Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Page 46
46
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986.
Dægradvöl
Bridgeskólinn:
Sögn sem enginn sagði spiluð
Nú nýverið var hinn heimsfrægi
bridgespilari Giorgio Belladonna
staddur hér á landi og spilaði meðal
annars gegn ríkisstjóm vorri ásamt
borgarstjóranum í Reykjavík og
hans mönnum. En það em fleiri en
meðlimir ríkisstjómarinnar og þaul-
vanir bridgespilarar sem hafa verið
iðnir við spilamennskuna undanfar-
ið. í Reykjavík er nefnilega starf-
ræktur bridgeskóli sem Guðmundur
Páll Amarson veitir forstöðu. Skól-
inn hefur verið starfræktur sl. 7 ár
og tók Guðmundur við stjóminni
nú i haust.
Fjórir spaðar spilaöir
DV brá sér í heimsókn á byijenda-
námskeið í Bridgeskólanum sl.
mánudagskvöld og þegar við geng-
um í salinn vom nemendumir að
segja á spil sem Guðmundur hafði
gefið og vom eins spil á öllum borð-
unum. Hann beið stutta stund og
spurði síðan hvort einhver hefði sagt
fjóra spaða. Nei, svo var ekki, og
vom margir undrandi á að það væri
rétta sögnin miðað við spilin sem
þeir vom með. En í þessum skóla,
eins og öðrum, er það kennarinn sem
ræður og fjórir spaðar vom spilaðir
Ahugasamir bridgespilarar i Bridgeskólanum. Kennslan fer fram í Sóknarsalnum.
DV-mynd Brynjar Gaufi
Ljósmyndari DV náði þessari skemmtilegu mynd þar sem hinn heimsfrægi bridgespilari Belladonna þjarmar að
makker sinum. En við skulum vona að nemendurnir i Bridgeskólanum komi ekki til með að taka upp jafnharka-
legar aðgerðir gagnvart makkerum sínum. DV-mynd Bj.Bj.
hvað sem hver haíði sagt. Þá var
ekki eftir neinu að bíða og af stað
fór spilamennskan. 1 ljós kom að
nokkrir stóðu spilið en aðrir töpuðu
því. Guðmundur fór nú yfir spilið
og sýndi nemendum hvemig spila
átti samninginn til vinnings. Þegar
hann fór yfir ferilinn fannst fólki
þetta vitanlega liggja ljóst fyrir þó
svo ekki hefði öllum gengið jafhvel
í úrspilinu.
Síðan tók við annað spil og þá
vom það fjögur hjörtu sem átti að
spila og í þetta sinn kom sú sögn
ffam á allflestum borðunum.
Eftir að skylduspilunum var lokið
fengu nemendumir að spila frjálst
og þá færðist heldur betur lif í hóp-
inn þó svo að klukkan væri farin
að halla í tólf, enda er það alkunna
að bridgespilarar láta klukkuna ekki
aftra sér frá því að taka nokkra slagi.
Meiri aðsókn á
byrjendanámskeiðið
Á byijendanámskeiðinu í Bridge-
skólanum em milli 35 og 40 manns,
meirihlutinn konur. Einnig er boðið
upp á framhaldsnámskeið í skólan-
um þar sem reyndir spilarar geta
fengið góð ráð og lært nýjar brellur.
Aðsóknin á framhaldsnámskeiðið nú
í haust er mun minni en á byijenda-
námskeiðið en ekki er talið æskilegt
að byijendur fari beint á framhalds-
námskeiðið heldur æfi þeir sig fyrst
í spilamennskunni. Að sögn Guð-
mundar er fullorðið fólk í meirihluta
nemenda Bridgeskólans en yngsti
nemandinn, sem hann mundi eftir,
var aðeins 14 ára gamall.
Námskeiðin nú í haust kostuðu
4.800 krónur fyrir manninn og er
kennt 11 kvöld i þijá tíma í senn
einu sinni í viku. Áuk þess fá þátt-
takendur ýmis gögn og heimaæfing-
ar sem þeir þurfa að leysa. Tvö
námskeið eru á vetri og byijar nýtt
námskeið þann 19. janúar nk.
Kerfið sem Guðmundur kennir í
Bridgeskólanum heitir „Standard
American" og sagði hann að það
væri bæði elsta og útbreiddasta kerf-
ið í bridgeinu og hentaði byijendum
sérstaklega vel.
-SJ
Vantar æfingu milli tíma
Það vakti athygh blaðamanns að
við eitt borðanna í Bridgeskólanum
voru fimm spilarar. Ekki gengur það
í bridge, eða hvað? Nei, vitanlega ekki.
Ástæðan fyrir þessum fjölda var ein-
föld, það vantaði nokkra nemendur
þetta kvöld og því fylgdist ein með því
sem ffarn fór og veitti jafnvel góð ráð.
En þær Ragnhildur Brynjarsdóttir,
Rósa Sigursteinsdóttir, Lóa Aradóttir,
Ragnheiður Bjömsdóttir og Sigríður
Gísladóttir skiptust systurlega á um
að taka spil þannig að allar fengu þær
að spila jafiit.
En voru þær allar vanar að spila
bridge áður en þær komu í Bridgeskól-
ann? Nei, ekki vildu þær segjast vera
vanar heldur hefðu þær tekið í spil
áður en vantað ýmis atriði inn í. Þær
sögðust hins vegar vera orðnar nokk-
uð leiknar núna en vantaði helst að
æfa sig milli tímanna sem væm einu
sinni í viku. „Við erum meira að segja
famar að geta sagt rétt og stöndum
samninga og stundum vel það,“ sagði
Rósa.
Eins og ffam kom hjá Guðmundi og
mátti sjá á námskeiðinu em konur í
meirihluta nemenda í Bridgeskólan-
um. Við spurðum þær hvaða ástæðu
Það er ekki vaninn að fimm spilarar séu við borð í bridge en sú var samt raunin i þetta sinn því nokkrir nemendur
i Bridgeskólanum mættu ekki. Konumar létu það ekki á sig fá og skiptust á um að taka í spil. Þær eru, talið frá
vinstri, Sigríður Gísladóttir, Ragnheiður Bjömsdóttir, Ragnhildur Brynjarsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Lóa Aradóttir.
DV-mynd Brynjar Gauti
þær teldu vera fyrir þessari ójöfnu
skiptingu kynjanna í skólanum. „Ég
hef verið að velta þessu svolítið fyrir
mér, ekki síst þar sem bridgeinn er oft
talinn vera frekar áhugamál karla en
kvenna. En é ' held að ástæðan fyrir
ójafnri skiptingu kynjanna hér sé að
þeir byija fyrr að spila og nú em kon-
umar famar að fara meira út og gefa
sér tíma til að stunda áhugamál sín,“
sagði Lóa.
Konumar létu blaðamanninn ekki
trufla sig frá spilamennskunni enda
sögðu þær að bridgeinn yrði alltaf
meira spennandi eftir því sem þær
lærðu meira. Þær sögðust gera fast-
lega ráð fyrir þvi að fara á framhalds-
námskeiðið þegar þær væm búnar að
æfa sig fyrir utan skólann. Það var
sama sagan hjá þeim og á hjónaborð-
inu. Nú em þær famar að lesa bridge-
dálkana og fylgjast mun meira með
umfjöllun um bridge en þær gerðu
áður.
En nú var nóg komið af truflun því
þær vom famar að spila fijálst, sem
er skemmtilegasti tími kvöldsins að
þeirra sögn, og samningar vom komn-
ir af stað.
-SJ