aðstoðarmann sjáv- arútvegsráðherra, sem varð í öðm sæti, en Haraldur Ólafsson alþingis- maður, sem skipað hefur efsta sæti framboðslistans, hrapaði niður í fimmta sæti og fellur þar með af þingi, miðað við að Framsóknar- flokkurinn fái svipað fylgi í Reykja- vík og hann hefur haft undanfamar kosningar. I þriðja sæti varð Sigríður Hjart- ar, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir varð í fjórða sæti, Haraldur í fimmta, Þór Jakobsson í sjötta sæti, Helgi S. Guðmundsson í því sjöunda, Vald- imar K. Jónsson í áttunda sæti og loks Finnbogi Marinósson í því níunda. Alls tóku þátt í prófkjörinu 2.821, en auðir og ógildir seðlar vom 123 talsins. Gild atkvæði vom því 2.698. Leyfi til þátttöku höfðu 4.292 stuðn- ingsmenn Framsóknarflokksins og er kjörsókn því 65,7%. Atkvæði féllu þannig að Guð- mundur var með 1.295 atkvæði í fyrsta sætið en 1.654 atkvæði alls, Finnur var með 1.015 atkvæði í fyrsta sætið, 209 í annað sætið og 1.592 atkvæði alls, Sigríður var með 1.367 atkvæði í 1.-3. sætið og 1.711 atkvæði alls og varð atkvæðahæsti prófkjörsþátttakandinn. Ásta Ragn- heiður hlaut 1.604 atkvæði alls og lenti í fjórða sæti en á efitir henni kom Haraldur Ólafsson með 1.407 atkvæði í allt. Atkvæði hans skipt- ust þannig á milli sæta að hann fékk 305 atkvæði í fyrsta sætið, 534 at- kvæði í annað, 320 í þriðja og 248 atkvæði í fjórða sæti listans. í sjötta sæti kom síðan Þór Jakobsson með 1.063 atkvæði, í sjöunda sæti varð Helgi S. Guðmundsson með 777 at- kvæði, áttundi varð Valdimar K. Jónsson með 580 atkvæði og loks kemur Finnbogi Marinósson síðast- ur með 342 atkvæði alls. Mikil spenna var í prófkjörinu og var smalað á báða bóga og um miðj- an dag í gær var stöðugur straumur fólks á kjörstað á flokksskrifstofuna á Rauðarárstíg. Talningu stjómaði Eiríkur Tómasson, formaður kjör- stjómar og tilkynnti hann stöðuna með 400 atkvæða millibili þar til úrslit lágu fyrir. -ój Við upphaf talningar í prófkjöri Framsóknarflokksins. DV-mynd KAE Steingrímur um útkomu Haralds: Ottaðist þetta og þykfr iltt Finnur Ingólfsson: Ræði úrslitin við mína stuðningsmenn „Ég hef það að segja að þessi próf- kjör bjóða upp á þetta, nema frá málum sé gengið fyrirfram eins og kratamir gerðu í Reykjavík," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætis- ráðherra og formaður Framsóknar- Stefngrimur Hermannsson. flokksins, í samtali við DV þegar álits hans var leitað á afleitum ár- angri Haralds Ólafssonar alþingis- manns í prófkjöri Framsóknar- flokksins í Reykjavík um helgina. Þar hrapaði Haraldur úr fyrsta sæti listans, sem hann hefur skipað, niður í það fimmta. „Ég óttaðist þetta og mér þykir þetta ákaflega illt, en Haraldur Ól- afsson er einn af okkar mætustu þingmönnum. En að öðm leyti er ég ánægður með listann og það skipa hæfir menn efstu sætin, og raunar er þetta allt frambærilegt og dug- mikið fólk sem mun vinna vel í kosningabaráttunni, ekki síður en það gerði í prófkjörsbaráttunni. Það eina sem skyggir á er útkoma Har- alds í þessu prófkjöri. Ég hefði viljað hafa Harald í einu af efetu sætum listans, en annars er listinn sterkur og sigurstranglegur. Ég er sannfærð- ur um að við faum tvo menn kjöma á Alþingi af þessum framboðslista," sagði Steingrímur Hermannsson. -ój „Ég er fyrst og fremst þakklátur þeim mikla fjölda sem vann fyrir mig í þessu prófkjöri og ég óska Guðmundi G. Þórarinssyni til hamingju með sæt- ið,“ sagði Finnur Ingólfeson, aðstoðar- maður sjávarútvegsráðherra, í samtali við DV þegar álits hans var leitað á niðurstöðu prófkjörs Framsóknar- flokksins nú um helgina en í því hlaut Finnur annað sætið, en hann stefhdi á það fyrsta sem Guðmundur G. Þór- arinsson hreppti. „Ég stefndi á fyrsta sætið og ég átti von á þvi að það myndi takast að ná því sæti,“ sagði Finnur. - Mun þessi prófkjörsniðurstaða hafa einhver eftirköst af þinni hálfu? „Ég á ekki von á því en þori raunar ekkert um það að segja á þessu stigi málsins. Ég á eftir að ræða þessi úr- slit við mína stuðningsmenn," sagði Finnur Ingólfsson. -ój Finnur Ingólfsson ásamt eiginkonu sinni, Kristinu Vigfúsdóttur, i hópi glað- beittra stuðningsmanna. DV-mynd GVA Gissur Pétursson, formaður SUF: Flokksbundnir sjáKstæðismenn réðu úrslitum í prófkjörinu „Flokksbundnir sjálfetæðismenn réðu úrslitum í þessu prófkjöri," sagði Gissur Pétursson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna, í samtali við DV í gær þegar hann var spurður um meinta þátttöku fylgismanna annarra stjómmála- flokka í prófkjöri Framsóknar- flokksins um helgina. Gissur sagðist vita þess nokkur dæmi að stuðningsmenn annarra stjómmálaflokka, þar á meðal stuðningsmenn Sjálfetæðisflokksins, hefðu kosið í prófkjörinu og hefðu þeir verið fengnir til þátttöku af fylg- ismönnum Guðmundar G. Þórarins- sonar. Um niðurstöðu prófkjörsins al- mennt sagði Gissur að hann óttaðist það að einhver hluti þess unga fólks, sem hefði verið viðloðandi Fram- sóknarflokkinn og kosið Finn Ingólfeson í prófkjörinu, segði nú skilið við flokkinn vegna niðurstöðu prófkjörsins. „Við sem erum í forystu fyrir unga framsóknarmenn munum auðvitað ekki gera það,“ sagði Giss- ur og bætti því við að erfitt gæti reynst að fa ungt fólk til að starfa í kosningabaráttunni fyrir Fram- sóknarflokkinn vegna þessarar útkomu. -ó) Guðmundur G. Þórarinsson: Ánægður með að þetta skuli hafa tekist „Mér er á þessari stundu efet í huga ánægja með það að þetta skuli hafa tekist og þakklæti til þeirra stuðnings- manna minna sem hafa barist fyrir mig undanfama daga,“ sagði Guð- mundur G. Þórarinsson verkfræðing- ur í samtali við DV þegar úrslit í prófkjöri Framsóknarflokksins lágu ljós fyrir, en Guðmundur hlaut þar fyrsta sætið eftir mikla baráttu við Finn Ingólfeson. Guðmundur var spurður að því hvort mikið hefði verið um það að fólk úr öðrum stjómmálaflokkum hefði tekið þátt í prófkjörinu og svar- aði Guðmundur þeirri spumingu þannig að fylgi stjómmálaflokka væri nú lausara en það áður hefði verið. „Fólk tilheyrir ekki lengur ákveðnum stjómmálaflokkum eins og áður var, fylgið er lausara og það sveiflast tií og flokkamir eiga ekki sitt fólk eins og áður var. En ef okkur tekst vel til í kosningabaráttunni þá á ég von á að mikill fjöldi þessa fólks fylgi okkur í kosningunum og það getur margt breyst á því hálfa ári sem er til kosn- inga,“ sagði Guðmundur. Guðmundur var spurður að því hvort formaður flokksins hefði stutt hann í prófkjörinu og svaraði hann því þannig: „Ég held að Steingrímur hafi engin afekipti haft af þessu próf- kjöri." -ój Guðmundur G. Þórarinsson í hópí ánægðra stuðningsmanna eftir að Ijóst varð að hann hafði hlotið efsta sætið í prófkjöri Framsóknarflokksins um helg- ina. Næstir Guðmundi á myndinni eru þeir Kristján B. Þórarinsson kosnínga- stjóri hans, til vinstri, og hægra megin er Þráinn Valdimarsson, en hann er kallaður „arkitekinn" að framboði Guðmundar. DV-myrid GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.