Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 26
38
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Nokkurt magn af loönu var komiö í bræðslugrunninn áður en farið var að girða í kringum hann eins og sam-
þykktir bæjaryfirvalda kveða á um. DV-mynd Þorgerður
Neskaupstaður:
Brutu samþykktir yfirvalda
- þegar loðnu var ekið í gamla bræðslugrunninn
Þoigerður Malmquist, DV, Neskaupeaö:
Að undanfömu hefur loðnu verið ekið
í gamla bræðslugrunninn á Neskaup-
stað. Var byrjað að aka loðnunni í
grunninn án þess að nokkur af þeim
skilyrðum og samþykktum, sem bæj-
arstjóm Neskaupstaðar og héilbrigð-
isnefnd samþykktu, væm haldnar.
Ein aðalsamþykktin var að girða
skyldi grunninn áður en loðnu væri
ekið í hann. Síðan skyldi yfirbreiðslu
komið fyrir til vamar frekari mengun
eða slysum en þess má geta að íbúðar-
húsnæði er á næstu grösum. Engu af
þessum skilyrðum var fullnægt áður
en byijað var að flytja loðnuna í
grunninn.
En nú horfir til bóta í þessu máli
því skömmu eftir að loðnunni var ekið
í grunninn var hafið að reisa girðingu
í kringum hann. Það vandamál ætti
því að vera úr sögunni.
Siglufjörður:
íþróttamenn heiðraðir
Guönumdur Daviösscm, DV, Sigiufiiði:
Nýlega vom íþróttamenn á Siglufirði
heiðraðir. Það var Kiwanisklúbburinn
Skjöldur sem hélt þeirri árlegu venju
sinni að heiðra íþróttafólkið. Þetta var
í fyrsta sinn sem slíkt var gert á opnum
fundi og vom gestir um 200 talsins.
Athöfnin hófst með því að hljóm-
sveitin Cargo lék nokkur lög. Þá fluttu
íþróttafulltrúi og forseti bæjarstjómar
ávörp og Þorgeir Reynisson söng gam-
anvísur við undirleik Sturlaugs
Kristjánssonar.
Birgir Guðlaugsson afhenti síðan
viðurkenningamar fyrir hönd Kiwan-
isklúbbsins Skjaldar. í flokki 16 ára
og yngri hlutu eftirtaldir viðurkenn-
ingu: Dagur Gunnarsson fyrir knatt-
spymu, Sölvi Sölvason fyrir skíði,
Kristján Sturlaugsson fyrir sund, Jó-
hann Bjamason fyrir badminton.
í flokki 17 ára og eldri þessir: Hafþór
Kolbeinsson fyrir knattspymu, Oddur
G. Hauksson fyrir badminton, Freyr
Sigurðsson fyrir golf.
Ör þesum hópi var síðan valinn
íþróttamaður Siglufjarðar 1986.
Sæmdarheitið hlaut Sölvi Sölvason
göngugarpur.
Kiwanisklúbburinn Skjöldur heiðraði siglfirska íþróttamenn um daginn. Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri.
DV-mynd Guðmundur.
Auglýsingastofumar:
Þjónusta Miðlunar
ekki sambærileg
„Þegar Miðlun segist ætla að dreifa
auglýsingum fyrir 7% þóknun í stað
15% hjá auglýsingastofúnum er ekki
um neina sambærilega þjónustu að
ræða. Hjá Miðlun er aðeins um dreif-
ingu að ræða, punktur og basta.
Auglýsingastofumar sjá um allt annað
og meira. Þær gera auglýsingaáætlun
fyrir fyrirtækið, fylgjast með hvort á
þessu augnabliki sé rétti tíminn til að
auglýsa þetta eða hitt. Miðlun þarf
því ekki að greiða laun því fólki sem
annast alla áætlanagerðina og fram-
kvæmdina. Þess vegna er þetta ekki
sambærilegt," sagði Sólveig Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra auglýsingastofa, vegna fiétt>
ar um að Miðlun væri að fara í
samkeppni við stofúmar.
Þá sagði Sólveig það alrangt að aug-
lýsingastofumar tækju í sinn vasa
þann afelátt sem hinir ýmsu fjölmiðlar
gæfu. Hann færi beint til viðskiptavin-
arins. Þá benti hún á að það 15%
þjónustugjald, sem auglýsingastofum-
ar fengju, væri greitt af viðkomandi
flölmiðli, ekki af viðskiptavininum
sem verið væri að auglýsa fyrir. Auk
þess væri það nokkuð mismunandi
hvað fjölmiðlamir greiddu í þjónustu-
gjald. Það væri til að mynda allt frá
10% og upp í 17% hjá Rflrisútvarpinu
og færi eftir auglýsingamagni.
„Því er það út í hött að bera þetta
tvennt saman og getur aldrei orðið
um samkeppni þama í milli að ræða,“
sagði Sólveig Ólafedóttir.
-S.dór
Það leit illa út fyrir Grundfirðingum föstudagskvöld eitt um daginn þeg-
ar rafmagnið fór fyrirvaralaust af. Orsökin var sú að eldur hafði komið
upp í aðalspennistöð staðarins. Gekk greiðlega að slökkva hann og var
rafmagn aftur komið á tæpum tveim stundum síðar. Á myndinni er
slökkviliðið við störf sín. DV-mynd Bæring/Grundarfirði
Mikill kippur færist i byggingarframkvæmdir i Olafsvík í ár.
Ólafsvík:
Vaxandi bygg-
ingarframkvæmdir
Siguijín Egilssan, DV, Ólafevik:
Um nokkurra ára skeið hefur verið
helst til lítið um byggingarfram-
kvæmdir í Ólafevík. Þó var á sl. ári
byggt nýtt verbúðar- og fiskvinnslu-
hús. Þetta hús er rétt um 900 fermetra
stórt, en það er í eigu þriggja útgerðar-
fyrirtækja í Ólafevík. Þar mun verða
tekin í notkun ný fiskverkunarstöð á
þessari vertíð. Á nýbyrjuðu ári er ljóst
að mikill kippur mun færast í bygging-
arframkvæmdir. Þegar hefur verið
hafist handa við byggingu nýrrar fisk-
verkunarstöðvar auk þeirrar sem
þegar hefur verið getið. Byggðar verða
5 íbúðir á vegum Framkvæmdanefrid-
ar um verkamannabústaði. Þá hafa
fleiri sótt um lóðir til byggingar á
íbúðarhúsnæði en gert hefúr verið í
mörg undanfarin ár. Vonir standa til
að iðngarðar verði byggðir á þessu ári
eða næsta. Líklega munu fjögur fyrir-
tæki í ólafevík sameinast um þessa
byggingu. Apótek Ólafevikur mun
byggja nýtt hús undir sína starfeemi
á þessu ári. Upplýsingar um framan-
tr.ldar byggingarframkvæmdir fékk
fréttaritari DV hjá Kristjáni Pálssyni
bæjarstjóra.