Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 36
62 • 25 • 25 FRÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fulirar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. v. Rltstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óhá6 dagblað & MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. Helgarskákmótið: Margeir vann Margeir Pétursson bar sigur úr býtum í helgarskákmótinu sem háld- ið var í Hveragerði um helgina. Sigraði hann Jón L. Ámason í hörkuspennandi úrslitaskák og hlaut að launum 25.000 króna verð- launafé. í öðru sæti urðu þeir Jóhann Hjartarson og Jón Kristinsson en alls voru keppendur 40. -EIR Fræðslustjóramálið: Tillagan lögð fram á morgun? Jcn G. Hanksacm, DV, Akuieyii „Ég hef ekki nennt að svara þessu bulli í Sverri. Þetta er ekki vantraust á Sverri, heldur er tillagan gagruýni á tilteknar aðgerðir," sagði Ingvar Gísla- son alþingismaður í morgun. „Ég held að við flytjum tillöguna ekki í dag en líklega á morgun," sagði Ing- var. „Þetta er samkomulag milli okkar Guðmundar Bjamasonar, Steingríms J. Sigfússonar og Ðeiri um að flytja tillög- una.“ Ingvar sagði að tillagan gengi út á að Hæstiréttur skipaði fimm marrna nefnd til að kanna hvort ráðherra hefði haft gildar ástæður til að víkja Sturlu Kristjánssyni úr embætti. Þá kæmi fleira inn í, t.d. varðandi samskipti Sturlu og ráðuneytisins og stöðu Sturlu í augnablikinu. Ingvar sagði að hann legði mikið upp úr því að nefhdin skil- aði skýrslu til almennings, þ.e. birti niðurstöðumar sjálf i fjölmiðlum en skilaði þeim ekki til Alþingis eða ríkis- stjómarinnar. „Mér finnst það stórmál hjá Sverri að segja að um vantraust sé að ræða. Ef hann heldur að við Guðmundur Bjamason höfúm svarið honum ein- hvem sérstakan hollustueið, þá er það rangt.“ Gjafavörur Opið frá kl. 10-19 alla daga vikunnar. GARÐSHORNÍS Suðurhlíð 35 sími 40500 LOKI Ég var með 5 rétta í lottóinu en enga aðra tölu! Starfsfólk í húsgagnaiðnaði samdi í nótt í nótt náðust samningar milli starfsfólks í húsgagnaiðnaði og við- semjenda þeirra. Verður samningur- inn borinn upp á félagsfúndi í dag en boðuðu verkfalli hefur verið frest- að. Þar með hafa náðst samningar í öllum þeim kjaradeilum sem sendar hafa verið til ríkissáttasemjara í þessari lotu. Munu nú allar starfs- greinar hafa samið nema Samband byggingamanna, sem hugsar sér ekki til hreyfings fyrr en með vorinu og yfirmenn á kaupskipum sem lögðu fram kröfur sínar í desember en síðan hefúr heldur lítið gerst í þeirra málum. Yfirmenn sögðust ætla að bíða eftir niðurstöðu í deilu undirmanna. Hún er nú fengin og því má gera ráð fyrir að yfirmenn hugsi sér til hreyfings á næstunni. -S.dór Fimm menntamálaráðherrar Fimm menntamálaráðherrar hittust i sjötugsafmæli Gylfa Þ. Gislasonar í Norræna húsinu á laugardag. Með Gylfa eru Eysteinn Jonsson, Ragnhildur Helgadóttir, Vilhjálmur Hjálmarsson og Sverrir Hermannsson. DV-mynd Bjarnleifur Akureyrin tók niðri Jón G. Hauksscsi, DV, Akureyii Mettogarinn Akureyrin tók niðri í Húsavíkurhöfn um helgina. Skipið tók niðri á sandinum en skemmdist ekkert. Skipið hafði farið til Húsavíkur til þess að ná í olíu. Það var hálfhað í veiðiferð en olía var á þrotum í heimahöfh togarans á Akureyri og því var stefnan tekin á Húsavík. Togarinn var losaður á fióðinu og hélt hann áfram veiðiferðinni. Veðrið á morgun: Bjart veður á Suðvestur- landi Norðaustanátt, smáél við norð- ur- og austurströndina en þurrt og víða bjart veður á Suðvesturlandi. Hiti við frostmark. Glerbrotin i sætum bilsins eftir skemmdarverkin DV-mynd S Yfivgefinn bíll stór- skemmdur „Bíllinn er stórskemmdur. Það var brotin ein hliðarrúðan, rifið aftursætið og brotin klukkan og fleira í mæla- borðinu. Síðan stálu skemmdarvar- gamir tveimur nagladekkjum, þar af öðm undan bílnum, og startköplum og tógi sem ég var nýbúinn að kaupa,“ sagði Róbert Guðmundsson í samtali við DV, en hann varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að skemmdar- vargar lögðu Volvo-bifreið hans í rúst. „Ég varð bensínlaus miðja vegu milli Litlu kaffistofunnar og Þrengslavega- mótanna og skildi bílinn eftir þar síðastliðinn þriðjudag. Á fostudaginn fóm svo tveir kunningjar mínir til að ná í bílinn en þá var hann horfinn. Bíllinn fannst hjá kranaþjónustu Ein- ars Finnssonar og hafði hann verið fjarlægður að beiðni lögreglunnar. Lögreglan veit litið um hvað gerðist. Þeim var tilkynnt á fimmtudaginn að bílinn stæði þama allur í rusli og létu því fjarlægja hann, en þeir vita ekkert hverjir vom þama að verki,“ sagði Róbert. „Þetta er mikið tjón fyrir mig því tryggingamar bæta ekki svona lagað. En ég kæri auðvitað og vona bara að sökudólgamir finnist." -VAJ íraninn úr landi Iraninn, sem verið hefúr í haldi hér á landi undanfarið, var sendur áleiðis til Bandaríkjanna á laugardag og dvelur nú hjá skyldmennum sínum þar, sam- kvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Þorsteini Geirssyni, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Samkvæmt heimildum blaðsins fékk íraninn vegabréfeáritun til Bandaríkj- anna hjá sendiráðinu hér á landi en hefði sú áritun af einhveijum ástæðum ekki verið tekin gild þar hefði hann haft endurkomurétt til Lslands, sam- kvæmt upplýsingum Þorsteins Geirs- sonar. Svo sem kunnugt er taldi Iraninn sig ekki geta farið aftur til heimalands síns þar sem hann áleit líf sitt í hættu kæmi hann þangað aftur. Þegar síðast spurðist af ferðum Iran- ans var hann kominn til bróður síns sem býr í Salt Lake City. -ój Nýlist stolið Um helgina var brotist inn í Nýlista- safnið á Vatnsstíg. Úr safriinu var stolið fjórum verkum eftir Rönku. Var hér um að ræða fjórar litlar myndir, óinnramm- aðar. Ekki virtust þjófamir hafa haft áhuga á öðru og engar aðrar skemmdir voru unnar. Í í i i i i i í í i -FRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.