Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1986, Qupperneq 56
p p
TT ASKOTi
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
JRitstJórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Síml 27022
, r
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1986.
Mikil fundahöld samningamanna:
Varla búist við
samkomulagi í dag
Samningaviðræður stóðu yfir alla
helgina og lauk fundi kl. 2 í nótt án
samninga. I dag eru fyrirhuguð
fundahöld innbyrðis hjá verkalýðs-
hreyfingunni og er talið að framhald
samningaviðræðanna ráðist á þeim
fundum. Stefnt var að því að ljúka
samningum í kvöld eða nótt en eins
og staðan var í gærkvöld þótti ólík-
legt að það tækist.
Um helgina var mest unnið í taxta-
uppstokkuninni innan hvers sér-
sambands. Þar er aftur á móti um
svo viðamikið mál að ræða að mun
lengri tíma þarf til að ljúka þeim
málum en ætlaður er til að ljúka
samningum.
í gærkvöld kom svo efhahagsnefnd
aðila saman til fundar og var í snar-
hasti beðið um fund með fjármála-
ráðherra um skattamál en flest gögn,
sem beðið var um frá ríkisstjóm-
inni, em komin til aðila.
I umræðunum um taxtauppstokk-
un um helgina var rætt um þrjár
leiðir sem færar em taldar í þeim
efnum og er í þeim öllum lögð höf-
uðáhersla á að færa taxtakaup nær
greiddu kaupi og inn í það koma að
sjálfsögðu bónusmálin. Hugmyndir
hafa komið fram um að semja aðeins
um lágmarkstaxta en ekki kaup þar
fyrir ofan og einnig að svokölluð
lágmörk geti verið eitt fyrir verka-
fólk og afgreiðslufólk, eitt fyrir
iðnaðarmenn og eitt fyrir skrifstofu-
fólk. Margar fleiri hugmyndir vom
ræddar og ljóst að mikil úrvinnsla
er eftir.
-S.dór
Fjórir frambjóðendur í prófkjöri Alþýðuflokksins fagna hér urslitum prófkjörsins, Jón Bragi Bjarnason sem beið lægri hlut fyrir Láru v. Júlíus-
dóttur, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson og Lára. DV-mynd GVA.
jyx
Ert þú á leið í
AIIKLAOIRD?
Stefan með yfir þúsund stuðningsmenn
„Það er ekkert ákveðið. Það em
mörg ef,“ sagði Stefán Valgeirsson
alþingismaður í morgun um sérfram-
boð í Norðurlandskjördæmi eystra.
„Það getur ekki dregist lengi. Það
verður innan viku,“ sagði Stefán um
hvenær búast mætti við ákvörðun.
„Ég veit að það em komnir eitthvað
dálítið yfir þúsund stuðningsmenn án
þess að ég hafi hringt í nokkum mann.
Það er stöðugt verið að hringja í mig.
Þetta er fólk alls staðar af svæðinu,
til dæmis heill hreppur alveg. Auðvit-
að er þetta langmest á tveimur
svæðum, Norður-Þingeyjarsýslu og
Eyjafirði. Á Akureyri er langtum,
langtum meira en ég hélt. Þetta em
fyrst og fremst framsóknarmenn,"
sagði Stefán.
-KMU
LOKI
En Haraldur var þó
fyrir ofan Þröst.
Veðrið á morgun:
Snjókoma á
sunnanverðu
landinu
Austanátt verður um allt land,
allhvasst eða hvasst og snjókoma |!
á sunnanverðu landinu, hægari ®
austan og norðaustan og él við
norðurströndina. Á Vesturlandi
verður víðast þurrt. Hiti verður á
bilinu -5 til 0 stig.
Færri kusu í
Bolungarvík
„Ég held að við höfum haft þetta.
Það var mjög góð þátttaka á
ísafirði en h'til þátttaka í Bolung-
arvík,“ sagði Steinar Kristjánsson,
kosningastjóri Sighvats Björg-
vinssonar, er hann spáði í úrslit
út frá tölum um kosningaþátttöku
á einstökum stöðum í prófkjöri
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum.
Þar háðu Sighvatur og Karvel
Pálmason einvígi. Atkvæði verða
talin um nsestu helgi.
Alls kusu 1.311 manns eða 40%
fleiri en í prófkjöri þeirra fyrir fjór-
um árum. Á lsafirði kusu 478, f
Bolungarvík 203, nokkm færri en
síðast, á Patreksfirði 135, Flateyri
70, Þingeyri 57, Súðavík 54,
Bíldudal 33 og Suðureyri 32. í
Reykjavík kusu utankjörstaðar
155.
Bolungarvík, Flateyri og Súða-
vík em talin sterkustu vígi Karvels
en Sighvatur er talinn sterkastur
á ísafírði og Patreksfirði. -KMU
1. desember:
Hátíðarfund-
ur og skóflu-
4
stunga
Engar kasningar vom í Háskóla
Islands vegna fullveldishátíðar
stúdenta í dag, 1. desember. „Það
hefur gætt vaxandi óánægju meðal
stúdenta með þessar kosningar um
hveijir eigi að standa að hátíða-
höldunum. Þær þykja ekki f anda
þeirrar samstöðu sem talin er að
eigi að ríkja á þessum degi,“ sagði
Eyjólfur Sveinsson, formaður
Stúdentaráðs, í samtali við DV.
Stúdentar hittast í dag í Há-
skólabíói þar sem fjalfað verður
um innra starf Háskólans og hefst
sá fundur klukkan 14. Strax að
fundinum loknum eða um klukkan
16 mun háskólarektor taka fyrstu
skóflustunguna að nýjum hjóna-
görðum sem Félagsstofriun stúd-
enta byggir. í kvöld verður síðan
stiginn dans á Hótel Borg í takt
við hljómplötur.
-EIR
Jón Sigurðsson:
í leyfí í
ársbyrjun
Búist er við því að Jón Sigurðs-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar,
muni fara í leyfi frá störfum sínum
við stofhunina í byrjun næsta árs,
samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér. Svo sem kunnugt
er skipar Jón efsta sæti framboðs-
lista Alþýðuflokksins við næstu
alþingiskosningar.
Jafriframt er reiknað með því að
Jón dragi sig strax í hlé frá dagleg-
lun störfum við Þjóðhagsstofhun
en muni þar til hann fer í leyfi
sinna innri störfum í stofnuninni
ásamt langtímaverkefhum sem
hann hefur haft umsjón með. Þá
hefur DV öruggar heimildir fyrir
þvi að Jón muni ekki taka þátt í
fiskverðsákvörðunum nó koma
fram fyrir hönd stofnunarinnar við
gerð kjarasamninga. -ój
é
á
s