Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. FEBRUAR 1987. 7 Fréttir Ráðstefha um frostskemmdir í steypu: Kæruleysi á byggingarstað á stóran þátt í vandanum Ráðstefaa norrænna sérfræðinga, sem fást við frostskemmdir í stein- steypu, var haldin hér á landi um liðna helgi. Þar báru menn saman bækur sínar varðandi þetta mikla og vaxandi vandamál. Bjami Jónsson bygginga- tæknifræðingur sat ráðstefauna og sagði hann menn hafa orðið sammála um að fyrir utan steypuna sjálfa væri meðferð hennar á vinnustað oft á tíð- um aðalskaðvaldurinn. Þar væri um hreint kæruleysi að ræða. Nefadi hann sem dæmi of mikla vatnsþynningu, ofaotkun víbratora, ófulfaægjandi fiágang steypumóta, að mótin væru tekin of snemma utan af steypunni, of htla eingangrun þegar steypt væri í frosti og fleira. Þá sagði Bjami vegna viðtals við hann í DV sl. föstudag að þar hefðu ekki komið nógu skýrt frarn ýmsir aðrir þættir en vond steypa sem valdið gætu frostskemmdum. Hann sagði að orsakir steypuskemmda gætu verið til að mynda efaahvarf í steypunni sem er þekkt hér sem alkalískemmdir, sprungumyndanir af ýmsum orsökum, tæring í jámabindingum til dæmis vegna kolsýmverkunar, hönnunar- gallar og fleira. „Þá er það alveg ömggt að ef mann- virki springa af einhverjum orsökum þá munu frostskemmdir eiga sér stað og tæring í jámabindingum hefst allt- af ef sprungur opnast inn að henni. Á ráðstefaunni vom menn sammála um að mun meira eftirlit á byggingarstað þyrfti að koma til. Það margborgar sig fyrir þá sem em að steypa upp hús að fá sér sérfræðing til að hafa eftirlit með uppsteypunni til að koma í veg fyrir að kæruleysi á vinnustað verði þess valdandi að skemmdir komi fram á mannvirkinu síðar,“ sagði Bjami Jónsson. -S.dór við Kúagerði Bíll valt við Kúagerði um íjögurley- tið síðastliðna laugardagsnótt. Femt var flutt í slysadeild, ungur drengur, sem ók bílnum, og þijár stúlkur. Þau fengu öll að fara heim að skoðun lo- kinni. Bíllinn er mikið skemmdur. Að sögn lögreglunnar í Keflavík var nokkur hálka á veginum og er öku- maðurinn talinn hafa ekið fallgreitt miðað við aðstæður. -VAJ Lyfjum stolið Talsverðu magni af lyfjum var stolið úr Laugavegsapóteki aðfaranótt laug- ardagsins. Lögreglunni var tilkynnt um innbrotið klukkan tíu um morgun- inn. Að sögn rannsóknarlögreglunnar er ekki ljóst ennþá hvaða lyfjum inn- brotsþjófamir stálu eða hversu miklu, né heldur hverjir vom hér að verki. Málið er í rannsókn. ____________________-VAJ Kveiktu í skúr Kveikt var í skúr í landi Fífuhvamms í Kópavogi rétt eftir hádegi í gær. Lögreglumenn á eftirlitsferð urðu eldsins varir og var skúrinn þá orðinn alelda. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi var greinlegt að eldurinn var af mannavöldum og fundust fótspor eftir unglinga við skúrinn. Skúrinn hafði auðsjáanlega staðið opinn en ekki er enn vitað hvað var geymt í honum þar sem ekki hefur náðst í eigandann. Skúrinn brann til kaldra kola að heita má, aðeins grindin stendur uppi. -VAJ Q' ** LAUNPEGAR! Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur skattframtala 1987 er AMOBGUN Ríkisskattstjóri Bíl velt Wagoneer n AMC Jeep ÞAÐ ER VALIÐ Cherokee 6 cyl., 173 hö. „var 115 hö.“, 4 gíra sjálf- skipting m/vinnsluvali og þróaðasta fjórhjóladrifinu, „Selec-Trak“. ECILL VILHJÁLMSSON HF Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202. 1987 ER glæsilegri, kraftmeiri, þægilegri og fullkomnari. Söiuumboö Akureyri: Þórshamar hf. - sími 22700.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.