Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986. Iþróttir Samúel rotaði Stúdenta og Þróttur styrkti stöðu sína Þróttur sigraði í þremur hrinum gegn einni Með sigri yfir íþróttafélagi stúdenta í Hagaskóla í gærkvöldi styrktu Is- landsmeistarar Þróttar enn stöðu sína á toppi 1. deildar karla í blaki. Þróttur er eina liðið án taps en tvö lið hafa tapað einum leik, Víkingur og Fram. IS er með þijú töp úr sex leikjum. Sigur ÍS í fyrstu hrinu, 15-8, gaf mönnum vonir um að mótið kynni að galopnast. Þróttarar svöruðu hins vegar með 15-5 sigri í næstu hrinu. Baráttugleði Samúels Amar Erl- ingssonar, besta manns leiksins, tiyggði Þrótti sigur í þriðju og fjórðu hrinu, 15-11 og 15-9, og þar með 8-1 sigur í leiknum. I Allen er enn I ! markahæstur! - í Englandi Tottenham-leikniaðurinn Clive Allen hefúr verið drjúgur við markaskorunina í 1. deild ensku knattspymunnar í vetur og er markahæstur, hefur skorað 21 mark, næstur í röðinni er Ian Rush, Liverpool, með 20 mörk. Þeir Tony Cottee, West Ham, og " John Aldridge, Oxford, hafa báð- ■ ir gert 15 mörk. Michael Quinn frá Portsmouth ! er markahæstur í 2. deild með I 15 mörk, Wayne Clarke, Birm- I ingham, hefur gert 14 mörk og ■ Trevor Senior, Reading, 13 mörk. I -JKS. j ÍS varð fyrir því áfalli að missa Frið- jón Bjamason út af með rifinn vöðva í kálfa. Friðjón kemur trúlega ekki til leiks á ný fyrr en eftir áramót. Víkingar em á miklu skriði þessa dagana. Þeir sigmðu Norðfirðinga 3-0 á laugardag; 15-6, 15-5 og 15-9. Ef Víkingsliðið heldur þessu striki kemur það til með að ógna vemlega hand- höíúm íslandsmeistaratignarinnar. Austfirðingamir unnu tvær hrinur af HK í gær en Kópavogspiltamir reyndust þrautseigari í erfiðum 122 mínútna leik og sigmðu, 3-2. Hrinur fóm 15-11,16-14,9-15,13-15 og 15-10. Norður á Akureyri fékk Héraðssam- bandið Skarphéðinn sín fyrstu stig í deildinni um leið og KA var skilið Heimsmet í5000 metrum Norðmaðurinn Geir Karlstad bætti heimsmetið í 5000 metsa skauta- hlaupi karla um meira en þrjár sekúndur á heimsbikarmóti í skauta- hlaupi sem fram fór í Hollandi um helgina. Keppnin fór fram í nýrri íþrótta- höll sem eingöngu er ætluð fyrir skautakeppni og mun vera stærst sinnar tegundar í Evrópu í dag. Er þessi mikla höll í Heerenueen. Geir renndi sér þessa 5 kílómetra á 6.49,15 mín. en gamla metið, sem Viktor Shasherin frá Sovétríkjunum átti, var 6.52,91 mín. -klp- eitt eftir á botninum án stigs. í fimmtu hrinu sigruðu sunnanmenn reyndar aðeins með tveggja stiga mun. Hrinur fóru 15-10,9-15,15-4,10-15 og 13-15. í blaki kvenna sigraði Þróttur, 15-5, í fyrstu hrinu gegn Víkingi, sem sneri leiknum síðan við. Víkingsstúlkumar unnu í næstu þrem; 15-6, 15-8 og 16-14. Mæta Víkingar næst ÍS-stúlk- unum, aðalkeppinautnum um meist- aratitilinn, á miðvikudagskvöld. Það kvöld mætast einnig karlalið Víkings og Fram. Staðan í 1. deild er nú þann- ig: 'Y Þróttur, R...5 5 0 15-3 10 Víkingur....6 5 1 15-6 10 Fram ......5 4 1 14-6 8 ÍS...........6 3 3 12-13 6 HK...........6 3 3 10-12 6 . t -yri—p—»1— - ^ Þróttur,Nes.6 1 5 11-17 2 HSK..........6 1 5 6-17 2 • Samúel Örn Erlingsson lék mjög ^.......4 0 4 4-12 0 vel gegn ÍS. Jafhtefli og tap gegn USA - í landsleikjum um helgina • Pétur Guðmundsson. ísland tapaði stórt fyrir Bandaríkjunum, 27-17, í síðasta Ieik þjóðanna í handknatt- leik kvenna. Leikurinn fór fram í Digra- nesi. Bandaríska liðið var yfirburðalið í þess- adidas ^ herralínan mætt til leiks! _■ w&sm um leik og fór Sam Jones á kostum. Maður hafði það á tilfinningunni að hún gæti skorað þegar henni hentaði. Hún er pott- urinn og pannan í öllum sóknaraðgerðum liðsins, róleg og yfirveguð og skoraði tólf mörk. Þær skoruðu nær öll sín mörk úr hraðaupphlaupum og vítum. Staðan í háífleik var 14-11. Það var því helst í fyrri hálfleik að íslenska liðinu tókst að halda í við þær bandarísku. Lokatölur eins og áður segir 27-17. Á íslenska liðinu var að sjá greinileg þreytumerki og léku þær fiestar langt undir getu, helst að Ema Lúðvíksdóttir og Erla Rafnsdóttir sýndu einhverja bar- áttu. Markverðimir vörðu ágætlega en réðu að sjálfsögðu ekki við skot af línu eí'tir hraðaupphlaup og öll vitin. Banda- ríska liðið skoraði hvorki meira né minna en 14 mörk úr hraðaupphlaupum og 7 vít- um. Mörk Islands: Guðríður Guðjónsdóttir 5/4, Erla Rafnsdóttir 4, Katrín Friðriksen, Ema Lúðvíksóttir og Svava Baldursdóttir 2 hvor og Sigurborg Eyjólfsdóttir, nýliðinn í landsliðinu, 1. Jafntefli á föstudag íslensku stúlkumar náðu jaíntefli gegn þeim bandarísku á föstudags- kvöldið. Lokatölur 18-18 og banda- rísku stúlkumar jöfnuðu á síðustu sekúndum leiksins. Mörk íslands: Guðríður 8/4, Katrín 4, Guðný 3, Ingunn 2 og Svava 1. -BD. ■ „Lltur mjög vel út“ - segir Pétur Guðmimdsson „Það em nú liðnar þijár vikur frá því ég var skorinn upp og það er sá tími sem þeir gáfu mér upp þar til ég mætti fara að hreyfa mig. Þetta lítur mjög vel út og ég er bjartsýnn á framhaldið. Fram- undan em erfiðar vikur í endur- hæfingu og uppbyggingaræfingum en ég mun hvergi gefa eftir,“ sagði Pétur Guðmundsson, körfuknatt- leiksmaður hjá Los Angeles Lakers, í samtali við DV í gær- kvöldi. Pétur var sem kunnugt er skorinn upp við bijósklosi i baki fyrir þremur vikum og verður lengi frá keppni. „Ég veit ekki nákvæmlega hve lengi ég verð frá en ég vonast til að geta byrjað að leika með aðal- liðinu um mánaðamótin janúar febrúar. Ég held að það sé engin óþarfa bjartsýni. Læknamir sögðu mér að uppskurðurinn heföi tekist mjög vel þannig að ég er mjög bjartsýnn á framhaldið," sagði Pétur Guðmundsson. Nánar er greint frá NBA-körfuboltanum á bls. 31. -SK StórsigurVals Valsmenn unnu auðveldan sigur gegn Haukum i úrvalsdeildinni í körfúknattleik en leikur liðanna fór fram íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi með 81 stigi gegn 67. í hálfleik var staðan 48-29 Vals- mönnum i hag. Leikurinn var í öruggum hönd- um Valsmanna allan tímann, það var aðeins í upphafi seinni hálf- leiks sem Haukamir ætluðu að sýna sitt rétta andlit en Valsmenn ýttu þeim jaíhharðan frá sér og unnu öruggan sigur. _,JKS Litið skorað í Hagaskólanum - þegar KR vann Fram, 62-56 ADIDAS er nafnið á framtíð- arsnyrtivörunum fyrir íþrótta- manninn og snyrtimennið. ADIDAS herralinan hefur sér- stöðu á markaðnum, því auk hinna hefðbundnu herrasnyrti- vara er boðið upp á efni sem ganga inn í húðina og eru sér- staklega sniðin fyrir íþrótta- menn: MUSCLE FLUID vöðvamýkjandi FYRIR æfmg- ar, B ODY C O OLER kælandi EFTIR æfingar og MAS- SAGE OIL, nuddolía. Eftirtaldar tegundir eru komn- ar á markaðinn, After Shave, After Shave Balm, Eau de Toi- lette, Deo Spray, Shower Gel, Body Cooler, Muscle Fluid, Massage Oil, gjafakassar. ADIDAS snyrtivörumar munu veita þér aukið sjálfs- traust og vellíðan, jafnt keppni sem starfi. adidas yst sem innst Sími 687747. Framarar halda áfram að tapa leikjum sínum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik og ef fram fer sem horfir bíður ekkert annað þeirra en fall niður í 1. deild í vor. Framarar urðu að lúta í lægra haldi fyrir KR-ingiun sl. laugardag í íþróttahúsi Hagaskólans með 62 stigum gegn 56 eftir að KR-ingar höfðu hafl tóff stiga forystu í hálfleik, 32-20. Sigur KR-inga var öruggari en tölur leiksms gefa til kynna því að þeir höfðu örugga forystu aflan leiktímann og til að mynda höfðu KR-ingar fimmtán stiga for- skot á tímabili í seinni háffleik en þeir gáíú svo aðeins ef'tir á lokasprettinum og Framarar minnkuðu aðeins bilið. Fyrstu fimm mínútumar var jaínræði með liðunum en síðan skildu leiðir og KR-ingar sigldu jafht og þétt framúr á meðan ekkert gekk hjá Fram enda skora þeir ekki nema 20 stig í hálfleiknum. Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik, KR-ingar höfðu leikinn í öruggum höndum og voru á tíma búnir að riá afger- andi forystu, 53-38, en þá slógu þeir aðeins á ferðinm og Framarar nýttu sér það og tókst aðeins að laga stöðuna. KR-liðið var frekar jafht í þessum leik en þó mætti nefha frammistöðu Guðmund- ar Jóhanncssonar en hann sýndi góðan leik og er í mikilli framför. Þorvaldur Geirsson var sem fyrri daginn bestur Framara. Símon Ólafsson kom inn í Fram-liðið á nýjan leik en virkaði frekar þungur enda í engri leikæfingu. Bergur Steingrímsson og Kristinn Al- bertsson dæmdu leikinn og voru frekar mistækir í dómum sínum en það bitnaði þó jalht á báðum liðum. Stig KR: Garðar 16, Guðni 13, Guðmund- ur 12, Ástþór 9, Þorsteinn 8, Matthías 4. Stig Fram: Þorvaldur 22, Jóhannes 11, Símon 8, Jón 7, Auðunn 4, Guðbrandur 2, Ómar 2. -JKS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.