Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986.
Utlönd
f.íí:. V ■ : gsa ':'íwr % aaHiÍF™?"Wraifci. ■ mfe-- _ stiífá?6''*'*"-.
Japanir eru orðnir rikasta stórþjóð veraldar. I sameiningu framleiða þeir meira en öll gömlu stórveldin i Evrópu sem fyrir fáum áratugum drottnuðu yfir meirihluta heimsins í krafti
efnahagslegra yfirburða og þess hernaðar sem með þeim yfirburðum mátti kaupa. Hver um sig þéna þeir tíunda hluta meira en Bandaríkjamenn og tvöfalt meira en Bretar.
„Japanir þurfa ekki tmarbrögð,
það eru trúarbrögð að vera Japani“
Efnahagslegir yfirburðir Japana gera ríki þeiira að vaxandi þungamiðju stjómmála í Asíu
Jón Ormur HaBdórsson, DV, Haag:
Sovétmenn hafa að undanfómu
reynt hvað þeir mega til þess að ijúfa
einangrun sína gagnvart Austur-
Asiu. Þessar tilraunir snúa ekki
einungis að Kína heldur ekki síður
að Japan og nýju iðnríkjunum í
Suðaustur-Asíu.
Japanska hagkerfið er líklega
svipað því sovéska að stærð ef þau
em borin saman með alþjóðlegum
verðmætakvarða. Japanir hafa
mikla yfirburði yfir Sovétmenn á
nokkrum sviðum hagnýtrar tækni
en efnahagsleg samvinna milli ríkj-
anna er hverfandi lítil.
Sovétríkin em líka í sem næst al-
gerri einangmn gagnvart ríkjum
sunnar á þessu heimssvæði og ræður
þar mestu stuðningur þeirra við
hemám Víetnam á Kambódíu sem í
Suðaustur-Asíu er litið á sem ógn
við stöðugleika í þeim heimshluta.
Nýtt stórveldi
Efnahagslegir yfirburðir Japana
gera ríki þeirra að vaxandi þunga-
miðju stjómmála í Austur-Asíu.
Hvar sem farið er um þennan heims-
hluta blasa við auglýsingaskilti
japanskra fyrirtækja og þorri þeirra
bfla, sem um götur fara, er japansk-
ur, svo dagleg dæmi séu tekin um
það sem myndar tilfinningu almenn-
ings fyrir nálægð þessa nýja stór-
veldis.
Á stjómmálasviðinu og enn frekar
á því hemaðarlega fara Japanir hins
vegar varlega. Þeir hafa allar efha-
hagslegar forsendur til að verða
annað eða þriðja mesta herveldi
heimsins en her þeirra er hins vegar
lítill og máttur hans ekki talinn
nægjanlegur til þess að veija þessar
litlu eyjar fyrir Sovétríkjunum eða
Kína, hvað þá til að ógna öðrum.
Fyrir þessu eru sögulegar ástæður,
en stór hluti þjóðarinnar vill engan
eða mjög lítinn her, auk þess sem
stjómarskráin fyrirbýður nokkra
alvarlega uppbyggingu á herafla.
Tíundi hluti allrar
þróunaraöstoöar
I alþjóðastjómmálum láta Japanir
lítið sem ekkert til sín taka á yftr-
borðinu þó þeir greiði stóran og
vaxandi hluta af kostnaði margra
alþjóðastofnana ásamt með því að
veija sem svarar 200 milljörðum ís-
lenskra króna til þróunaraðstoðar.
íbúar lítilla eyja í
jaðri mannhafs-
ins í Asíu fram-
leiða nú meira en
allir íbúar þriggja
stærstu ríkja Evr-
ópu samanlagt
Þetta er tíundi hlutinn af allri þró-
unaraðstoð Vesturlanda og Japan
kemur nú í þríðja sæti á eftir Frakk-
landi og Bandaríkjunum hvað
varðar umfang efriahagsaðstoðar við
þriðja heiminn, þó enn sé þetta lítið
hlutfall af þeirra mikla auði.
f nokkrum stjómmálalega mikil-
vægum ríkjum hafa Japanir tekið
að sér stærstan hluta þróunarað-
stoðar Vesturlanda, eins og á
Filippseyjum, Thailandi, Indónesíu
og Malasíu. Þessari aðstoð hafa
hingað til ekki fylgt stjómmálaleg
skilyrði en obein áhrif fylgja þessari
aðstoð og fara ört vaxandi að mikil-
vægi, ekki síst í þessum heimshluta
þar sem þjóðir em margar á kross-
götum og sundraðar um hvert skuli
halda.
Það sem hægir á og dregur úr
áhrifum Japana á heimsmálin em
fyrst og fremst atriði í þeirra eigin
menningu og sögu, miklu frekar en
nokkrar efnahagslegar eða beinlínis
pólitískar ástæður.
Vaxandi sjálfstraust
Hvort tveggja er að breytast. Það
fennir ört yfir sporin úr síðari heims-
styijöldinni og um leið hefúr sjálfs-
traust Japana vaxið. Þá hefur í
rauninni aldrei skort sjálfstraust í
eiginlegum skilningi en áfall stríðs-
ins leiddi til tilfinninga sem túlka
mætti sem skort á slíku. Japanir em
hins vegar flestir sannfærðir um
menningarlega ekki síður en efna-
hagslega yfirburði sína yfir restina
af mannfólkinu á jörðinni. „Japanir
þurfa ekki trúarbrögð", sagði mér
japanskur maður, „það em trúar-
brögð að vera Japani“, bætti hann
við.
Þó kók og McDonalds hafi fengið
greiðar viðtökur í Japan og margt
evrópskt og amerískt sé í tísku er
þetta öðmvísi land með öðmvísi
menningu sem ekki virðist ætla að
kaffærast af heimsmenningunni að
vestan.
Menningarleg
heimsvaldastefna
Efiiahagslegir yfirburðir gefa Japön-
um kost á að stunda menningarlega
heimsvaldastefnu eins og ríki Evr-
ópu hafa stundað um aldir en ekki
er vist að þeirra flókna menning
renni jafhgreiðlega niður og pen-
ingamenningin að vestan.
Það var svo hvunndagslegt atvik
sem skyndileg gengishækkun jap-
anska yensins í haust sem benti
mörgum Evrópubúum á yfrrvofandi
kaflaskipti í sögu heimsins.
Umsjón:
Hannes
Heimisson
Þegar menn vom búnir að reikna
hagkerfi heimsins út á nýju gengi
kom í ljós að íbúar lítilla eyja í jaðri
mannhafsins í Asíu framleiða meira
en allir íbúar þriggja stærstu ríkja
Efnahagsleg
þungamiðja
heimsins færist
nútil
Evrópu til samans, Bretlands,
Þýskalands og Frakklands. Jap-
anska hagkerfið reiknaðist jafii-
framt talsvert meira en helmingur
af bandaríska hagkerfinu, sem frá
lokum stríðsins hefur keypt yfirburði
Bandaríkjanna í stjómmálum
heimsins.
Það er gömul klisja að tala um öld
Asíu eða öld Kyrrahafsins sem nafn
þess tíma sem upp mun renna á
næstu árum. Þessi klisja geymir hins
vegar nokkum sannleik og tími þess
sannleika er ef til vill nær en fólk í
Evrópu kærir sig um.
Evrópa hefúr verið þungamiðja
heimsins í efiiahagslegu, menningar-
legu, hemaðarlegu og pólitísku tilliti
allt frá því rnenn fóm að líta á heim-
inn sem eina sþannanlega heild við
upphaf þess tíma er Bretar og Spán-
veijar lögðu hálfan heiminn undir
sig.
Ríkasta stórþjóð veraldar
Japanir eru orðnir ríkasta stórþjóð
veraldar. í sameiningu framleiða
þeir meira en öll gömlu stórveldin í
Evrópu sem fyrir fáum áratugum
drottnuðu yfir meirihluta heimsins í
krafti efhahagslegra yfirburða og
þess hemaðar sem með þeim yfir-
burðum mátti kaupa.
Hver um sig þéna þeir tíunda hluta
meira en Bandaríkjamenn og tvöfalt
meira en Bretar. Það er nokkuð síð-
an venjulegur Japani varð ríkari en
venjulegur íslendingur og líklega er
munurinn orðinn fimmtiu til sextíu
prósent Japönum í vil.
Það sem skiptir máli í þessum sam-
anburði er að Japanir em ekki
aðeins ríkir hver um sig heldur em
þeir líka íjölmenn þjóð og staðsettir
í þeim hluta heimsins sem vex örast
að efnahagslegu og pólitísku vægi.
Efnahagsleg þungamiðja heimsins
hefur færst til og það með þeirri
skyndingu að pólitíkin hefúr ekki
náð að fylgja.
Völd Bandaríkjanna í heiminum
em auðvitað alfarið byggð á efna-
hagslegum yfirburðum sem keypt
hafa hemaðaryfirburði sem síðan
hafa tryggt yfirburði í stjómmálum
heimsins. Fyrir aðeins tuttugu árum
var hagkerfi Japana ekki nema eins
og einn tíundi af hagkerfi Bandaríkj-
anna og mikilvægi þjóðanna tveggja
í viðskiptum og stjómmálum heims-
ins var í samræmi við það. Nú er
japanska hagkerfið orðið fimmtíu og
fimm prósent af því bandaríska og
innan nokkurra ára má búast við
að Japanir framleiði eins og tvo
þriðju af allri framleiðslu Bandaríkj-
anna.
Meiri verslun við Kyrrahaf
Fyrir fáum árum fór líka stór hluti
af allri heimsversluninni fram yfir
Atlantshaf og hemaðarlegt og póli-
tískt mikilvægi þess hafsvæðis var í
samræmi við það. Nú er meira versl-
að yfir Kyrrahaf en Atlantshaf og
enn er ör vöxtur í þeirri verslun.
Þessar byltingarkenndu breyting-
ar á efriahagslífi heimsins munu með
tíð og tíma leiða til jafnumfangsmik-
illa breytinga á pólitískum áhrifum
einstakra þjóða í heiminum. Þær
hafa ekki enn orðið að marki en
þessi síðustu misseri hefur mátt
greina teikn um verulegar breyting-
ar til sömu áttar og þær efhahags-
legu.