Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987.
5
Fréttir
Agnúar í umfeidarmálunum:
Okuferill skráður en
skrárnar ekki notaðar
Seint á sjötta áratugnum var byrj-
að að halda skrá um ökuferil manna
í nokkrum lögsagnarumdæmum
landsins. Vegna þess að hún var ekki
haldin alls staðar og þar sem lagaá-
kvæði eru óljós heíúr skráin aldrei
komið að neinu umtalsverðu gagni og
sums staðar er hætt að halda hana.
Sama er að segja um skráðan árangur
ökukennara. Ekkert hefur verið gert
með þá skrá heldur.
Frá þessu segir Jón Baldur Þor-
bjömsson bílaverkfræðingur í rann-
sóknarskýrslu sinni um umferðarslys
hér á landi. Hann segir að auk þess
að ökuferilsskráin hafi ekki komið að
teljandi notum hafi hún, til dæmis í
Reykjavík, eingöngu náð til upplýs-
inga um umferðarlagabrot ökumanna.
„Samræmd ökuferilsskrá íyrir allt
landið væri til margra hluta nytsam-
leg,“ segir Jón Baldur. „Auk eftirlits
með ökuferli ungra ökumanna með
bráðabirgðaökuskírteini mætti hafa
vakandi eftirlit með svokallaðri
punktaskrá, samhliða innköllun öku-
skírteina við ákveðinn refsipunkta-
fjölda.
„Eftir innköllun ökuskírteinis og
með tilliti til eðlis brots yrði um að
ræða fyrirlestra, endurmenntun eða
jafhvel endurtöku bílprófs áður en við-
komandi aðili fengi ökuskírteini á ný.
Með þessu móti yrði ef til vill gmn-
dvöllur fyrir því að hætta endumýjun
ökuskírteina sem hvort sem er hefúr
um of þróast í að vera formsatriði.
Jón Baldur segir þetta þó aðeins
hægt ef læknar yrðu skyldaðir til þess
að tilkynna lögregluyfirvöldum ef þeir
yrðu varir við eitthvað í fari skjólstæð-
inga sinna sem gæti gert þá hættulega
í umferðinni. Einnig þurfi að fylgjast
betur með heilsufari aldraðra öku-
manna og skylda þá til þess að mæta
í læknisskoðun annað hvert ár eftir
Opinberar tölur um umferðarslys eru kolrangar:
Aðeins þriðjungur
slysa er á skrám
lögreglunnar
Samkvæmt niðurstöðu Jóns Bald-
urs Þorbjömssonar bílaverkfræðings
er ekkert að marka þær opinberu tölur
sem gefnar em út um umferðarslys í
landinu. Á skrám sjúkrahúsa koma
fram þrefalt hærri tölur en Umferðar-
ráð fær upplýsingar um frá lögreglu
og em birtar sem staðreyndir um
umferðarslysin.
Þetta hefur raunar legið fyrir um
árabil eftir að Bjami Torfason, læknir
á slysadeild Borgarspítalans, tók sig
til og bar saman skýrslur þaðan og
hinar opinbem upplýsingar frá lög-
reglu og Umferðarráði. Jón Baldur
segir að tölur frá Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri staðfesti niðurstöður
Bjama.
Jón Baldur hefúr nýlega lokið rann-
sókn á umferðarslysum hér á landi og
skilað ýmsum tillögum til úrbóta.
Þetta var upphaflega lokaverkefni hjá
honum til prófs í bflaverkfræði í
Munchen. I skýrslunni greinir Jón
Baldur frá því að fyrir frumkvæði
slysadeildar Borgarspítalans sé nú
unnið að samræmingu slysaskráning-
ar á öllu landinu.
Ætlunin er að sjúkrahús veiti Um-
ferðarráði upplýsingar undir nafn-
leynd. Áður verða lögregluskýrslur
bomar saman við þessar upplýsingar
til þess að komast hjá tvítalningu. Jón
Baldur bendir á að æskilegt sé að jafn-
framt verði samræmt mat lækna og
lögreglumanna á meiðslum af völdum
umferðarslysa eða að læknar verði
látnir einir um það mat hér eftir.
-HERB
Veiðihúsið við Elliðaár:
Endurbygging hafin
Nú er hafin vinna við endurbygg-
ingu veiðihússins við Elliðaár sem
brann nýlega, og samkvæmt upplýs-
ingum, sem DV fékk hjá Hauki
Pálmasyni, aðstoðarrafmagnsstjóra,
verður húsið að öllum líkindum til-
búið fyrir upphaf veiðitímans, 10.
júní næstkomandi.
Sagði Haukur að húsið hefði verið
tryggt og heföi tjónið verið metið á
1,3 milljónir króna, en svo sem kunn-
ugt er var kveikt í veiðihúsinu.
Brennuvargamir hafa enn ekki
náðst.
Haukur sagði að í eldinum heföu
allar innréttingar í húsinu eyðilagst,
gólf, loft og veggir, auk innréttinga,
glugga og hreinlætistækja. Einnig
eyðilagðist í eldinum málverk eftir
Halldór Pétursson listmálara af
veiðistöðum í Elliðaánum. Húsið
verður endurbyggt í sinni upphaf-
legu mynd.
-ój
67 ára aldur til þess að halda ökuskír-
teini sínu.
Varðandi þessi öryggisatriði bendir
• Jón Baldur á árangur Japana, sem
tóku upp notkun ökuferilsskrár og
harðari reglur um ökuréttindi. Meðal
annars þurfa ökumenn í Japan að
endumýja ökuskírteini sín á þriggja
ára fresti og gangast um leið undir
læknisskoðun svo og að hlýða á fyrir-
lestur um umferðaröryggismál eða
jafnvel gangast undir endurmenntun
sem ökumenn. Á árunum 1970-1980
tvöfaldaðist bílaeign í Japan en
dauðaslysum í umferðinni fækkaði úr
16.500 í 8.700 á ári.
-HERB
NýBBC T
Master
Tölvan fyri
þá sem
vilja aðeins
það besta
Verð aðeins
29,900stgr.
Yfir sextíu skólcir
hafa valið BBC tölvur
• 650 I< diskettudrif
• Einlita skjár
• 120 Kb Ram
• 128 Kb Rom
• BBC Basic
• Ritvinnsla
• Alþjóða stafasett
• 10 leikir á diskettu
Laugavegi 63 (VitastígsmeginJ - Sími 6-22-0-25.
OG TEPPABUTUM
TEPPAVERSLUN FRIÐRIKS BERTELSEN H/F, SÍÐUMÚLA 23. S. 686266.
—U-