Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1987, Page 28
40 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1987. AndJát Guðmundur Guðmundsson, bif- reiðastjóri, Kársnesbraut 90, lést af slysförum 5. febrúar. Sigurþór Breiðfjörð Gunnarsson, lést í Svíþjóð 27. desember 1986. Út- förin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmundur Björgvin Bjarnason, Sólheimum 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.30. Útför Gríms Aðalbjörnssonar, Hraunbæ 86, fer fram frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 15. Soffia Bjarnadóttir, Öldugötu 53, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 9. febrúar, kl. 13.30. Svava Ásmundsdóttir, Mjóasundi 3, Hafnarfírði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 15. Tilkynningar Aðalfundur AFS á íslandi fyrir árið 1987 verður haldinn laugardag- inn 21. febrúar í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti B-sal, og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Fundarsetning, 2. kosning fundarstjóra, 3. venjuleg aðalfundarstörf, 4. kynning á starfi AFS á fslandi vegna 30 ára afinælis starfsemi AFS hér á landi, 5. önnur mál. Kaffivei: ingar verða á boð- stólum í fundarhléi. Nýir félagar boðnir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs heldur fund fimmtudaginn 12. febrúar kl. 20.30 í félagsheimilinu. Að loknum fundar- störfum verður spilað bingó. Betri bækur Nýverið tók til starfa nýtt bókafélag er nefnist Betri bækur. Fjögur bókaforlög standa að rekstri þess en þau eru: Svart á hvítu, Mál og menning, Hið ísl. bók- menntafélag og Lögberg. Markmið félags- ins er að gefa mönnum kost á að eignast vandaðar og eigulegar bækur á að minnsta kosti fjórðungi lægra verði en áður. í boði verða nýjar bækur, sígildar bækur sem þegar eru á almennum markaði ásamt handbókum og uppflettiritum sem endast og oft er gripið til. Bókafélagið Betri bæk- ur mun veita félögum sínum góða og vandaða þjónustu, t.d. fá þeir senda dag- bók árlega með nafninu sínu gylltu á. Betri bækur hefur aðsetur að Laugavegi 8 og símanúmer félagsins er 622229. ..\ Vökvadrifin spil fyrir línu og net. ungmennafélag Islands flytur í nýtt húsnæði I febrúar 1986 festi Ungmennafélag Islands kaup á húseigninni Öldugötu 14 fyrir starfsemi sína og seldi um leið húsnæðið sem hreyfingin átti að Mjölnisholti 14, en þar hafði þjónustumiðstöð UMFl verið síðan 1978. Oldugata 14, er um 50 ára gam- alt hús og var áður í eigu Halldóru Zoega ekkju Geirs Zoega útgerðarmanns, þetta hús er mjög stórt en hentugt fyrir alla þjónustustarfsemi UMFl. Er þar mjög rúmgóð og vistleg gistiaðstaða fyrir félög og hópa utan af landi, auk góðrar aðstöðu fyrir skrifstofur. Sunnudaginn 25. janúar sl. var húsnæðið tekið formlega í notkun með kaffisamsæti, og var margt gesta við það tækifæri. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, bauð gesti velkomna og þakkaði fyrir gjafir þær er UMFÍ voru færðar. og sagði síðan frá aðdraganda þess að þetta hús var keypt og sögu þess í stuttu máli. Við þessa breytingu á húsakosti UMFI skapast betri aðstaða til að aðstoða sam- böndin og félögin á flestum sviðum og er fyllsta ástæða til að hvetja þau til að nýta sér það hér eftir sem hingað til því þetta er jú eign þeirra. Boss 15s björgunarbúningur- inn viðurkenndur af Siglinga- málastofnun Ríkisins Landssamband hjálparsveita skáta hefur tekið að sér að vera umboðsaðili fyrir bj örgunarbúninga frá Dunlop Marin Ltd. Björgunarbúningarnir frá Dunlop hafa verið notaðir hér á landi síðan 1984 og reynst vel. Þeir björgunarbúningar, sem hér hafa verið í notkun, eru af Nord 15s gerð en það nafn hefur aðeins verið notað í Noregi, annars staðar er nafnið Boss 15s notað. Boss nafnið verður notað hér á landi og verður aðaláherslan lögð á björg- unarbúning af Boss 15s gerð sem hefur verið viðurkenndur af Siglingamálastofn- un ríkisins. LHS hefur góða reynslu í sölu á neyðarvörum. Það hefur flutt inn neyð- arvörur fyrir skip og báta í mörg ár. Einnig flytur LHS inn björgunartæki og búnað fyrir hjálparsveitirnar í landinu. Á næst- unni munu Dunlop verksmiðjurnar og LHS standa fyrir fyrirlestrum um áhrif kulda á mannslíkamann og notkun og meðferð björgunargalla. Þessir fyrirlestr- ar verða kynntir síðar. Á myndinni afhendir Magnús Jóhannesson John G. Skelton, fulltrúa Dunlop verksmiðjanna, viðurkenningarskírteini fyrir Boss 15s björgunarbúninginn. Rafdrifnar Eiektra færavindur, 12vog24v. Tvær stæröir. ERUM FLUTT AÐ LYNGÁSI 11 ELEKTRA HF. Lyngási 11, Gardabœ, simar 53688, 53396. Kvennalistinn í Austurlands- kjördæmi Kvennalistinn hefur ákveðið framboð í Austurlandskjördæmi til Alþingiskosn- inga í vor. Um nokkurt skeið hefur verið starfandi angi frá Kvennalistanum á Höfn. Hafnarkonur og Kvennalistakonur úr Reykjavík héldu kynningarfundi ásamt heimamönnum helgina 9.-11. janúar víðs vegar um fjórðunginn. Þar sem mikill al- mennur áhugi var á málefnum Kvennalist- ans var ákveðið að bjóða fram í kjördæminu til næstu Alþingiskosninga. Minningarspjöld Kvenfélags- ins Seltjarnar vegna kirkjubyggingarsjóðs eru seld á eft- irfarandi stöðum: Bæjarskrifstofunum á Seltjarnarnesi, s. 612100, á bókasafni Sel- tjamarness, s. 611585, og hjá Láru Jóhannesdóttur, Látraströnd 24, s. 620423. BÓLSTRUN B JARNA HOLABERG 78 REYKJAVIK • LADA SPORT EÍGENDUR! VIOBJÓ-ÐUMÍ EINUM PAKKA. Þægilecaog HLÝLEGA STÓLA MEÐ STILLANLEGUM BÖKUM. FARPEGASÆTISBAK VELTUR FRÁM OG SÍOAN STÓLLINN ALLUR. AFTURSÆTI KLÆTT i SAMA STÍL. 078020 EINNIG TEPPI Í BÍLINN FYRIRl>Á ,SEM VILJA. í gærkvöldi Bergþóra Ámadóttir: „Þó ég verði með 50 stiga hita“ Ég horfði lítið á sjónvarp á föstu- dagskvöldið. Á laugardaginn afoeit- aði ég öllu nema þögninni vegna veikinda. Á sunnudaginn hins vegar hlustaði ég á Hemma Gunn sem fer yfirleitt á kostum. Ég hef sjálf verið í þætti hjá honum og veit að hann nær ótrúlega miklu út úr fólki. Einn- ig hlustaði ég á I fréttum var þetta ekki helst og get ekki sagt annað en að ég sakni Éddu Björgvinsdóttur úr þeim þáttum. Seinna um daginn plantaði ég mér fyrir framan sjón- varpið og horfði á Stundina okkar. Þar finnst mér hann Stulli alltaf að verða skemmtilegri og skemmtilegri. Hann er að verða fastmótaður kar- akter og enn skemmtilegri eftir að hann fékk bílpróf. Að því búnu horfði ég aftur fyrir tilviljun á Þrí- fætlingana og það verð ég að segja að ég skil ekkert í honum og get ekki skilið hvemig böm eiga að botna í þeim þætti. Kannski er ég sjálf svo seinþroska. Það er alltaf gaman að Á framabraut. Þar á eftir Berþóra Árnadóttir. stillti ég yfir á Stöð 2 og horfði á það sem var ótruflað, á Cagney og Lacey sem mér finnst góður að því leyti að hann er svo mannlegur. Og ég vildi óska þess að ég gæti fengið mér afruglara því mér finnst efoið á Stöð 2 mun betra. Geisli varð næstur fyrir augum mínum. Hann er einn af þeim þáttum er ég botna ekkert í. Silja Áðalsteinsdóttir las þar eitt fallegt ljóð og bókmenntafræðingar vom að tala um það eftir á og þótt- ust sjá einhvem svokallaðan fer- hyming. Og ég þori að veðja að höfundurinn hafi ekkert hugsað út í það er hann var að semja ljóðið. Það síðasta sem ég horfði á var Goya. Ég bíð spennt eftir því að sjá Böð- ulinn og skækjuna í kvöld og þó að ég verði með 50 stiga hita ætla ég að horfa. Það verður gaman að sjá viðbrögðin við þeirri mynd saman- ber nýársleikrit sjónvarpsins, sem ég gjaman vildi að yrði endusýnt. Tímarit Nýtt Mannlíf er komið ut Fyrsta tölublað Mannlífs á árinu 1987 er komið út. í fersku blaði með nýju útliti er að finna fjölbreytt efni: Helena Alberts- : dóttir, sem kölluð hefur verið hulduherfor- inginn, segir írá lífi sínu og starfi í stjórnmálum hér heima og úti í Bandaríkj- unum. Kristján Loftsson, framkvæmda- stjóri Hvals hf. svarar fyrir sig og lýsir áliti sínu á náttúruverndarmönnum og því sem hann nefnir skipulagða skemmdar- starfsemi Bandaríkjastjómar til að grafa undan efnahagslegu sjálfstæði Islendinga. Einar Örn segir frá galdramönnum hér heima og erlendis og frá iðkun svartagald- urs og lífsviðhorfi þeirra sem lifa í fom- eskjulegum fræðum dulhyggjunnar, Mannlíf ræðir einnig við Þórarin Óskar Þórarinsson, fyrirmynd skáldsagna Einars Kárasonar, og aðra af skyttum Friðriks Þórs auk þess sem birt er sýnishom af ljós- myndum hans. Meistaraknapinn Sigur- bjöm Bárðarson segir frá litríkum ferli, nokkrir lögreglumenn lýsa erfiðu starfi og samskiptum við samviskulausa smygl- ara og fíkniefnaneytendur. Bergljót Árnadóttir leikkona segir á opinskáan hátt frá sigrum sínum og vonbrigðum. I þetta sinn á Mannlíf einkaviðtal við sænska leikarann Erland Josephson sem öðlast hefur heimsfrægð fyrir leik sinn í myndum Ingimars Bergmans og Andrei Tarkofskis. Þá em viðtöl við Þór Eldon, Sigríði Guðmundsdóttur og Karl Aspe- lund. Ásgeir Tómasson lýsir hruni rásar tvö. Ritstjóri Mannlífs er Ámi Þórarins- son og útgefandi er Fjölnir hf. Mannlíf er 140 síður að stærð og að stórum hluta lit- prentað. Verð í lausasölu er 299 kr. og áskriftarsími 687474. Ýmislegt „Plötusnúður ársins 1987“ Nú er framundan diskótekarakeppni fé- lagsmiðstöðvanna annað árið í röð. I ár munu allar félagsmiðstöðvarnar í Reykja- vík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellssveit senda diskótekara í keppn- ina. Keppnin er fyrst og fremst fyrir unga og uppreimandi plötusnúða til að spreyta sig og koma sér á framfæri. Þannig bíður sigurvegarans að spreyta sig í diskótekum bestu skemmtistaða í Reykjavík og koma fram í fjölmiðlum. Vegleg verðlaun fylgja þessum titli, 4-rása Power diskómixer frá Japis og plötuverðlaun. Sigurvegarinn hlýtur titilinn „plötusnúður ársins 1987“ og ber hann í eitt ár. Þátttöku er hægt að tilkynna nú þegar í öllum félagsmið- stöðvum og þar verða jafnframt undan- keppnir. Úr undankeppnum komast tveir áfram í undanúrslit í Frostaskjóli sem fer fram dagana 18., 23. og 25. febrúar. Aðeins einn plötusnúður kemst síðan áfram af hverju þessara kvölda í úrslitin sjálf, föstudaginn 27. febrúar í Frostaskjóli. Öll- um unglingum á aldrinum 13-17 ára er heimil þátttaka. Skráning og pöntun á æfingartíma fer fram í félagsmiðstöðvum. Allar frekari upplýsingar eru veittar í Frostaskjóli í síma 622120. Ferðlög Útivistarferðir Helgarferðir 13.-15. febr. 1. Tindafjöll í tunglskini. 2. Þorraferð í Þórsmörk. Uppl. og farm. á skrifst., Gróf- inni 1, símar: 14606 og 23732. Myndakvöld í Fóstbræðraheimilinu fimmtudag. 13. febrúar. Sjáumst. Tapað - Fundið Labrador tík týnd Gul labrador tík, 5 mánaða, tapaðist uppi við Hafravatn föstudaginn 30. janúar sl. Hún er með ljósbrúna, ómerkta ól og svar- ar kallinu Lady. Þeir sem hafa orðið varir við hana vinsamlegast hafið samband við Ingibjörgu í síma 71099 eða vs. 18240. Trúnaðarbréf afhent Þrír nýskipaðir sendiherrar afhentu 27. janúar sl. forseta Islands trúnaðarbréf sín, að viðstöddum Matthíasi Á. Mathiesen utanríkisráðherra. Þeir eru: sendiherra Uganda, frú Edith Grace Ssempali, sendi- herra Albaníu, hr. Shpetim Caushi og sendiherra Lesotho, hr. Bishop Augustine Tlelase. Sendiherrarnir þáðu síðan boð forseta Islands að Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherrar Uganda og Le- sotho hafa aðsetur í Kaupmannahöfn, en sendiherrar Albaníu situr í Stokkhólmi. Veski tapaðist Grátt leðurveski með skilrikjiun tapaðist í miðbænum. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 71634. Afrnæli 75 ára verður á morgun, 10. febrúar, Gunnar Skapti Kristjánsson til heim- ilis að Austurbrún 37, Reykjavík. Hann fæddist og ólst upp á Sigríðar- stöðum í Ljósavatnsskarði, S-Þin- geyjarsýslu. 60 ára verður á þriðjudaginn, 10. fe- brúar, Stefnir Sigurðsson, sjómað- ur, Skeggjagötu 23 hér í bæ. Kona hans er Guðrún Gestsdóttir. Þórður M. Jóhannesson sjó- mannatrúboði, Fálkagötu 10 hér í Grímsstaðaholtinu. Hann ætlar að taka á móti gestum í Fóstbræðra- heimilinu, Langholtsvegi 109-111, á afmælisdaginn eftir kl. 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.