Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Síða 12
12 Neytendur MÁNUDAGUR 9. FEBROAR 1987. POSTULÍNSMÁLUN Námskeiðin eru að byrja. Uppiýsingar í síma 30966. VEISTU HVAÐ ER INNIFALIÐ I FERMINGARMYNDATÖKUNNI HJÁOKKUR? 14 til 16 prufur í stærðinni 9x12 cm, 2 prufur, 18x24 cm, önnur í gjafamöppu en hin í ramma Við geymum ávísanir yðar eins lengi og lög leyfa. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 4-30-20. Ljósmyndastofan Mynd, sími 5-42-07. RIKIS SPITAL AR LAUSAR STÖÐUR Hjúkrunarfræðingar óskast á allar vaktir nema nætur- vaktir á öldrunarlækningadeild Landspítalans. Sjúkraliðar óskast á allar vaktir á öldrunarlækninga- deild. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast á fastar morgunvaktir frá kl. 8 til 13 á öldrunarlækningadeild. Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunar- framkvæmdastjóri öldrunarlækningadeildar Landspít- alans, Hátúni 10B, í síma 29000 - 582. Náttúrufræðingar og meinatæknar óskast til starfa við Blóðbankann. Upplýsingar veitir yfirlæknir Blóðbankans í síma 29000. Fóstra eða starfsmaður óskast nú þegar í fullt starf við barnaheimili ríkisspítala, Stubbasel við Kópavogs- braut. Upplýsingar veitir forstöðumaður barnaheimilisins í síma 44024. Starfsfólk óskast í eldhús Landspítalans í fulla vinnu og í 75% vinnu. Einnig óskast bakaranemi og aðstoð- armaður í eldhús Landspítalans. Upplýsingar veitir yfirmatráðsmaður Landspítalans í síma 29000 - 491. Starfsmaður óskast í hlutastarf í býtibúr á geðdeild Barnaspítala Hringsins við Daibraut. Vinnutími frá kl. 17 til 20. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 84611. Reykjavík, 9. febrúar 1987. Framkoma og þekking starfsfólks oft meira virði en þekkt vömmerki Raunasaga af Ronsonkveikjara „Ég hef þann ósið að reykja (pípu) og hef hingað til notast við kveikj- ara til að tendra mína pípu með góðum árangri. Það var svo um jólin að mér var gefinn pípukveikjari af dýrustu gerð. En ekki er allt gull sem glóir því sannarlega var hann gylltur og fagur þegar úr kassanum kom. Eftir fáeina daga bilaði kveikjar- inn sem er af Ronson gerð. Fór ég þá til umboðsaðilans sem er I. Guð- mundsson & Co sem rekur bæði innflutning og viðgerðarþjónustu á umræddum kveikjurum. Gert var við kveikjarann á meðan ég beið og var mér sagt að þetta hefði aðeins verið smávægileg bilun. Fáeinum dögum síðar bilar gripur- inn á ný og aftur fór ég á fund viðgerðarþjónustunnar. Þá er þar fyrir annar viðgerðarmaður sem reyndist durtur hinn mesti. Ekki vildi hann kannast við að umræddur gripur hefði komið til viðgerðar áður og fletti því til sönnunar bók sem notuð er við innskrift á biluðum hlutum. Þar var jú ekkert að finna þvi fyrri viðgerðarmaðurinn skráði ekki neitt. Þvi næst spyr viðgerðar- maðurinn hvort ég hafi fiktað við kveikjarann eða hvort ég væri með kveikjarann í óhreinum vösum. Þetta væru viðkvæmir kveikjarar. Þótti mér framkoma mannsins með ólíkindum dónaleg. Varð ég fúll og strunsaði út með durtinn á hælunum og bilað tól. Ekki vildi ég gefast upp við svo búið og aftur var kveikjara- skömminni komið í viðgerð og þá af versluninni sem seldi hann. Ekki dugði sú viðgerð fremur en fyrri daginn. Fór ég þá aftur á ný til umboðsins og fyrir svörum varð durturinn. Sagði ég honum að enn væri kveikj- arinn bilaður. Fór hann þá afsíðis með kveikjarann, kom að smástund liðinni og rétti mér. Ég bað hann vinsamlegast að færa viðgerðina í bókina góðu (af fyrri reynslu). Færa hvað í bókina, það var ekk- ert að kveikjaranum. Það vantaði aðeins gas á hann, sagði viðgerðar- maðurinn! Ég hafði sem sagt ferðast milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur til að fá áfyllingu af Ronsongasi á tólið hjá durtinum í Þverholtinu. Að lokum. Framkoma og þekking starfsfólks er kaupanda oft meira virði en þekkt vörumerki. Hafnarfirði, febrúar 1987, Yngvi- Guðmundsson. -A.BJ. Verðsamanburður í nokkrum borgum: Reykjavík langdýrust Við rákumst í erlendu blaði á sam- anburð á verði nokkurra hluta í stærstu borgum heims. Við könnuðum verð á sömu vörum í Reykjavík og þarf víst ekki að taka það fram að verðið í Reykjavik reyndist langhæst. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er mikill verðmuniu' milli borga. Inn- kaupakarfan, sem miðað var við, kostaði 1.884 krónur í Reykjavík en ekki nema rétt um 300 krónur í Mexí- kóborg. í öðru sæti var svo Tokýo en aðeins hún ein borga veitti Reykjavík ein- hverja samkeppni um það að vera dýrust. Þar kostaði karfen kr. 1.420,30. Karfan samanstóð af algengum neysluvörum. í henni voru egg, mjólk, duftkaffi, kjúklingar, brauð, ginflaska, York, Lundúnum, París, Tokýo og baunir og sápa og var kannað í New Mexíkóborg. -PLP Rvk. New York London Paris Tokýó Mexíkó Brauð 40 38,20 12,10 73,30 71,70 11,30 Mjólkurlítri 39 30,80 27,30 28,00 53,80 10.90 12egg 110 50,30 68,60 90,80 74,80 26,50 Grænarbaunir 50 20,60 18,70 15,20 54,60 7,00 Frosinn kjúklingur 259 103,30 191,80 191,80 274,10 100,00 Instantkaffi 267 140,00 105,70 147,80 214,80 55,00 Ginflaska 1090 381,40 499,20 478,50 621,20 117,00 Sápustykki 29 24,90 10,50 16,70 55,30 3,90 Alls 1884 789.50 933,90 1042,10 1420,30 331,60 Heimsendur þorramatur Það er ekki bara prins póló og kók sem hægt er að fó heimsent þessa dagana. Nú er einnig hægt að fó þorramatarbakka heimsenda á kvöldin og nóttunni ef sérstök löng- un í slíkan mat gerir vart við sig, kannski í næturpartíi. Tveir ungir matreiðslumenn, Sig- urður Garðarsson og Ingi Þór Jónsson, bjóða upp á heimsending- arþjónustu á þorramatarbökkum. Þeir eru báðir „aldir upp“ í Naustinu sem er eins konar Mekka þorramat- arins og segjast því geta með réttu kallað sig „lærða þorramenn". Á boðstólum eru sautján tegundir af þorramat á bakkanum sem vegur um 1 kg með kartöflu- og rófustöppu og kostar hver bakki 590 kr. auk 100 kr. heimsendingarkostnaðar á hvem bakka. Þetta nýja fyrirtæki heitir Þorri sf. og síminn er 68 84 06. -A.BJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.