Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 16
16 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. Spumingin Hvernig líst þér á endurreisn Útvegsbankans sem hlutafé- lagsbanka? Jens Guðni Guðmundsson ellilífeyr- isþegi: Mér líst ágætlega á það. Það er alveg prýðilegt ef bankinn kemst á laggirnar aftur. Það er náttúrlega mikilla hagsmuna að gæta því bank- inn er byggður á gömlum grunni og sú vinna má ekki fara í súginn. Jóhannn Sveinsson bifvélavirki: Mér finnst að það hefði átt að tryggja hlutdeild ríkisins í honum meira. Hann er byggður upp sem ríkisbanki og mér finnst að hann hefði átt að halda því fyrst þeir eru að rétta hann við á annað borð. Guðbjörg Siguijónsdóttir kennari: Mér líst mjög vel á það. Það byggist nú bara á tilfinningalegri hefð hjá mér en er ekkert vitsmunasvar. Pabbi minn skipti alltaf við þennan banka og því geri ég það. Þorkell Samúelsson lögreglumaður: Mjög vel. Ég er feginn að Útvegs- bankinn haldi velli því ég skipti alltaf við bankann og mun halda því áfram. Sigþrúður Sverrisdóttir bankastarfs- maður: Alveg ágætlega. Ég persónu- lega hefði þó fremur kosið að Útvegsbankinn yrði sameinaður Iðn- aðar- og Verslunarbankanum það hefði verið vænlegri kostur. Auður Gísladóttir bankastarfsmað- ur: Ég hef allt gott um það að segja. Ég er búin að starfa svo lengi í Út- vegsbankanum að ég er einróma sammála þvi að Útvegsbankinn verði i áfram. Lesendur Bætt postþjonusta Bjöm Bjömsson póstmeistari skrif- ar: í DV hinn 2. febrúar kvartar borg- ari, sem skrifar undir dulnefiiinu Þengill, yfir stirðbusalegri afgreiðslu í einni af póstafgreiðslum borgarinn- ar. Póststofan hefur lagt sig eftir á undanfömum árum að bæta póst- þjónustuna í borginni, meðal annars hefúr hún sett sér takmark með póst- dreifinguna. Þetta takmark er að póstur, sem póstlagður er fyrir lokun pósthúsanna, kominn til borgarinn- ar utan af landi eða til Keflavíkur- flugvallar erlendis frá fyrir kl. 17, verði borinn út í Rvk eða kominn í flutningstæki næsta dag. Þessu tak- marki hefur verið náð. Á sama hátt hefúr verið unnið að betri afgreiðslu í póstútibúum borgarinnar, t.d. með fjölgun útibúa og hagræðingu á af- greiðsluháttum, þannig að við- skiptavinir geti í flestum tilfellum Það er Ijóst að bið Þengils er ekki óeðlilega löng miðað við að um toll- skylda vöru er að ræða. fengið alla afgreiðslu hjá sama af- greiðslumanni. 1 nýja póstútibúinu Rvk 3, sem opnað verður í Kringl- unni í ágúst, og í póstútibúinu Rvk 5 við Hlemm, sem flytur í nýtt hús- næði í vor, veitir sami afgreiðslu- maður alla þjónustu. Með þessari hagræðingu hefúr tekist að stytta biðtíma fólks á póstútibúum veru- lega þannig að það telst til undan- tekningar ef um verulega bið er að ræða. Af skrifúm Þengils mætti ætla að átt væri við þessa venjulegu þjón- ustu en svo er ekki heldur er verið að sækja tollskylda vöru í tollaf- greiðslu póststofúnnar. Tollskyldur póstur þarf að fa miklu meiri um- fjöllun en almenn sending. Meðal annars er innflytjanda ætlað að skila útfylltri aðflutningsskýrslu, sem hinum almenna borgara, sem ekki stundar innflutning, er í flestum til- fellum ofviða. Póststofan hefur því tekið að sér, þegar um smásendingar til einka- nota er að ræða, að sjá um þennan þátt. Allar þessar sendingar þurfa einnig að fara til umijöllunar hjá Tollgæslunni, þetta veit Þengiil líka. Af framansögðu er ljóst að bið Þeng- ils er ekki óeðlilega löng, miðað við að um tollskylda vöru er að ræða. Bjóðum ekki hættunni heim Jón Ólafsson skrifar: Mikið hefúr verið rætt um ír- anska flóttamanninn og hvort veita eigi honum landvistarleyfi hérlendis eður ei. Ég er mótfallinn því að veita manninum landvistar- leyfi af þeirri einföldu ástæðu að maðurinn kemur til landsins á fölskum forsendum og ef hann fær það, þá fylgja aðrir á eftir og þá fyrst skapast ófremdarástand. Ég verð að viðurkenna að ég haföi fyrst alls enga skoðun á þessu og var frekar hlynntur þessu en hitt því auðvitað finnur maður til með fólki er býr við slík kjör sem margt af þessu fólki. Viðhorfin breyttust er ég flutti til Danmerkur og bjó þar í nokkur ár. Ástæðan er ekki sú að ég sé kynþáttahatari, síður en svo, en þetta fólk er alið upp í svo gjörlíkri menningu og hugsar því allt öðruvísi en við, þar koma vandræðin fyrst upp. Ég held að við íslendingar megum þakka fyrir hversu öruggu og góðu samfélagi við búum í, við skulum því ekki bjóða hættunni heim. Bæði í Dan- mörku og Svíþjóð má segja að sé vandræðaástand vegna erlendra flóttamanna. Lærum af reynslu annarra þjóða og gerum ekki sömu mistökin. Leiðréttíð skattþrepin Bryndís Baldursdóttir hringdi: Mig langar að koma á framfæri athugasemd um skattþrepin. Ég fékk uppgefið að fyrsta þrepið af 412 þúsundum yfir árið væri 18% og af næstu 412 þús. (þ.e. þegar upphæðin er kominn upp í allt að 824 þús.) var 28,5%. Ég get ekki betur séð en að með þessu fyrirkomulagi borgi þeir sem eru með um 34 þús. á mánuði sömu skattprósentu og þeir sem eru með rúm 68 þús. í laun. Hvaða réttlæti er í þessu? Röggsemi Sverris Garðbæingur hringdi: Við, nokkrir Garðbæingar, sem höfúm fylgst með moldviðrinu í kringum ágæt störf Sverris menntamálaráðherra, sendum honum þakkir fyrir skyldurækni og kjark. Ekki veitir af slíku í okkar spillta þjóðfélagi. Einnig sendum við þakkir til Guðrúnar Helgadóttur alþingis- manns sem ávallt eykur virðingu sína hvert sinn er hún sést eða í henni heyrist í fjölmiðlum. Það væri gaman að sjá hvemig Björgvin Halldórsson myndi standa sig í Euro- vision söngvakeppninni. Eurovisíon söngvakeppnin Látið Bjövgvin sönginn Sævar Guðmundsson hringdi: Mig langar að koma þeirri tillögu á framfæri í sambandi við Eurovision söngvakeppnina að Björgvin Hall- dórsson verði valinn söngvari fyrir hönd íslendinga. Það væri gaman að sjá hvemig hann stæði sig í stykkinu. ,Við viljum hvetja stjómvöld til að upplýsa og fræða almenning meira um þennan vágest' Fáfræði um eyðni 2 Austfirðingar skrifa: Við erum héma 2 unglingsstúlkur og erum mjög fáfróðar um eyðni. Reyndar kom maður frá krabba- meinsfélaginu til okkar og sagði okkur frá eyðni í smáatriðum og eitt af því fáa var að fólk gæti bara smit- ast af eyðni við samfarir, maður hefur nú reyndar heyrt annað og því væri æskilegt ef fólk væri upplýst um hvemig er hægt að smitast af eyðni á annan hátt en við samfarir. Einnig vildum við koma á fram- færi að fólk á ekki að hafa þessa fordóma gagnvart eyðnisjúklingum, þetta er ábyggilega allt alveg frnasta fólk sem hefur orðið fyrir meiri óheppni en aðrir. Kæm landsmenn, elskið náunga ykkar þó að um eyðnisjúkling sé að ræða. Við sam- hryggjumst þeim sem em svo óheppnir að fá þennan sjúkdóm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.